Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 24
NEYTENDUR 24 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ SERTILBOD.IS og Strik.is hafa gert með sér samstarfssamning sem felur m.a. í sér að Strik.is mun kynna Sertilbod.is í aug- lýsingum sínum, jafnt á Strikinu sjálfu sem og í öðrum miðlum, s.s. sjónvarpi. Sertilbod.is bætist í hóp netverslana á verslun strik.is og síðan verður því aðgengi- legri neytendum sem leita að verslun og þjónustu á Netinu, samkvæmt því sem segir í frétta- tilkynningu. Fimm vinsælustu tilboðin Þá munu verslanir á Strik.is, sem eru með sértilboð eða útsölur, verða auglýstar með miðlum Ser- tilbod.is. Strik.is mun birta dag- lega „5 vinsælustu tilboð“ frá Ser- tilbod.is og auka þannig þjónustu við notendur Striksins, auk þess sem fyrirtæki með skráð tilboð hjá Sertilbod.is fá betri kynningu. Sértilboð er nýlegt, íslenskt fyr- irtæki sem hefur það markmið að auðvelda neytendum að versla ódýrt. Starfsfólk Sértilboða þræðir auglýsingamiðla landsins og safnar saman og skráir tilboð og útsölur sem fyrirtæki auglýsa. Þessi tilboð eru birt m.a. á vef- síðu Sértilboða, www.sertilbod.is , póstlista þess og öðrum íslenskum vefsíðum. Nýlega gerðu Sértilboð samning við Tal hf., sem gerir að verkum að viðskiptavinir Tals geta fengið tilboðin send til sín með SMS-skilaboðum í símana sína. Sertilbod.is og Strik.is gera með sér samstarfssamning FRÓMAS með rommbragði frá Kjörís hefur fengið nýtt útlit. Í fréttatilkynningu segir að hann hafi verið á markaði í fjölda ára og sé hentugur til ýmissa nota, t.d. á milli í tertur, í vatnsdeigsbollur, í ábætis- rétti eða bara beint úr dósinni. Frómasinn fæst í 1 ltr. umbúðum. Frómas með rommbragði VOR- og sumar- listi frá póst- versluninni Margaretha er kominn út. Í fréttatilkynn- ingu segir að listanum sé dreift til fólks að kostnaðarlausu um allt land. Í listanum eru m.a. úrval útsaumsmynda, púða og dúka. Nánari upplýs. fást hjá Póst- versluninni, Kringlunni 7, í síma 533-5444. Hannyrðir BÆKLINGUR með vor- og sum- arlínu Green- House er kominn út. Fyrirtækið er danskt en í frétta- tilkynningu segir að fatnaðurinn sé aðallega seldur á heimakynningum eða heima hjá sölukonum. Einnig er hægt að hringja og panta flíkur. Bæklingur- inn er ókeypis. Nánari upplýsingar eru í síma 588-1259. Vor- og sumarlisti VOR- og sum- arlistinn OTTO er kom- inn út, tæp- lega 1.400 blaðsíður að stærð. Í fréttatil- kynningu seg- ir að í listan- um sé tískufatnaður á alla fjölskylduna í öllum stærð- um. Þar er einnig að finna vefnaðar- vöru, húsgögn og borðbúnað auk gjafavöru. Eins og undanfarið verður einn- ig boðið upp á listann á geisladiski. Sérlistarnir eru nokkrir en þeirra á meðal eru Klitzeklein þar sem er m.a. að finna meðgöngu- fatnað, Kidoki en í honum eru föt á börn 2 til 6 ára, og Fair Lady þar sem er á boðstólum klassísk kven- mannsföt í öllum stærðum. Nýtt símanúmer er 466-4000 en einnig er hægt að skoða og panta vörur og lista á heimasíðunni: www.otto.is. Vor- og sumarlisti Nýtt UMBOÐSAÐILINN Tómas & Dúna hf., sem rekur BanThai-veit- ingahúsið, hefur hafið innflutning á tælenskum skyndiréttum fyrir ofna og örbylgjuofna. Skyndiréttirnir eru sjö talsins, mismunandi bragðsterkir og meðal tegunda eru Kai sa tay- og Tom kha kai-réttirnir. Skyndiréttirnir eru fáanlegir í öll- um helstu verslunum landsins. Skyndiréttir ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.