Morgunblaðið - 15.03.2001, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 13
TVÍTUG kona var í gær dæmd í 30
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir
umferðar- og hegningarlagabrot.
Hún játaði að hafa í júní í fyrra ekið
bifreið sinni vestur Álftanesveg í
Garðabæ án nægilegrar aðgæslu og
of hratt miðað við aðstæður með
þeim afleiðingum að hún missti
stjórn á bifreiðinni sem lenti utan
vegar, hafnaði á vegvísi og valt.
Þrennt kastaðist út úr bifreiðinni
og hlutu tvær stúlkur nokkuð alvar-
leg meiðsl. Önnur þeirra hlaut m.a.
kurlað mjaðmagrindarbrot, heila-
mar og fótbrot en hin höfuðkúpu-
brotnaði, fótbrotnaði o.fl.
Enginn þeirra sem kastaðist út
var í bílbelti og var það metið öku-
manninum til refsilækkunar en
einnig að hún játaði brot sitt ský-
laust.
Auk skilorðsbundins fangelsis-
dóms var henni gert að greiða allan
sakarkostnað, 50.000 krónur í sekt
og hún missir ökuréttindi sín í átta
mánuði. Gunnar Aðalsteinsson dóm-
ari kvað upp dóminn.
Skilorðsbund-
ið fangelsi
fyrir ógæti-
legan akstur
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði á föstu-
dag karlmann af ákæru um kynferðisbrot gegn
stjúpdóttur sinni sem þá var sex ára gömul. Rétt-
argæslumaður stúlkunnar, Sif Konráðsdóttir hrl.,
telur að jafnræðis hafi ekki verið gætt við meðferð
málsins þar sem héraðsdómur féllst ekki á að
skýrsla yrði tekin af stúlkunni í Barnahúsi. Það
hafi hins vegar verið gert í sambærilegum málum
sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði til meðferð-
ar á sama tíma.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Sif að foreldr-
ar stúlkunnar og barnaverndaryfirvöld hefðu frá
upphafi krafist þess að skýrslutaka af stúlkunni
fyrir dómi færi fram í Barnahúsi.
Foreldrum stúlkunnar hafi verið boðið að skoða
aðstöðu til yfirheyrslna sem búið er að koma upp í
dómshúsi Héraðsdóms Reykjavíkur. Sú heimsókn
hafi enn frekar styrkt skoðun þeirra.
Í dómnum sem Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
upp á föstudag er ekki lagt efnislegt mat á fram-
burð stúlkunnar. Í niðurstöðum dómsins segir
hins vegar að stúlkan hafi ekki komið fyrir dóm og
samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála
skuli reisa dóm á því sem kemur fram við meðferð
máls fyrir dómi. Samkvæmt lögum um meðferð
opinberra mála er það á valdi dómara hvar dóm-
þing er háð.
„Hvaða hagsmuna
er verið að gæta?“
Í september á síðasta ári hafnaði héraðsdómur
kröfu Sifjar um að dómþing til að taka skýrslu af
stúlkunni færi fram í Barnahúsi en ekki í húsnæði
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Þennan úrskurð kærði Sif til Hæstaréttar sem
staðfesti hann með þeim rökum að húsnæði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur fullnægði í hvívetna kröfum
reglugerðar um skýrslutöku fyrir dómi af brota-
þola yngri en 18 ára.
Sif segist aldrei hafa mótmælt því. Rannsóknir
hafi hins vegar sýnt fram á að því betri sem að-
stæður eru því líklegra sé að börn, sérstaklega
ung börn, skýri rétt frá atburðum. Staðhæfing for-
eldra, barnaverndaryfirvalda og réttargæslu-
manns um að aðstaðan í Barnahúsi væri betri hafi
aldrei verið mótmælt. „Það er líka athyglisvert að
verjandinn mótmælti aldrei, hann hafði engar at-
hugasemdir varðandi þessar kröfur. Því spyr ég:
Hvaða hagsmuna er verið að gæta?“ sagði Sif.
Þá telur Sif það ámælisvert af hendi lögregl-
unnar að styðja ekki þá kröfu um að yfirheyrsl-
urnar færu fram í Barnahúsi. Lögreglan hafi þess
í stað bókað andstöðu sína við því.
Það hafi lögreglan ekki heldur gert þegar leið-
beiningar dómstólaráðs lágu fyrir þrátt fyrir
ítrekaðar áskoranir. Hvorki dómsmálaráðherra
né ríkissaksóknari hafi heldur orðið við áskorun-
um um að beita sér. Dómari hafi heldur ekki fallist
á að endurskoða afstöðu sína.
Sif gagnrýnir einnig að dómurinn hafi ekki efn-
islega afstöðu til framburðar stúlkunnar sem var
spilaður af myndbandi fyrir dómi. Svo virðist sem
engu máli skipti hvaða sönnunargögn hafi verið
færð fram, eingöngu vegna þess að stúlkan gaf
ekki skýrslu fyrir dómi.
