Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 77
www.sambioin.is
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.50 og 5.55.
Ísl. tal. Vit nr. 194.
Spennandi
ævintýramynd
fyrir börn á
öllum aldri
Sýnd kl. 4 og 6.
Vit nr. 204.Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 166.
Aðeins sameinaðir gátu þeir sigrað!
Sýnd kl. 4, 8, og 10.10. B. i. 14. Vit nr. 209.
Gíslataka í frumskógum
S-Ameríku
Kvikmyndir.is
"Russell Crowe og Meg Ryan í magnaðri spennumynd íleikstjórn Taylor Hackford sem
gerði myndirnar Devil´s Advocate, An Officerand a Gentleman og Against All Odds"
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl.8 og 10. Vit nr. 197.
www.sambioin.is
Aðeins sameinaðir
gátu þeir sigrað!
Frá Jerry Bruckheimer framleiðanda Armageddon og Rock
Sýnd kl.6. Enskt tal. Vit nr. 187.
Sýnd kl. 6. Enskt tal. Vit nr. 195.Sýnd kl. 8 og 10.10. B. i. 14. Vit nr. 191.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 166.
Ein allra vinsælasta myndin í
USA á undanförnum mánuðum
með Óskarsverð-
launahafanum Denzel
Washington. Mögnuð mynd
sem situr í þér!
Miði í Regnbogann gildir sem happadrættismiði fyrir PS2
Mel Gibson Helen Hunt
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Ísl texti.
Skríðandi tígur, dreki í leynum
1/2
Kvikmyndir.is
/
ÓHT Rás 2
What
Women
Want
Óskarsverðlauna-
tilnefningar 10
EMPIRE
Óskarsverðlaunatilnefningar0
HENGIFLUG
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6 og 8.
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
Yfir 25.000 áhorfendur.
Missið ekki af þessari
Besta mynd ársins á yfir 45 topp tíu listum!
Yfir 40 alþjóðleg verðlaun!
Hausverkur.is
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Önnu Vilhjálms
og hljómsveit
í Ásgarði, Glæsibæ,
föstudagskvöldið
16. mars
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
EFTIRVÆNTINGIN fyrir þessa
tónleika Mogwai var búinn að vera
mikil og það engin furða. Sveitinni
hefur verið hampað undanfarin ár
sem helstu von Bretlandseyja í jað-
arrokkinu og eru þeir í miklu uppá-
haldi jafnt hjá gagnrýnendum sem
kantrokkurum. Það að sveitin skuli
ákveða að halda fyrstu tónleika sína í
um hálft ár hérna, og það eins konar
útgáfutónleika vegna væntanlegrar
plötu, Rock Action, verður að teljast
fréttnæmt í meira lagi.
Ég var nokkuð uggandi fyrir þessa
tónleika. Ég var búinn að heyra
nokkur lög af plötunni nýju og er
nokkuð langt frá því að vera hrifinn.
Mogwai þykir skemmtileg tónleika-
sveit og ég vonaðist því til að þessi
beygur minn myndi hverfa. Svo varð
nú ekki.
Stuart Braithwaite, leiðtogi sveit-
arinnar, tók sér stöðu á miðju sviði og
kynnti sveitina feimnislega. Byrjað
var á nýju lagi, „Sinewave“. Þekki-
legasta melódía prýddi lagið sem
byrjaði rólega, byggðist upp jafnt og
þétt þangað til það braust út í hávaða
og læti. Svo datt þetta skyndilega
niður og lagið seytlaði hægt en
örugglega út.
Svona er nú reiknilíkanið hjá
Mogwai að langmestu. Og það er að
verða svolítið þreytt. Ekki það að ég
sé á móti einföldum lagasmíðum.
Mogwai eru bara ekki að valda form-
inu.
Það er t.d. áhyggjuefni að besta
lag kvöldsins var elsta lag sveitar-
innar. Lag þar sem tveir meðlimir
velsku rokksveitarinnar Super
Furry Animals tóku þátt í var og
ágætt. Hápunktur kvöldsins var svo
uppklappslagið, með þessari líka
gríðarlegu viðnámsorgíu.
Flest lög önnur, en fimm þeirra
voru ný, voru mér gleymd á þeirri
sekúndu sem þau hættu. Engin hug-
hrif, ekkert að gerast. Lögin minna
mann á þessa einföldu spuna er bíl-
skúrshljómsveitir leika af fingrum
fram í góðu flippi. Ég gæti samið
svona lög! (ekki hrós).
Ekki misskilja mig. Það er hægt að
fara vel með svona naumhyggjulegt
síðrokk. Godspeed you black emper-
or!, Labradford og Sigur Rós eru
prýðisdæmi um það, enda búa þær
yfir melódíum sem eru að svínvirka.
Þetta er því miður ekki málið hjá
Mogwai. Sveitin virðist hafa toppað í
blábyrjuninni, eins og heyra má á
hinu frábæra smáskífusafni Ten
Rapid, en síðan hefur leiðin verið
línuleg niður á við.
Strákarnir í Mogwai eru óskap-
lega vinalegir. Flestir fremur ljótir
og fótboltabullulegir. Þetta eru svona
gaurar eins og ég og þú og af þeim
stafar nærri því barnalegur sjarmi.
Kannski skýrir þetta að hluta til vin-
sældir þeirra. Þeir ýta undir þær
hugmyndir að hver sem geti stofnað
sveit og spilað – endurspegla rokk-
drauma hinna ungu og vonglöðu. Og
það verður að teljast þeim til tekna
að þeir eru greinilega einlægir í því
sem þeir eru að gera. Verst að það
sem þeir eru að gera þessa stundina
er ekkert sérstaklega merkilegt.
Flott ásjónar, menn að gefa sig í
þetta, mikill hávaði (hvar Mogwai
eru á heimavelli), einlægni og allt
það. En ósköp lítið þar fyrir utan.
T.d. lög, hvar voru þau? Mogwai er
bara engan veginn að standa undir
því hrósi sem á hana er ausið. Þetta
er í raun og réttu svalar umbúðir ut-
an um ekki neitt.
Morgunblaðið/ÁsdísStuart Braithwaite á sviðinu í Iðnó.
Það bylur hátt …
í tómum tunnum
TÓNLIST
H l j ó m l e i k a r
Tónleikar skosku síðrokkssveit-
arinnar Mogwai, 13. mars, 2001.
IÐNÓ
Arnar Eggert Thoroddsen