Morgunblaðið - 15.03.2001, Side 32
LISTIR
32 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
kvennaþing
samfylkingarinnar
24.-25. mars
Kostnaður er kr. 6.500, matur og gisting innifalið. Grænmetisætur eru beðnar að tilkynna það við skráningu.
í Munaðarnesi
Vinsamlegast tilkynntu þátttöku fyrir 21. mars til Aðalheiðar Franzdóttur í síma 421-3840 eða 694-4456. Einnig má tilkynna sig með tölvupósti á
samfylking@samfylking.is eða til undirritaðra:
Aðalheiður Franzdóttir adalheidurf@hotmail.com , Elsa S. Þorkelsdóttir austurbr28@islandia.is, Hólmfríður Sveinsdóttir holmfridur@iti.is, Katrín Júlíusdóttir
katrin@innn.is, Margrét Frímannsdóttir margretf@althingi.is, Sigrún Jónsdóttir pes@li.is, Svanfríður Jónasdóttir sij@althingi.is
Allar Samfylkingarkonur velkomnar og hvattar til að mæta.
Dagskrá:
Laugardagur 24. mars:
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi, setur þingið að loknum léttum
hádegisverði klukkan 12:00. Þá gerir Elsa S. Þorkelsdóttir, formaður hóps
um stofnun kvennahreyfingar, grein fyrir stofnun hópsins, störfum hans og
hugmyndum um starfið framundan.
Í framhaldi af því fjallar Katrín Júlíusdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, um
ungar konur í stjórnmálum og Oktavía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi, fer yfir stöðu
mála varðandi sveitarstjórnir.
Að því loknu verða almennar umræður þar sem fundaritarar, Svanfríður Jónasdóttir,
alþingismaður og Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnmálafræðingur, taka niður hugmyndir
og tillögur þátttakenda.
Að loknu kaffihléi stjórnar Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari, umræðum um samstöðu kvenna og
þvínæst verður dagskrá í höndum Bríetanna, félags ungra feminista.
Formlegri dagskrá laugardagsins lýkur með sameiginlegum kvöldverði. Veislustjóri verður
Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri.
Ávarp flytur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri.
Sunnudagur 25. mars:
Að loknum morgunverði fara Svanfríður Jónasdóttir og Hólmfríður Sveinsdóttir yfir hugmyndir
og niðurstöður úr umræðum laugardagsins. Þá stýrir Sigrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi,
almennum umræðum.
Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari fjallar um framkomu í fjölmiðlum og ræðustól.
Að loknum hádegisverði, klukkan 14:00 verður samantekt þingsins og þingslit í höndum
Margrétar Frímannsdóttur, varaformanns Samfylkingarinnar.
MÁLARINN Kristín Geirsdóttir
hefur verið iðin við kolann síðan
hún útskrifaðist úr MHÍ fyrir rúm-
um áratug, einkum eftir að hún
fékk vinnuaðstöðu að Korpúlfsstöð-
um. Að baki eru níu einkasýningar
og þátttaka á ellefu samsýningum,
þar af fjórum erlendis.
Tíunda einkasýning listakonunn-
ar eru svo átta stór málverk í and-
dyri Hallgrímskirkju, öll unnin með
hið sérstaka rými í huga, er þó
meira um stærðarhlutföll að ræða
en að vikið sé frá þeim sérstaka stíl
sem hún hefur verið að þróa und-
angengin ár. Markast af viðvarandi
glímu við form, liti og ljós ásamt
röstum og hillingum sem hliðarstefi
– með ljósflæði, sem leiðir hugann
að titringi loftspeglanna, mýkir hún
upp grunnformið sem annars er í
ætt við strangflatalistina þar sem
beinar línur skera myndflötinn á
ýmsa vegu.
Allt er hreint og klárt og engu
ofaukið, á stundum jaðrar vinnu-
ferlið við naumhyggju í sinni skýr-
ustu mynd en í annan stað er út-
færslan í ætt við mynsturgerð svo
sem í hinu stóra verki, Sólstafir.
Það er svo ekki einungis þrískipt,
heldur byggist aðalform hennar á
þrem aflöngum tíglum er ganga inn
í hver annan svo úr verður nokkurs
konar ímynd heilagrar þrenningar.
Þetta undirstrikað með fjölþættu
og síkvikulu birtuflæði gulra tóna
er tákngera trúarlega stemmningu.
Hér hefur Kristínu tekist að höndla
gagnsæi litarins og gæða hann
innra hljómi, skapa ósnertanlegar
fjarlægðir og víðáttur í ætt við hið
upphafna, sjálfan guðdóminn.
Það kveður við annan tón í verk-
inu, Róða, sem er mun dekkra og
dulúðugara í útfærslu, nýtur sín þó
ekki til fulls vegna lýsingarinnar og
að stirnir í áferðina sem stafar trú-
lega af nýábornum fernisinum.
Þessu hefur listakonan kannski
ekki áttað sig á í tíma en það tekur
olíuliti yfirleitt tvö ár að þorna í
gegn og helst skal ekki annað borið
á málverk en retúsk í upphafi, og
yfir það má mála. Þetta er eitt af
vandamálum vinnsluferils mál-
verksins, þó mismikið eftir olíu-
magni litanna. Hér kemur það fram
í öllum myndunum nema Sólstöf-
um, sem fyrir vikið nýtur sín mikið
best.
Þrátt fyrir að öll verkin á sýning-
unni gefi sig fyrir að vera óhlutlæg
innibera þau sterkar skírskotanir
til náttúrunnar, listakonan hafnar
þannig ekki náttúrunni sem áhrifa-
valdi, þótt hún vinni öðru fremur
trú sjálfum lögmálum grunnflatar-
ins.
Þvert á móti er um að ræða ytri
og innri sýnir, tengjast sköpunar-
verkinu og gróandinum en lifa þó
eigin og sjálfstæðu lífi…
Sól-
stafir
MYNDLIST
H a l l g r í m s k i r k j a
Opið á tímum kirkjunnar. Til 20.
maí. Aðgangur ókeypis.
MÁLVERK
KRISTÍN GEIRSDÓTTIR
Bragi Ásgeirsson
Skin, olía á striga, 2000–2001, 2 x 100 x 70 cm.
TEIKNINGIN á myndinni er af
boðun Maríu eftir endurreisn-
arlistamanninn Corregio, sem
einnig gekk undir nafninu Anton-
io Allegri. Boðun Maríu er hluti
sýningar á verkum þeirra Corr-
eggio og annars endurreisnarlista-
manns, Parmigianino, en báðir
þóttu þeir mjög hæfir teiknarar.
Sýningin, sem er í Metropolitan-
listasafninu í New York, er ein sú
yfirgripsmesta sem haldin hefur
verið á verkum þessara lista-
manna.
AP
Boðun Maríu
BARBARA og Úlfar stíga í annað
sinn á Litla svið Borgarleikhússins
nk. laugardag, kl. 19 og munu fjalla
um píslargöngu Krists með viðkomu
í passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar, Meistaranum og Margarítu
eftir Búlgakov og biblíusögum
sunnudagaskólanna.
Leikarar eru Halldóra Geirharðs-
dóttir og Bergur Þór Ingólfsson.
Sýningin er bönnuð börnum innan
12 ára.
Halldóra Geirharðsdóttir og
Bergur Þór Ingólfsson í hlut-
verkum Barböru og Úlfars.
Barbara og
Úlfar í Borg-
arleikhúsinu