Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ PERSÓNUVERND og vísindasiða- nefnd hafa samþykkt fyrstu áfanga Íslenska krabbameinsverkefnisins sem er sameiginlegt átak lækna, vísindamanna og almennings á Ís- landi til að rannsaka orsakir og eðli krabbameins. Undir merkjum Ís- lenska krabbameinsverkefnisins verða á næstu árum gerðar fjöl- margar vísindarannsóknir á krabbameini. Fyrstu áfangar Íslenska krabba- meinsverkefnisins, sem Persónu- vernd og vísindasiðanefnd hafa nú veitt leyfi til að hefja, eru rann- sóknir á krabbameini í eftirfarandi líffærum: brjóstum, legi, leghálsi, eggjastokkum, nýrum, þvagblöðru, eistum, blöðruhálskirtli, skjaldk- irtli, vélinda, maga, lifur og galli, brisi, ristli og endaþarmi. Fleiri verkefni bíða afgreiðslu nefndarinn- ar. Fleiri rannsóknar- verkefni undirbúin Tekið verður á móti þátttakend- um Íslenska krabbameinsverkefn- isins í Skúlaveri, nýrri þjónustumið- stöð að Skúlagötu 51 í Reykjavík. Þeir sem vilja taka þátt í rannsókn- inni láta í té upplýsingar og gefa blóðsýni og verður þeim upplýsing- um safnað í Skúlaveri. Þar fer einn- ig fram leyndarmerking persónu- upplýsinga og verður unnið eftir skilmálum sem hafa hlotið sam- þykki vísindasiðanefndar og Per- sónuverndar. Í upphafi starfa sex hjúkrunarfræðingar og ritari í Skúlaveri og má búast við fjölgun í þeirra hópi þar sem fleiri rannsókn- arverkefni eru í undirbúningi. Aðilar sem standa að Íslenska krabbameinsverkefninu eru Land- spítali – háskólasjúkrahús, Krabba- meinsfélag Íslands, Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, Íslenski krabbameinshópurinn og líftækni- fyrirtækið Urður Verðandi Skuld ehf. Íslenski krabbameinshópurinn er hópur lækna sem starfa við að greina og lækna krabbamein við ofangreind sjúkrahús. Þessir aðilar hafa bundist samtökum um að efla vísindarannsóknir á krabbameini á Íslandi. Húsnæði Skúlavers er um 400 fermetrar á tveimur hæðum. Auk móttöku eru þar vinnuherbergi fyr- ir hjúkrunarfræðinga sem taka á móti þátttakendum. Í Skúlaveri er einnig aðstaða fyrir samstarfslækna Íslenska krabbameinsverkefnisins. Ábyrgðarmaður verkefnisins, dr. med. Þorvaldur Jónsson dósent í skurðlækningum, hefur skrifstofu sína í Skúlaveri. Framkvæmda- stjóri Skúlavers er Þórgunnur Hjaltadóttir. Urður, Verðandi, Skuld fær leyfi til að hefja Íslenska krabbameinsverkefnið Tekið er á móti þátttakendum Íslenska krabbameinsverkefnisins í Skúlaveri, nýrri þjónustumiðstöð á Skúlagötu 51. Vinna hafin í nýrri þjón- ustumiðstöð DANSKI læknirinn Sören Berg, sem er sérfræðingur í kæfisvefni og sérstaklega í þrýstimælingum í vél- inda og viðnámi í efri loftvegum, og Baldur Þorgilsson verkfræðingur hafa að undanförnu átt samstarf um þróun vél- og hugbúnaðar sem nota á við rannsóknir á kæfisvefni. Baldur er framkvæmdastjóri heilbrigðis- tæknifyrirtækisins Kine en eitt aðal- verkefni þess er að hanna og mark- aðssetja svonefndan Hreyfigreini. Hann er kerfi vél- og hugbúnaðar sem gerir sérfræðingum í heilbrigð- isgeiranum kleift að mæla hvers kyns hreyfingar líkamans og skrá- setja og segir Baldur þetta