Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 33
Nýtt kortatímabil
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
Skeifunni 19 - S. 568 1717
Russell Athletic - Columbia - Convert - Jansport - Gilda Marx - Avia - Tyr - Schwinn - Slendertone - Polar - Weider - Metaform - ABB - EAS - Muscletech - Labrada - Natures Best - Leppin - MLO
Úlpur
Anorakkar
Vindjakkar
Spinning samfest.
kr. 199.- kr. 990.- kr. 1.990.-
Hettupeysur
Peysur
Regnjakkar
Buxur
Stuttbuxur
Spinning peysur
Sundbolir
Barnastuttbuxur
Derhúfur
Verðdæmi
K
O
R
T
E
R
HLJÓMSVEITARSTJÓRINN er
nýkominn úr Bláa lóninu þegar
blaðamaður hittir hann að máli á
Hótel Sögu daginn fyrir tónleika –
og er að setja sig í stellingar að
undirbúa æfingu dagsins, sem að
þessu sinni er reyndar að kvöldi,
þar sem ekki er von á einleikaran-
um Håkan Hardenberger fyrr en
með síðdegisflugi og æfingatíman-
um því hliðrað til. Pehlivanian á þá
þegar að baki tvær æfingar með
Sinfóníuhljómsveitinni og segir það
hafa komið sér þægilega á óvart að
jafnfámenn þjóð og Íslendingar eigi
sér sinfóníuhljómsveit í svo háum
gæðaflokki.
Verkin á efnisskrá tónleikanna
eru allt annað en auðveld, öllu held-
ur þrælerfið, ef marka má orð
hljómsveitarstjórans. Enda segist
hann verða að vera harður við
hljómsveitina. Ekki vegna þess að
hann njóti þess að vera harður,
heldur vegna þess að það geti verið
nauðsynlegt eigi árangur að nást.
„Það er nú einu sinni mitt starf,“
segir hann og hlær. Hann segir
verkin öll erfið, hvert á sinn hátt,
og ekki fyrir neina miðlungshljóm-
sveit. „Svo ef hljómsveitin leikur vel
á tónleikunum, sem ég hygg að hún
muni gera, þá verð ég mjög stoltur
af henni,“ segir hann.
Þó að hljómsveitin þekki orðið
mjög vel verk Atla Heimis, Icerapp
2000, sem hún spilaði margoft í
Ameríkuferðinni í haust, þurfa
menn að hafa sig alla við. Hljóm-
sveitarstjórinn hefur nefnilega tek-
ið þá ákvörðun að verkið verði leik-
ið í mun hraðara tempói en áður.
„Sinfónía Stravinskíjs er líka mjög
erfið, ekki síst fyrir strengjadeild-
ina, svo við verðum virkilega að
vinna í henni.“
Golf og góður matur
Tónleikarnir í kvöld eru þeir
þriðju þar sem þeir Hardenberger
leiða saman hesta sína – en í fyrsta
sinn í þessu verki, sem Pehlivanian
segir gífurlega erfitt, bæði fyrir
einleikara og hljómsveit, en jafn-
framt mjög skemmtilegt. Hann
upplýsir ennfremur að þeir séu
ágætir félagar og hafi gaman af að
fara saman í golf, borða góðan mat
og drekka gott vín. Pehlivanian
kveðst hlakka mikið til að heyra
Hardenberger leika allar þær
kúnstir sem Gruber hefur skrifað
inn í trompetkonsertinn, t.d. að
skipta leiftursnöggt milli ólíkra
trompeta og kýrhornsins og syngja
á sama tíma og hann blæs. „Håkan
er besti trompetleikarinn í heim-
inum um þessar mundir og ég efast
um að aðrir en hann geti leikið
þennan konsert,“ segir hann.
George Pehlivanian er fæddur í
Beirút í Líbanon, og þar hóf hann
tónlistarnám aðeins þriggja ára að
aldri. Hann lærði fyrst á píanó, en
sex ára hóf hann fiðlunám, og fiðlan
varð síðan aðalhljóðfæri hans. Fjöl-
skylda Pehlivanians fluttist til Los
Angeles þegar hann var barn að
aldri og þegar fram liðu stundir fór
hann þar til náms í hljómsveitar-
stjórn. Meðal kennara hans voru
Pierre Boulez, Lorin Maazel og
Ferdinand Leitner.
