Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Kjörstaðir: Ráðhúsið, Kringlan, Engjaskóli, Seljaskóli, Hagaskóli og Laugarnesskóli. Borgarbúar eru ekki bundnir af því að greiða atkvæði á ákveðnum kjörstað. Opnunartími: Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Persónuskilríki: Kjósendum er skylt að framvísa persónuskilríkjum. Þjónusta við fatlaða: Á hverjum kjörstað verður gott aðgengi og sérstakur útbúnaður fyrir fatlaða. Í Ráðhúsi verður einnig sérstakur útbúnaður fyrir blinda og sjónskerta. Aðstoð og leiðbeiningar: Á kjörstað geta þeir sem þess óska fengið aðstoð og leiðbeiningar um hvernig bera skuli sig að við rafræna kosningu. Upplýsingar: Upplýsingar um kjörskrá og annað er lýtur að kosningunum eru veittar í síma 563 2200. Yfirkjörstjórn: Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi verður í Ráðhúsinu. um framtíð Vatnsmýrar og Reykjarvíkurflugvallar laugardaginn 17. mars 2001 Atkvæðagreiðsla MIKIL óvissa ríkir um örlög lýðræð- islegrar umbótastefnu Mohammads Khatamis, forseta Írans, eftir að hóp- ur umbótasinnaðra menntamanna og blaðamanna var handtekinn fyrir samsæri gegn ríkinu, sem getur varð- að dauðadómi. Nokkrum stundum fyrir handtök- una hafði Khatami forseti lýst því yfir að írönsk stjórnvöld ættu „ekki ann- ars úrkosti en að koma á lýðræði í landinu“. Khatami var kjörinn forseti árið 1997 eftir að hafa lofað að koma á pólitísku frelsi og færa landið í nú- tímalegra horf. Afturhaldssamir klerkar og stuðningsmenn þeirra hafa hins vegar hindrað umbæturnar með fulltingi Alis Khameneis erki- klerks, æðsta trúarleiðtoga Írana, sem stjórnar hernum, lögreglunni og dómstólunum. Afturhaldsmennirnir hafa látið loka umbótasinnuðum dagblöðum, fyrirskipað handtöku umbótasinna og hindrað setningu laga sem afturhaldsöflin hafa vanþóknun á. Íranska lögreglan réðst á sunnu- dag inn á heimili Mohammads Bast- ehnegars, tengdasonar eins af helstu umbótasinnunum úr röðum klerka, og handtók að minnsta kosti 20 um- bótasinna. Þeir höfðu komið saman á heimili Bastehnegars til að fagna því að blaðamaðurinn Ahmad Zeid-Abadi var leystur úr haldi gegn tryggingu eftir að hafa verið sakaður um að dreifa áróðri gegn íslamska ríkinu. Heimildarmenn úr röðum umbóta- sinna segja að 30–40 manns hafi verið fangelsaðir. Byltingardómstóllinn í Teheran sagði hins vegar að 20 manns hefðu verið handteknir á fundi „þjóðernissinnaðra og trúarlegra afla“ sem hefðu „alltaf bruggað laun- ráð gegn íslamska stjórnarfyrir- komulaginu“. Talið er að hópurinn verði sakaður um „glæp gegn guði“ sem varðar dauðadómi eða að minnsta kosti tíu ára fangelsi. Níu mannanna, þeirra á meðal Zeid-Abadi, voru leystir úr haldi á mánudag en hinum er enn haldið í fangelsi. Margir þeirra tengjast Írönsku frelsishreyfingunni, sem hef- ur verið bönnuð þótt starfsemi henn- ar hafi ekki verið stöðvuð. „Ekki er hægt að réttlæta þessar handtökur. Þær kynda undir tor- tryggni almennings í garð dómstól- anna,“ sagði Ali Akbar Mohtashami, leiðtogi umbótasinnaða meirihlutans á þinginu. Khatami hefur ekki enn skýrt frá því hvort hann ætli að gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningunum í júní. Íranska frelsishreyfingin skor- aði á Khatami að sækjast eftir endur- kjöri og láta ekki „sálfræðihernað“ afturhaldsaflanna buga sig. Umbótastefna Khat- amis sögð í hættu Teheran. The Daily Telegraph, AFP. FRESTA varð fundi í indverska þinginu í gær vegna harðra deilna um meinta mútuþægni Bangaru Laxmans, eins af leiðtogum öflug- asta stjórnarflokksins. Atal Bihari Vajpayee forsætisráðherra nýtur áfram stuðnings stjórnarflokkanna en Laxman hefur sagt af sér. Stjórn- arandstaðan segir að málið sýni að ráðherrar þiggi mútur. Hnefar voru steyttir á þingfundinum og vart heyrðist mannsins mál fyrir hávað- anum. „Sagt er á hverju götuhorni að forsætisráðherrann sé þjófur,“ hrópuðu nokkrir þingmenn og er hann gekk í salinn voru gerð hróp að honum. Vajpayee sagðist vilja að þing- menn ræddu málið. „Það er eitthvað grunsamlegt að gerast,“ sagði hann aðspurður um myndband sem sýnir ráðamenn taka við mútum. Leiðtogi flokks ráðherrans sagði að enginn ráðherra hefði verið bendlaður við mútuhneykslið. „Við erum reiðubún- ir fyrir hvaða rannsókn sem er,“ sagði leiðtoginn, V.K. Malhotra. Liðsmenn fréttavefjarins Tehelka.com