Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK
fyrir frábærar ferðir
Pöntunarsími: 56 20 400
Cape Sun Inter-Continental
SPENNANDI SUÐUR-AFRÍKA
Páskar 8.-16. apríl -
aðeins 3 vinnudagar
CAPE TOWN - fá
sæti - nýtt frábært
tilboð á 5* lúxusdvöl
CAPE SUN INTER-
CONTINENTAL HOTEL
m. morgunv., flug, gist.
Þetta hótelboð
jafngildir að
fljúga frítt til
Suður-Afríku!
FLOKKSÞING Framsóknarflokks-
ins hefst á morgun á Hótel Sögu í
Reykjavík. Þingið er það 26. í röðinni
og er að þessu sinni haldið undir yf-
irskriftinni „Framsókn fyrir land og
þjóð“. Seturétt á þinginu hafa 800–
900 fulltrúar alls staðar af landinu.
Á morgun flytur Halldór Ás-
grímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, setningarræðu. Einnig
flytja ritari og gjaldkeri flokksins
skýrslu um störf sín. Eftir hádegið
hefjast almennar umræður og
nefndir hefja störf. Á laugardegin-
um verður umræðum og nefndar-
störfum framhaldið. Þá munu ráð-
herrar flokksins einnig sitja fyrir
svörum.
Forysta flokksins
kosin á sunnudag
Flokksþinginu lýkur á sunnudag-
inn með afgreiðslu ályktana og kosn-
ingu forystu flokksins. Þrír hafa
boðið sig fram til varaformanns
Framsóknarflokksins, en það eru al-
þingismennirnir Guðni Ágústsson,
Jónína Bjartmarz og Ólafur Örn
Haraldsson. Tveir hafa boðið sig
fram til embættis ritara, en það eru
alþingismennirnir Hjálmar Árnason
og Siv Friðleifsdóttir.
Á flokksþinginu verða einnig
teknar fyrir viðamiklar breytingar á
lögum Framsóknarflokksins. Á
þinginu verða einnig veitt bjart-
sýnisverðlaun Framsóknarflokksins.
Flokksþing
framsókn-
armanna
um helgina
BÚIST er við Boeing 737-300F
fragtflugvél flugfélagsins Blá-
fugls til landsins í lok þessarar
viku, eftir viðamiklar breyting-
ar í Alabama í Bandaríkjunum.
Vélina á að nota í áætlunar- og
leiguflugi frá Íslandi.
Ráðnar hafa verið fjórar
tveggja manna áhafnir á vélina.
Hún verður staðsett á Kefla-
víkurflugvelli og verður m.a.
flogið í reglubundnu áætlunar-
flugi á vegum UPS og Flug-
flutninga ehf. á leiðinni Kefla-
vík - Leeds - Köln - East
Midlands - Keflavík.
Vél Blá-
fugls vænt-
anleg í
vikulokin
HEILDARSKIPULAG í samgöngu-
málum og bein tenging innanlands-
flugs við millilandaflug er nauðsyn-
leg til að efla ferðaþjónustu á
landsbyggðinni, sem þarf að sækja
aukna hlutdeild í tekjum af erlendum
ferðamönnum. Í því skyni gæti
Keflavíkurflugvöllur orðið öflug mið-
stöð samgangna á Íslandi og til
Grænlands, þar sem millilandaflug
og innanlandsflug gætu tvinnast
saman ásamt öðrum ferðamáta í einu
heildarsamgöngukerfi innanlands.
Þetta kom m.a. fram á málþingi um
áhrif staðsetningar innanlandsflug-
vallar á ýmsar tegundir ferðaþjón-
ustu, sem Félag háskólamenntaðra
ferðamálafræðinga stóð fyrir í í gær.
Úlfar Antonsson, deildarstjóri inn-
anlandsdeildar Ferðaskrifstofu Ís-
lands, sagði erfitt að segja til um
hvort flugvöllurinn ætti að fara úr
höfuðborginni til Keflavíkur en hins
vegar væri ljóst að nauðsynlegt væri
að skapa heildarstefnu í almennings-
samgöngum hérlendis. Í erindi hans
kom fram að ríflega 300.000 ferða-
menn hefðu komið til landsins í fyrra
og samkvæmt spám mætti reikna
með að þeim fjölgaði í eina milljón
næstu tvo til þrjá áratugina. Úlfar
sagði 95% þeirra koma til að njóta
náttúru landsins en hins vegar væru
tekjur landsbyggðarinnar af ferða-
mönnum verulega óhagstæðar í sam-
anburði við tekjur sem menn hefðu af
ferðamönnum á höfuðborgarsvæð-
inu. Innan við 15% af farþegum í inn-
anlandsflugi í dag eru erlendir ferða-
menn og taldi Úlfar að fjölgun þeirra
væri líkleg til að standa undir helm-
ingi allra tekna í innanlandsflugi á
komandi árum og innan 20 ára yrði
ekki hægt að stunda arðbært innan-
landsflug án þessa hóps. Þessir far-
þegar geri auknar kröfur um hraða
og þjónustu og því sé ljóst að bæta
þurfi samgöngukerfi landsins og
tengja betur flug og aðrar almenn-
ingssamgöngur.
