Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 69
DAGBÓK Litrík ítölsk og
þýsk barnaföt
frá 0-12 ára.
Falleg föt á mjög
góðu verði.
Skólavörðustíg 10.
Fyrir viðkvæma húð - létt rakakrem eða næringarríkt dag- og næturkrem.
Fyrir viðkvæma húð með rósroða (háræðaslit) - sérstök meðferð.
Fyrir þurra húð - sem þarf sérstaka umönnun.
Fyrir blandaða og feita húð - létt krem sem hefur mattandi áhrif á húðina.
kynnir Skinperfect Evolution, nýja og endurbætta línu,
sem inniheldur 7 tegundir af dag- og næturkremum,
nýja hreinsilínu og maska.
MARBERT
Líttu við og fáðu ráðgjöf og prufur.
Þú finnur örugglega eitt eða tvö krem
sem henta þinni húðgerð.
Veglegir kaupaukar í boði
Ráðgjafi verður á staðnum
Aðrir útsölustaðir:
Libia göngugötu Mjódd - Nana Hólagarði, Laugarnes Apótek, Snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni, Skeifunni,
Smáranum, Spönginni og Akureyri, Snyrtistofan Mærin Kópavogi, Gallery Förðun Keflavík,
Árnes Apótek Selfossi, Húsavíkur Apótek, Apótek Vestmannaeyja.
á morgun, föstudag í
ww
w.
ma
rb
er
t.c
om
Kringlunni
Snyrtivörudeild
Hólagarði
Fyrrverandi rokkarinn Brian Neumann mun
halda fyrirlestra í Loftsalnum,
Hólshrauni 3, Hafnarfirði (við Fjarðarkaup)
dagana 17., 18., 19. og 20. mars kl. 20.00.
Hann mun segja frá reynslu sinni af rokkinu, tónlistariðnaðinum
og samspili tónlistar og trúar. Hann hefur spilað undir hjá Elton
John og fleirum. Brian er bæði rithöfundur og vinsæll fyrirlesari í
Evrópu, Afríku og Bandaríkjunum. Fyrirlestrar hans eru vel
rökstuddir og grundvallaðir á Biblíunni. Brian tekur með sér
gítarinn og skýrir mál sitt með tóndæmum. Einnig mun hann
svara spurningum frá salnum.
Fyrirlestrarnir eru eftirfarandi og
verða þýddir á íslensku:
Tungumál tónlistarinnar lau. 17. mars
Hugurinn á bak við kerfið sun. 18. mars
Orðsending til hinna
hyggnu mán. 19. mars
Umbreyting hjartans þri. 20. mars
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
MISSUM EKKI AF ÞESSU EINSTAKA TÆKIFÆRI
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert svolítill skýjaglópur í
þér og þótt ímyndunaraflið
sé ein af þínum sterku hlið-
um áttu til að láta það taka
öll völd af hagsýninni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Settu kröfur þínar fram með
þeim hætti að það fari ekkert á
milli mála hvað það er sem þú
vilt. Þú getur ekki skellt skuld-
inni á aðra ef málin eru óljós og
illa undirbúin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er allt á fleygiferð í kring-
um þig og þér finnst erfitt að
fóta þig í hamaganginum. En
það ríður á að þú haldir haus og
standir uppréttur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhverjar breytingar eru á
döfinni og þú gerir best í því að
mæta þeim með opnum huga
því þegar allt kemur til alls
munu þær hafa ýmislegt já-
kvætt í för með sér fyrir þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þótt þér finnist margt sækja að
þér og þú eigir erfitt um vik
skaltu ekki láta hugfallast því
þú hefur meira en nógan innri
styrk til þess að takast á við alla
hluti.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér gengur vel og fólk dáist að
dugnaði þínum og árangri.
Mundu bara að nota velgengn-
ina sem hvata til að bæta þig en
ekki sem afsökun til að slá
slöku við.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Oft er það svo að þér finnst þú
vera eina manneskjan sem get-
ur gert hlutina rétt. En þér er
alveg óhætt að hafa meiri trú á
samstarfsmönnum þínum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Oft skiptir miklu máli að velja
atburðum rétt umhverfi og fer
það þá eftir smekk hvers og
eins hvernig á því máli er hald-
ið. Varastu samt of mikinn
íburð.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er auðvitað algjörlega
nauðsynlegt að þú gerir þér
grein fyrir því hvað þau orð
þýða sem þú lætur falla við
aðra. Annars áttu á hættu að
vera misskilinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gamlir vinir líta inn og þið eigið
skemmtilega stund saman. En
þótt gaman sé að rifja upp for-
tíðina þá er það samt framtíðin
sem þú þarft að hafa efst í huga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér finnst stundum erfitt að
ráða í þau kennileiti sem verða
á vegi þínum og ert því stund-
um óviss um framhaldið. En
þér er óhætt að treysta á
innsæi þitt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur verið einn á báti of
lengi og ættir að finna þér
félagsskap við fyrsta tækifæri.
Hvort heldur það er á þínu
áhugasviði eða annars staðar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu fara lítið fyrir þér og
vittu til hvað veröldin ber í
skauti. Þú ert ofarlega í huga
annarra og átt að fylgjast
grannt með þeim.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
mars, verður sextugur Jó-
hann Leó Gunnarsson frá
Eiði, Eyrarsveit, Salthömr-
um 16, Reykjavík. Hann og
eiginkona hans, Svala S.
