Frjáls verslun - 01.09.1998, Page 38
Guðný Harðardóttir framkvœmdastjóri.
TRA Starfsráðningar ehf. í Mörkinni 3 bjóða upp á
alhliða ráðgjöf í starfsmannaráðningum fyrirtækja
sem og starfsmannamálum almennt. Vanti fyrir-
tæki starfsmann sér STRÁ um að samræma óskir vinnu-
veitanda og umsækjanda. Ráðningin er klæðskerasniðin
að óskum beggja, báðir aðilar verða að vera fullkomlega
ánægðir og STRÁ hefur tekist að velja réttan starfsmann
fyrir rétt starf.
Guðný Harðardóttir, framkvæmdastjóri og annar tveggja eigenda
STRÁ Starfsmannaráðninga, segir að STRÁ sé að renna inn á fimmta
starfsárið en þekking og reynsla starfsmannanna nær þó mun lengra.
Hún sjálf hefur til dæmis starfað á þessu sviði í fjórtán ár, en fjórir
starfsmenn aðrir eru hjá fyrirtækinu.
STRÁ er ein af þremur leiðandi ráðningarþjónustum hérlendis og
sérhæfir sig í ráðningum allt frá sendlum til framkvæmdastjóra eins
og Guðný kemst að orði. „Til okkar koma að meðaltali um 40 manns
á dag og við byggjum þjónustu okkar á mjög góðri skrá yfir störf sem
og umsækjendur og trúnaði við bæði fyrirtækin sem eru að leita eft-
ir starfsfólki og umsækjendurna. Við erum með á skrá mörg þúsund
manns með haldbæra menntun og marktæka reynslu í fjölbreytileg-
ustu störfum, hvort sem er almennum störfum eða stjórnunar- og
ábyrgðarstörfum innan hvers konar fyrirtækja.
Fyllsta trúnaðar gætt
Sérstaða STRÁ er meðal annars fólgin í því að enginn fyrningar-
tími er á umsóknum. Þar af leiðandi er mjög stór hópur manna á skrá,
sem er í störfum en vill hafa augun opin fyrir nýjum og betri störfum
og er tilbúinn til að færa sig um set ef eitthvað áhugavert býðst.
Veita fyrsta
flokks faglega þjónustu
Pálína Hinriksdóttir ritari t.v. og María Ósk Björk Bjarkadóttir ráðningarfulltrúi.
Birgisdóttir aðstoðarráðningarfulltrúi.
Guðrún Hjörleifsdóttir ráðningarfulltrúi.
AUGLÝSINGAKYNNING ,
38