Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Örverufræðifélag Íslands
Fyrirlestrar
um veirur
Í KVÖLD, 22. mars og29. mars nk. heldurÖrverufræðifélag Ís-
lands fyrirlestraröð um
veirur sem ætluð eru al-
menningi og eru erindin
haldin í Lögbergi, stofu
101, hefjast kl. 20. Sólveig
K. Pétursdóttir líffræðing-
ur er formaður Örveru-
fræðifélags Íslands, hún
var spurð um hvaða veirur
yrði fjallað í fyrirlestraröð-
inni?
„Fjallað verður um vel
þekktar sjúkdómsvaldandi
veirur og verða tveir fyr-
irlestrar hvert kvöld, um
30 mínútna langir og hlé á
milli. Fyrsti fyrirlesturinn
verður inngangur að því
sem á eftir kemur og
fjallar um veirur og veiru-
sýkingar almennt. Þann fyrirlest-
ur heldur Þorgerður Árnadóttir
líffræðingur. Sama kvöld talar
Gunnar B. Gunnarsson læknir um
alnæmisveiruna. Þann 22. mars
mun Guðrún Erna Baldvinsdóttir
læknir fjalla um herpesveirur og
sama kvöld fjallar Sigríður Elef-
sen líffræðingur um inflúensuveir-
ur. Þann 29. mars talar Sigurður
Ólafsson læknir um lifrarbólgu C-
veiruna og seinni fyrirlesturinn
það kvöld og jafnframt sá síðast er
haldinn af Þorgerði Árnadóttur
líffræðingi um papiloma-veirur.“
– Hvers vegna eru þið að kynna
þessar veirur sérstaklega?
„Þetta eru veirur sem hafa verið
eða eru ofarlega á baugi í um-
ræðunni upp á síðkastið. Á norð-
urhveli jarðar gengur inflúensa
frá því nóvember fram í mars, hér
oftast í kringum áramót. Rætt
verður um inflúensuveirur sem
hafa valdið alheimsfaröldrum.
Herpes-veirur eru algengar og
valda m.a. frunsum á vörum og á
kynfærum. HIV-veiran er búin að
vera í umræðunni talsvert langan
tíma. Stærsti hluti þess fólks sem
er sýkt býr í þróunarlöndunum en
á Íslandi hafa greinst um tíu ein-
staklingar á ári með HIV-smit.
Lifrarbólga C er vaxandi vanda-
mál meðal sprautufíkla, líka hér á
Íslandi. Papiloma-veiran veldur
vörtum, m.a. á kynfærum, og get-
ur valdið frumubreytingum sem
geta þróast yfir í krabbamein.“
– Hvað getur þú sagt mér um
Örverufræðifélag Íslands?
„Þetta félag er um það bil 13 ára
gamalt og var stofnað á sínum
tíma til þess að skapa samskipta-
vettvang fyrir fólk hér á landi sem
starfar að rannsóknum á örverum.
Í félaginu eru nú um það bil 100
manns sem allflestir vinna að
rannsóknum á bakteríum, veirum
eða sníkjudýrum.“
– Er starfsemi félagsins blóm-
leg?
„Hún er það. Við höldum árlega
veggspjaldafundi þar sem við hitt-
umst og kynnum verkefni okkar
hvert fyrir öðru á formi vegg-
spjalda eða í stuttum fyrirlestrum.
Við fáum fyrirlesara, innlenda og
erlenda, til að halda er-
indi um áhugaverð efni
annað slagið. Síðan höf-
um við gengist fyrir
ráðstefnum, m.a. um
örverur í hafinu, sem
þótti takst mjög vel. Þá
höfum við staðið fyrir
námskeiðahaldi.“
– Á þetta íslenska félag sam-
starf við erlend félög af svipuðum
toga?
„Já, félagið er aðili að ýmsum
alþjóðlegum félögum örverufræð-
inga, svo sem IUMS sem er al-
þjóðlegt félag örverufræðifélaga
og FEMS sem er Evrópufélag ör-
verufræðifélaga. Í sambandi við
hið síðarnefnda veitir FEMS ár-
lega styrk til tveggja ungra vís-
indamanna frá hverju þátttökul-
andi til að dvelja allt að þrjá
mánuði á rannsóknastofu í öðru
aðildarlandi. FEMS greiðir þá
uppihald og ferðir fyrir viðkom-
andi en Örverufræðifélag Íslands
hefur haft milligöngu um þessar
styrkveitingar. Það hafa þó nokkr-
ir íslenskir stúdentar notið góðs af
þessu. Aðild að FEMS veitir einn-
ig styrki til þess að fá gestafyr-
irlesara hingað til lands eða til að
halda námskeið hér á landi.“
– Stendur félagið ykkar oft fyrir
fræðslu fyrir almenning?
„Þetta félag er meira ætlað
þeim sem eru að vinna í faginu en
það er áhugi fyrir því innan félags-
ins að veita almenningi meiri
fræðslu um örverur og þessi fyr-
irlestraröð sem áður var getið er
liður í þeirri viðleitni. Í fyrravor-
um við m.a. með fyrirlestur um
camphylobacter.“
– Fara fram margvíslegar ör-
verurannsóknir á Íslandi?
„Já, það má t.d. nefna rann-
sóknir þar sem fengist er við fiski-
sjúkdóma eða bakteríur sem valda
þeim og sjúkdóma af völdum ör-
vera sem herja á sauðfé, t.d. visnu
og mæði og svo riðu. Auk þess má
nefna sníkjudýrarannsóknir. Á
spítölum er unnið að rannsóknum
á sjúkdómsvaldandi
veirum og bakteríum.
