Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 37
1. flokki 1989 – 42. útdráttur
1. flokki 1990 – 39. útdráttur
2. flokki 1990 – 38. útdráttur
2. flokki 1991 – 36 útdráttur
3. flokki 1992 – 31. útdráttur
2. flokki 1993 – 27. útdráttur
2. flokki 1994 – 24. útdráttur
3. flokki 1994 – 23. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 2001.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess
eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt
í DV fimmtudaginn 15. mars. Upplýsingar um útdregin
húsbréf liggja frammi hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
HÉR á dögunum nefndi ég að leik-
rit Kjartans Ragnarssonar hefðu
undanfarna tvo áratugi verið meðal
vinsælustu viðfangsefna áhugaleik-
félaga landsins og kom þá vel á vond-
an að gleyma því allra vinsælasta,
Landi míns föður. Leikrit með
söngvum er réttari lýsing en söng-
leikur, þótt kannski megi það einu
gilda, tónlistin er jafn ómissandi
hluti verksins þrátt fyrir það.
Þegar um er að ræða stóran og
áhugasaman hóp ungra leikenda þá
er verk á borð við Land míns föður
auðvitað rakið verkefni; þar fá allir
eitthvað við sitt hæfi, hlutverkin eru
fjölmörg og allir þurfa að leika,
syngja og dansa og þótt leikstjórinn
færist heilmikið í fang þá er jafnvíst
að áhorfendur munu verða þakklátir
fyrir framtakið. Ekki má gleyma því
að verkið færir með sér þekkingu á
nýliðinni sögu okkar, hernámi og
undanfara lýðveldisstofnunar. Sú
kynslóð leikenda sem hér hélt á
spöðum þekkir þessa sögu ekki
nema af afspurn og hefur sjálfsagt
aldrei leitt hugann að þeim aðstæð-
um sem hér var búið við á 5. og 6.
áratug aldarinnar.
Leikstjórinn, Elvar Logi, hefur
skapað skemmtilega og líflega sýn-
ingu og nýtir sér möguleika rýmisins
til hins ýtrasta. Útgönguleiðir eru
fjölmargar og leikið um allan salinn,
þótt hefðbundin sviðsetning hafi ráð-
ið ferðinni við flest atriðin. Umgjörð
sýningarinnar var í lágmarki en þess
meiri áhersla lögð á búninga leik-
enda og greinilegt að þar hafði víða
verið leitað fanga. Tónlistarflutning-
urinn var ljómandi góður, hljóm-
sveitin studdi vel við söngvarana og
söngtextar skiluðu sér ágætlega.
Ástæða er til að hrósa leikhópnum í
heild fyrir frammistöðuna og sér-
staklega má nefna að Herdís Anna
Jónsdóttir og Ingvar Alfreðsson í
hlutverkum Báru og Sæla stóðu sig
með prýði, Greipur Gíslason var
bráðskemmtilegur í hlutverki Leifs
lögregluþjóns og ekki má gleyma
Hauki S. Magnússyni í hlutverki
Péturs postula. Drykkjuatriði þeirra
tveggja var hreint kostulegt.
Greinilegt var á frumsýningu að
sýningin féll í góðan jarðveg og hef
ég haft af því spurnir að sýningum
hafi verið mjög vel tekið í framhald-
inu. Mátti enda greinilega sjá af við-
tökum og þakkarávarpi skólameist-
ara, Björns Teitssonar, í lok sýn-
ingar að leiklistarstarf nemenda MÍ
er metið að verðleikum og skilar
þeim árangri sem að er stefnt.
Hið unga Ísland
LEIKLIST
L e i k f é l a g M e n n t a -
s k ó l a n s á Í s a f i r ð i
eftir Kjartan Ragnarsson með tón-
list eftir Atla Heimi Sveinsson.
Leikstjóri: Elvar Logi Hannesson.