auka mjög möguleika t.d. sjúkraþjálfara í að meta ástand og þjálfa. „Sjúkraþjálfarar, sjúklingar, læknar og tryggingafélög eru allt áhugasamir aðilar um hlutlægt mat á gangi meðferðar og mælingarnar eru nauðsynlegur þáttur í því mati,“ segir Baldur. Hann segir endurhæf- ingu vegna öndunar- og lungnastarf- semi einnig viðamikið svið innan sjúkraþjálfunar og liggja verkefni Kine einnig innan þess, svo sem á sviði kæfisvefns. Sören Berg hefur yfir 15 ára reynslu af rannsóknum á kæfisvefni og starfar nú við læknadeild háskól- ans í Lundi í Svíþjóð. Um tveggja ára skeið starfaði hann einnig að rann- sóknum sínum í Kanada. Hann er einn þeirra fyrstu sem notað hafa svefnrannsóknatækið Emblu sem Flaga framleiðir en fyrirtækið er í forystu á sviði þeirrar framleiðslu og hafa tækin selst víða um heim. Baldur lærði verkfræði í Dan- mörku og starfaði með náminu á eðl- isfræði- og tæknideild Landspítalans og síðar var hann fastráðinn í þróun- arverkefni á vegum deildarinnar þar til fyrir nokkrum árum að hann fór að starfa fyrir Kine ehf. Baldur kynntist meðal annars svefnrann- sóknum sem Þórarinn Gíslason vann að. Baldur hefur sérhæft sig í hönn- un hug- og vélbúnaðar vegna lækn- ingarannsókna einkum á sviði raf- einda-, mynd- og merkjafræði. Frá því um 1989 þróuðu Þórarinn og Baldur vélbúnað og hugbúnað til upptöku og greiningar á kæfisvefni. „Um 1994 skiptum við yfir í vél- búnað frá fyrirtækinu Flögu sem þá var nýr en greiningarhugbúnaðurinn var aðlagaður hugbúnaði Flögu og hann þróaður áfram. Með tímanum jókst svo áhugi forráðamanna Flögu á sviði mælinga á kæfisvefni og fór svo að lokum að öll þekking varðandi greiningaraðferðirnar var færð yfir til Flögu og fyrirtækið tók við að þróa greiningarhugbúnaðinn. Meðal annars með þessum hætti átti Land- spítalinn þátt í frábærum árangri Flögu sem óx úr um fjögurra manna fyrirtæki við upphaf samstarfsins í nærri 100 manna fyrirtæki í dag. Er það eitt af öflugustu fyrirtækjum heims á þessu sviði,“ segir Baldur. Ísland framarlega á sviði svefnrannsókna Sören Berg skýtur því hér inn í að í suðurhluta Svíþjóðar hafi þeir að- ilar sem nota tækin frá Flögu til svefnrannsókna með sér náið sam- starf og er miðstöð þessa samstarfs í Lundi. Hann segir jafnframt að Ís- land sé mjög framarlega á sviði svefnrannsókna. „Hér er fyrir hendi þekking á öll- um sviðum, tækni- og tölvuþekking vegna hönnunar og þróunar búnaðar og í læknisfræði og hér starfar einn fremsti sérfræðingur í rannsóknum á kæfisvefni, Þórarinn Gíslason á Vífilssstöðum,“ segir hann og nefnir líka sem dæmi að Baldur Þorgilsson hafi mikla reynslu af því að tvinna saman þekkingu og reynslu úr heimi tækni og lækninga. Segir hann af þeim sökum áhuga- vert að starfa með Kine að frekari þróun tækjabúnaðar til svefnrann- sókna. Meðal verkefna þeirra um þessar mundir er að þróa mælingar á þrýst- ingi og loftflæði í öndunarfærum lík- amans við öndun. Fara þær m.a. fram í sérstökum kassa eða boxi sem viðkomandi sjúklingur sest inn í. Er mældur þrýstingur á búk og hálsi og með grímu eru einnig framkvæmdar sérstakar