Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 2

Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isTveir taldir líklegastir í starf landsliðsþjálfara / C1 Afturelding sigraði topplið Hauka á Varmá / C3 4 SÍÐUR Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnulíf 12 SÍÐUR Sérblöð í dag „ÞAÐ er alveg ljóst, verkfall nær til allra skipa og báta og áhafna þeirra þótt viðkomandi útgerðir séu ekki aðilar að LÍÚ og áhafnir þeirra ekki í stéttarfélögum sjómanna. Því til stuðnings er dómur í máli Siglis á sínum tíma,“ segir Hólmgeir Jóns- son, framkvæmdastjóri Sjómanna- sambands Íslands. Hann segir eitt- hvað um þann misskilning að verkfallið nái ekki til allra og bendir á að aðild að hinum samtökum út- gerðarmanna, LÍF, losi þær útgerð- ir ekki undan verkfalli. Aðild að stéttarfélagi ekki skylda Sjómönnum ber ekki lagaleg skylda til að vera félagar í stéttar- félagi og útgerðum ber heldur ekki skylda til að vera aðilar að LÍÚ. Eigi að síður verða útgerðir og sjómenn að fara að kjarasamningum samtaka sjómanna og LÍÚ, sem eru í raun samningar um lágmarkskjör sjó- manna í landinu. Þess vegna nær boðað verkfall og verkbann til þess- ara aðila líka. Útgerðir smábáta og sjómenn á þeim standa reyndar utan verkfalls. „Menn verða að átta sig á því að það er eitthvað til í landinu sem heit- ir vinnulöggjöf,“ segir Hólmgeir. „Eini samningurinn sem til er milli sjómanna og útgerðarmanna er samningur okkar við LÍÚ og tekur til lágmarkskjara í landinu. Þeir sem halda því fram að þeir séu ekki bundnir af þessum samningum, enda standi þeir utan LÍÚ, hafa ekki farið fram á sérstaka samninga á friðar- tímum, enda yrði sá samningur ein- faldlega nákvæmlega eins og gild- andi kjarasamningur samtaka sjó- manna og útvegsmanna. Þeir sem hafa staðið utan við félögin hafa bara notað þau kjör sem samningurinn við LÍÚ býður upp á. Þeir hafa reyndar jafnvel viljað ganga svo langt að telja sig það sér á báti að þeir hafi getað látið sjómenn taka þátt í kvótakaupum, sem er líka mis- skilningur hjá þeim. Staðreyndin er sú, að sé boðað til verkfalls eða verkbanns nær það líka til þessara skipa og báta og áhafna þeirra. Sé tekið dæmi um suðvest- ursvæðið verður í gildi bæði verk- bann hjá sjómönnum, þótt þeir séu ekki í sjómannafélögum, og verk- bann á útgerðina, þótt hún sé ekki innan LÍÚ. Við fórum í mál árið 1995 vegna þessa. Þá taldi útgerð togarans Sigl- is að hún gæti róið á þeim forsendum að hún væri ekki innan LÍÚ og því næði verkfall ekki til hennar. Nið- urstaðan í því var alveg skýr, verk- fallið náði einnig til þeirra. Ætli menn sér að róa nú á þeim forsend- um að þeir séu ekki innan LÍÚ og áhafnir þeirra ekki í sjómannafélög- um verða þeir einfaldlega kærðir og sektaðir,“ segir Hólmgeir Jónsson. Hann segir að ekki sé um félaga- skyldu að ræða, hvorki innan LÍÚ né félaga sjómanna. Hvort sem menn vilji vera í félögunum eða ekki verði þeir að vera undir gildandi kjara- samningi sem taki til lágmarkskjara í landinu. Sjómenn sem standa utan stéttar- félaga verða lögum samkvæmt að greiða í lífeyrissjóð, greiða vinnu- réttindagjald og í sjúkrasjóði, enda eiga þeir rétt þar þó að þeir séu ekki í félagi. Þeir greiða hins vegar ekki bein félagsgjöld og njóta ekki heldur þeirra réttinda sem slík greiðsla myndi annars færa þeim. „Verkfall nær til allra skipa“ Útgerðir utan LÍÚ ekki undan- skildar verkfalli ÞOKKALEG veiði var í gær hjá loðnuskipunum og fengu sum skipin ágæt köst nánast uppi í fjöru austan við Vestmannaeyjar. Einnig fékkst góður afli skammt austan við Ingólfshöfða. Í gær höfðu borist á land tæp 720 þús- und tonn af loðnu á vertíðinni og því tæp 100 þúsund tonn eftir af heildarkvótanum. Fjöldi skipa var á leið til löndunar í gær og ætluðu þau að freista þess að ná einni veiðiferð í dag, áður en verkfall sjómanna brestur á um miðnætti í kvöld. Því er útlit fyr- ir að að minnsta kosti 50 þúsund tonn verði eftir af loðnukvótanum þegar verkfallið hefst. Kristbjörn Árnason, skipstjóri á Sigurði VE, segir að loðnan sé komin nánast að hrygningu og því sé veiðunum nánast sjálfhætt þótt ekki komi til verkfalls. „Það eru hvort sem er aðeins fáeinir dagar eftir. Þegar loðnan er búin að hrygna er hún lélegt hráefni og ekki til neins að vera að veiða hana,“ sagði Kristbjörn. