Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 60
KEPPNI í gömlum dönsum fór
fram í Laugardalshöllinni sl. sunnu-
dag að viðstöddu fjölmenni. Keppni
sem þessi hefur verið haldin til fjölda
ára, fyrst á vegum Dansráðs Íslands
og svo á vegum mótanefndar Dans-
íþróttasambands Íslands.
Það er út af fyrir sig virðingarvert
að keppni í gömlum dönsum sé hald-
in og að dansskólar haldi uppi
kennslu í gömlum dönsum. Þetta er
hluti af okkar menningu, þótt ekki
séu nema um 100 ár síðan þessir
dansar bárust til landsins.
Í áranna rás hafa dansarnir breyst
og eru án efa töluvert langt frá upp-
runa sínum, í Mið-Evrópu og Eng-
landi. Sumum finnst það hins vegar
bara allt í lagi, það séu okkar til-
brigði við dansana. Svo eru aðrir sem
hafa viljað dansa dansana nær upp-
runanum, sem gerir dansana tölu-
vert erfiðari, en ansi miklu fallegri
og skemmtilegri á að horfa að mínu
mati. Persónulega aðhyllist ég seinni
skoðunina af því að mér finnst hún
faglegri í alla staði og mitt mat er að
þetta myndi lyfta gömlu dönsunum á
hærri stall en þeir eru á nú.
Annað er það sem ég hef einnig
verið að velta fyrir mér, það er hvers
vegna nánast allir keppnishóparnir
dansa sömu dansana. Á keppnis-
skránni sá ég hvergi dansa eins og
marzúrka, klappefinale og svensk
maskeradi svo nokkrir dansar séu
nefndir. Hvers vegna ekki að leyfa
reyndari dönsurunum að dansa svo-
lítið meira krefjandi dansa? Þetta er
ég svo sem búinn að segja oft og
lengi og mun halda því áfram!
Um helgina var einnig keppt í
línudönsum, breakdansi, mambó og
salsa. Eru slík uppbrot á hefðbundn-
um danskeppnum oft á tíðum mjög
skemmtileg og lífga töluvert upp á
dansflóruna.
Dómarar keppninnar voru 5 ís-
lenzkir danskennarar þeir Ólafur
Geir Jóhannesson, Gerður Harpa
Kjartansdóttir, Harpa Pálsdóttir,
Emelía Petrea Sigurðardóttir og
Birgitta Sveinbjörnsdóttir.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Emelía Petrea Sigurðardóttir, dans-
kennari og dómari í keppninni, að
dagurinn hefði verið mjög góður í
heildina séð. „Salurinn var til fyrir-
myndar og keppendur stóðu sig vel,
en ég hefði þó viljað sá fleiri kepp-
endur á gólfinu. Ég tók sérstaklega
eftir því að krakkarnir dansa gömlu
dansana eins og þeim ber að gera,
samkvæmt þeim reglum sem nú eru í
gildi, ekki einhverjar aukasveiflur og
mjaðmahnykkir sem minna kannski
svolítið á suður-ameríska dansa.
Þetta myndi ég kalla spor í rétta átt
og kennarar og keppendur eiga hrós
skilið fyrir það. Sem sagt skemmti-
legur dagur og vel að öllu staðið.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rauðrössur frá Skagaströnd komu, sáu og sigruðu, enda eru þær frá kántrímiðstöð landsins.
Þorsteinn Sigurðsson og Nadine Hannes-
dóttir í mambódansi í flokki unglingar I K.
3. Ingimar Marinóss./Alexandra Johansen
4. Jón G. Guðmundss./Þórunn Ólafsd. DÍK
5. Andri Kristjánss./Elín R. Elíasd. GT
6. Marinó Sigurðars./Berta Gunnarsd. HV
Unglingar II
1. Friðrik Árnas./Sandra J. Bernburg GT
2. Bryndís M. Björnsd./Elín D. Einarsd. GT
3. Björn V. Magnúss./Björk Halldórsd. KV
4. Kristín Ýr Sigurðard./Helga Reynisd. ÝR
5. Sandra S. Guðfinnsd/Silja Þorsteinsd.ÝR
6. Birna R. Björnsd./Sara B. Magnúsd. KV
7. Aníta T. Helgad./Arna S. Ásgeirsd.ÝR
Áhugamenn F
Ævar Þ. Gíslas/Guðrún H. Hafsteinsd. GT
Úrslit í breikkeppni
12 ára og yngri:
1. Egill Rúnar Viðarsson
2. Ævar Sveinsson
3. Friðrik Theódórsson
4. Tara Sif Haraldsdóttir
Úrslit í breikkeppni
13 ára og eldri
1. Leifur Eiríksson
2. Grétar Berg Þorláksson
3. Ásgeir Logi Þórsson
4. Alexander Kirchen
Úrslit í mambó/salsa
keppni börn II
1. Jökull Örlygss./Denise Hannesd. KV
2. Aðalsteinn Kjartanss./Erla Kristjánsd. KV
Úrslit í mambó/salsa
keppni unglingar I
1. Björn I. Pálss./Ásta B. Magnúsd. KV
2. Stefán Claessen/María Carrasco GT
3. Þorsteinn Sigurðss./Nadine Hannesd. KV
Úrslit í mambó/salsa
keppni unglingar II
1. Björn V. Magnúss./Björg Halldórsd. KV
Aðalsteinn Kjartansson og Erla
Björg Kristjánsdóttir dansa
mambó í flokki börn II K.
