Frjáls verslun - 01.09.1998, Síða 58
Innflutningur
Qiðskipti Þýskalands og íslands
eru mjög mikilvæg fyrir þjóð-
arbúskapinn.
„Þjóðverjar eru ein af elstu og
sterkustu þjóðum í viðskiptum í heim-
inum í dag og sú þjóð sem hefur hvað
hæst hlutfall þjóðartekna af útflutn-
ingi. Þýskaland er þriðja stærsta hag-
kerfi heims, á eftir Bandaríkjunum og
Japan. Þetta er fornfræg þjóð sem á
aldalanga sögu í heimsviðskiptum.
Við Islendingar nutum t.a.m. góðs af
siglingum þýskra Hansakaupmanna
fyrir tíma danskrar einokunar,“ segir
Páll Kr. Pálsson, formaður Þýsk-ís-
lenska verslunarráðsins.
„Þýskaland er stærsta innflutnings-
þjóð okkar íslendinga með um 12% af
innflutningnum. Þeir eru í öðru sæti
hvað varðar útflutning. A síðasta ári
fóru rúm 15% útflutnings okkar til
Þýskalands, rúm 40% af útflutningi
okkar þangað er fiskur og fiskafurðir
og um 46% ál.
Innflutningur okkar frá Þýskalandi
er mjög fjölbreyttur. Iðnaðarefni, bún-
aður til iðnaðarframleiðslu, vélar og
tæki ásamt farartækjum, einkum bif-
reiðum, eru stærstu vöruflokkarnir.
næsta íslandsdag í Hamborg í
febrúar á næsta ári og leggja
þá aðaláherslu á sjávarafurðir
og fiskvinnslu með áherslu á
sérhæfða úrvinnslu.“
VILJUM AUKA ÞÝSKAR
FJÁRFESTINGAR Á ÍSLANDI
Fyrirspurnum til Þýsk-ís-
lenska verslunarráðsins hefur
ijölgað verulega og má segja að
ráðið hafi fest sig í sessi sem mik-
ilvægur tengiliður íslensks við-
skiptalífs við það þýska.
„Við teljum að auknar fjárfestingar
þýskra stofnanafjárfesta og fyrirtækja
í íslensku atvinnulífi geti verulega
glætt útflutning á íslenskum vörum til
VÆGIÞYSKALANDS MUN AUKAST
Það er ekki síður hlutverk Þýsk-íslenska
verslunarráðsins að treysta
viðskiptatengslin á þeim sviðum þar sem
þau eru traust fyrir en að afla nýrra. Við
eigum að rækta vel samskiptin við
Þýskaland því vægi þess í Evrópu mun
aukast og styrkur Þjóðverja vaxa.
íslendingarflytja mest
innfrá Þýskalandi.
Þýskalands og þann-
ig aukið breiddina í
útflutningi okkar.
Þjóðverjar hafa
fjárfest á ýmsum
sviðum hér, þeir
eru t.d. sú þjóð
sem hefur lagt
mest fé í íslenskar
kvikmyndir og það
mætti nota til að
laða að enn fleiri
ijárfestingar.
Á íslandi er úr-
vinnsluiðnaður á ýmsum sviðum þar
sem Þjóðverjar búa yfir geysilegri
tækniþekkingu. I því sambandi nægir
að nefna álframleiðslu, lífefnaiðnað, sjó-
efnavinnslu og þurrkun á timbri. Ef við
fengjum þýska fjárfesta inn í fyrirtæki
sem þessi efast ég ekki um að nýir
markaðir myndu opnast í kjölfarið. ís-
lenskur hugbúnaður er annað dæmi.
Þangað ættum við að reyna að veita
þýsku ijármagni til framtíðaruppbygg-
ingar. Þetta tekur hinsvegar langan
tíma en þarna eru sóknarfæri." Þjóð-
veijar eru Jjölmennastir í hópi erlendra
ferðamanna sem leggja leið sína til ís-
FLYTJUM MESTINN FRÁ ÞÝS
Páll Kr. Pálsson, fomadur Þýsk-íslenska verslunarrádsins, segir Þjóöverja helstu
hvaö innflutning snertir! Þá kaupa þeir nœstmest
Það sem við hjá Þýsk-íslenska
verslunaráðinu horfum mikið til í okk-
ar starfi er að auka breiddina í útflutn-
ingnum til Þýskalands. Við höfum haf-
ið það verkefni með því að efha til ís-
landsdaga í Þýskalandi sem hafa verið
haldnir þrisvar sinnum. Fyrsta kynn-
ingin var í Díisseldorf vorið 1996, þar
sem áhersla var lögð á orkufrekan
iðnað og ferðamannaiðnað. Árið eftir
héldum við svo Islandsdag í Bremer-
haven þar sem matvælaiðnaður og
flutningastarfsemi voru í brennidepli.
Síðan vorum við í Frankfurt síðastlið-
ið vor þar sem við lögðum áherslu á
ísland sem vettvang fyrir þýska fjár-
festa. Við höfum ákveðið að halda
ÞJÓÐVERJAR FJÁRFESTA HÉRLENDIS
Þjóðverjar hafa fjárfest á ýmsum
sviðum hérlendis, þeir eru t.d. sú þjóð
sem hefur lagt mest fé í íslenskar
kvikmyndir og það mætti nota til að
laða að enn fleiri fjárfestingar.
ÞÝSKIR FERÐAMENN
Þjóðverjar eru fjölmennastir í hópi
erlendra ferðamanna til íslands og á
meðal þeirra er áhugi á íslandi, íslenskri
menningu, ísienskum hestum og
íslenskri náttúru mjög útbreiddur.
lands og meðal Þjóðveija er áhugi á ís-
landi, íslenskri menningu, íslenskum
hestum og íslenskri náttúru mjög út-
breiddur. Páll bendir á að það sé ekki
síður hlutverk ráðsins að treysta við-
skiptatengslin á þeim sviðum þar sem
þau eru þegar traust fyrir en að afla
nýrra. Við eigum að rækta vel sam-
skiptin við Þýskaland því vægi þess í
Evrópu mun aukast og styrkur Þjóð-
verja vaxa.
FORMENNSKAN ENGIN TILVILJUN
Það er engin tilviljun að Páll Kr.
Pálsson er formaður Þýsk-íslenska
verslunarráðsins. Hann stundaði há-
skólanám í Þýskalandi í nokkur ár og
58