Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 26
NEYTENDUR
26 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞJÓÐADAGUR neytendaréttar
er haldinn hátíðlegur í dag en þá
minna neytendasamtök um allan
heim, á átta lágmarkskröfur neyt-
enda sem raktar eru til yfirlýsingar
John F. Kennedys, fyrrum forseta
Bandaríkjanna, frá 15. mars 1962 um
grundvallarréttindi neytenda.
Að mati Neytendasamtakanna
skortir talsvert á að íslenskir neyt-
endur njóti að fullu þessara átta lág-
marksréttinda en markmið samtak-
anna er meðal annars að svo verði,
að sögn Þuríðar Hjartardóttur fram-
kvæmdastjóra NS.
Við upplýsingaöflun er hér víða
komið að lokuðum dyrum og gam-
aldags vinnubrögð eru enn við lýði
hjá mörgum stofnunum og fyrir-
tækjum hér á landi, að mati Þuríðar,
og fleira nefnir hún; réttur til að
velja einkennist af einokun og sam-
keppnishömlum, neytendafræðslu-
mál eru í algjöru lágmarki í skóla-
kerfinu hér á landi og
umhverfismálin þarf að bæta tölu-
vert þar sem enn eru opnir rusla-
haugar og skolpræsi um allt land svo
ekki sé minnsta á vatnsbólin.
Þuríður var beðin um að útlista
lágmarkskröfunar átta og það sem
Neytendasamtökin telja ábótavant
hér á landi hvað þau varðar.
1. Réttur til fullnægjandi grunn-
þarfa.
Átt er við aðgang að grundvallar-
vörum og þjónustu svo sem nægum
matklæðnaður og heilsuvernd sem
við njótum hér á landi.“
2. Réttur til öryggis.
Verndun gegn afurðum, fram-
leiðsluferli eða þjónustu sem er
hættuleg heilsu manna eða lífi. NS
hafa barist fyrir því að sýkt matvæli
séu ekki á markaði og nefnir Þuríður
sem dæmi kampýlóbaktermál og
sýkingar af völdum salmonellu. „Við
viljum að framleiðendur beri ábyrgð
á því sem þeir setja á markað og að
reglur séu hertar til verndar neyt-
endum.“
3. Réttur til upplýsinga.
„Staðreyndir sem þarf til að geta
tekið upplýsandi ákvörðun.
Í kröfunni felst að neytandinn geti
varist óheiðarlegum og villandi aug-
lýsingum og vörumerkingum. NS
gefa út Neytendablað þar sem eru
birtar gæða- og markaðskannanir en
einnig er unnt að nálgast á skrifstofu
okkar, fjölda annarra kannana.“
4. Réttur til að velja.
„Úrval sé af vörum og þjónustu
sem boðin er á samkeppnishæfu
verði og að fullnægjandi gæði séu
tryggð. Að á öllum mörkuðum vöru
og þjónustu sé samkeppni tryggð.
Með því eru bjóðendur verslunar og
þjónustu undir eftirliti markaðsins
og geta ekki skýlt sér bak við einok-
unarstöðu með lélegri þjónustu,
gæðum og hærra vöruverði.“
5. Réttur til áheyrnar.
Að gerð og framkvæmd stefnu-
mótunar ríkisins sé með hagsmuni
neytenda í fyrirrúmi einnig í þróun á
vörum og þjónustu.
„Í þessu felst meðal annars að
sjónarmið neytenda eiga að vera til
hliðsjónar þegar teknar eru ákvarð-
anir af stjórnvöldum og ný löggjöf
sett. Neytendasamtökin telja að of
oft séu sjónarmið neytenda látin
víkja fyrir öðrum hagsmunum.
