Morgunblaðið - 12.01.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 11
FULLTRÚAR nokkurra afhelstu launþegasamtökumlandsins, ásamt talsmönn-um eldri borgara, funduðu
með framkvæmdastjórn Öryrkja-
bandalagsins í gær að loknum fundi
stjórnarinnar. Umræðuefnið var
viðbrögð ríkisstjórnarinnar við
dómi Hæstaréttar og boðað frum-
varp hennar í þeim efnum. Í sam-
tali við Garðar Sverrisson, formann
Öryrkjabandalagsins, að fundinum
loknum kom fram að bandalagið og
einstakir öryrkjar munu ekki að-
hafast frekar fyrr en málið hefur
verið tekið til umræðu á Alþingi á
mánudag. Sömu sögu er að segja
um afstöðu talsmanna launþega og
aldraðra.
Að fundinum loknum var engin
sérstök ályktun samþykkt heldur
kom þessi hópur sér saman um að
hittast aftur nk. þriðjudag, eða dag-
inn eftir að Alþingi kemur saman
að nýju eftir jólafrí. Reiknað er
með að frumvarp ríkisstjórnarinnar
verði lagt fram strax á fyrsta þing-
degi, enda var þingið kallað saman
viku fyrr vegna þessa máls.
Á fundinn mættu talsmenn Al-
þýðusambands Íslands (ASÍ),
Starfsgreinasambandsins, Banda-
lags háskólamanna (BHM), Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæja
(BSRB), Kennarasambands Íslands
(KÍ), Landssambands eldri borgara
og Félags eldri borgara í Reykja-
vík, ásamt nokkrum lögmönnum
þessara samtaka. Benedikt Davíðs-
son, formaður Landssambands
eldri borgara, sagðist í samtali við
Morgunblaðið vera ánægður með
fundinn. Nauðsynlegt væri fyrir
þessa aðila að stilla saman strengi
sína því málið varðaði ekki aðeins
öryrkja. Einhugur hefði verið á
fundinum, að samkvæmt dómi
Hæstaréttar væri óheimilt að
tengja tryggingagreiðslur til ein-
staklings við tekjur annars einstak-
lings. Fylgja þyrfti málinu eftir og
þá aðallega gagnvart Alþingi sem
ætti eftir að fjalla um frumvarp rík-
isstjórnarinnar, sem hann taldi
vera „hrákasmíði“ eins og það liti
út í dag. Vonandi lagaðist það í
meðförum þingflokkanna. „Ef þetta
hefði verið peysa sem ég hefði
prjónað, myndi ég rekja hana upp,“
sagði Benedikt.
Á einnig við um aldraða
Um málið í heild sinni sagðist
Benedikt ekki skilja íslenskt mál ef
dómur Hæstaréttar hefði ekki verið
að segja að hið sama ætti við um
alla, öryrkja sem aldraða, að ekki
mætti tengja tryggingagreiðslur til
þeirra við tekjur annars einstak-
lings. Það sama ætti við um þá sem
fengju ellilaun og aðrar trygginga-
greiðslur.
„Við munum láta á það reyna
hvort þetta eigi ekki jafnt við um
okkar fólk og öryrkjana, og þá í
fullum mæli eins og Hæstiréttur
mælti fyrir um en ekki eins og
þessi starfshópur ríkisstjórnarinnar
lagði til og ríkisstjórnin gerði að
sinni tillögu,“ sagði Benedikt. Að-
spurður hvernig ríkisstjórnin hefði
tekið á málinu sagði Benedikt það
erfitt að gefa henni einhverja ein-
kunn. Fljótt á litið hefði henni tek-
ist „ákaflega klaufalega til“. Miðað
við umræðuna og vilja almennings
virtist ríkisstjórnin vera ein á báti.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
BHM, sagði við Morgunblaðið þeg-
ar fundi lauk að réttindi almenn-
ings snertu launþegahreyfinguna í
heild sinni, og háskólamenn einnig.
Slys og veikindi spyrðu hvorki að
stétt né stöðu.
„Okkur finnst það grundvallar-
mannréttindi, og erum sammála
Hæstarétti, að fólk geti aflað tekna
án þess að það tengdist við tekjur
maka. Við styðjum Öryrkjabanda-
lagið einhuga í þeirra baráttu að
þetta sé ótengt, með þeim leiðum
sem okkur verða færar,“ sagði
Björk.
Rifja mætti upp tilgang
almannatrygginga
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambands og starfandi
forseti ASÍ, benti á að miðstjórn
ASÍ hefði ályktað um málið á einn
veg; að hlíta beri dómi Hæstaréttar
undanbragðalaust. Ef það yrði ekki
gert yrði það brot á mannréttindum
fólks.