mælingar. Kassinn er upp- runninn í Toronto í Kanada en hér er unnið að ákveðnum endurbótum á mælingatækninni. Eru aðeins tveir aðrir slíkir kassar til á Norðurlönd- unum en nokkrir í Vesturheimi og íBrasilíu. Sören Berg segir að við slíkar mælingar geti komið fram hvort og hvar hugsanleg þrengsli eru í öndunarvegi og hvaða meðferð þurfi að beita við lækningu. Alþjóðlegt rannsóknasetur á Íslandi Þá kom fram í spjallinu við Sören Berg að hugmyndin er að hérlendis verði sett upp eins konar alþjóðlegt rannsóknasetur á sviði svefnrann- sókna og samstarf er nú milli háls-, nef- og eyrnadeildar Landspítala í Fossvogi og háskólasjúkrahússins í Lundi um svefnrannsóknir. Í lokin má geta þess að auk þess sem Kine starfar að framleiðslu og þróun tæknibúnaðar býður fyrirtæk- ið upp á ýmis námskeið, m.a. í hreyfi- greiningu. Veffangið er www.kine.is. Íslenskir tæknimenn og danskur læknir í samstarfi vegna svefnrannsókna Þróa saman hugbúnað og rannsóknartæki Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Baldur Þorgilsson situr hér í boxinu og Sören Berg útskýrir hvernig mæla má margs konar þrýsting með því og lesa úr í tölvunni sem er tengd boxinu. Margs konar tækni þarf að viðhafa til að rann- saka öndunartruflanir og afleiðingar þeirra. Jóhannes Tómasson ræðir við sérfræðinga á þessu sviði sem vinna meðal annars að end- urbótum á sérhönn- uðum kassa sem not- aður er í þessu skyni. FJARSKIPTAMÁL í dreifbýli voru talsvert til umræðu á nýafstöðnu Búnaðarþingi og samþykkt var ályktun þar sem fagnað er þeirri ákvörðun að fyrir árslok 2002 skuli allir landsmenn eiga möguleika á al- þjónustu, eða svokallaðri ISDN- tengingu. Ennfremur er þeim vilja Landssímans fagnað að hefja sam- starf við Bændasamtökin um upp- byggingu svonefnds bændatorgs á Netinu. Þingið felur stjórninni að fylgjast grannt með „þessu brýna hagsmunamáli,“ eins og segir í álykt- uninni. Á þinginu kom fram að tölvunotk- un er veruleg í sveitum landsins og fer vaxandi. Víða er því talin nauðsyn á að bæta samband og auka flutn- ingsgetu á línum Landssímans í dreifbýlinu. Upplýst var að nýlega hófst sam- starf milli Landssímans og Bænda- samtakanna um uppbyggingu á bændatorgi á vefnum. Þar er ætlun- in að bændur geti fengið aðgang að alhliða þjónustu og verslun á einum stað. Stofnaður hefur verið verk- efnahópur sem á að vinna að þessum málum og jafnframt að tryggja áframhaldandi uppbyggingu á al- þjónustu um allt land. Fjarskiptamál í dreifbýli rædd á Búnaðarþingi Bændatorg á vefnum í undir- búningi KONA á þrítugsaldri hlaut minni- háttar meiðsl þegar bíll hennar valt út af veginum austan við Ingólfshvol í Ölfusi laust eftir klukkan eitt í fyrrinótt. Hún var flutt á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi sat konan föst í bílnum þar sem honum hvolfdi ofan í skurð en náði að kalla eftir aðstoð lögreglu með því að nota farsíma sem hún hafði meðferðis. Konan var ein í bílnum en talið er að hún hafi sofnað undir stýri. Bíllinn skemmd- ist nokkuð. Sat föst í bíln- um en lét vita með farsíma ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.