Frjáls verslun - 01.09.1998, Síða 54
MARKAÐSMÁL
Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marels. Við kauþin á danska fyrir-
tœkinu Carnitech tvöfaldaðist velta Marels. Um 85% framleiðslu
Marels eru flutt út. Helsti markaðurinn er í Norður-Ameríku; í
Bandaríkjunum og Kanada. En mikill vöxtur er á mörkuðunum
í Bretlandi og Þýskalandi.
Hans Petersen og Hug-forritaþróun en þó ekki meirihluta
í þeim fyrirtækjum. Nýjasta fjárfesting Opinna kerfa var
svo þegar þau keyptu á dögunum tæplega 39% hlut í
Tæknivali.
„Við teljum að í Tæknivali sé svigrúm til að hagræða og
bæta reksturinn og að sú ijárfesting skili okkur arði. Hlut-
hafar í Opnum kerfum hafa frá upphafi treyst algerlega á
Hewlett Pakard merkið en með íjárfestingum okkar á und-
anförnum misserum má segja að hluthafarnir séu að dreifa
áhættunni og draga um leið úr henni,” segir Frosti Bergs-
son. 50
CARNITECH TVOFALDAÐIMAREL
egar Marel tilkynnti í fyrravor að það hefði keypt
danska fyrirtækið Carnitech kom fram að við kaup-
in myndi velta Marels tvöfaldast. Það hefur gengið
eftir. Marel jók veltu sína um 119% á síðasta ári og liggur sú
aukning fyrst og fremst í kaupunum á Carnitech. Fyrirtæk-
in hafa ekki verið sameinuð heldur kemur Carnitech inn í
ársreikninga Marels sem dótturfyrirtæki þess. Forstjóri
Marels er Geir A. Gunnlaugsson en stærsti hluthafinn er
Eimskip í gegnum dótturfélag sitt Burðarás.
Velta Marels-samsteypunnar var tæplega 4,2 milljarðar á
síðasta ári og hagnaður fyrir skatta um 207 milljónir. Um
helmingur veltunnar er velta Carnitech. Rætur Marels
liggja í framleiðslu á tölvuvogum en helstu vörur fyrirtæk-
isins núna eru svonefndir vigtarflokkarar og skurðarvélar.
A þessu ári hefur fyrirtækið tvöfaldað sölu sína á tækjabún-
aði fyrir kjúklinga- og kjötframleiðslu. Velta Marels er því
enn að aukast.
PAKKINN ER HUGVITOG SMIÐJA
Marelsmenn eru á því að kaupin á Carnitech hafi geng-
ið framar vonum. Fyrirtækin hafa ólíkan brag. Marel er í
eðli sínu dæmigert háskólafyrirtæki þar sem slagkraftur-
inn er hugvit og hugmyndir. Carnitech er hins vegar rót-
gróið iðnfyrirtæki þar sem „smiðjan” er þungmiðjan. Fyr-
irtækin hafa þegar með sér nokkra samvinnu í framleiðslu-
og markaðsmálum þótt rekstur þeirra sé fyllilega aðskil-
inn.
ÚTLÖND ERU MARKAÐUR MARELS
Marel flytur út um 85% af framleiðslu sinni. Helsti mark-
aður fyrirtækisins er í Norður-Ameríku; Bandaríkjunum
og Kanada. Um þriðjungur sölunnar er þangað og það
sama gildir um Carnitech. Carnitech er að vísu sterkara á
heimamarkaði en fyrirtækið rekur verksmiðju í Seattle á
vesturströnd Bandaríkjanna. Aðrir helstu markaðir Marels
eru í Evrópu. Marel selur mikið til Noregs en salan til Bret-
lands og Þýskalands hefur aukist umtalsvert.
Framleiðsla Marels fer eingöngu fram á Islandi. Fyrir-
tækið er með stóra smiðju í húsnæði sínu við Höfðabakk-
ann. Marel rekur sex sölu- og þjónustuskrifstofur erlendis;
í Kanada, tvær í Bandaríkjunum, Danmörku, Frakklandi
og sú nýjasta er í Bretlandi. B3
talnakonnun.is
Úfgáfúfyrirtæki Frjálsrar verslunar,
Talnakönnun, hefúr opnað heimasíðu á Netinu.
Slóðin er www.talnakonnun.is
Talnakönnun gefur út ritin Frjálsa verslun, Vísbendingu og Islenskt atvinnulíf.
A heimasíðunni er að finna upplýsingar um Talnakönnun, eldri tölublöð af Vísbendingu,
valdar greinar úr Frjálsri verslun og umfjallanir um íslensk fyrirtæki úr Islensku
atvinnulífi.
Komið í heimsókn - slóðin er www.talnakonnun.is
54