Þriðjudagur 6. mars
LAND MÍNS FÖÐUR
Hávar Sigurjónsson
Þjóðleikhúsið –
Horfðu reiður um öxl
Þrjár sýningar eru eftir á
leikritinu Horfðu reiður um öxl
á Stóra sviði Þjóðleikhússins,
föstudaginn 16. mars, laugar-
daginn 24. mars og laugardag-
inn 31. mars.
Frumsýnt var á Litla sviðinu
en vegna aðsóknar var sýningin
flutt á Stóra sviðið. Sýningar á
Horfðu reiður um öxl eru orðn-
ar hátt í fimmtíu talsins en nú
er komið að því að sýningin
verður að víkja vegna þrengsla
á Stóra sviðinu.
Leikendur eru Hilmir Snær
Guðnason, Elva Ósk Ólafsdótt-
ir, Rúnar Freyr Gíslason, Hall-
dóra Björnsdóttir og Gunnar
Eyjólfsson.
Þýðandi er Thor Vilhjálms-
son, lýsingu hannar Páll Ragn-
arsson, höfundur leikmyndar
og búninga er Þórunn Sigríður
Þorgrímsdóttir og leikstjóri
Stefán Baldursson.
Síðustu
sýningar
RÖKKURKÓRINN í Skagafirði
fylgir vortónleikadagskrá sinni úr
hlaði með tvennum tónleikum á laug-
ardag. Fyrst verður sungið í Lauga-
borg í Eyjafjarðarsveit kl. 15 og í
Glerárkirkju á Akureyri um kvöldið
kl. 20.30. Áætlað er að kórinn haldi
og taki þátt í 13 söngskemmtunum á
þessu vori.
Kórinn heimsækir Miðgarð laug-
ardaginn 31. mars kl. 20.30 og flytur
aðalkonsert sinn, sem nú er með
nýju sniði, undir yfirskriftinni „Sál-
arinnar sælustundir“. Það verður
ljóða- og skemmtidagskrá Rökkur-
kórsins og hagyrðinganna Jóhanns
Guðmundssonar í Stapa og Sigurðar
Hansen í Kringlumýri. Kórinn mun
m.a. syngja lög við ljóð þeirra félaga,
fjallað verður um skáldskap þeirra
og lesin ljóð eftir þá. Auk þess munu
Álftagerðisbræður syngja nokkur
lög við ljóð Jóhanns og Sigurðar.
Sumardaginn fyrsta, 19. apríl, ætlar
kórinn að heimsækja Þingeyinga og
halda tónleika á tveimur stöðum.
Kórinn mun taka þátt í skemmt-
uninni Söngur um sumarmál á
Blönduósi laugardaginn 21. apríl, en
þar koma einnig fram Karlakór Ból-
staðarhlíðarhrepps og Samkór
Vopnafjarðar. Miðvikudag í Sælu-
viku Skagfirðinga, 2. maí, mun kór-
inn halda söngskemmtun í Bifröst á
Sauðárkróki og laugardaginn 5. maí
verða haldnar tvær sögnskemmtanir
í Miðgarði, en þar koma fram auk
Rökkurkórsins Karlakórinn Heimir,
Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ og
Sunnukórinn á Ísafirði.
Dagana 14.–16. júní mun kórinn
heimsækja Vestfirði og halda tón-
leika á Hólmavík, Ísafirði, Þingeyri
og Patreksfirði.
Félagar í kórnum eru um 50 tals-
ins og koma víðs vegar að úr Skaga-
firði. Kórinn hefur gefið út tvo
geisladiska, „Söngurinn minn“
(1996), sem inniheldur eingöngu lög
og ljóð eftir skagfirska höfunda, og
„Við syngjum“ (2000), sem inniheld-
ur bæði innlend og erlend lög.
Stjórnandi kórsins nú eins og und-
anfarin ár er Sveinn Árnason á Víði-
mel og undirleikari er Anna María
Guðmundsdóttir. Formaður Rökk-
urkórsins er Valgeir Bjarnason.
Rökkurkórinn gerir víðreist
LÍTTU niður ljósa tungl hefur að
geyma tuttugu og tvö af hinum
styttri ljóðum Walts Whitmanns í
þýðingu Hall-
bergs Hall-
mundssonar.