Sif telur að dómnum hljóti að verða áfrýjað og
hann ómerktur svo tillit verði tekið til þeirra sönn-
unargagna sem fram voru færð. Sif bætir við að
það sé reyndar sjaldgæft að ríkissaksóknari áfrýi
sýknudómum héraðsdóma. Ekki hefur verið tekin
afstaða til þess hvort málinu verði áfrýjað til
Hæstaréttar.
Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í kynferðisbrotamáli
Réttargæslumaður telur
brotið gegn jafnræðisreglu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði í gær kröfum Reykjavíkur-
borgar um að úrskurður úrskurðar-
nefndar skipulags- og umferðarmála
frá 3. mars 2000 yrði felldur úr gildi.
Úrskurðurinn fól í sér að felld var úr
gildi samþykkt borgarráðs um
breytingu á deiliskipulagi Kvosar-
innar varðandi landnotkun lóðarinn-
ar nr. 4 við Aðalstræti. Þar er rekinn
nektardansstaðurinn Club Clinton
og fól breytingin í sér að þar yrði
óheimilt að reka veitinga-, vínveit-
inga- og skemmtistaði.
Aðdragandi samþykktar borgar-
ráðs var sá, að því er fram kemur í
dóminum, að mörg undanfarin ár
hefðu ýmsir aðilar rekið veitinga- og/
eða skemmtistaði í bakhúsum Aðal-
strætis 4, sem mikið ónæði hafi staf-
að af fyrir aðliggjandi íbúðarbyggð. Í
gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016 er heimilt á þessum stað
að reka veitingastarfsemi eða
skemmtistað, að skilyrðum uppfyllt-
um. Á fundi borgarráðs 31. ágúst
1999 var breytt deiliskipulag Kvos-
arinnar samþykkt. Lögmaður leigu-
taka í bakhúsi Aðalstrætis 4 kærði til
úrskurðarnefndar skipulags- og um-
ferðarmála til ógildingar samþykkt
borgarráðs. Á þá kröfu féllst úr-
skurðarnefndin með úrskurði og
felldi úr gildi samþykkt borgarráðs
3. mars 2000.
Stefnandi, Reykjavíkurborg,
krafðist þess fyrir Héraðsdómi að
úrskurðurinn yrði felldur úr gildi
með dómi. Stefnandi hélt því fram
fyrir dómi að úrskurðarnefnd skipu-
lags- og umferðarmála hafi farið
langt út fyrir valdsvið sitt þar sem
hún, með ólögmætum og óheimilum
hætti, hafi farið inn á svið sem sveit-
arstjórn eigi mat um lögum sam-
kvæmt og með þessu brotið á stjórn-
arskrárvörðum
sjálfsákvörðunarrétti sveitarstjórn-
ar til að ráða málefnum sínum sjálf.
Engar takmarkanir
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
ekki sé að finna í lögum takmarkanir
á endurskoðunarheimild úrskurðar-
nefndarinnar vegna ágreinings um
skipulagsmál og verði ekki fallist á
það með stefnanda að nefndin hafi
með úrskurði sínum farið út fyrir
þau mörk sem henni séu sett í lögum.
Ekki er heldur fallist á það að stefndi
hafi glatað kærurétti við það að mót-
mæla ekki tillögu um deiliskipulag á
kynningartíma hennar. Í dóminum
segir að fram hafi komið í framburði
vitnis, sem er annar eigenda Aðal-
strætis 4, að forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur hefði sagt vitninu að ef
eigendur Aðalstrætis 4 féllu frá
bótakröfum á hendur stefnanda og
samþykktu deiliskipulagstillöguna
myndi hann koma stefnda út á mjög
skömmum tíma.
Stefndi var dæmdur sýkn af kröf-
um stefnanda sem var gert að greiða
stefnda 200.000 kr. í málskostnað.
Lögmaður stefnanda var Hjörleifur
Kvaran hrl. og lögmaður stefnda
Haraldur Blöndal hrl. Málið dæmdi
Allan V. Magnússon héraðsdómari.
Nektardansstaðnum Club Clinton gert kleift að starfa áfram
Kröfum um ógildingu
úrskurðar hafnað
STÖKKMÓT Ingólfs á snjóbrettum
2001 verður haldið miðvikudaginn
21. mars kl. 20–21.30, verði veður
skaplegt. Í fyrra voru keyrð rúm-
lega 30 bílhlöss af snjó á Arnarhól
og í ár verður farin sama leið þó
sækja þurfi snjóinn lengra að. Auk
þess verður gerð tilraun með að
framleiða snjó á Arnarhóli.
Fyrirkomulag mótsins verður
með svipuðu sniði og í fyrra, en öll
umgjörð mótsins verður glæsilegri,
segir í fréttatilkynningu. Sem fyrr
er það Íþróttabandalag Reykjavíkur
sem stendur fyrir mótinu, í sam-
vinnu við kynningarnefnd Skíða-
sambandsins, ÍTR, garðyrkjustjóra,
gatnamálastjóra Reykjavíkur og
fleiri aðila.
