Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 55
RITUAL ROUGE
MIKILL LITUR OG HÁMARKS GLJÁI
GLOSS
Kynning á hágæða snyrtivörum frá
Veglegir kaupaukar
Hamraborg 14a, sími 564 2011
Í dag og föstudag
Kringlunni, sími 533 4533
Í dag, föstudag og laugardag
Fyrsti varaliturinn sem
sameinar einstakan
gljáa, mikinn lit og áferð
sem ekki finnst fyrir.
9 FALLEGIR SUMARLITIR
HELENA RUBINSTEIN
DRAUMKENND FEGURÐ
ww
w.
he
le
na
ru
bi
ns
te
in
.c
om
FALLEGUR
VORFATNAÐUR
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980
ÁRLEGT söfnunarátak ABC hjálp-
arstarfs, Börn hjálpa börnum, er nú
að fara af stað. Um 3.000 börn víðs
vegar um land munu taka þátt í söfn-
uninni að þessu sinni en þetta er
fjórða árið í röð sem söfnunin er hald-
in.
Að þessu sinni verður safnað fyrir
Heimili litlu ljósanna á Indlandi.
Safnað verður fyrir nýjum barna-
skóla við heimilið en yfir 700 börn
bíða eftir að geta hafið nám í þeirri
byggingu sem verður samtals með 20
skólastofum. Hver skólastofa kostar
um 300 þúsund krónur og munu þær
allar bera nöfn íslenskra bæjarfélaga,
hverfa eða skóla. Einnig verður safn-
að fé til að koma á fót menntaskóla
fyrir heimilið. Sá áfangi kostar um 2,2
milljónir króna en það er leyfi til að
reka menntaskóla, menntaskólabóka-
safn og tilraunastofuáhöld. Þetta
nægir til að hefja kennslu á mennta-
skólastigi í bráðabirgðahúsnæði á
heimilinu en um 130 börn á heimilinu
verða komin á menntaskólaaldur þeg-
ar nýtt skólaár hefst í júní nk.
Alls eru börnin á Heimili litlu ljós-
anna 1.500 talsins sem skiptast niður í
32 hópa sem mynda eins konar fjöl-
skyldur og er heimilið nú einnig kall-
að ABC barnaþorp. 1.208 börn á
heimilinu eiga íslenska fósturforeldra
en 292 börn vantar enn stuðnings-
aðila.
Fólk er beðið um að taka vel á móti
börnunum sem ganga í hús og safna
framlögum í bauka. Börnin eru auð-
kennd með barmmerkjum og safna í
merkta og númeraða bauka sem eru
heildósir með rauf. Einnig hafa þau
meðferðis bæklinga frá starfinu fyrir
þá sem vilja taka að sér að sjá fyrir
barni. Baukar og bæklingar liggja
frammi í flestum bönkum, sparisjóð-
um, pósthúsum og bensínstöðvum.
Reikningur söfnunarinnar er í Ís-
landsbanka nr. 515-14-110 000.
ABC hjálparstarf
með söfnunarátak
Skjólstæðingar Heimilis litlu ljósanna á Indlandi.
SKJÁVARP og Fegurðarsam-
keppni Íslands hafa tekið
höndum saman um kynningu á
keppninni um fegurstu stúlku
Íslands árið 2001. Á SkjáVarpi
og á www.skjavarp.is verður
fjallað um allar undankeppnir
Fegurðarsamkeppni Íslands
utan Reykjavíkur í máli og
myndum. Um leið eignast
SkjáVarp titilinn „Netstúlka
SkjáVarps í ár.“
Tveimur vikum fyrir hverja
undankeppni birtir SkjáVarp
umfjöllun um keppnina, mynd-
ir af þeim stúlkum sem taka
þátt
og upplýsingar. Þetta birtist
staðbundið á öllu útsending-
arsvæði SkjáVarps á hverju
landsvæði.
Á www.skjavarp.is verða
sérstakar landshlutabundnar
vefsíður tileinkaðar hverri
keppni. Þar verður svipuð um-
fjöllun og á SkjáVarpi, myndir
af stúlkunum ásamt upplýs-
ingum. Á síðunum verður
hægt að kjósa „Netstúlku
SkjáVarps“ sem síðan verður
krýnd á hverri keppni.
Umfjöllun um fyrstu und-
ankeppnina, Fegurðar-
samkeppni Austurlands 2001,
er þegar hafin á útsendingar-
svæðum SkjáVarps á Austur-
landi og á www.skjavarp.is.
Fegurðar-
samkeppni
Íslands
2001 á
Skjávarpi