Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 45 AÐALFUNDUR Aðalfundur Lögmannafélags Íslands 2001 verður haldinn föstudaginn 16. mars nk., kl. 14:00 í Setrinu á Grand Hótel. D A G S K R Á: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. samþykkta fyrir Lögmannafélag Íslands. 2. Kynning á nýrri heimasíðu LMFÍ. 3. Önnur mál. Að loknum aðalfundi LMFÍ verður haldinn aðalfundur félagsdeildar LMFÍ. D A G S K R Á: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 6. gr. reglna um félagsdeild LMFÍ. 2. Önnur mál. Stjórn Lögmannafélags Íslands. SKIPULAGSMÁL borgarinnar eru ekki að öllu leyti einkamál Reykvíkinga, því höf- uðborgin hefur marg- víslegum skyldum að gegna. Það veldur því vonbrigðum, að í stað þess að vinna á eðlileg- an hátt að skipulags- málum hafa borgaryf- irvöld ákveðið að gera flugvallarmálið að póli- tísku bitbeini. Afleið- ingarnar geta hugsan- lega valdið enn frekari byggðaröskun en orðin er. Deila má um at- kvæðagreiðsluna, en í aðdraganda hennar hefur þó berlega komið í ljós, hversu Reykjavíkurflugvöllur er mikilvægur fyrir þjóðina, Reyk- víkinga, sem aðra. Reykjavíkurflug- völlur er vettvangur fjölmargra fyr- irtækja og þúsundir manna hafa beint eða óbeint at- vinnu sína vegna hans. Borgin er einnig miðstöð íslensks þjóð- félags, miðstöð sam- gangna og vöruflutn- inga um allt land og því skiptir flugvöllurinn miklu máli fyrir fjöl- marga aðra Íslendinga en Reykvíkinga. Reykvíkingar eru ekkert annað en Ís- lendingar sem kjósa að búa í Reykjavík, rétt eins og aðrir eru kenndir við sína staði svo sem bæi, hverfi, dali, firði, sýslur eða landshluta. Flóran er margbreyti- leg, til eru Akureyringar, Breiðhylt- ingar, Aðaldælingar, Ísfirðingar, Þingeyingar, Austfirðingar og svo framvegis. Hér með er skorað á þá, sem búa annars staðar en í Reykjavík, að hvetja ættingja, vini og kunningja í höfuðborginni til að taka þátt í at- kvæðagreiðslunni og kjósa með flug- vellinum. Nóg er af ýmiskonar óár- an af náttúrunnar völdum, svo ekki bætist við náttúruhamfarir af mannavöldum sem valdið geta enn frekari byggðaröskun á Íslandi. Kjósum Reykjavík- urflugvöll Sigurður Sigurðarson Flugvöllur Hér með er skorað á þá, sem búa annars staðar en í Reykjavík, segir Sigurður Sigurðarson, að hvetja ættingja, vini og kunningja í höf- uðborginni til að taka þátt í atkvæðagreiðsl- unni og kjósa með flug- vellinum. Höfundur er framkvæmdastjóri og búsettur á Höfn í Hornafirði. ERU Íslendingar mesta flugþjóð í heimi? Svarið við þeirri spurningu er tvímælalaust, já. Ekk- ert annað land í heimi getur státað af jafn mörgum atvinnuflug- vélum og Ísland, mið- að við hina góðkunnu höfðatölureglu. Það má taka annað dæmi, án höfðatölu, um hin gífurlegu umsvif Ís- lendinga í flugrekstri. Alþjóðaflugmálastofn- unin (ICAO) gefur út á hverju ári lista um umsvif atvinnuflugs í 183 aðildarlöndum sínum og í fjöldamörg ár hefur Ísland verið í kringum 55. sætið. Við útreikninga sína notar þessi virta stofnun hug- takið tonn-kílómetra er þýðir að eitt tonn af farþegum, frakt og pósti er flutt eins kílómetra flug- leið. Þetta er skýrasti mælikvarði á framleiðni í flugrekstri og sá raun- hæfasti til að bera slíkan rekstur saman á milli landa Ef höfðatölu- reglunni er beitt í þessu samhengi hafa Íslendingar í háa herrans ár verið heimsmeistarar í atvinnu- flugi! Heildarrekstrartekjur íslenskra flugfélaga á síðasta ári eru 50–60 milljarðar króna. Í þessari tölu eru margvísleg dótturfyrirtæki flug- félaganna ekki meðtalin en sem kunnugt er hafa þau einnig talsvert umleikis. Í raun og veru hvílir vöxt- ur og velgengni allrar ferðaþjón- ustu hér á landi á starfsemi flug- félaganna okkar. Eggin koma