Frjáls verslun - 01.09.1998, Qupperneq 39
Starfsmenn STRÁ Starfsrábningar ehf
„Þessi hópur treystir okkur til að að gæta
fyllsta trúnaðar. Sama gildir að sjálfsögðu
um fyrirtækin sem eru að leita að starfs-
mönnum. Við veitum ekki upplýsingar um fyr-
irtæki eða starfsmann nema með samþykki
beggja."
Starfsmaður í leit að starfi leggur inn
gögn sín hjá STRÁ og ræður síðan sjálfur
ferðinni í ráðningarferlinu. Ekki eru gefnar
upplýsingar nema eitthvað komi inn við hæfi
umsækjandans og hann veiti sjálfur leyfi til
þess. Sama gildir um vinnuveitendur. „STRÁ
er með tengsl við fyrirtæki allt að 14 ár aftur
í tímann og við eigum því að þekkja þarfir
þessara fyrirtækja. Oft látum við vinnuveit-
anda vita ef inn kemur aðili sem fellur vel inn
í starfsumhverfi fyrirtækisins, en að því
gefnu að búið sé að ræða við umsækjandann
áður."
Auðveldar leitina að hæfum
starfsmönnum
STRÁ hefur séð um mannaráðningar
fyrir ýmis leiðandi fyrirtæki í mörg ár og auð-
veldað þeim leitina að hæfum starfsmönnum
án þess að þau þurfi að eyða til þess miklu af
eigin tíma. Sé þess óskað auglýsir STRÁ eft-
ir starfsmanni en annar kostur er að hringja
og leggja inn verkbeiðni símleiðis. Vinnuveit-
andinn velur ævinlega á milli þriggja úr-
valskandídata sem allir eiga að kunna og
geta það sem til er ætlast. Vinnuveitandinn
leggur línurnar og STRÁ samræmir þær kröf-
um umsækjendanna. „Ef svo ótrúlega skyldi
fara að ráðningin takist ekki þá berum við
ábyrgð á þjónustu okkar og finnum annan að-
ila í stað hins, vinnuveitanda að kostnaðar-
lausu. Veitt er þriggja mánaða ábyrgð á
ráðningu í almenn störf en sex mánaða
ábyrgð á ráðningu í ábyrgðar- eða stjórnun-
arstöður," segir Guðný. Ráðningarsamningar
fylgja ævinlega í þjónustupakka STRÁ, enda
er skylda að gera slíka samninga og í þeim
eru einnig nákvæmar starfslýsingar.
Guðný segir að STRÁ vinni að hluta til
eins og lítil auglýsingastofa þar sem fyrir-
tækið sjái um að auglýsa laus störf fyrir
vinnuveitandann ef hann óski þess, hvort
heldur í eigin nafni eða nafni Starfsráðninga,
en vegna þess umfangsmikla gagnabanka,
U32333EEIEinJEniSI3
sem fyrirtækið byggi á, séu 99% verkbeiðna
sem berast, aldrei auglýstar. Aðeins í þeim
tilvikum að kanna þurfi markhóp vegna mjög
sérhæfðra starfa eða ef vinnuveitandinn vill
vekja athygli á að hann hefur áhuga á að
bæta nýjum starfsmönnum í hóp þeirra sem
fyrir eru, eru störfin auglýst. „Með því að
auglýsa ekki er hægt að spara vinnuveitand-
anum auglýsingakostnaðinn um leið og við
vinnum hraðar þegar nýr starfsmaður er
fundinn í gagnabankanum hjá STRÁ."
„Við leggjum áherslu á að við erum ekki
að selja heldur erum við að veita fyrsta
flokks faglega þjónustu," segir Guðný Harð-
ardóttir, framkvæmdastjóri STRÁ. „Við vönd-
um okkar vinnubrögð og skilum marktækum
árangri viðskiptavinum og umsækjendum í
hag."
STRÁ’
ehf.
STARFSRÁÐNINGAR
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Murkinni 3,108 Rcykjavík, slmi: 588 3031, brcfsími 588 3044
39