Frjáls verslun - 01.09.1999, Síða 52
Hagnaður Hellisbúans gafArna Þór Vigfússyni,
sjónvarþsstjóra á Skjá einum, fljúgandi byr.
Hann leggur mikiö undir meö sjónvarpsstööinni og
hefur hrifiö þekkta fiárfesta meö sér!
ann er aðeins 23 ára, eldhugi,
heitir Árni Þór Vigfússon, er sjón-
varpsstjóri og prestssonur úr
Grafarvogi, hefúr einstakt lag á að hrífa
fólk með sér og hagnaðist, ásamt þeim
TEXTI: Páll flsgeir Ásgeirsson
og Jún G. Hauksson
MYNDIR: Geir Olafsson
52
Hinn 23 ára eldhugi og athafnamaður, Árni
Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri Skjás eins. Það
er mikið lagt undir. Heildarstofnkostnaður
stöðvarinnar liggur ekki undir 200 milljón-
um.
Kristjáni Ra. Kristjánssyni og Bjarna Hauki
Þórssyni, vel á leikritinu Hellisbúanum.
Arni Þór hefur smitandi kraft, geislar af
lífsgleði og er öflugur fulltrúi ungu kyn-
slóðarinnar, þeirrar sem sumir lýsa sem
kynslóðinni sem hafi jafnvel fullmikið
sjálfstraust og sé laus við allt sem heitir
minnimáttarkend. Viðhorf þessarar kyn-
slóðar er einfalt: Það er allt hægt!!! Núna
hefur Árni lagt verulega undir með sjón-
varpsstöðinni Skjá einum sem Islenska
sjónvarpsfélagið hf. rekur. Það ræðst á
næstu 6 mánuðum hvort kapallinn gangi
upp; hvort allt sé hægt. Margir eru vantrú-
aðir á að Skjár einn hafi það af í stríðinu við
Sjónvarpið og Islenska útvarpsfélagið;
Stöð 2, Sýn, Fjölvarpið og Bíórásina. Árni
Þór og Kristján Ra. Kristjánsson eru hins
vegar sannfærðir um velgengni stöðvar-
innar. Auðvitað! Hagkaupsbræður og fleiri
hafa raunar einnig trú á þeim og hafa lagt
fé í fýrirtækið. Ætla má að stofnkostnaður
Skjás eins sé vart undir 200 milljónum
króna og þarf hann meðal annars að mæta
liklegum taprekstri fyrstu mánuðina. Tekj-
ur stöðvarinnar verða eingöngu af auglýs-
ingum og kostun þátta. Mikill sparnaður
felst í því fyrir stöðina að hafa keypt kvik-
myndafélagið Nýja Bíó og að nýta húsnæði
þess og tæki. Megináhersla verður lögð á
innlent efni fyrir ungt fólk á öllum aldri,
eins og það er nefnt; fréttir og skemmti-
efni. Þá er yfirbygging Skjás eins afar lítil
og ekkert lagt upp úr dýrum og fínum
skrifstofum. Það er annar blær yfir þessari
stöð en Ríkissjónvarpinu, Stöð 2 og Stöð 3
sálugu. Það er önnur kynslóð við stýrið og
önnur hugsun - en kannski reynist hún
einmitt lífæð stöðvarinnar. En eins og alltaf
kemur stóri dómurinn um stöðina fram
þegar talið verður upp úr kössunum.
Hrífur fjárfesta með sér! Hluthafahóp-
ur íslenska sjónvarpsfélagsins er forvitni-
legur. Áður voru þeir félagar, Árni Þór og
Kristján, helstu hluthafarnir, 90%, ásamt
þeim Guðmundi Kristjánssyni og Guð-
bergi Davíðssyni, 10%. Núna eiga þeir sam-
tals 50% hlut í félaginu því fýrir rúmum
hálfum mánuði fengu þeir nýja hluthafa til
liðs við sig, Hagkaupsbræður ásamt fleir-
um. Nýju hluthafarnir eiga núna helming-
inn í félaginu, 50%. Fjárfestíngarfélagið 3P