60 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STAPAHRAUN 2
fjárfesting - atvinnutækifæri
Vorum að fá í sölu þetta reisulega steinhús við Stapahraun í Hafnar-
firði. Um er að ræða hús sem er samþykkt og innréttað sem 14 gisti-
herbergi, öll með sérbaðherbergjum. Einnig er í húsinu góð sameign,
setustofa, eldhús, þvottahús o.fl. Húsið uppfyllir öll skilyrði til rekst-
urs gistiheimilis en möguleiki væri að reka eignina t.d. sem hótel að
sumarlagi. Leigutekjur eru í dag ca kr. 490.000 á mánuði. Mögul. að
yfirtaka 30 milljónir í langtímalánum. Ásett verð aðeins kr. 43 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Stefán Hrafn. 9916
Jóhann Gunnar Arnarsson
Gömlu dansarnir eru hluti
af menningararfinum
Breikdansarar sýndu ýmsar listir og víluðu
ekki fyrir sér að standa á annarri hendi.
DANS
K e p p n i í g ö m l u m
d ö n s u m , l í n u d ö n s -
u m , b r e i k d a n s i ,
m a m b ó o g s a l s a
Sunnudaginn 11. mars.
LAUGARDALSHÖLL
Ásgeir Erlendsson og Hanna
María Óskarsdóttir dansa Gay
Gordon í flokki unglingar K/F.
Úrslit:
Börn I A
1. Sigurður Björgv./Thelma Sigurðard. DÍK
2. Hörður Harðars./Guðrún Arnalds DÍK
3. Pétur Magnas./Jóna Benediktsd. DÍK
4. Alex F. Gunnarss./Vala B.Birkiss. DÍK
5. Sævar Þ. Sigfúss./Ragna B. Bernburg GT
6. Sigurður M. Atlason/Sara R. Jakobsd. KV
Börn I B
1. Aron S. Guðmundss./Íris Hauksd. GT
2. Ragnar I. Péturss/Sara K. Rúnarsd. DÍK
3. Magnús Magnúss./Helga D. Einarsd. DÍK
4. Rúnar Sigurðss./Björk Guðmundsd DÍH
5. Atli Þ. Einarss./Elísabet Halldórsd. GT
6. Hjalti F. Sigtryggss./Hulda Tómasd. GT
Börn I B-D
1. Tinna Hauksd./Elísa Hallgrímsd. KV
2. Hugrún Óskarsd./Vaka Helgad. DÍK
3. Andre Björnsd./Alexandra Guðbergsd. DÍH
4. Hómfríður Geirsd./Karen B. Pétursd. KV
5. Heiður Hallgr./Ingibjörg Hallgr.
6. Thelma Einarsd./Þórdís Þorvaldsd. DÍH
7. Heiða V. Sigfúsd./Karitas Ólafsd. KV
Börn II
1. Haukur F. Hafsteinss./Hanna R. Ólad. HV
2. Jökull Örlygss./Denise Hannesd. KV
3. Aðalsteinn Kjartanss/Erla Kristjánsd. KV
4. Valdimar Kristjánss./Rakel Guðm. HV
5. Arnar M. Einarss./Helena Jónsd. DÍK
6. Magnús Kjartanss./Helga Rúnarsd. DíK
Unglingar I K
1. Þorleifur Einarss./Ásta Bjarnad. GT
2. Björn I. Pálss./Ásta B. Magnúsd. KV
3. Fannar H. Rúnarss./Edda G. Gíslad. HV
4. Stefán Claessen/María Carrasco GT
5. Ásgeir Erlendss./Hanna M. Óskarsd. GT
6. Þorsteinn Sigurðss./Nadine Hannesd. KV
7. Ari F. Ásgeirss./Rósa J. Magnúsd. DÍH
Unglingar I A
1. Steinar Ólafss./Ólöf Á. Ólafsd. ÝR
2. Stefán Víglundss./Andrea Sigurðard. ÝR