Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 73

Frjáls verslun - 01.09.1998, Side 73
I FÓLK 0g starfa sem aðstoðar- framkvæmdastjóri Hugbúnaðardeildar Skýrr og er því staðgengill framkvæmdastjóra Hd. í deild- inni starfa milli 50-60 manns og er þetta líklega stærsta hug- búnaðardeild á landinu. Hér er skrifaður hugbúnaður sem landskerfi Skýrr hvíla á. Lands- kerfi Skýrr eru ijölmörg upp- lýsingakerfi í eigu ríkisins sem stöðugt þarf að þróa og endur- bæta, bæði vegna lagabreyt- inga og nýrrar tækni. Dæmi um landskerfi sem Skýrr sér um eru Upplýsingakerfi Ríkis- skattstjóra, Tollakerfi, Öku- tækjaskrá, Bótakerfi Trygg- ingastofnunar, Atvinnuleysis- bótakerfi, Innheimtukerfi rík- isins, svo fátt eitt sé nefiit, “ segir Margrét E. Arnórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Hugbúnaðardeildar Skýrr. Skýrr er elsta fyrirtæki landsins á sínu sviði og hét áður Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar og ríkið og Reykjavíkurborg eiga enn í því 44% á móti 51% hlut Opinna kerfa og 5% hlut starfsmanna. I starfi Margrétar felst m.a. að annast viðhald og þróun á Gæðakerfi Hugbúnaðardeildar en hug- búnaðarframleiðsla hjá Skýrr er vottuð skv ISO 9001. Skýrr selur og annast þjónustu við Agresso viðskiptahugbúnað- inn og 9 manna hópur, sem annast það, heyrir einnig undir hugbúnaðardeild. Meðal not- enda Agresso á Islandi eru Reykjavíkurborg og Rafmagns- veita Reykjavíkur og meðal þeirra sem unnið er að upp- setningu hjá eru Skógrækt rík- isins og Kaupþing. Eitt af nýjustu verkefhunum hjá Skýrr var að þróa og setja upp hugbúnað fyrir nýstofnað Kvótaþing og annast rekstur þess. Margrét segir að það hafi verið skemmtilegt og kreljandi verkefni. Margrét varð stúdent frá MR1969 og hélt síðan til náms í viðskiptafræði við Stokk- Margrét Eggrún Arnórsdóttir aðstoðardeildarstjóri hjá Skýrr er eina konan á íslandi sem ber Eggrúnar- nafnið. FV-mynd: Kristín Bogadóttir. MARGRETEGGRUN ARNÓRSDÓTTIR, SKÝRR hólmsháskóla. Þar kynntist hún upplýsingatækni og tók eina önn í tölvufræði með öðru námi. Þetta fannst henni spennandi fag og þegar hún kom heim 1976 fékk hún starf hjá Skýrr og hefur starfað þar síðan. „Þetta var í árdaga tölvu- væðingar á íslandi og mér fannst bestu tækifærin bjóðast hér enda var varla öðru fyrir- tæki til að dreifa á þessu sviði. Framfarirnar hafa verið gríðar- legar, þegar ég kom hér fyrst voru gataspjöld enn í notkun.“ Margrét starfaði fyrst sem kerfisfræðingur, síðar sem yfir- kerfisfræðingur og hefur gegnt núverandi stöðu frá 1996. Hún hefur sótt tjölda námskeiða í hugbúnaðargerð og verkefnastjórnun auk þess að kenna um tíma við Háskól- ann og Verslunarskóla Islands. Margrét er einhleyp en á einn son frá fyrra hjónabandi en hann er rafinagnsverkfræð- ingur. Margrét hefur tekið virkan þátt í starfi Soroptimista á Islandi um árabil og starfar með Soroptimistaklúbbi Kjalar- nesþings sem er einn 16 slíkra klúbba á Islandi. Hún hefur einnig setið í stjórn EDI-félags- ins á Islandi sem vinnur að út- breiðslu pappirslausra við- skipta. „Starfið með Soroptimist- um er afar skemmtilegt og gef- andi að því leyti að maður kynnist ólíkum konum úr ólik- um starfsgreinum en fundir eru einu sinni í mánuði. Við leggjum okkar af mörkum tíl ýmissa mála og erum nýbúnar að gefa út bækling sem dreift er tíl yngstu skólabarna á öllu landinu en í lionum er áróður gegn ofbeldi. Eg reyni að taka ekki vinn- una með mér heim en það er margt sem þarf að lesa. Þegar frístundir gefast finnst mér mjög gott að fara í gönguferðir eða bregða mér í badminton eða á skiði, en báðar íþróttirnar hef ég stundað lengi. Einnig hef ég gullað aðeins við golfið og fer sú iðkun mín vaxandi.“ 33 TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON 73

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.