Meðal fremstu hljómsveitar-
stjóra af yngri kynslóðinni
Í tónleikaskrá kemur fram að
Pehlivanian hafi vakið verulega at-
hygli árið 1991 þegar hann, þá 27
ára að aldri, vann fyrstu verðlaun í
hinni virtu Besancon-hljómsveitar-
stjórakeppni. Hann er nú talinn til
hinna fremstu hljómsveitarstjóra af
yngri kynslóðinni og ferðast víða
um heim til að stjórna. Pehlivanian
er aðalgestastjórnandi Kammer-
sveitarinnar í Vínarborg, og á lista
hans yfir þekktar hljómsveitir eru
m.a. Fílharmóníusveit Lundúna,
Sinfóníuhljómsveitin í Sydney og
Kirov-hljómsveitin í St. Pétursborg,
en hjá Kirov var hann aðstoðar-
maður Valerys Gergiev. Pehlivani-
an steig fyrst á pall sem óperu-
stjórnandi í Los Angeles þegar
hann stýrði nýrri uppfærslu á Car-
men, og meðal annarra óperuverk-
efna má nefna La Traviata hjá Kir-
ov-óperunni í boði Gergievs.
Pehlivanian hefur unnið að hljóðrit-
unum fyrir Chandos-, Aria- og
BMG-útgáfurnar. „Ég hef verið á
óvenjumiklum þeytingi upp á síð-
kastið. Þessi vika er til dæmis sjö-
unda vikan sem ég hef verið á sam-
felldu ferðalagi án hlés – og
Sinfóníuhljómsveit Íslands sjöunda
hljómsveitin á þeim tíma,“ segir
Pehlivanian.
Að tónleikunum hér loknum held-
ur hann til Parísar, þar sem hann
er búsettur, en dvelur þar ekki
lengur en dagstund. Þó nógu lengi
til að geta haldið af stað til Singa-
púr samdægurs með fjölskylduna
til vikudvalar þar sem hann mun
stjórna hljómsveit. Þaðan liggur
leiðin til Noregs, nánar tiltekið til
Bergen. „Að því verkefni loknu fæ
ég langþráð tveggja vikna frí. Ég
er löngu búinn að skipuleggja vi-
kuskíðafrí með fjölskyldunni í
frönsku Ölpunum og svo slöppum
við af seinni vikuna,“ segir hann og
leggur áherslu á að fjölskyldulífið
sé honum mjög mikilvægt og hann
reyni allajafna að skipuleggja verk-
efni sín þannig að vera ekki á ferða-
lögum nema tvær vikur í senn og
svo eina viku heima. „Ég vil sinna
hlutverki mínu sem faðir og eig-
inmaður jafn vel og hljómsveitar-
stjórahlutverkinu,“ segir hann.
Bætir svo við sannfærandi að allt sé
þetta erfiðisins virði. „Ég trúi á það
sem ég er að gera og veit að það
skiptir máli,“ segir hann.
Tónleikarnir hefjast kl. 19.30.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Bláu röðinni í kvöld
Ekki fyrir miðlungshljómsveit
Sænski trompetleik-
arinn Håkan Harden-
berger leikur einleik
með Sinfóníuhljómsveit
Íslands í kvöld undir
stjórn George Pehliv-
anian. Margrét Svein-
björnsdóttir hitti hljóm-
sveitarstjórann og
komst að því að þetta er
ekki í fyrsta sinn sem
hann vinnur með
Hardenberger.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Håkan Hardenberger og George Pehlivanian á æfingu með Sinfóníuhljómsveitinni í gærkvöldi.
EINLEIKARI kvöldsins, Håkan
Hardenberger, er sænskur, fæddur í
Malmö árið 1961. Hann hóf tromp-
etnámið á heimaslóðum átta ára
gamall, en framhaldsnám stundaði
hann í Tónlistarháskólanum í París
og í Los Angeles. Óvenjulegir hæfi-
leikar hans komu snemma í ljós og er
nú litið á hann sem einn af fremstu
tónlistarmönnum heims af sinni kyn-
slóð.