Neytendasamtökin hafa fengið
frumvörp til laga um neytendamál
send til umsagnar og þannig komið
sjónarmiðum neytenda á framfæri.“
6. Réttur til bóta.
„Í þessu felst meðal annars að ef
um vanefnd seljanda í kaupum er að
ræða á neytandi rétt á að fá úr því
bætt. Ýmis vanefndaúrræði eru
tryggð í lögum. Ekki hefur þó verið
gengið eins langt hérlendis í neyt-
endavernd og í nágrannalöndum
okkar. Í kröfunni felst einnig réttur
neytanda til skjótvirkra og aðgengi-
legra leiða til að ná fram lagalegum
rétti sínum. Þetta gera Neytenda-
samtökin með því að starfrækja leið-
beininga- og kvörtunarþjónustu en
þar eru neytendum veittar leiðbein-
ingar um það hvernig þeir eiga að
snúa sér til að ná fram sínum rétti og
einnig er þar höfð milliganga í kvört-
unarmálum ef þörf krefur. Þjónusta
þessi er að mestu kostuð af félags-
mönnum Neytendasamtakanna en
einnig styrkja stjórnvöld þessa þjón-
ustu. Það er krafa Neytendasamtak-
anna að þjónusta þessi sé að öllu
leyti rekin af stjórnvöldum eins og er
í nágrannalöndum okkar. Neytenda-
samtökin eru aðilar að sex kvörtun-
ar- og úrskurðarnefndum á sviði
ferðamála, efnalauga, verslunar, iðn-
aðarmanna, fjármálafyrirtækja og
vátrygginga.“
7. Réttur til neytendafræðslu.
Öflun þekkingar og kunnáttu til að
geta tekið upplýsandi og meðvitaða
ákvörðun um vörur og þjónustu. „Í
þessu felst að vera meðvitaður um
grundvallarréttindi neytenda og
ábyrgð og hvernig hægt sé að nýta
sér það.
Eftir því sem við byrjum fyrr að
uppfræða fólk um rétt sinn, því með-
vitaðra verður það um stöðu sína og
rétt en verulega skortir á að þessari
kröfu sé fullnægt.“
8. Réttur til heilbrigðs umhverf-
is.
„Líf og vinna í umhverfi sem ógn-
ar ekki velferð nútíma- og framtíð-
arkynslóða. Umhverfismál hafa
fengið mun stærra vægi á síðustu ár-
um. „Alþjóðasamþykktir með hert-
um reglum hafa beint sveitarfélög-
um og ríki inn á réttar brautir, þó er
oft tilhneiging til að sækja um und-
anþágur í nafni fámennis á Íslandi,
sem er ekki til fyrirmyndar. Fyrir-
tæki hafa líka reynt að komast hjá
því að merkja vörur með umhverf-
ismerki enda markaður svo lítill að
það borgar sig ekki fyrir þau. Sbr.
Procter & Gamble neitar að merkja
framleiðsluvörur með Norræna
svaninum.“
Alþjóðadagur neytendaréttar haldinn hátíðlegur í dag
Skortur á að landsmenn
njóti lágmarksréttinda
Morgunblaðið/Kristján
Neytendafræðsla er í algjöru lágmarki í skólakerfinu hér á landi, að
mati Neytendasamtakanna.
Hönnun
List
Gullsmiðir
Kynnum spennandi nýjungar í
HARD CANDY
GOLDIE vorlitirnir
Olíulaust litað dagkrem
Glimmer hársprey
✧
✧
✧
liti i
lí l t lit
li
Kynning í snyrtivörudeildinni í Kringlunni,
fimmtudag, föstudag og laugardag.
w
w
w
.h
ar
dc
an
dy
.c
om
Aðrir útsölustaðir:
Top Shop Lækjargötu, Libia Mjódd, Snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni,
Skeifunni, Spönginni, Smáratorgi og Akureyri, og Gallery Förðun Keflavík.
S I G T Ú N I
Rifjaðu upp ljúfar
minningar!
við arineld,
góðan mat,
góða þjónustu
og ljúfa tónlist á
Borðapantanir í síma 568 9000
Gunnar Páll leikur fimmtud.,
föstud. og laugardag
frá kl. 19.15 til 23.00.
Fyrir hópa aðra daga.