Úlfar velti upp þeirri spurningu
hvort ekki þyrfti að líta á flugvöll sem
umferðarmiðstöð sem tengdi saman
ferðir innanlands og til og frá land-
inu. Þannig taldi hann Keflavíkur-
flugvöll hafa ýmsa kosti sem slíka
miðstöð og benti m.a. á þann mögu-
leika að flugvöllurinn gæti orðið
hentugur tengivöllur við flug til og
frá Grænlandi. Þá væri hægt að
tengja saman innanlandsflug og
millilandaflug ásamt öðrum almenn-
ingssamgöngum í einum punkti og
líta á kerfið sem eina heild. Sagði Úlf-
ar að þegar litið væri 15-20 ár fram í
tímann væri rétt að flytja flugvöllinn
til Keflavíkur, sem þá yrði besti kost-
urinn, enda væri framtíðarþróun í
flugi engum takmörkunum háð á
flugvellinum í Keflavík.
Auðveldar sölu á á alþjóðlegum
ferðamörkuðum
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri á
Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit,
sagði engu máli skipta fyrir ferða-
þjónustu á landsbyggðinni hvar flug-
völlurinn væri, svo framarlega sem
hann gæti tengt millilandaflugið
beint við flug innanlands. Að mati
Péturs skiptir Reykjavíkurflugvöllur
því engu máli fyrir ferðaþjónustu á
landsbyggðinni miðað við núverandi
aðstæður, enda séu erlendir farþegar
í innanlandsflugi mjög lítill hluti þess
fjölda sem ferðast í flugi innanlands.
Sagði Pétur mjög fáa farþega sem
kæmu með flugi til Akureyrar nýta
sér þjónustu ferðaaðila á Norður-
landi en hins vegar gæti fjölgun er-
lendra ferðamanna orðið helsti vaxt-
arbroddurinn í innanlandsfluginu.
Pétur telur að bætt tenging al-
menningssamgangna við alþjóða-
flugið auðveldi sölu á sérkennum Ís-
lands á alþjóða ferðamarkaðinum og
geri allt Ísland að sölusvæði en ekki
einungis Reykjavík og nágrenni.
Hann tók sem dæmi helgarferðir frá
Bretlandi til Mývatnssveitar sem
hann hefur verið að markaðssetja
undanfarin misseri. Byggist sala
þeirra alfarið á því að hægt sé að
fljúga beint frá Keflavík norður í land
og því var gripið til þess ráðs að
leigja sérstaka vél til að fljúga með
farþegana hér innanlands. Á tíma-
bilinu frá febrúar fram í apríl á þessu
ári eru 200 farþegar væntanlegir sem
borga hver um 500 pund fyrir þriggja
daga ferð, að sögn Péturs. Samtals sé
nú verið að skapa tekjur upp á 50
milljónir króna á ári með þessum
ferðum, sem fyrst og fremst sé hægt
að markaðssetja með því að bjóða
beina tengingu innanlandsflugs við
alþjóðaflugið.
Málþing um áhrif staðsetningar innanlandsflugvallar á ferðaþjónustu
Brýnt að tengja innan-
lands- og millilandaflug
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fremur fámennt var á málþingi um áhrif staðsetningar innanlandsflugvallar á ferðaþjónustu.
SÝSLUMAÐURINN á Keflavíkur-
flugvelli og Flugleiðir hafa gert
samstarfssamning um að starfs-
menn sýslumannsembættisins ann-
ist sérstaka fræðslu um fíkniefna-
mál fyrir starfsmenn Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli.
Flugleiðir munu í staðinn láta
embættinu í té a.m.k. 15 flugferðir á
ári til að gera starfsmönnum emb-
ættisins kleift að afla sér þekkingar
og reynslu á sviði fíkniefnamála og
til að efla tengsl við sérfræðinga og
samstarfaðila á öðrum alþjóðaflug-
völlum.
Á blaðamannafundi í gær undir-
rituðu þeir Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra og Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða, samninginn,
sem er til þriggja ára.
Halldór taldi samninginn mikil-
vægan enda kæmu langflestir far-
þegar til landsins með Flugleiðum.
Því væri brýnt að starfsmenn Flug-
leiða væru á varðbergi gagnvart
fíkniefnasmygli. Samstarf við fyrir-
tækið hefði verið gott en það væri nú
enn aukið. Það væri einnig mikil-
vægt fyrir sýslumannsembættið að
geta sent starfsfólk sitt til útlanda til
að bæta við þekkingu sína enda væri
baráttan gegn fíkniefnum alþjóðleg.
Halldór sagði sýslumannsemb-
ættið hafa náð verulegum árangri á
þessu sviði. Slík barátta yrði að vera
háð í samvinnu við fólkið í landinu og
með samvinnu stjórnvalda og fyr-
irtækja, ekki síst flutningsfyrir-
tækja.
Sigurður Helgason sagði fyrir-
tækið hafa unnið náið með sýslu-
mannsembættinu á Keflavíkurflug-
velli. Starfsfólk fyrirtækisins gerði
sér grein fyrir þeirri hættu sem staf-
aði af innflutningi fíkniefna. Því væri
það mjög til bóta að fá aðstoð hjá
sýslumannsembættinu við þjálfun
starfsfólksins.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, sagði
ávinninginn af samningnum ekki
síst þann að í honum birtist mikill
stuðningur við starf sýslumanns-
embættisins á Keflavíkurflugvelli.
Flugleiðir og sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli skrifa undir samstarfssamning
Starfsmenn Flug-
leiða fræddir um
fíkniefnamálefni
Morgunblaðið/RAX
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, og Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri flugþjónustu Flugleiða á Keflavíkurflugvelli,
kynntu í gær samstarfssamning Flugleiða og embættis sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli í fíkniefnamálum.