Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 51

Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 51
Hlutfallsleg aukning veltu + •• Röö-“ Jj— -Veltu- Velta Hagn. á ■ —~ -=F —-c_——oreyi. í millj. í millj. aðal- f.f. ári króna fyrir lista Fyrirtæki í% skatta 256 Háfell ehf., verktakar 190 387 6 452 Navís - Landstelnar hf 159 66 -2 69 Opin kerfi hf. 132 2.112 55 37 Marel hf. Rvk. 119 4.156 207 Þau juku veltu sína mest á síðasta ári. veltu sína mest. Navís-Landsteinar, litlu lægra. Nokkur þekkt fyrirtæki stukku litlu lægra en Háfell á síðasta ári. Þau voru Navís, nú Navís-Landsteinar, Opin kerfi og Marel. Fyrirtækið Sól-Víking kom næst á eftir þessum fyrirtækjum í veltu. Rekja má mikla veltu Opinna kerfa og Marels að nokkru til kaupa þeirra á öðrum fyrir- tækjum. Þess má geta að Navís sameinaðist Landsteinum um síðustu áramót. ffl HAFELL ER HASTOKKVARI □ innan á Grundartanga er stærsta verkefni sem við höfum tekið að okkur,” segir Eiður Haralds- son, aðaleigandi og framkvæmdastjóri Háfells. Hann stofnaði fyrirtækið árið 1979 ásamt Gunnari Sig- urbjartssyni sem seldi raunar sinn hlut í fyrirtækinu þegar það var gert að hlutafélagi árið 1986. Gunnar vinnur hins vegar mikið fyrir Háfell sem verktaki. Háfell hóf framkvæmdir fyrir álverið á Grundar- tanga hinn 1. apríl á síðasta ári og lauk þeim nýlega. Fyrst i stað var unnið á vöktum allan sólarhringinn og komu að því verki um 40 til 50 manns þegar mest var. Fyrirtækið er einnig með þriggja ára verkefni fyrir Vegagerðina við Fljótsheiðina - en hún er á milli Goða- foss og Reykjadals í Þingeyjarsýslu. Helstu verkefni Háfells núna er breikkun Gullinbrúar í Grafarvogi; um 130 milljóna króna verk, gatnagerð í Lindahverfi í Kópavogi, undirvinna fyrir nokkra olíu- tanka sem Olíudreifing er að flytja úr Laugarnesi út í Örfirisey; 30 milljóna króna verk, gatnagerð í Mosfells- bæ og loks er það vinna fyrir Hafnarfjarðarbæ vegna nýrrar byggðar þar í bæ. NÝTASÉR UNDIRVERKTAKA Eiður segir að þótt Háfell sé ekki stórt fyrirtæki í sjálfu sér kjósi það frekar að kaupa vinnu smárra undir- verktaka við einstaka framkvæmdir í stað þess að fara út í dýrar fjárfestingar á tækjum vegna nýrra, tíma- bundinna verkefna. Þannig sé reynt að draga úr áhætt- unni við að eiga of stóran tækjaflota. Eiður er rafvirki að mennt en sneri sér fljótlega að jarðvegsvinnu hjá fyrirtækinu Ytutækni en það var nokkuð þekkt fyrirtæki fyrir 25 árum. Síðan stofiiaði hann Háfell. Ytutækni er raunar eitt fárra fyrirtækja í þessari áhættusömu grein sem hætt hefur starfsemi án þess að hafa verið komið í þrot. ffl V J- ‘ ; ; * A meðal verkefna Háfells er undirvinna í Örfirisey fyrir þá olíu- tanka sem Olíudreifing er að flytja úr Laugarnesinu - sem og að koma tönkunum uþp á þurrt land. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.