Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 60
Kolbeinn Kristinsson, framkvæmdastjóri Myllunar-Brauða hf, og Björn Jónsson markaðs-
stjóri. Fyrirtækið hefur sett þýsku saltkringluna bretzel á markað hérlendis.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
BORÐA BRETZEL
HVENÆR SEM ER
Kolbeinn Kristinsson, framkvæmdastjóri Myllunnar-
Brauða hf, segir fyrirtœkið alla tíð hafa skipt mikið
við Þjóðverja og bæði keypt afþeim tœki og hráefni.
Qyrirtækið Myllan-Brauð hf. er
farið að flytja inn bretzel, salt-
kringlu sem upprunnin er í
Suður-Þýskalandi og algeng er um allt
Þýskaland og í Bandaríkjunum.
Bretzel er nýjasti ávöxturinn í sam-
starfi fyrirtækisins við erlenda fram-
leiðendur.
„Við höfum í auknum mæli farið
að starfa með framleiðendum erlend-
is. Við höfum látið erlenda framleið-
endur framleiða fyrir okkur ákveðnar
vörur, sem við getum ekki framleitt
jaíhgóðar og á því verði sem markað-
urinn hérna vill af því að hann er of lít-
ill. Þannig höfum við farið að fást við
ýmsar sérvörur og látið erlenda fram-
leiðendur framleiða fyrir okkur. Þessi
tiltekna vara á heima í Þýskalandi og
þess vegna er eðlilegt að leita þang-
að,” segir Kolbeinn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Myllunnar-Brauða hf.
FÆST JAFNVEL Á VEITINGAHÚSUM
Myllan-Brauð hf. hefur alla tíð átt
mikil viðskipti við Þjóðveija. Þjóðveij-
ar eru ein mesta brauðaþjóð heims og
því hefur fyrirtækið keypt af þeim
bæði tæki og hráefni. Myllumenn
hafa að undanförnu flutt inn nan
brauð við miklar vinsældir og nú hafa
þeir ákveðið að flytja inn bretzel í
verksmiðjupakkningum og selja í bak-
aríum til að byija með. Smám saman
mun fyrirtækið sækja með bretzel inn
á fleiri markaði þannig að neytendur
geti keypt bretzel pakka í stórverslun-
um og bakað sjálfir. Bretzel mun jafn-
vel fást á veitingahúsum.
„Þjóðveijar borða bretzel hvenær
sem er dagsins, bæði í morgunmat og
síðdegis. Þeir setja allt mögulegt á
kringluna, til dæmis pepperoni og
ost,” segir Björn Jónsson markaðs-
stjóri. „Islendingar eru farnir að ferð-
ast svo mikið og vita svo mikið um
menningu annarra þjóða að það er
með ólíkindum hvað landinn þekkir
svona vörur vel og tekur á móti þeim,”
segir hann og bendir á að bretzel hafi
verið sérlega vel tekið á vörusýningu í
Kringlunni nýverið.
SÉRHÆFING EYKST
Gríðarlega hörð samkeppni er á
brauðamarkaðnum. Kolbeinn segir að
þróunin í greininni verði í átt til auk-
innar sérhæfingar, ekkert síður hér á
landi en erlendis. Með sérhæfingunni
náist ódýr og góð, stöðluð framleiðsla.
Myllan-Brauð hf. geri sér grein fyrir
því að fyrirtækið nái ekki að framleiða
allar þær vörur sem það vill geta boð-
ið sínum viðskiptavinum. Það leiti því
í auknum mæli eftir samstarfi við sér-
hæið fyrirtæki og sú þróun eigi eftir
að halda áfram.
Itölsk brauð hafa verið í tísku á ís-
landi að undanförnu og Kolbeinn seg-
ir að heimamarkaðurinn hafi lifnað
mikið við á þessu ári. Eftír að Myllan
keypti Samsöluna hafi líf færst í bak-
aramarkaðinn og hann kveðst hafa trú
á því að greinin eigi eftír að haldast
blómleg á næstunni. Bjartsýni ríki hjá
bökurum almennt en samkeppnin fari
sífellt harðnandi.
AFHVERJU EKKI ÚTFLUTNINGUR
,ýVf hveiju geta Islendingar ekki
flutt út eins og inn? Ef menn ætla að
sérhæfa sig hér á landi í einhverri
ákveðinni línu þurfa þeir að horfa út
fýrir landsteinana. Markaðurinn hér
dugar ekki tíl,” segir Kolbeinn.
- Stefnið þið að útflutningi?
„Ekki á næsta ári,” svarar Kol-
beinn. „Það er mikið í gangi hjá okkur
og við viljum ná tökum á þvi en við
munum lita á öll sóknarfæri sem gef-
ast og horfa í kringum okkur. Með því
að fara í samstarf með svona fyrir-
tækjum og láta framleiða fyrir okkur
opnast kannski einhveijir möguleikar
fyrir okkur.” [B
60