ákváðu nýlega að leggja gildru fyrir nokkra ráðamenn og komast þannig að því hvort þeir tækju við mútum. Tveir fréttamenn þóttust vera fulltrúar vopnasölufyr- irtækis er væri að reyna að semja um sölu á myndavélum og öðrum tæknibúnaði handa hernum fyrir 40 milljónir rúpía sem samsvarar 74 milljónum króna. Þeir sýndu á þriðjudag myndband þar sem Laxman sást taka við 100.000 rúpí- um, um 180 þúsund krónum, og sögðu fréttamennirnir tveir að pen- ingarnir væru ætlaðir flokkssjóðn- um. Myndbandið er alls fjögurra stunda langt og var sýnt á Tehelka- vefnum síðdegis á þriðjudag. Það sýnir einnig háttsetta foringja í hernum og embættismenn að minnsta kosta tveggja stjórnar- flokka í samsteypustjórn Vajpayees taka við peningagreiðslum gegn lof- orðum um að mæla með vopnasöl- unni. Var myndbandið sýnt á nokkr- um rásum einkarekinna sjónvarps- stöðva aðfaranótt miðvikudags. Tehelka var stofnað á sínum tíma til að fletta ofan af mútuhneyksli í krikketleikjum. Kongress-flokkurinn kætist „Gríman er fallin. Þeir ættu að segja af sér,“ sagði Margaret Alva, talsmaður Kongress-flokksins sem er í stjórnarandstöðu. „Við höfum lengi heyrt orðróm en nú erum við með þetta allt á myndbandi.“ Laxman var forseti Bharatiya Janataflokks Vaypayee forsætisráð- herra. Er hann sagði af sér fullyrti hann að féð hefði runnið í flokkssjóð- inn og mennirnir tveir hefðu ekki sagt neitt um vopnasölusamninga. Reynist indverskur stjórnmála- maður hafa þegið fé fyrir að hafa beitt sér fyrir vopnasölufyrirtæki getur hann verið dæmdur í allt að sjö ára fangelsi. Verið er að rann- saka svonefnt Bofors-hneyksli í Ind- landi en það kom upp 1986 er sænsku Bofors-verksmiðjurnar beittu mútum til að selja indverska hernum sprengjuvörpur. Málið olli á sínum tíma falli stjórnar Rajivs Gandhis 1989. Hart deilt á Indlandsþingi eftir að indverskur stjórnmálaleiðtogi gekk í gildru fréttamanna Meint mútuþægni fest á myndband Reuters Indverskir stjórnarandstæðingar úr röðum sikha hrópa slagorð og brenna líkneski af Atal Behari Vajpayee forsætisráðherra fyrir utan þinghúsið í Nýju-Delhí í gær. Nýju Delhí. Reuters, AP. ÞRÁTT fyrir andstöðu Bandaríkja- stjórnar hét Vladimír Pútín Rúss- landsforseti því í fyrradag að selja Írönum vopn til landvarna og auka aðstoð Rússa við að koma upp kjarn- orkuverum til raforkuframleiðslu í Íran. Pútín lýsti þessu yfir eftir fund með Mohammed Khatami, forseta Ír- ans, í Moskvu. Íranar og Rússar hafa átt í viðræð- um um vopnasölu og nefnd íranskra hernaðarsérfræðinga heimsótti her- gagnaverksmiðju í Rússlandi. Pútín reyndi þó að sefa áhyggjur Banda- ríkjastjórnar og sagði að Rússar myndu eingöngu selja Írönum „varn- arvopn“, en það bryti ekki í bága við alþjóðlega samninga. Pútín sagði einnig að Rússar væru reiðubúnir að aðstoða Írana enn frek- ar við byggingu hins umdeilda Bush- ehr-kjarnorkuvers, en Bandaríkja- stjórn óttast að verið muni auðvelda Írönum að þróa kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Moskvu og Teheran vísa því á bug og segja að verið verði undir alþjóðlegri stjórn. Talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, Richard Boucher, sagði í gær að Bandaríkja- stjórn hefði verulegar áhyggjur af kjarnorkuaðstoðinni og vopnasölu Rússa til Írans. Boucher sagði það „sérlega óheppilegt“ af hálfu Rússa að selja þess konar búnað til ná- grannaríkja sinna „sem hefði áhrif á allan heiminn og gæti ógnað öllum heiminum“. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði hins vegar að áhyggjur Bandaríkjastjórnar ættu ekki við rök að styðjast. „Samstarf Rússa og Írana beinist ekki gegn öðr- um ríkjum. Þvert á móti er því ætlað að auka stöðugleika í þessum heims- hluta,“ hafði Interfax-fréttastofan eftir Ívanov í gær. Heitir því að efla lýðræði Mohammed Khatami hét því í ræðu sem hann hélt í Alþjóðasam- skiptastofnuninni í Moskvu að hann myndi leggja sitt af mörkum til að efla lýðræði í Íran. „Við ættum að hafa bæði trú og lýðræði í hávegum í samfélagi okkar,“ sagði Khatami í ræðu sinni, en hann hefur átt í úti- stöðum við klerkaveldið í landinu. Mohammed Khatami í opinberri heimsókn í Moskvu Pútín segir að Rússar muni selja Írönum vopn Moskvu. AFP, AP. Reuters Mohammed Khatami (t.v.) og Vladimír Pútín í Kreml.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.