ekki á undan hænunni. Flugáhugi er ekki meðfædd kunnátta. Hann er hæfileiki er menn afla sér með ástundun, löng- un og þekkingu og ennfremur hef- ur uppeldi sitt að segja í þessum efnum, jafnt sem öðrum. Síðast en ekki síst getur ytra umhverfi haft mótandi áhrif og beint mönnum inn á brautir flugsins. Uppeldishlutverk Reykjavík- urflugvallar er mikið Sextíu ára tilvist Reykjavíkur- flugvallar í Vatnsmýrinni er ein- mitt dæmi um það hvernig um- hverfið getur haft áhrif en þetta farsæla mannvirki hefur án alls efa kveikt flugáhuga margra Reykvík- inga. Næstum allir borgarbúar hafa frá blautu barnsbeini heyrt og séð til flug- vélanna á Reykjavík- urflugvelli gegnum tíðina. Eins og far- fuglarnir eru boðberi vorsins hafa flug- vélarnar verið sendi- boðar nýjustu tækni í heimi og sem slíkar heillað margan mann- inn sem í kjölfarið hefur kosið að ganga til liðs við þá heillandi atvinnugrein sem flug- ið er. Þúsundir Íslendinga hafa með einum eða öðrum hætti starfað við flugið og ýmsir dug- miklir einstaklingar ráðist í flug- rekstur. Samtals hafa um 80 flug- félög verið starfrækt hér á landi síðastliðin sextíu ár. Fólkið á bak- við flugfélögin hefur af miklum myndarskap komið okkur Íslend- ingum í samband við umheiminn þannig að nánast samdægurs get- um við skroppið út í heim – og þyk- ir það bara sjálfsagt. Einungis með staðsetningunni innan um fólk í miðri borg hefur Reykjavíkurflugvöllur haft ómet- anleg uppeldisáhrif til heilla og hagsældar fyrir land og þjóð. Reykjavíkurflugvöllur er vagga flugsins á Íslandi og hefur verið þekkingarmiðstöð flugmála Ís- lands. Á flugvellinum hefur helsta hátækniatvinnugrein landsins vaxið úr grasi og skapað störf sem eru meðal þeirra hæst launuðu í þjóð- félaginu. Núna starfa 2.000–3.000 manns á vegum íslensku flugfélag- anna. Borgarstjóri lætur flugvallarand- stæðinga hrekja sig út í ógöngur. Því miður hefur borgarstjórinn í Reykjavík látið nokkra einstaklinga draga sig út í herför gegn Reykja- víkurflugvelli með það fyrir augum að fá hann burt, ef ekki með góðu, þá með illu. Í þessu máli virðist borgarstjóri vera á milli steins og sleggju því svo virðist sem hún hafi á sínum tíma gefið þessum háværa hóp einhvers konar kosningaloforð um að leggja Reykjavíkurflugvöll niður. Borgarstjórinn er skynsöm kona sem veit sínu viti og sér því að að- förin að Reykjavíkurflugvelli er hin mesta firra. Í varnarstöðu sinni gagnvart þrýstihópi flugvallarand- stæðinga hefur hún illu heilli látið hrekjast út í þessa fáránlegu kosn- ingu sem nú stendur fyrir dyrum um framtíð flugvallarins. Og eftir allt þetta brambolt verður kosn- ingin ekki einu sinni marktæk mið- að við þær forsendur sem gefnar hafa verið. X-Reykjavíkur- flugvöllur kjur Þegar málefni Reykjavíkurflug- vallar eru ígrunduð af yfirvegun og án fordóma liggur í augum uppi að flugvallarstæðið í Vatnsmýrinni er besti kosturinn með hliðsjón af bæði hagsmunum höfuðborgarinn- ar og landsbyggðarinnar. Fyrir landsbyggðina er hér um að ræða hreint og klárt sanngirnismál. Þetta er besti staður fyrir flugvöll á öllu suðvesturhorni landsins, hvort sem litið á málið veðurfars- lega eða fjárhagslega. Það er sjálf- sagt að taka tillit til þeirra fáu höf- uðborgarbúa sem beinlínis hafa óþægindi af flugvellinum svo sem vegna hávaða. Í því skyni hefur þegar verið gripið til þeirra ráð- stafana að flytja allt kennslu- og æfingaflug á nýjan þar til gerðan flugvöll utan við Hafnarfjörð eftir 2–3 ár. Þá standa fyrir dyrum til- raunir með hljóðkúta á einkaflug- vélar til að draga úr hávaða frá þeim og verður fróðlegt að sjá nið- urstöðurnar að þeim loknum. Góðir Reykvíkingar. X-Reykja- víkurflugvöllur áfram í Vatnsmýr- inni. Hvers