Morgunblaðið - 12.01.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 53
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Borgarbraut
2, Stykkishólmi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Brautarholt 6, kj., Snæfellsbæ, þingl. eig. Óttar Baldvinsson, gerðar-
beiðandi innheimtumaður ríkissjóðs, þriðjudaginn 16. janúar 2001
kl. 11.00.
Hellisbraut 21, Snæfellsbæ, þingl. eig. Harpa Björk Viðarsdóttir,
gerðarbeiðandi Snæfellsbær, þriðjudaginn 16. janúar 2001 kl. 11.00.
Sýslumaður Snæfellinga,
11. janúar 2001.
TIL SÖLU
Stálgrindarhús
Útvegum stálgrindarhús milliliðalaust frá
Bandaríkjunum. Verð frá 12 þús. kr. fm.
Húsin eru sérsmíðuð eftir þörfum kaupenda.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Frekari upplýsingar í síma 895 5431.
KENNSLA
Menntamálaráðuneytið
Sveinspróf í febrúar 2001
Menntamálaráðuneytið hefur beint því til
þeirra aðila, er annast sveinsprófahald í um-
boði þess, að hefja undirbúning að sveinspróf-
um að loknu verkfalli framhaldsskólakennara
þannig að prófin geti farið fram fyrri hluta
febrúarmánaðar. Að gefnu tilefni er þeim nem-
endum, sem ljúka iðnnámi í lok janúar 2001
og munu uppfylla önnur skilyrði til töku sveins-
prófs, bent á að snúa sér með umsóknir sínar
til viðkomandi umsýslustofnana.
Frekari upplýsingar eru veittar í menntamála-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, Reykjavík,
sími 560 9500, og á vef ráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
10. janúar 2001.
www.mrn.stjr.is
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Sólvallagata, Ánanaust, Holtsgata,
Framnesvegur, svæðið innan þessa
gatna.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að deiliskipulagi reits sem
afmarkast af Sólvallagötu, Ánanaustum,
Holtsgötu og Framnesvegi.
Tillagan felur í sér endurskipulagningu
reitsins í heild og gerir ráð fyrir talsverðum
breytingum, sérstaklega hvað varðar
lóðirnar við Sólvallagötu og Ánanaust. Í
henni er gerð grein fyrir réttindum og
skyldum fasteignaeigenda á svæðinu m.a.
varðandi nýbyggingar, niðurrif, hækkanir,
viðbyggingar, verndun o.fl.
Skúlagata, Klapparstígur, Lindargata,
Ingólfsstræti, svæðið innan þessara
gatna.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deili-
skipulagi reita sem afmarkast af Skúla-
götu, Klapparstíg, Lindargötu og Ingólfs-
stræti.
Tillagan felur í sér endurskipulagningu
svæðisins, innan framangreindra gatna, í
heild og gerir ráð fyrir talsverðum
breytingum m.a. fjölda nýbygginga,
niðurrifi eldri bygginga, töluverðri fjölgun
bílastæða, verndun o.fl. Tillagan mælir
fyrir um réttindi og skyldur fasteigna-
eigenda á svæðinu til framangreinds o.fl.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgar-
skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá
12. janúar til 9. febrúar 2001. Ábendingum
og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 23.
febrúar 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Hagsmunaaðilar á framangreindum
svæðum eru hvattir til þess að kynna sér
tillögurnar.
Reykjavík, 12. janúar 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Auglýsing um afgreiðslu
bæjarráðs Kópavogs
á auglýstri tillögu að
deiliskipulagi
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyting-
um, eru hér með auglýstar afgreiðslur bæjar-
ráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirtöldum
deiliskipulagstillögum:
Salahverfi — Skóla- og íþróttasvæði —
Deiliskipulag
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 28. nóv-
ember 2000 tillögu að deiliskipulagi skóla- og
íþróttasvæðis í Salahverfi. Í tillögunni felst af-
mörkun byggingarreita fyrir íþróttamannvirki
og grunnskóla auk fyrirkomulag íþróttavalla,
aðkomuleiða, bílastæða, gönguleiða og reið-
stíga. Tillagan var auglýst frá 25. september
til 27. október og með athugasemdafresti til
10. nóvember 2000. Athugasemdir og ábend-
ingar bárust. Á ofangreindum fundi bæjar-
stjórnar var samþykkt sú breyting á auglýstri
tillögu og með tilvísan í framkomna athuga-
semd, að fyrirkomulagi bílastæða var breytt
og þeim jafnframt fjölgað.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn málsins
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði aug-
lýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan-
greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu-
lagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. janú-
ar 2001.