Í tilkynningunni segir einnig:
„Markmiðið með mótinu er að
kveikja áhuga á snjóbrettum bæði
hjá unglingum og almenningi. Með
þessari óvenjulegu staðsetningu í
höfuðborginni miðri gefst þeim, sem
að jafnaði stunda ekki fjöllin, ein-
stakt tækifæri til að upplifa þann
kitlandi spenning sem fylgir því að
fylgjast með snjóbrettastökkmóti í
návígi.
Brettamót Ingólfs vakti mikla at-
hygli í fyrra og dró að sér fjölda
áhorfenda sem skemmtu sér kon-
unglega. Í ár má búast við spennandi
keppni með ennþá áhrifameiri til-
þrifum, enda er hér um veglegasta
mót ársins að ræða þar sem bestu
brettamenn landsins reyna með sér.
Sem fyrr er það landnámsmaðurinn
sjálfur sem er verndari mótsins.“
Stökkmót Ingólfs
á Arnarhóli
EIGANDI peningaskáps sem lög-
reglan í Reykjavík hefur haft í vörslu
sinni um nokkurn tíma gaf sig fram
við lögreglu í gær.
Í Morgunblaðinu í gær var birt
mynd af framhlið skápsins og lýst
eftir einhverjum sem kannaðist við
hann. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni hafði maðurinn samband
við lögreglu eftir að hann rak augun í
myndina í gærmorgun.
Skápnum var stolið frá fyrirtæki
mannsins í vesturbæ um miðjan
febrúar. Í lögregluskýrslu stóð hins
vegar að peningakassa hefði verið
stolið og ekki fylgdi nánari lýsing.
Sá sem stal peningaskápnum hafði
ekki mikið upp úr krafsinu en í
skápnum voru aðeins nokkrir þús-
undkallar og bréf.
Eigandi peninga-
skápsins gaf sig fram
TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflug-
velli handtók á mánudaginn 56 ára
íslenskan karlmann sem var að koma
frá Kaupmannahöfn.
Við leit á manninum fundust tæp-
lega 1.700 grömm af hassi innan
klæða. Efnið hafði verið fest með
límbandi víðs vegar á líkama hans.
Maðurinn játaði að hafa tekið að
sér að flytja hassið fyrir nákominn
ættingja sinn. Sjálfur hafði hann
aldrei komið við sögu fíkniefnamála.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík tók við rannsókn málsins
og við yfirheyrslur hjá lögreglu við-
urkenndi ættinginn að eiga efnið.
Þriðji maðurinn var svo handtekinn
þegar hann kom til landsins frá
Kaupmannahöfn á mánudagskvöld.
Hann hefur játað að hafa aðstoðað
við útvegun efnisins og að koma því
fyrir á líkama mannsins sem bar efn-
ið til landsins. Mennirnir hafa báðir
tengst fíkniefnamálum.
Söluverðmæti hassins er áætlað
4-5 milljónir króna. Málið telst upp-
lýst.
Þessar upplýsingar komu fram á
blaðamannafundi í utanríkisráðu-
neytinu þar sem samstarfssamning-
ur sýslumannsembættisins og Flug-
leiða var kynntur.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði þetta mál sýna vel við
hvað væri verið að kljást í baráttunni
gegn fíkniefnasmygli. Með gylliboð-
um tækist fíkniefnasmyglurum að fá
atvinnulaust eða tekjulítið fólk til að
taka þátt í smyglinu.
Aðspurður sagði Jóhann R. Bene-
diktsson, sýslumaður á Keflavíkur-
flugvelli, að maðurinn sem bar efnin
til landsins hefði ekki verið í fastri
atvinnu og hefði átt við vanheilsu að
stríða. Jóhann sagði að það fólk sem
oft er nefnt burðardýr væri fólk sem
á einhvern hátt væri með vindinn í
fangið og hefði átt á brattann að
sækja í lífinu. Í flestum tilfellum
væri þetta fólk sem ekki hefði komið
við sögu fíkniefnamála áður. „Þetta
sýnir að fíkniefnasmyglarar svífast
einskis til að koma þessum efnum til
landsins,“ sagði Jóhann.
Smyglaði hassi fyrir
nákominn ættingja
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær karlmann um tvítugt til
að greiða 25.000 krónur í sekt til rík-
issjóðs fyrir að brjóta rúðu í lög-
reglubifreið lögreglunnar í Hafnar-
firði. Áður hafði maðurinn fallist á að
greiða bótakröfu lögreglunnar sem
hljóðaði upp á 63.624 kr.
Atvikið átti sér stað fyrir tæpu ári.
Lögreglumenn voru að færa mann-
inn frá veitingahúsi í bænum þegar
hann barði í hliðarrúðu lögreglubíls-
ins með þeim afleiðingum að hún
brotnaði. Maðurinn játaði brot sitt
fyrir dómi.
Dýrt rúðu-
brot