vegna eru Íslendingar stærsta flugþjóð í veröldinni? Sverrir Þóroddsson Flugvöllur Í varnarstöðu sinni gagnvart þrýstihópi flugvallarandstæðinga, segir Sverrir Þórodds- son, hefur borgarstjóri illu heilli látið hrekjast út í þessa fáránlegu kosningu. Höfundur er flugáhugamaður. ÉG SÉ ekki fyrir mér hvernig Reykjavík getur gegnt því hlut- verki sínu að vera höf- uðborg Íslands, ef það- an og þangað eru ekki greiðar samgöngur. Þjóðin hefur verið nokkuð sátt við að allar helstu stjórnarstofnan- ir og menningarstofn- anir sem þjóna eiga landinu öllu væru sett- ar niður í höfuðborg- inni. Samgöngukerfi landsins hefur enda verið skipulagt með höfuðborgina sem mið- punkt. Ef það breytist hlýtur það að kalla á víðtækt end- urmat á þeim verkefnum sem til þessa hafa verið vistuð í Reykjavík en eru greidd af skattfé okkar allra. Það er óhjákvæmileg afleiðing ákvörðunar þess efnis að flugvöllur- inn víki úr Vatnsmýrinni. Ég tel mig hafa ríka ástæðu til að ætla að ef svo fer, verði annar flugvöllur ekki byggður upp í grennd Reykjavíkur heldur verði innanlandsflugið að nafninu til flutt til Keflavíkur. Það jafngildir í raun því að leggja það innanlandsflug niður sem hefur haft miðpunkt á suðvesturhorninu. Þess vegna verður að endurskoða verk- efnin og skipta upp eftir öðrum leið- um sem samkomulag getur orðið um. Hvernig framtíð? Mér finnst ástæða til að hafa veru- legar áhyggjur af framtíð Reykja- víkur ef flugvöllurinn verður kosinn í burtu. Ég velti því fyrir mér hvar borg sem í dag neitar sér um flug- samgöngur sér sóknar- færi sín. Um allan heim eru borgir sem hafa hlutverk, og ætla sér að halda þeim, að byggja upp flugsam- göngur. Kastrup er nokkra kílómetra frá miðborg Kaupmanna- hafnar. Þar á sér nú stað mikil uppbygging því Kaupmannahöfn ætlar sér, við breyttar aðstæður, að viðhalda stöðu sinni. Sömu sögu er að segja um 700 aðr- ar borgir víða um heiminn sem ýmist eru með flugvöll í túnfætinum, og ætla sér að halda honum þar, eða eru að byggja hann upp. Stjórnendur þessara borga vita sem er, að krafan um hraðar samgöngur á ekki bara við um samskipti eftir símalínum heldur virðist aukinn hraði í fjar- skiptum herða á kröfunni um aukinn hraða í öðrum samgöngum. Það virð- ist vera niðurstaðan í þessum borg- um að til að þær geti tekið þátt í þeirri þróun sem í gangi er þurfi þær að efla samgöngumöguleikana, ekki fækka þeim eða úthýsa. Landið dýrmæta Þær tillögur eru til um landnýt- ingu Vatnsmýrarinnar, miðað við að flugvöllurinn verði þar áfram, sem gera ráð fyrir að hægt verði að hliðra þeirri starfsemi sem nú er tengd fluginu þannig að til verði nokkurt byggingarland. Það er einnig mikil- vægt að umræðan um flugvöllinn hefur leitt til þess að ef hann verður áfram í Vatnsmýrinni þá verður bet- ur gengið frá svæðinu. Hinsvegar er það ekkert einsdæmi að hreinlega hjörtu borga séu undirlögð af sam- göngumannvirkjum og nefni ég þar járnbrautarstöðvarnar sem eru í miðju flestra borga í Evrópu. Teinar þeirra taka yfir mikið landflæmi og af þeim er bæði hávaði og mengun. Engum dettur þó í hug að þessar borgir geti úthýst lestarsamgöngum. Það er einfaldlega litið svo á að borg- ir verði að halda úti öflugum sam- göngum þó svo þær taki dýrmætt land úr miðju þeirra. Það er fórn- arkostnaðurinn við það að vera borg með hlutverk í nútímasamfélagi. Með velli, fyrir Reykjavík Svanfríður Jónasdóttir Flugvöllur Það virðist vera nið- urstaðan í þessum borg- um, segir Svanfríður Jónasdóttir, að til að þær geti tekið þátt í þeirri þróun sem í gangi er þurfi þær að efla samgöngumöguleikana, ekki fækka þeim eða úthýsa. Höfundur er alþingismaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.