„Það er mjög slæmt að sérstak-
lega er verið að brjóta á mannrétt-
indum öryrkja sem eru með lágar
tekjur. Við erum tilbúnir að styðja
þennan hóp eins og mögulegt er.
Hvernig það verður get ég ekki
fullyrt um á þessari stundu. Ég
varð fyrir vonbrigðum með við-
brögð ríkisstjórnarinnar við dómi
Hæstaréttar. Við hefðum orðið að
hlíta dómi ef dæmt hefði verið á
okkur. Ríkisstjórninni ber, eins og
öllum öðrum, skylda til að hlíta
dómi Hæstaréttar, hvort sem henni
líkar betur eða verr,“ sagði Halldór.
Aðspurður um aðgerðir sagði
Halldór það hafa komið fram á
fundinum að nauðsynlegt væri að
rifja upp til hvers almannatrygg-
ingar væru, í ljósi ýmissa breytinga
sem hefðu verið gerðar á almanna-
tryggingalögunum og Trygginga-
stofnun.
„Eru þessar tryggingar ekki
fyrst og fremst fyrir þá sem standa
höllum fæti í lífinu og lenda í ein-
hverjum áföllum? Til þess voru þær
upphaflega stofnaðar og í raun ætti
enginn að hafa leyfi til að fikta við
þann grundvöll, jafnvel þótt breyt-
ingar verði gerðar í tímanna rás.
Fólk á nógu bágt fyrir þótt ekki sé
verið að gera því þetta,“ sagði Hall-
dór.
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalagsins, sagði við Morg-
unblaðið að fundi loknum að gott
hefði verið finna fyrir stuðningi frá
verkalýðsforystunni og fulltrúum
aldraðra. Stuðningurinn væri mikils
metinn. Fundarmenn hefðu gert
sér grein fyrir að þetta væri ekkert
einkamál Öryrkjabandalagsins. Al-
mannatryggingar vörðuðu alla
þjóðina og ekki hefðu allir það há
laun að þeir gætu keypt sér iðgjöld
sem nú stæðu til boða og gjarnan
kynnt af sölumönnum með vísan til
lágra bóta almannatrygginga.
„Þeim er einnig ljóst að þeir
kunna í framtíðinni að þurfa að vísa
málum til dómstóla, sem eiga að
vera síðasta vígi borgaranna í lýð-
frjálsum löndum. Ef þetta fordæmi
verður gefið eftir, gera menn sér
grein fyrir því að þá er í rauninni
voðinn vís,“ sagði Garðar.
Áður en fundað var með laun-
þegahreyfingunum og öldruðum
kom framkvæmdastjórn Öryrkja-
bandalagsins saman. Arnþór
Helgason, framkvæmdastjóri
bandalagsins, sagði við Morgun-
blaðið að á þeim fundi hefðu við-
brögð ríkisstjórnarinnar verið rædd
ítarlega. Stjórnvöld ætluðu að halda
áfram að hundsa ákvæði í lögum
um tekjutryggingu. Arnþór sagði
það rangt sem forsætisráðherra
hefði haldið ítrekað fram, að með
boðuðu frumvarpi væri einkum ver-
ið að bæta hag þeirra sem byggju
við bestar fjölskylduaðstæður.
„Samkvæmt skýrslu ríkisstjórn-
arinnar sjálfrar kemur í ljós að
mikill meirihluti öryrkja er giftur
láglaunafólki, þannig að þær fjöl-
skyldur sem þetta snýst um ríða
ekki feitum hesti frá þessum breyt-
ingum. Það eru ýmsar leiðir færar í
skattakerfinu til að beita jöfnunar-
aðgerðum. Afar vafasamt er fyrir
stjórnvöld að beita þessum tekju-
tryggingarákvæðum einungis
vegna þess að einhverjir örfáir ein-
staklingar, sem eru kannski með
eitthvað um meðaltekjur í þessu
landi, kunni að hagnast á því,“
sagði Arnþór.
Gagnrýni frá
einhleypum öryrkjum
Blaðinu hefur borist gagnrýni úr
röðum einhleypra öryrkja á forystu
Öryrkjabandalagsins, í kjölfar
dóms Hæstaréttar og viðbragða
ríkisstjórnarinnar, um að kjör
þeirra standi í stað eða versni. Þeir
sem verst standi hafi gleymst og
talsmenn öryrkja skilið þá eftir og
hugsað meira um þá sem betur
væru settir. Aðspurður um þessa
gagnrýni sagði Garðar Sverrisson
að í ljósi blaðamannafundar ríkis-
stjórnarinnar í fyrradag kæmi hún
sér ekki á óvart. En ekki væri við
forystu Öryrkjabandalagsins að
sakast heldur ríkisstjórnina, sem
reynt hefði að efna til óvinafagn-
aðar meðal öryrkja og etja þeim
saman.