Leikskólinn Efstahjalla, stækkun —
Færsla gæsluvallar — Deiliskipulag
Bæjarráð Kópavogs samþykkti þann 7. desem-
ber 2000 tillögu að stækkun leikskólans við
Efstahjalla (um tvær deildir) og færslu gæslu-
vallar. Tillagan var auglýst frá 16. október til
15. nóvember og með athugasemdafresti til
29. nóvember 2000. Engar athugasemdir eða
ábendingar bárust.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn málsins
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði aug-
lýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan-
greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu-
lagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. janú-
ar 2001.
Holtagerði 76 og 78 — Deiliskipulag
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 20. júlí
1999 tillögu að deiliskipulagi við Holtagerði
76 og 78. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að
einnar hæðar íbúðarhús sem stendur á lóðun-
um hverfi og í stað þess verði byggð tveggja
hæða tvíbýlishús, einu á hvorri lóð. Tillagan
var auglýst frá 1. mars til 7. apríl með athuga-
semdafresti til 21. apríl 1999. Athugasemdir
og ábendingar bárust. Á ofangreindum fundi
bæjarstjórnar var samþykkt sú breyting á aug-
lýstri tillögu að fjarlægð frá lóðamörkum húss
nr. 74 að útitröppum og palli húss nr. 76 verði
ekki minni en 3 metrar og að fjarlægð að hús-
vegg verði ekki minni en 4,2 metrar. Þá var
greinargerð leiðrétt í samræmi við umsögn.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn málsins
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði aug-
lýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan-
greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu-
lagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. janú-
ar 2001.
Vatnsendi — F-reitur — Deiliskipulag
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 9. nóv-
ember 2000 tillögu að deiliskipulagi íbúðar-
byggðar á sk. F-reit ofan Vatnsendabýlisins.
Í tillögunni er miðað við að á svæðinu rísi
blönduð íbúðarbyggð. Tillagan var auglýst frá
17. júlí til 18. ágúst með athugasemdafrest til
1. september 2000. Þriðjudaginn 29. ágúst 2000
var auglýstur lengri frestur til að skila inn at-
hugasemdum og ábendingum eða til 15. sept-
ember 2000. Á ofangreindum fundi bæjar-
stjórnar var samþykkt sú breyting á auglýstri
tillögu að skipulagi á vestasta hluta skipulags-
svæðisins, hvað varðar skipulag þriggja fjölbýl-
ishúsalóða (með tveimur 5 hæða byggingum
auk jarðhæðar og einni 3 hæða byggingu auk
jarðhæðar) verði frestað. Skipulag svæðisins
þ.m.t hæð húsa, verði endurskoðað samhliða
þeirri skipulagsvinnu sem hafin er á norður-
svæði Vatnsendalands. Þá samþykkti bæjar-
stjórn jafnframt, að tekin verði upp umhverfis-
vöktun á vatnasvæði og lífríki Elliðavatns.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði aug-
lýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan-
greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu-
lagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. janú-
ar 2001.
Askalind 2A og Álalind 1 — Breytt deili-
skipulag
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 15. des-
ember 2000 tillögu að breyttu deilskipulagi
við Askalind 2A og Álalind 1. Í breytingunni
felst m.a. að gert er ráð fyrir nýrri iðnaðarlóð
fyrir einnar hæða húsnæði með kjallara með
aðkomu frá Askalind og lóð Áhaldahúss Kópa-
vogs að Álalind 1 minnkuð sem henni nemur.
Ennfremur er í tillögunni gert ráð fyrir viðbótar-
húsnæði á lóð Áhaldahússins. Tillagan var aug-
lýst 16. október til 15. nóvember með athuga-
semdafresti til 29. nóvember 2000. Athuga-
semdir og ábendingar bárust. Á ofnagreindum
fundi bæjarstjórnar var jafnframt samþykkt
sú breyting á auglýstri tillögu að mænishæð
fyrirhugaðrar byggingar verði 5,5 metrar
miðað við aðkomuhæð í stað 6,5 metrar.
Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin
og gerði ekki athugasemd við að birt yrði aug-
lýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan-
greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu-
lagsins birtist í B-deild Stjórnartíðinda 12. janú-
ar 2001.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar
deilskipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er
hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8.30 og
16.00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Kennsla—námskeið
Listasmiðja Veru
býður upp á nám-
skeið í landslags-
og sjávarmálun
með olíu.
Kennari er Vera
Sörensen fyrsti
fullgildi kennarinn
í málunartækni
Bob Ross á Íslandi.
Heildagsnámskeið 13. og 27. jan. kl. 9—17.
Hálfsdagsnámskeið 17., 19., 23., 25. og 31. jan.
kl. 16—20. Byrjendur eru ætíð velkomnir!
Uppl. og skráning í síma 565 9559 eða
897 4541. Veffang http:/www.artvera.com .
UPPBOÐ
TILKYNNINGAR
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is