Guðmundsdóttir, verða að
heiman í dag.
50 ÁRA afmæli. Í dag,15. mars, verður
fimmtugur Þorsteinn Ólafs-
son. Af því tilefni taka hann
og maki hans, Guðný Eiríks-
dóttir, á móti gestum í
Oddfellowhúsinu við Vonar-
stræti í Reykjavík á morg-
un, föstudag, kl. 19. Þeim
sem vilja gleðja afmælis-
barnið með gjöfum er bent á
eftirtalda sjóði: Baldurs-
sjóður (526-14-100835),
Styrktarsjóður SKB (301-
26-545) og Styrktarsjóður
Umhyggju (101-15-371020).
LJÓÐABROT
GRÖFIN
Hvar er í heimi hæli tryggt
og hvíld og mæðufró?
Hvar bærist aldrei hjarta hryggt?
Hvar heilög drottnar ró?
Það er hin djúpa dauðra gröf,
– þar dvínar sorg og stríð –
er sollinn lífs fyrir handan höf
er höfn svo trygg og blíð.
Þú kælir heita hjartans glóð
og heiftar slökkur bál,
þú þaggar niður ástar-óð
og ekkert þekkir tál.
Þú læknar hjartans svöðusár
og svæfir auga þreytt,
þú þerrir burtu tregatár
og trygga hvíld fær veitt.
Þú griðastaður mæðumanns,
ó, myrka, þögla gröf,
þú ert hið eina hæli hans
og himins náðargjöf.
Kristján Jónsson
vel samhæfðir menn hans
verða og svo hitt hve kóng-
staða hvíts verður óásjáleg.
Textaleikurinn sameinar
báða þessa þætti og gerir
stöðu hvíts
hartnær von-
lausa. Fram-
haldið varð:
21.Df2 Dxe5
22.He1 Bxd5
23.h4 Bf4
24.Bb5 Bxa2
25.Hh3 c4
26.Hf3 Df5!
27.Dc2 Ill
nauðsyn en
svartur hótaði
máti á b1.
27...Bxe3+
28.Hexe3 Dxb5
29.Hxf7 Kxf7
30.Dh7 Hd3 og
hvítur gafst
upp. Lokastaða
efstu manna varð þessi: 1.-2.
Vladimir Chuchelov og Ein-
ar Gausel 7½ vinninga af 9
mögulegum 3.-11. Laurent
Fressinet, Sarunas Sulskis,
Ildar Ibragimov, Stanislav
Savchenko, Alexander Mois-
eenko, Peter Heine Nielsen,
Levon Aronjan, Thomas
Luther og Miroslav Grab-
arczyk 7 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
STAÐAN kom upp á Capp-
elle la Grande skákmótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Annar af sigurvegurum
mótsins, norski stórmeistar-
inn Einar Gausel (2481)
hafði hvítt gegn stigahæsta
keppandanum, Mikhail
Gurevich (2694). 19...Rxe5!
20.fxe5 Bg5! Mannsfórn
svarts byggðist á því hversu
MAGNÚS Magnússon og
Þröstur Ingimarsson spila í
sænsku meistaradeildinni
og spil dagsins kom þar upp
um síðustu helgi. Þröstur
var í vestur og hitti á gott út-
spil gegn fjórum spöðum –
hjartaáttu:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 2
♥ D4
♦ ÁD52
♣ ÁKD864
Vestur
♠ Á3
♥ KG8
♦ K8764
♣972
Vestur Norður Austur Suður
– – – 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Magnús tók slaginn á
hjartaás og spilaði hjarta-
sjöu til baka, en sagnhafi
fylgdi lit með níu og tíu.
Þröstur tók slaginn á kóng-
inn og…
Frestum framhaldinu og
spyrjum fyrst: Hvað hefði
lesandinn gert?
Norður
♠ 2
♥ D4
♦ ÁD52
♣ ÁKD864
Vestur Austur
♠ Á3 ♠ 972
♥ KG8 ♥ Á76532
♦ K8764 ♦ –
♣972 ♣G1053
Suður
♠ KD109875
♥ 109
♦ G1093
♣–
Hjartafylgjur suðurs
benda til að hann sé með 109
tvíspil, en hann gæti vel ver-
ið að blekkja með 109x.
Samkvæmt aðferðum þeirra
Þrastar og Magnúsar sýnir
hátt spil til baka upphaflega
staka tölu spila í litnum (3–
5–7), en lágt spil upphaflega
jafna tölu (2–4–6). Þröstur
áleit að Magnús væri að
sýna fimmlit (og sagnhafi
þar með að blekkja). Hann
lagði því niður spaðaás og
spilaði hjartagosa. Þar féll
tjaldið – sagnhafi trompaði
og átti afganginn.
Magnús var að reyna að
kalla í tígli með hæsta hjart-
anu sínu. Hann hefði hugs-
anlega getað komið Þresti
inn á rétta braut með því að
láta spaðagosann í ásinn
(„kveiktu-á-perunni-kall“),
en lykilspurningin er auðvit-
að þessi: Hvort hefur for-
gang hér – talning eða hlið-
arkall?
Og við því er ekkert ein-
falt svar til (eða er það?).
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Ég vil fá skilnað. Þessi gamli hjólbeinótti asni held-
ur því fram að ég hafi aldrei virt hann.