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Harpa VE var í gær að veiðum nánast alveg uppi í fjöru. Kastað uppi í fjöru BÚIÐ er að ná Ófeigi VE á flot í Huang Pu-skipasmíðastöðinni í Guangzhou í Kína en skipið sökk í höfn stöðvarinnar í síðustu viku. Skip- ið, sem reyndar hefur enn ekki form- lega fengið nafn en gengur undir vinnuheitinu FV-3, er í smíðum fyrir útgerðarfélagið Stíganda ehf. í Vest- mannaeyjum. Skipinu var lyft á flot á mánudags- kvöld og er það nú komið í slipp. Tveir kranar á prömmum voru notaðir til að lyfta skipinu, annar þeirra með um 1.000 tonna lyftigetu en hinn um 500 tonna lyftigetu. Kristján Guðmunds- son yfirvélstjóri, sem hefur eftirlit með smíðinni í Kína, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að vel hefði gengið að ná skipinu á flot og fagmannlega verið að því staðið. Hann sagði að enn væri ómögulegt að meta hversu mikið tjón varð við óhappið. Það skýrðist ekki fyrr en eftir margar vikur. „Skip- ið sjálft skemmdist í raun ekkert við þetta en allur sá búnaður sem kominn var um borð blotnaði vitanlega. Það er þegar byrjað að hreinsa búnaðinn og sú vinna gengur vel.“ Hann sagðist ekki vita hvort fram færu sjópróf vegna óhappsins eða hver framvinda málsins yrði, enda ætti skipasmíðastöðin í raun skipið ennþá. Útgerðin hefði því engin áhrif á hvernig slíkt gengi fyrir sig. Búið var að setja niður töluvert af vélbúnaði í skipið þegar óhappið varð, s.s. aðalvél, ljósavél, rafmagnstöflu, frystibúnað og spilbúnað. Aðalvélin í Ófeigi VE er af gerðinni Man B&W Alpha og var unnið að því að gang- setja vélina í fyrsta skipti þegar óhappið varð. Aage Petersen hjá Afl- tækni ehf., umboðsaðila Man B&W Alpha á Íslandi, segir erfitt að meta hversu mikið tjón hafi orðið á vélinni og búnaði henni tengdum. Það fari allt eftir því hversu fljótt hreinsun á búnaðinum hefst. Hann segir það lán í óláni að skipið hafi sokkið í ferskvatni en ekki saltvatni, en bendir á að vatn- ið sé mjög skítugt. „Ef menn bregðast fljótt við, helst ekki seinna en 24 tím- um eftir að búnaðinum er lyft upp úr vatninu, ætti að vera hægt að forða vélinni frá skemmdum. Það þarf að þrífa hana með vatni, sprauta í hana sérstakri olíu og rífa síðan vélina í sundur og þrífa hvert stykki fyrir sig. Auk þess þarf að endurnýja allar leg- ur og allt rafmagn að vélinni.“ Töluvert tjón á Ófeigi VE Ljósmynd/Sigmar Ólafsson Ófeigur VE hífður á flot í Huang Pu-skipasmíðastöðinni í Guangzhou í Kína. HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær tæplega þrítugan karl- mann í fjögurra mánaða fangelsi fyr- ir ítrekaðan þjófnað, fjársvik og brot gegn ávana- og fíkniefnalögum. Maðurinn játaði öll brot sem hann var ákærður fyrir. Í lok ágúst stal hann veski úr um- boðsverslun í Hafnarfirði sem í voru 40.000 krónur í reiðufé auk kredit- og debetkorta. Sama dag tók hann 30.000 krónur út úr hraðbanka út á debetkortin. Þá fór maðurinn í af- greiðslu Sparisjóðs Hafnarfjarðar og fékk starfsmann sparisjóðsins til að millifæra 160.000 krónur af reikn- ingi eiganda veskisins yfir á sinn eig- in reikning. Á næstu þremur mánuðum stal maðurinn seðlaveskjum, greiðslu- kortum, ávísunum, ávísanaheftum o.fl. af fimm manns. Afrakstur þess- ara afbrota var um 37.000 krónur. Þegar lögregla hafði afskipti af manninum í desember fannst lítil- ræði af amfetamíni í íbúð hans. Maðurinn hlaut fyrst refsingu þegar hann var 19 ára en hefur síðan hlotið fjölda dóma, m.a. fyrir skjala- fals, þjófnað, tilraun til þjófnaðar, hylmingu og gripdeild. Auk fangelsisvistarinnar var manninum gert að greiða 197.000 krónur í bætur til tjónþola og 60.000 krónur til skipaðs verjanda síns. Gunnar Aðalsteinsson héraðs- dómari kvað upp dóminn. Í fangelsi fyrir ítrek- uð afbrot

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.