Morgunblaðið - 15.03.2001, Side 36
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir með hnakktösku sem nota má sem matarskál.
LISTA- og handverkskonan Sigur-
björg Eyjólfsdóttir sýnir um þessar
mundir verk sín í Gallerí Miðgarði,
Austurvegi 4 á Selfossi. Á sýning-
unni er handverk af ýmsu tagi, s.s.
styttur, skálar og málverk. Á meðal
sýningargripa er haganlega gerð
hnakktaska úr keramik sem nota má
sem matarskál.
Sigurbjörg, sem fædd er 1. janúar
1944, hefur tekið þátt í ótal hand-
verkssýningum s.s. að Hrafnagili við
Akureyri og í Reykjavík. Hún lærði
blómaskreytingar hjá Ringelberg í
Rósinni Vesturveri. „Þar lærði ég að
búa til allt úr engu og geri enn í dag,“
sagði Sigurbjörg. Hún lærði módel-
teikningu í Myndlistarskóla og með-
an börnin voru lítil málaði hún
vöggusett og skírnarkjóla með tau-
litum. Þá eru þau líka ófá ferming-
arkertin sem Sigurbjörg hefur mál-
að með nöfnum fermingarbarna.
Hún er ein af stofnendum Mynd-
listarfélags Árnessýslu fyrir 20 ár-
um, hefur verið á ótal námskeiðum
hjá félaginu og tekið þátt í samsýn-
ingum þess. Þá stundaði hún nám í
Handmenntaskóla Íslands 1981–
1984 og er mikil áhugamanneskja
um framgang málefna listasafna í
sýslunni.
Sigurbjörg rak eigin verslun,
Föndur og gjafir, í 9 ár og segir að þá
hafi leirinn farið að mótast hjá sér og
verið í mótun síðustu 16 árin. Þá
þekkingu segist hún hafa sótt til
Steinunnar Marteinsdóttur í Huldu-
hólum og einnig hjá Glit, leirmuna-
gerð.
Sýningin í Miðgarði stendur til 4.
apríl.
Handverk og
myndir í Miðgarði
Selfossi. Morgunblaðið.
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSA dagana stend-
ur yfir í „NRW Forum
Kultur und Wirtschaft
(Nordrhein-Westfalen
– vettvangur menning-
ar og reksturs) við
Ehrenhof í Düsseldorf,
viðamesta sýning sem
haldin hefur verið á
verkum Hollendingsins
Anton Corbijn.
Þar gefur að líta úr-
val ljósmynda, kvik-
mynda og myndbands-
búta, allt frá árinu 1976
til dagsins í dag. Ásamt hinum frægu
persónumyndum af tónlistarfólki,
hefur Anton Corbijn unnið fjölda af
myndbandsbútum, hannað geisla-
diskaumslög og jafnvel sviðsmyndir
t.a.m. fyrir hljómsveitina „Depeche
Mode“. Yfir 100 plötuumslög hafa
breitt út ljósmyndir hans í millj-
ónatali.
Ferill Corbijns sjáfs (f. 1955) hefur
ekki verið síður glæstur en popp-
stjarnanna. 1979 flutti hann til Lond-
on og ljósmyndaði fyrir tónlist-
arblaðið „New Musical Explorer“. Þá
tóku við fleiri alþjóðleg tímarit á borð
við Rolling Stone, Harpers Bazaar,
Elle og W svo nokkur séu nefnd.
Hinn hlédrægi ljósmyndari sem
nefndur hefur verið „myndagerð-
armaður hinnar metapysísku víddar“
(sjá t.d. Nirvanabútinn „Heart Shap-
ed Box“), segist sjálfur leitast við að
ná því fram sem honum finnst gera
manneskjuna áhugaverða; eða það
sem býr að baki ytri fegurðinni.
Christiane zu Salm, framkvæmda-
stjóri MTV Networks, stuðningsaðila
sýningarinnar hefur eftirfarandi að
segja: „Fyrir mér er Anton Corbijn í
raun enginn ljósmyndari, heldur
helgimyndasmiður, skapari nútíma
guðsdýrkunarmynda. Sem slíkur hef-
ur hann auðgað hið dularfulla
merkjakerfi poppsins til muna.“
Eitt er víst að með ljósmyndum
sínum af poppheiminum lagði Cor-
bijn grunn að nýrri bylgju innan tón-
listarsviðsins með brothættum, bein-
skeyttum, ákaflega persónulegum
myndverkum, fullum af töfrum. Með
árunum bættust við andlitsmyndir af
stjörnum kvikmynda, bókmennta,
tískuheims, súpermódela, málara og
leikara.