Whitman er tal-
inn annað tveggja
höfuðskálda
Bandaríkjanna á
19. öld. Mörg
þeirra ljóða sem í
kverinu er að
finna eru frá
þrælastríðinu.
Whitman kynntist því af eigin raun
þótt hann væri ekki í hernum. En
bróðir hans særðist á vígvöllunum
1862 og Whitman fór þá til Virginíu
að hjúkra honum. Hann ílentist eftir
það um nokkurt skeið í Washington
að annast hina særðu og dauðvona,
allt í sjálfboðavinnu. Hann andaðist
1892, tæpra sjötíu og þriggja ára.
Whitman hefur verið kallaður
skáld lýðræðisins og víst er að hann
boðaði í verkum sínum frelsi, jafn-
rétti og bræðralag, en þó kannski
framar öllu umburðarlyndi og virð-
ingu fyrir náunganum. Hann ritaði
hispurslaust um kynferðismál og þá
líka samkynhneigð sína, sem hann
dró enga dul á. Ljóðum sínum safn-
aði hann saman í bókinni Leaves of
Grass (Grasstrá), sem hann var alla
ævi að kveða og kom út fyrst árið
1855.
Þetta er fimmta kverið í flokki
þeim af þýddum ljóðum sem BRÚ
hóf að gefa út árið 1997. Bókin er 32
bls. Verð: 530 kr. Kverið verður ein-
ungis til sölu í bókabúðum Máls og
menningar.
Nýjar bækur
Walt Whitman
MARGRÉT Óðinsdóttir messó-
sópran og Richard Simm píanó-
leikari halda ljóðatónleika í
Kirkjuhvoli, safnaðarheimili
Vídalínskirkju í Garðabæ, á laug-
ardag, kl. 17. Flutt verður tónlist
eftir Mozart, Shubert, Brahms,
Tsjajkovskíj, Atla Heimi Sveins-
son og frumflutt verður verk eftir
Óliver Kentish, sem samið er við
ljóðið Móðurást eftir Jónas Hall-
grímsson.
Margrét Óðinsdóttir kennir
söng við Tónlistarskóla Garða-
bæjar og syngur með Hljómkórn-
um. Richard Simm er nú kennari í
Reykjavík, Mosfellsbæ og Garða-
bæ.
Richard Simm píanóleikari og Margrét Óðinsdóttir söngkona.
Ljóðatónleikar
í Kirkjuhvoli
ÆFINGAR standa nú yfir á nýju ís-
lensku leikriti hjá Leikfélaginu
Hugleik í Reykjavík. Verkið heitir
Víst var Ingjaldur á rauðum skóm
og er eftir Hjördísi Hjartardóttur,
Ingibjörgu Hjartardóttur og Sig-
rúnu Óskarsdóttur en þær síð-
arnefndu höfðu frumkvæði að stofn-
un Hugleiks fyrir réttum 17 árum
og skrifuðu flest fyrstu verka leik-
félagsins ásamt fleirum, þ. á m.
Hjördísi.
Víst var Ingjaldur á rauðum skóm
verður frumsýnt laugardaginn 31.
mars í Tjarnarbíói. Þar segir frá
þremur systrum sem reka kostgang-
araheimili í höfuðborginni. Lífið er í
afar föstum skorðum hjá systrunum
og kostgöngurum þeirra þegar
söngkonu nokkra með afar vafa-
samar fyrirætlanir á prjónunum ber
að garði. Inn í söguna fléttast svo
draugar fortíðarinnar og róman-
tíkin fær auðvitað sitt pláss.
Sigrún Valbergsdóttir leikstýrir,
en hún er gamalreyndur Hugleiks-
leikstjóri. Hún leikstýrði t.d. Stút-
ungasögu (1993) og Nóbelsdraum-
um (1999). Tuttugu leikarar taka
þátt í sýningunni.
Hrefna Friðriksdóttir, Helga Sveinsdóttir og Jónína Björgvinsdóttir í hlutverkum systranna þriggja.
Hugleikur á rauðum skóm