Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Síðan 1972 múrvörur Traustar íslenskar Leitið tilboða! ELGO SUNDIÐKUN er holl hreyfing og notaleg þeim sem hafa náð tökum á þessari íþrótt. Ekki síst er hentugt að geta notið „útivistar“ um leið í góðum útisundlaugum eins og þess- ar stúlkur gerðu í Sundlaug Kópa- vogs og hafa þær eflaust ekki verið einar um að fá sér sundsprett. Morgunblaðið/Þorkell Notalegt í sundi ALLUR innflutningur á kjötafurð- um frá löndum Evrópusambandsins og EFTA hefur verið takmarkaður vegna gin- og klaufaveiki sem þar hefur komið upp. Landbúnaðarráð- herra ákvað þetta í gær, í samráði við embætti yfirdýralæknis. Inn- flutningur á hráu kjöti frá ríkjum ESB verður bannaður með öllu og það sama gildir um innflutning lif- andi dýra. Bannið gildir um ótiltek- inn tíma, eða þar til annað verður ákveðið, eins og segir í tilkynningu frá embættinu. Þetta á líka við önnur lönd þar sem gin- og klaufaveiki hef- ur orðið vart. Sigurður Örn Hansson aðstoðar- yfirdýralæknir sagði við Morgun- blaðið að til þessa hefðu gilt þau lög að innflutningur á hráu kjöti væri al- mennt bannaður, að því tilskildu að embætti yfirdýralæknis veitti und- anþágu fyrir slíkum innflutningi ef sannað þótti að smitefni bærist ekki með vörunni. Auglýsingu frá land- búnaðarráðherra hefur verið komið á framfæri opinberlega um að slíkar undanþágur verði ekki veittar. Nær sú takmörkun sérstaklega til ríkja Evrópusambandsins og EFTA, sem og annarra landa í heiminum þar sem vitað er um gin- og klaufaveiki í búfé. „Við grípum til þessa ráðs til að láta alla vita af því að undanþágur verða ekki veittar, svo að menn fari ekki að flytja inn vörur,“ sagði Sig- urður. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann teldi að með þessu væri verið að grípa til ýtrustu varúðarráðstafana sem mögulegar væru í samræmi við skilmála þeirra alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Nú yrðu ekki veitt leyfi fyrir inn- flutningi á neinum þeim vörum sem hugsanlega gætu borið með sér gin- og klaufaveikismit. Þá sagði Guðni áríðandi að Íslend- ingar færu ekki um landbúnaðarhér- uð í þeim löndum þar sem veikin hef- ur komið upp. „Það er mikilvægt að Íslendingar átti sig á því að hér er mikil alvara á ferð,“ sagði Guðni. Brýnt væri að farþegar sem kæmu til landsins færu eftir þeim leiðbein- ingum sem gefnar hefðu verið út. Fleiri lönd ákváðu sömu aðgerðir í gær vegna þessa skæða dýrasjúk- dóms sem aðallega hefur herjað á breskan landbúnað en tilfelli hafa komið upp á meginlandi Evrópu. Þá hefur gin- og klaufaveiki orðið vart í Argentínu í S-Ameríku. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem segir að gin- og klaufaveiki geti breiðst út um allan heim. Hét stofnunin á alþjóða- samfélagið að grípa til hertra að- gerða gegn útbreiðslu veikinnar, þar á meðal aukins eftirlits með innflytj- endum, ferðamönnum og innflutn- ingi á matvælum, þar á meðal í far- angri ferðamanna. Allir stígi á sótthreinsimottur Auk takmarkana á innflutningi kjötafurða hefur yfirdýralæknir ákveðið, í samráði við sýslumanninn á Keflavíkurflugvelli, að allir farþeg- ar sem koma til landsins frá Evrópu stígi á sótthreinsimottur í landgang- inum í Leifsstöð. Áður hafa slíkar mottur eingöngu verið fyrir farþega frá Bretlandi. Motturnar eru einnig á Reykjavíkurflugvelli og varavöll- um fyrir millilandaflug á Akureyri og Egilsstöðum. Stjórnvöld grípa til frekari varnaraðgerða vegna gin- og klaufaveikinnar Innflutningur á kjöti frá ESB-ríkjum bannaður  Hertar/40 TALNINGU erlendra ferðamanna sem koma til landsins var hætt um síðustu áramót í landamærahliðunum í flugstöð Leifs Eiríkssonar, sam- kvæmt ákvörðun sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli. Þar sem Ísland verður aðili að Schengen-samstarfinu 25. mars, sem felur m.a. í sér afnám vegabréfaeftirlits á svæðinu, var ljóst að ekki yrði lengur hægt að fram- kvæma