Unnið er að rannsókn-
um á bakteríum í
munnholi. Verið er að
rannsaka bakteríur úr
matvælum, svo sem lis-
teríu, camphylobacter
og salmonellu. Þá er verið að vinna
að rannsóknum á bakteríum sem
geta verið mönnum til hagsbóta,
t.d. þær sem eru notaðar í mjólk-
uriðnaði og enn fremur ensím úr
bakteríum sem nýta má mannin-
um til gagns bæði í sambandi við
rannsóknir og iðnað og ýmislegt
fleira.“
Sólveig K. Pétursdóttir
Sólveig K. Pétursdóttir fædd-
ist í Reykjavík 1954. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1974 og prófi
frá Kennaraháskóla Íslands 1980
en hóf kennslu 1978. Hún kenndi
í níu ár, vann síðan á ferðaskrif-
stofu í eitt ár og var fararstjóri.
Hóf líffræðinám við HÍ 1988 og
lauk B.Sc-prófi 1991. Vann á líf-
tæknideild Iðntæknistofnunar og
tók svo masterspróf frá HÍ 1996.
Vann áfram á líftæknideild um
tíma en er nú verkefnastjóri hjá
Prokaria ehf. Hún er formaður
Örverufræðifélags Íslands. Sól-
veig á þrjú börn og er í sambúð
með Smára Magnúsi Smárasyni
arkitekt.
Fjallað verður
um þekktar
sjúkdóms-
valdandi
veirur
Einn, tveir og næsti tilvonandi Seðlabankastjóri.
MÁLFLUTNINGUR hófst á mánu-
dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli
sem sambýlisfólk hefur höfðað á
hendur Reykjagarði vegna kamp-
hylobacter-sýkingar sem sambýlis-
fólkið telur sig hafa fengið eftir
neyslu kjúklingakjöts sem framleitt
var af fyrirtækinu. Neytendasam-
tökin lýstu á sínum tíma eftir neyt-
endum sem sýkst höfðu af kamp-
hylobacter með það í huga að höfðað
yrði mál gegn framleiðanda. Þessir
einstaklingar þóttu standa best að
vígi hvað sönnunarstöðu varðar og
auk þess áttu þeir enn þá kassakvitt-
un fyrir kaupum á kjúklingakjötinu.
Jón Magnússon hrl., sem flytur
málið fyrir hönd stefnenda, segir að
síðastliðið sumar hafi stefnendum
verið boðið í sumarbústað úti á landi
þar sem gestir höfðu eigin mat með-
ferðis. Stefnendur keyptu kjúklinga-
læri sem þeir snæddu í sumarbú-
staðnum ásamt meðlæti sem var í
boði. Nokkrum dögum síðar veiktust
þeir og segir Jón ekki deilt um í mál-
inu að þarna var um kamphylobac-
ter-sýkingu að ræða.
„Það sem deilt er um í málinu er
hvort smitið hafi komið úr þessum
matvælum eða ekki. Stefndi segir
ekki sannað að það hafi komið úr
matvælunum en af hálfu stefnanda
er haldið fram að yfirgnæfandi líkur
séu til þess. Þetta var eini maturinn
sem stefnendur borðuðu einir, allt
annað var sameiginlegt. Þarna má
telja að lögfull sönnun hafi náðst um
það að smitið hafi komið frá kjúk-
lingunum. Reykjagarður heldur því
fram að þetta sé ekki sannað nema
fram komi efnagreining á þessum
matvælum,“ segir Jón.
Hann segir að málið snúist því að
miklu leyti um hvernig sönnunar-
byrðinni sé háttað. Miðað við það
sem tíðkast bæði hérlendis og er-
lendis þurfi mikið til að koma til þess
að lögfullri sönnun teljist náð.
Jón segir að merkt hafi verið með
smáu letri á umbúðum matvörunnar
að það eigi að gegnumsteikja eða
sjóða matinn. „Ég tel að þegar fram-
leiðandi veit af hættu, sem almenn-
ingur þekkir almennt ekki til, beri
honum að setja viðvörunarmerking-
ar á sínar vörur.“ Stefnendur fara
fram á bætur vegna útlagðs kostn-
aðar, miska og vinnulaunataps.
Hvergi bótaskylt
Gestur Jónsson hrl. er til varnar í
þessu máli fyrir hönd Reykjagarðs.
Hann segir að dómurinn verði eink-
um að taka tillit til tveggja sjónar-
miða. Annars vegar hvort það séu or-
sakatengsl milli þess að fólk kaupi
kjúkling og verði síðan veikt nokkr-
um dögum síðar án þess að hægt sé
að staðreyna það að sýkingin stafi af
neyslu kjúklingsins. Engar leifar séu
til af matvörunni í þessu tilviki.
Þá sé það álitamál hvort fólk sem
veikist af völdum matvara sem það
hafi ekki meðhöndlað rétt, þrátt fyr-
ir leiðbeiningar um rétta meðferð á
umbúðum, eigi rétt á bótum vegna
veikinda. Honum er ekki kunnugt
um það að nokkurs staðar í heim-
inum sé það talið bótaskylt af hálfu
framleiðenda ef menn verða veikir af
neyslu kjúklingakjöts hafi menn
ekki fylgt leiðbeiningum. Slíkar leið-
beiningar hafi verið á umbúðunum.
Höfða mál gegn fram-
leiðanda kjúklinga