Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 67
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 67
Full búð af
nýjum vörum!
Svart/drapplitað
st. 36-41
Kr. 2.500
Svart
st. 40-46
Kr. 3.000
Drapplitað
st. 36-41
Kr. 3.000
Hvítt
st. 36-41
Kr. 3.000
KRINGLAN
sími 568 6062
Laugavegi 101 við Hlemm.
Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, lau. frá 11-16
ANTIK-
ÚTSALA
Skápar, skenkar, borð
og stólar, málverk.
Mikið af fáséðum smáhlutum,
matar- og kaffistell
10—30% afsláttur
ÉG get ekki orða bundist lengur og
verð að taka þátt í þessum farsa.
Feginn er ég að búa ekki lengur í
Reykjavík. Þar vill sjálfur borgar-
stjórinn fjarlægja mikilvægasta
samgöngutæki landsins, Reykjavík-
urflugvöll. Mér finnst leitt að fá ekki
að kjósa um flugvöllinn, en ég er
nefnilega landsbyggðarmaður sam-
kvæmt skilgreiningu borgarstjóra,
bý í Kópavogi. Mér finnst við líka
höfð að fíflum, því við borgum okkar
skatta, sem fara í ríkissjóð og þaðan
fara þeir í að reka Reykjavíkurflug-
völl og samt fáum við „landsbyggð-
arfólkið“ ekkert að segja um málið.
Hvers konar lýðræði er það? Starfs-
fólk vallarins fær t.d. ekkert um
málið að segja nema það búi í
Reykjavík. Er það lýðræði? Á það
ekki mikilla hagsmuna að gæta eins
og landsbyggðin eða er þeirra lífs-
viðurværi einskis vert? Ef flugvöll-
urinn fer hvað flytja þá margir til
Reykjanesbæjar með innanlands-
fluginu?
Mengun
Ef byggt verður í Vatnsmýrinni
fyrir 25.000 eins og Samtök um betri
byggð (Subb) hafa lagt til munu
15.000 bílar bætast við. Miðað við að
nú eru bílar í landinu fleiri en íbúar
þess er það varlega áætlað. Bíllinn
veitir okkur frelsi og er besti skjól-
fatnaður sem völ er á hér á klak-
anum og má ég hundur heita ef Ís-
lendingar gefa hann upp á bátinn,
þótt þeir búi í Vatnsmýrinni. Það er
barnaskapur að gera ráð fyrir því að
fólk fari ekki austar en t.d. Kringlan
og þurfi þess vegna ekki bíl. Fólk vill
eiga bíl. Þannig er það nú bara.
Mengunin og umferðarvandræðin
sem fylgdu byggð í Vatnsmýri yrðu
langtímavandamál og kostnaðurinn
vegna þeirra stjarnfræðilegur. Það
þarf að sexfalda Miklubraut, byggja
upp svokallaðan Hlíðarfót og gera
a.m.k. ein göng undir Fossvoginn
sem kæmu upp í Smáranum, svo
þessi byggð geti gengið upp. Það sér
hver maður gleraugnalaust að skatt-
ar og álögur í Reykjavík myndu
hækka talsvert í beinu framhaldi,
sem og kostnaður heilsugæslu vegna
mengunarinnar. Á björtum dögum
getur maður sé gulbrúnt mengun-
arskýið yfir miðborginni. Með byggð
í Vatnsmýrinni mun það stækka
töluvert og dvelja lengur við. Vilja
Reykvíkingar búa í slíku andrúms-
lofti? Flugvellir eru opin svæði með
margfalt minni loft- og hljóðmengun
en bílaumferð. Spyrjið bara fólkið
sem býr við Miklubrautina.
Sóun
Ég vil benda þeim 85.000 Reyk-
víkingum sem eru á kjörskrá og ætla
ekki að kjósa á að senda borgar-
stjóra reikning fyrir 353 kr. en það
er það sem hvert atkvæði kostar.
Það væri nær að nota peningana í að
byggja dagheimili eða í að leysa önn-
ur vandræði í höfuðborginni því af
nógu er að taka.
