Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 62
FRÉTTIR 62 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ LOKIÐ er athugun Skipulags- stofnunar á mati á umhverfisáhrif- um efnisnáms í Hlíðarhorni við Máná á Tjörnesi fyrir brimvarn- argarð við Húsavíkurhöfn. Fram- kvæmdin var formlega tekin til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun í nóvember 2000 og var auglýst í blöðum og kynnt með fréttatil- kynningu. Í frétt frá Skipulagsstofnun kemur fram að engar athugasemd- ir bárust á kynningartíma. „Leitað var umsagnar Tjörneshrepps, Náttúruverndar ríkisins, Heil- brigðiseftirlits Norðurlands eystra, Hollustuverndar ríkisins og Þjóð- minjasafns Íslands. Framkvæmdin var kynnt Vegagerðinni og Húsa- víkurkaupsstað. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, og hann er einnig að finna á heima- síðu Skipulagsstofnunar: http:// www.skipulag.is,“ segir í fréttatil- kynningunni. Niðurstaða Skipulagsstofnunar „Í matsskýrslu var kynnt efn- isnám úr opinni námu í Hlíðarhorni við Máná á Tjörnesi í Tjörnes- hreppi fyrir byggingu brimvarnar- garðs við Húsavíkurhöfn. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í apríl eða maí 2001 og ljúki ekki síðar en í nóvember 2002. Fyrirhugað er að vinna 250.000 m³ efni úr námunni. Stærð núver- andi námusvæðis er um 10.000 m² og er áætlað að það stækki í um 20.000 m². Eftir vinnslu árið 1998 eru um 50.000 m³ af efni á um 10.000 m² lagersvæði norðan við námuna og er gert ráð fyrir nýju um 60.000 m² lagersvæði norðvestan við námuna. Ráðgert er að efni frá námu í Hlíð- arhorni verði flutt landleiðina eða að hluta sjóleiðina til Húsavíkur. Verði hluti efnisins fluttur sjóleið- ina til Húsavíkur þarf að breyta vegtengingu núverandi námuvegar við þjóðveg 85 á um 150 m löngum kafla og leggja um 350 m langan veg þaðan til norðurs að fyrirhug- aðri prammaaðstöðu til bráða- birgða í Beitarvík. Gert er ráð fyrir nýju 20.000 m² lagersvæði austan námuvegar við prammaaðstöðu í Beitarvík. Prammaaðstaða í Beit- arvík verður fjarlægð í verklok. Efnistaka úr námu í Hlíðarhorni við Máná á Tjörnesi mun hafa áhrif á landslag vegna stækkunar námu, gerð aðkomuvega, lagersvæða og prammaaðstöðu í Beitarvík. Sam- ráð verði haft við Náttúruvernd ríkisins við afmörkun fyrrnefndra framkvæmdarþátta og frágang þeirra. Sprengingar við námu- vinnslu, umferð vinnuvéla og efn- isflutningar munu hafa tímabundin en ekki varanleg áhrif á kríuvarp í nágrenni við námuna meðan á framkvæmdum stendur. Skipulagsstofnun tekur undir með framkvæmdaraðila að við kríuvarpið verði höfð aðgát við framkvæmdir. Gætt verði að því að menga ekki vatnsból bæjanna Mánár og Mánárbakka. Í umsögnum hefur verið bent á að efnisflutningar á landi úr námu í Hlíðarhorni á Tjörnesi í brimvarn- argarð við Húsavík muni valda óþægindum fyrir íbúa vegna ryk- og hávaðamengunar á Húsavík og hefur verið bent á að til að draga úr þessum óþægindum sé ástæða til að leggja nýjan, rykbundinn bráðabirgðaveg norðan Húsavíkur- bæjar að hafnarsvæði. Fram- kvæmdaraðili leggur ríka áherslu á að flytja hluta af efninu sjóleiðina til Húsavíkur til þess að draga úr óþægindum vegna aukinnar um- ferðar þungaflutningabíla um götur bæjarins. Aftur á móti komi ekki í ljós fyrr en tilboð