Um Håkan Hardenberger segir í
tónleikaskrá að hann hafi komið
fram með mörgum helstu hljóm-
sveitum í Evrópu og Ameríku, svo
sem Fílharmóníusveit Lundúna,
Hljómsveitinni Fíladelfíu, Fílharm-
óníusveit Los Angeles og Fílharm-
óníusveit Franska útvarpsins. Af
þekktum hljómsveitarstjórum sem
hann hefur unnið með má nefna Kurt
Masur, Ingo Metzmacher, Esa-
Pekka Salonen og Michael Tilson
Thomas.
Virtúósaverk sem leggur marg-
ar þrautir fyrir einleikarann
Hardenberger leikur kammertón-
list með mönnum á borð við Christ-
ian Lindberg, Leif Ove Andsnes og
Roland Pöntinen, og hann hefur
hljóðritað fyrir Philips-, EMI- og
BIS-útgáfurnar. Hardenberger hef-
ur undanfarið verið á ferð með
trompetkonsert H.K. Grubers, spil-
að í Berlín, Birmingham, Madrid og
Lundúnum, og framundan eru tón-
leikar í Hamborg.
H.K. Gruber, sem stjórnaði Sin-
fóníuhljómsveitinni á Kurt Weill-
tónleikum í nóvember síðastliðnum,
samdi trompetkonsertinn Aerial að
beiðni Breska ríkisútvarpsins með
Håkan Hardenberger í huga. Kons-
ertinum er lýst sem virtúósaverki
sem leggi margar þrautir fyrir ein-
leikarann. „Hann þarf að geta spilað
og sungið samtímis, skipta frá hinum
hefðbundna trompet í pikkolótrom-
pet, og sömuleiðis geta leikið á ekta
kýrhorn,“ segir í tónleikaskránni.
Sjálfur sagði Gruber í samtali við
Morgunblaðið 2. nóvember sl. um
fyrirhugaðan flutning Hardenberg-
ers og Sinfóníuhljómsveitarinnar á
Aerial: „Ég hugsaði með mér að ef
hljómsveitin gæti spilað Aerial þá
væri hún afburðasnjöll, því Aerial er
verulega erfitt verk sem krefst
virtúósahljómsveitar.“
Blásið í
kýrhorn og
trompeta
Icerapp 2000 eftir Atla Heimi
Sveinsson. Tildrög verksins má
rekja til Ameríkuferðar Sinfóníu-
hljómsveitarinnar síðastliðið haust
en þá var Atli beðinn um að semja
stutt verk til að hefja tónleikana
með.
Aerial eftir H.K. Gruber.
Trompetkonsert saminn að beiðni
Breska ríkisútvarpsins með Håkan
Hardenberger í huga. Heiti verksins
vísar til ljósmynda sem teknar eru
úr lofti og yfirskrift fyrsta þáttar er
sótt í ljóð Emily Dickinson, Villtar
nætur, þar sem segir m.a. (í þýðingu
Hallbergs Hallmundssonar): „Hald-
laus er byrinn, hjarta í vör, burtu
kompás, og kort úr för.“ Konsertinn
var frumfluttur undir stjórn Neemes
Järvi með Håkan Hardenberger í
einleikshlutverki á Proms-tónleikum
Breska ríkisútvarpsins í júlí 1999.
Sinfónía í þrem þáttum eftir
Igor Stravinskíj. Sinfónían telst til
nýklassískra verka Stravinskíjs og
er frá þeim tíma þegar hann hafði
nýlega sest að í Bandaríkjunum.
Fyrstu drög að sinfóníunni má rekja
til ársins 1942 en smíði verksins lauk
Stravinskíj 7. ágúst 1945, daginn eft-
ir að kjarnorkuprengjunni var varp-
að á Hírósíma. Hann stjórnaði sjálf-
ur Fílharmóníusveit New
York-borgar við frumflutning sin-
fóníunnar í ársbyrjun 1946.
Efnisskrá
tónleikanna