Af frægu fólki sem stillt hefur sér
upp fyrir næmt auga Antons Corbijn
má m.a. nefna Miles Davis, David
Bowie, Peter Gabriel, Clint East-
wood, Björk, Brian Eno, U2 (t.d. um-
slag plötunnar „The Joshua Tree“),
Keith Richards og Sting. Sýningin
stendur til 22. apríl næstkomandi.
Skapari nútíma
guðsdýrk-
unarmynda
Ljósmynd/Ilma Reissner
Björk flaggað fyrir utan sýningarhöllina í Düsseldorf. Hollenski listamaðurinn Anton Corbijn.
Anton Corbijn: Björk Guðmundsdóttir.
Sýning á verkum listamannsins Antons Corbijns í Düsseldorf
Düsseldorf. Morgunblaðið.
Anton Corbijn: Bono, söngvari U2.
PLATA til styrktar Minning-
arsjóði Lárusar Sveinssonar
trompetleikara er komin út.
Fyrir rúmu
ári flutti Sinfón-
íuhljómsveit Ís-
lands ásamt Kór
Íslensku óp-
erunnar og ein-
söngvurum 9.
sinfóníu
Beethovens og
var flutning-
urinn var til-
einkaður minn-
ingu Lárusar
sem þá var nýlátinn. 7. febrúar
síðastliðinn, á afmælisdegi Lár-
usar, var hljóðritun af tónleikunum
gefin út á geislaplötu til styrktar
minningarsjóði í hans nafni en
Starfsmannafélag S.Í. stóð að
stofnun sjóðsins.
Þeir tónlistarunnendur sem hug
hafa á að eignast þennan disk og
renna um leið stoðum undir Minn-
ingarsjóð Lárusar Sveinssonar
trompetleikara geta pantað plöt-
una beint frá útgefanda, Polarfonia
Classics, og greiða fyrir 1.500 kr.
Pantanir aðeins afgreiddar í
gegnum netfangið ts@itn.is – eða í
síma 868 9845. Diskurinn kostar
2.199 kr. í flestum verslunum.
Nýjar plötur
Lárus
Sveinsson
JÓNAS
Ingimund-
arson held-
ur píanótón-
leika í
Hveragerð-
iskirkju á
laugardag
kl. 16. Við-
fangsefni
hans að
þessu sinni
eru verk eftir Ludwig van
Beethoven, Claude Debussy og
Franz Liszt. Eftir Beethoven
leikur Jónas Andante favori og
Waldstein-sónötuna. Seinni
hluti efnisskrárinnar eru fjórar
prelúdíur eftir Debussy og
Gosbrunnarnir við Villa d́Este
og Ballata nr. 2 í h-moll, hvort
tveggja eftir Liszt.
Píanótónleikar
í Hveragerð-
iskirkju
Jónas Ingi-
mundarson
Keppni í
klassískum
ballett
LISTDANSSKÓLI Íslands stend-
ur fyrir keppni í klassískum ballett
á morgun, föstudag, kl. 20.30, á
Smíðaverkstæðinu í Þjóðleikhús-
inu. Markmiðið er að velja þátttak-
endur í norræna danskeppni sem
haldin er árlega í Svíþjóð. Rík-
isreknir Ballettskólar, óperuball-
ettskólar hinna Norðurlandanna
senda nemendur til þátttöku og
standa fyrir svipuðum undan-
keppnum.
Keppt í annað sinn
„Þetta er í annað sinn sem List-
dansskólinn stendur fyrir þessari
keppni en sl. ár voru þrír kepp-
endur valdir hér til þátttöku. Þeir
stóðu sig með prýði og vöktu mikla
athygli fyrir getu sína,“ segir Örn
Guðmundsson, skólastjóri List-
dansskólans. „Nú veljum við nem-
endur til þess að fara í vor en
keppnin verður nú haldin 25.-26.
maí. Í ár eru það nemendur úr
Listdansskóla Íslands og Klass-
íska Listdansskólanum sem sýna
færni sína á sviði Smíðaverkstæðis
Þjóðleikhússins.“
Miðasala verður Þjóðleikhúsinu
samdægurs. Upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Listdansskól-
ans frá kl. 9-17.
♦ ♦ ♦