„Landsbyggðin“
Það er nokkuð ljóst að af atkvæða-
greiðslunni verður og vil ég biðja
landsbyggðarfólk, og þá meina ég
líka Kópavogsbúa, Garðbæinga,
Hafnfirðinga, Seltirninga, Mos-
fellsbæinga og íbúa Bessastaða-
hrepps, að hringja í ættingja sína í
Reykjavík og hvetja þá til að kjósa
völlinn kyrran í Vatnsmýrinni. Það
er nefnilega merkilegt að andstæð-
ingar Reykjavíkurflugvallar virðast
ekki taka neitt mark á ráðum þeirra
er vit hafa á flugmálum.
Hvassahraun útilokað
Hvassahraun er út úr myndinni
sem valkostur fyrir innanlandsflugið
og flugmenn og sérfræðingar í flug-
málum hafa hvað eftir annað bent á
þetta en samt halda andstæðingar
vallarins þessu til streitu. Hvers
vegna? Er ekki einfaldlega verið að
gefa falsvonir um að Hvassahraun sé
raunhæfur möguleiki, sem hann er
alls ekki, í því skyni að koma flug-
vellinum úr Vatnsmýrinni? Allt í
plati? Tillaga samgönguráðherra
sem birtist í Mbl. fyrir stuttu er góð
lausn fyrir alla aðila. Styðjum sam-
gönguráðherra í að gera flugvöllinn
að þeirri glæsilegu samgöngumið-
stöð sem honum ber að vera jafn-
framt því að búa til byggingarland
fyrir borgina. Það er góð málamiðl-
un sem lýsir framsýni og skynsemi.
Lífæð og lífsgæði
Reykjavíkurflugvöllur hefur í
meira en hálfa öld verið lífæð fólks-
ins í landinu og nýting hans verið
eins og best verður á kosið. Hvers
vegna eigum við að minnka lífsgæðin
og taka svona stóra áhættu með jafn
mikilvægt mál og þetta? Reykjavík
og Reykjanesbær munu vaxa saman
með tíð og tíma og við lítið breytt
skipulag flugvallarmála verða báðir
flugvellir að lokum í úthverfum. Ég
vona að flugvallarandstæðingar
lendi ekki í slysi úti á landi sem yrði
þess valdandi að það þyrfti að fljúga
með þá til Reykjavíkur í sjúkraflugi
því þá þyrftu þeir að skipta um skoð-
un. Ef sjúkraflugvél lendir á Kefla-
víkurflugvelli og ófært er milli
Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur
hvað þá? „Jæja, hann verður þá bara
að þjást þar til búið er að moka.“ Ég
kýs völlinn kyrran, þótt ég fái ekki
að greiða atkvæði um það, en vona
svo sannarlega að Reykvíkingar séu
sammála mér.
MATTHÍAS ARNGRÍMSSON,
Rimalind 7,
Kópavogi.
Völlinn kyrran – eina vitið
Frá Matthíasi Arngrímssyni:
MÉR finnst mjög hvimleitt hve
margir fjölmiðlamenn og aðrir mál-
flytjendur ljósvakanna eru illa tal-
andi.
Um þessar mundir fer sérstaklega
fyrir brjóstið á mér tvöfaldur n-
framburður, þar sem ritað er einfalt
n.
Hafið þið heyrt um frúnna,
sem gekk út á brúnna,
rak tánna í slánna,
sveif yfir ránna
og datt oní ánna?
Vinsamlegast reynið að venja ykk-
ur af þessari vitleysu og það ekki
seinna en strax.
STEFÁN HELGI
AÐALSTEINSSON,
Melgerði 24, Reykjavík.
Reimaðu
skóna
Frá Stefáni Helga Aðalsteinssyni:
Fermingarmyndatökur
Erling Ó. Aðalsteinsson
Ljósmyndastofa
Laugavegi 24, sími 552 0624
Pantanir í síma 552 0624
frá kl. 13-18
Gól fe fn i á v innustað inn
Ármúla 23, sími 533 5060
alltaf á
þriðjud.