talningu á fjölda og þjóðerni erlendra gesta sem koma til landsins. Ferðamálaráð, Markaðsráð, Sam- tök ferðaþjónustunnar og fleiri sam- tök hafa lýst áhyggjum af þessu og leita nú allra framkvæmanlegra leiða til að hægt verði að halda áfram að mæla umfang erlendra ferðamanna eftir þjóðerni, að sögn Magnúsar Oddssonar ferðamálastjóra. „Það er alveg ljóst að við verðum að finna einhverja leið. Það er verið að setja hundruð milljóna í markaðs- og landkynningarmál. Það er okkur algerlega lífsnauðsynlegt að finna einhverja leið til þess að mæla um- fangið í greininni og hvort það eykst eða minnkar eftir þjóðernum og markaðssvæðum. Það eru nokkrir möguleikar sem gætu komið til greina en menn hafa ennþá ekki fundið einfalda leið sem kemur í stað- inn fyrir þessa, sem verið hefur við lýði í áratugi,“ segir hann. Kanna möguleika á talningu við brottfararinnritun Að sögn Magnúsar er nú m.a. verið að kanna hvort hægt verði að telja ferðamenn við brottför frá landinu eftir þjóðerni, t.d. við innritun. ,,Það er einnig hægt að taka stikkprufur í könnunum eins og margar aðrar þjóðir gera og búa til reiknilíkan út frá því,“ segir hann. Magnús segir að gistináttatalning Hagstofunnar mæli að sjálfsögðu umfangið. „Þær upplýsingar eru enn sem komið er verulega seinar og ein af þeim leiðum sem hafa verið skoð- aðar er hvort hægt er að flýta þeim niðurstöðum. Þær berast a.m.k. enn of seint til að hægt sé að sjá þróun á einstökum mörkuðum. Svo eitt dæmi sé tekið þá hefur þessa mánuði verið markaðssett ný vetrarvara sums- staðar. Það er erfitt að mæla hvaða áhrif hún hefur á einstökum mörk- uðum á meðan okkur skortir þessa talningu erlendra gesta.“ Breytingar á Keflavíkurflugvelli við gildistöku Schengen Talningu erlendra ferða- manna hefur verið hætt ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, sótti slasaðan vélsleðamann í Lambahraun, suður af Langjökli, upp úr klukkan 18 í gær. Maðurinn er alvarlega slasaður og liggur á gjörgæsludeild. Rétt eftir að þyrlan lenti var hún kölluð út öðru sinni vegna manns sem slasaðist m.a. á baki í vélsleðaslysi í Glerárdal við Akureyri. Björgunarsveitarmenn komu fljótlega á staðinn og hugðust flytja manninn á börum á vélsleða, en hann reyndist of mikið slasaður og því var óskað eftir aðstoð Land- helgisgæslunnar. Vegna aðstæðna á slysstað gat þyrlan ekki lent þar og var henni snúið til Akureyrar. Var þá ákveðið að flytja manninn til byggða í snjóbíl. Þriðja vélsleðaslysið varð síðan upp úr klukkan 18 í gær þegar mað- ur velti vélsleða í Unadal upp af Hofsósi. Hann fótbrotnaði og hlaut fleiri áverka. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Þrír vél- sleðamenn mikið slasaðir FUNDI í kjaradeilu sjómanna og viðsemjenda, sem hófst kl. 13.30 í gærdag, lauk um kl. 00.30 í nótt án árangurs. Boðað hefur verið til nýs fundar kl. 10.30 í dag. Verkfall hefst að óbreyttu kl. 23 í kvöld. Verðmyndun á fiski og mönnunar- mál eru veigamikil atriði í kjaradeil- unni. Sjómenn hafa til þessa hafnað hugmyndum um breytingar á skipt- um við fækkun í áhöfn. Eins hafa sjó- menn hafnað tillögu útgerðarinnar um að hækka verð á þorski í beinum viðskiptum upp í allt að 100 krónur á kílóið en það er vegið meðalverð á þorski á mörkuðum og í beinum við- skiptum á síðasta ári. Meðalverð á fiskmörkuðum á síðasta ári var rúm- lega 145 krónur á kíló. Aðeins eru um 18.712 tonn að baki þeim við- skiptum en rúm 84 þúsund tonn voru seld í beinum viðskiptum. Innan samtaka Sjómannasam- bands Íslands eru um fjögur þúsund manns og nær verkfallið til þeirra langflestra. Þá starfa á milli 5 og 6 þúsund manns við fiskvinnslu í land- inu og ljóst þykir að starfsemin stöðvist fáeinum dögum eftir að verkfall sjómanna hefst. Þannig verður hátt á annan tug þúsunda manna frá vinnu vegna verkfallsins, komi til þess. Fundað í dag í sjó- mannadeilu  Deilt um/27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.