í verkið verða opnuð hvort það sé raunhæfur möguleiki. Flutningarnir séu einn- ig háðir veðri og sjólagi á verk- tíma. Skipulagsstofnun telur mik- ilvægt að sem stærstur hluti efnisflutninga úr námu í Hlíðar- horni á Tjörnesi fari fram sjóleið- ina til Húsavíkur til að draga úr áhrifum vegna ryk- og hávaða- mengunar, slysahættu og annarra óþæginda af umferð um Tjörnes og götur bæjarins. Skipulagsstofnun tekur undir ábendingar um að lagður verði bráðabirgðavegur norðan Húsavíkur niður að hafn- arsvæði verði ekki af efnisflutn- ingum sjóleiðina og þarf Húsavík- urbær að ákveða í samráði við framkvæmdaraðila hvort ástæða sé til þess að leggja veginn til að draga úr fyrrnefndum áhrifum vegna efnisflutninga í bænum. Skipulagsstofnun telur brýnt að uppfylltar verði kröfur reglugerðar nr. 933/1999 um hávaða vegna framkvæmdarinnar. Verði efni ein- göngu flutt landleiðina til Húsavík- ur tryggi framkvæmdaraðili og Húsavíkurbær í sameiningu að verktaki og almenningur fái allar tiltækar upplýsingar um fram- kvæmdina þannig að menn séu meðvitaðir um þá hættu sem óhjá- kvæmilega mun stafa af aukinni þungaumferð. Á grundvelli gagna framkvæmd- araðila lögðum fram við athugun, umsagna og svara framkvæmda- raðila við þeim fellst Skipulags- stofnun á efnistöku í námu í Hlíð- arhorni við Máná á Tjörnesi fyrir brimvarnargarð við Húsavíkur- höfn, byggingu aðkomuvegar, gerð lagersvæða og prammaaðstöðu til bráðabirgða í Beitarvík. Niður- staða Skipulagsstofnunar byggist á að framfylgt verði þeirri fram- kvæmdatilhögun og mótvægisað- gerðum sem framkvæmdaraðili hefur lagt til og lýst er í mats- skýrslu og 4. kafli úrskurðarins og niðurstaða hans byggist á. Samkvæmt 27. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. þarf framkvæmdaraðili að sækja um framkvæmdaleyfi til Tjörnes- hrepps vegna framkvæmdarinnar. Ekkert skipulag er í gildi á svæð- inu og þarf Tjörneshreppur að óska eftir meðmælum Skipulags- stofnunar skv. 3. tl. bráðabirgða- ákvæða skipulags- og byggingar- laga vegna veitingar fram- kvæmdaleyfis fyrir efnisnámi, lagersvæðum og vegagerð. Verði af þeim áformum að flytja efni sjó- leiðina til Húsavíkur þarf Tjörnes- hreppur ennfremur að óska eftir meðmælum stofnunarinnar vegna leyfis fyrir prammaaðstöðu í Beit- arvík. Áður en framkvæmdaleyfi er veitt skal liggja fyrir áætlun um efnistöku sbr. 48. gr. laga nr. 44/ 1999 um náttúruvernd. Í samræmi við 11. grein laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/ 2000 hefur Skipulagsstofnun farið yfir þau gögn sem lögð voru fram samkvæmt 10. grein sömu laga af hálfu framkvæmdaraðila við til- kynningu ásamt umsögnum og svörum framkvæmdaraðila við þeim. Með vísun til niðurstöðu Skipu- lagsstofnunar sem gerð er grein fyrir í 5. kafla úrskurðarins er fall- ist á fyrirhugaða efnistöku úr námu í Hlíðarhorni við Máná á Tjörnesi fyrir brimvarnargarð við Húsavíkurhöfn eins og henni er lýst í framlögðum gögnum fram- kvæmdaraðila.“ Samkvæmt 12. grein laga nr. 106/2000 má kæra úrskurð skipulagsstjóra ríkisins til umhverfisráðherra. Kærufrestur er til 28. mars 2001. Framkvæmdum verði lokið 2002 Skipulagsstofnun um efnisnám í Hlíðarhorni á Tjörnesi fyrir brimvarnargarð við Húsavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.