„Í allri okkar baráttu höfum við
stöðugt verið að minna á það
hversu bætur almannatrygginga
eru lágar og hvað þær hafa dregist
aftur, ekki aðeins lágmarkslaunum
heldur almennri launaþróun, jafn-
vel þótt lög kveði skýrt á um að
stjórnvöldum beri að hækka bæt-
urnar til jafns við almenna
launaþróun. Við höfum haldið uppi
mjög harðri baráttu og gagnrýni í
þá veru að með þessum lágu bótum
almennt sé verið að reka í reynd
aðskilnaðarstefnu gagnvart fötluð-
um. Í þessu máli er ekki við Ör-
yrkjabandalagið að sakast, heldur
við ríkisstjórnina sem á mestu upp-
gangstímum Íslandssögunnar hefur
gripið til margvíslegra ráðstafana
til að koma í veg fyrir að góðærið
næði einnig til öryrkja,“ sagði
Garðar.
Ógeðfellt
áróðursbragð
Hann taldi ljóst að á blaða-
mannafundi ríkisstjórnarinnar hefði
„á mjög grófan og lágkúrulegan
hátt“ verið reynt að etja öryrkjum
hverjum gegn öðrum. Efaðist Garð-
ar um að nokkur stjórnvöld í okkar
heimshluta myndu reyna að haga
málflutningi sínum eins og for-
svarsmenn ríkisstjórnarinanr hefðu
gert á fyrrnefndum fundi.
„Fundurinn var hneyksli. Í máli
sínu gættu ráðherrarnir þess vand-
lega að geta þess í engu að öryrkjar
missa 22 þúsund krónur við það eitt
að stofna til sambúðar eða hjúskap-
ar. Við þessa skerðingu höfum við
aldrei gert athugasemd, jafnvel
þótt hún sé miklum mun meiri en
nokkurs staðar annars staðar þekk-
ist. En það sem við gerum alvar-
lega athugasemd við er að það sé
haldið áfram að skerða þau grund-
vallarmannréttindi sem öryrkjar
eiga að hafa. Þessum málum verður
ekki blandað saman. Hér er um af-
markað mál að ræða, sem höfðað
var um dómsmál sem æðsti dóm-
stóll þjóðarinnar hefur tekið fyrir
og dæmt í. Mér finnst það koma úr
hörðustu átt að ríkisstjórnin skuli
leyfa sér að reyna að efna til óvina-
fagnaðar meðal öryrkja vegna
þeirrar réttarbótar sem Hæstirétt-
ur dæmdi öryrkjum. Þessi blaða-
mannafundur ríkisstjórnarinnar
var haldinn af fólki sem ekki vill
játa sig sigrað og virðist reiðubúið
að grípa til allra áróðursbragða til
að koma á okkur höggi. Af öllu því
sem frá þeim hefur komið er þetta
áróðursbragð eitthvert það ógeð-
felldasta sem við höfum orðið fyr-
ir,“ sagði Garðar.
Fulltrúar launþegasamtaka og eldri borgara áttu í gær
viðræðufund með framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins
Stuðningi lýst við öryrkja
en beðið með aðgerðir
Morgunblaðið/Golli
Halldór Björnsson, starfandi forseti ASÍ, fyrir miðri mynd, kynnir sér gögn fyrir fundinn með Öryrkjabanda-
laginu ásamt Magnúsi Norðdahl, lögmanni ASÍ, lengst til vinstri. Fjær eru Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, og Gísli Helgason frá Öryrkjabandalaginu.
Morgunblaðið/Golli
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, ræðir við Ólaf
Ólafsson, formann Félags eldri borgara í Reykjavík, fyrir fundinn með
launþegasamtökunum í gær.
Talsmenn eldri borgara
og helstu launþega-
samtaka í landinu ætla
að koma saman á ný til
fundar með Öryrkja-
bandalaginu eftir að
frumvarp um greiðslu
örorkubóta hefur verið
kynnt á Alþingi. Ein-
hugur var í hópnum um
að ríkisstjórnin hefði
brugðist rangt við dómi
Hæstaréttar. Björn Jó-
hann Björnsson ræddi
við talsmenn hópsins að
fundi loknum.