Morgunblaðið - 15.03.2001, Qupperneq 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 61
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi frá bæjarráði
Vestmannaeyja:
„Bæjarráð Vestmannaeyja
harmar þá óvissu sem skapast
hefur um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar. Öll óvissa í samgöngu-
málum veikir stöðu og möguleika
landsbyggðarinnar til að viðhalda
eðlilegum samskiptum við höfuð-
borgarbúa.
Í Reykjavík, höfuðborg Ís-
lands, hefur verið byggð upp
þjónusta á vegum hins opinbera
með þorra ríkisstofnana og þ.m.t.
sérhæfðum sjúkrastofnunum,
sem svo sannarlega hafa sannað
gildi sitt fyrir landsbyggðina þeg-
ar sjúkraflutningar koma upp í
tilfellum þar sem mínútur geta
skipt sköpum um hvort manns-
lífum sé bjargað.
Reykjavíkurflugvöllur er lykill
landsbyggðarinnar að höfuðborg
Íslands og skiptir gífurlegu máli í
þróun ferðaþjónustu um land allt.
Hugmyndir um að lengja
ferðatíma milli byggða landsins
og höfuðborgarinnar sem aug-
ljóslega stórhækka allan ferða-
kostnað eru algjörlega óásættan-
legar.
Einn stór hópur hefur gleymst
í umræðunni en það eru tugþús-
undir höfuðborgarbúa sem nota
flugvöllinn til að ferðast til hinna
fjölmörgu staða úti á landi, bæði
vegna atvinnu sinnar, ferðalaga
og til að viðhalda fjölskyldu-
tengslum.
Bæjarráð Vestmannaeyja skor-
ar á þá höfuðborgarbúa sem taka
þátt í könnun um framtíð Reykja-
víkurflugvallar þann 17. mars nk.
að setja sig í spor landsbyggð-
arfólks og virða þau sjónarmið
sem hér hafa m.a. verið nefnd.
Áframhaldandi staðsetning
flugvallar í Reykjavík er eitt
stærsta mál til þess að sátt geti
ríkt milli höfuðborgarsvæðis og
landsbyggðar.“
Harmar óvissa
framtíð Reykja-
víkurflugvallar
SALVÖR Nordal, stjórnarformaður
ReykjavíkurAkademíunnar (RA),
kynnir stofnunina föstudaginn 16.
mars kl. 15.15. Kynningin er haldin á
vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ.
Hún fer fram í stofu M 303 í aðal-
byggingu Kennaraháskóla Íslands
við Stakkahlíð og er öllum opin.
ReykjavíkurAkademían var stofn-
uð 7. maí 1997 sem félag sjálfstætt
starfandi fræðimanna. Í dag starfa
þar yfir fimmtíu fræðimenn úr ýms-
um greinum hug- og félagsvísinda,
sem stunda fjölbreyttar rannsóknir
og vinna að sameiginlegum verkefn-
um í hvetjandi umhverfi.
Markmið RA er að virkja félaga til
samstarfs, skapa þeim starfsaðstöðu
og ný tækifæri til rannsókna og efla
tengsl þeirra við innlenda og erlenda
fræðimenn og stofnanir.
RA er opinn og líflegur umræðu-
vettvangur með fjölda málþinga og
umræðufunda, segir í fréttatilkynn-
ingu. Staðið er að útgáfu bókaflokks
og leitast við að efla menningar-
tengda ferðaþjónustu. Unnið er að
ýmsum þróunar- og rannsóknar-
verkefnum og starfandi eru les-,
rannsóknar- og vísindahópar svo
eitthvað sé nefnt. Unnið er að því að
efla tengslin við menntastofnanir í
landinu og þá sérstaklega á rann-
sóknarsviði.
Tími verður gefinn til umræðna og
fyrirspurna í lok kynningarinnar.
Reykjavík-
urAkadem-
ían kynnt
OPINBER fyrirlestur á vegum
Rannsóknarstofu í kvennafræðum
verður haldinn í dag, fimmtudaginn
15. mars kl. 16.15 í Lögbergi.
Þar mun dr. Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor í félagsráðgjöf, flytja fyr-
irlesturinn Er öldin önnur? Um
breytt viðhorf kynjanna til foreldra-
samstarfs.
Fyrirlestur um
breytingar á
fjölskylduað-
stæðum
♦ ♦ ♦
RUTH Garrett Millikan, prófessor
í heimspeki frá Connecticut-há-
skóla í Bandaríkjunum, heldur al-
mennan fyrirlestur föstudaginn 16.
mars, á milli kl.
12.05 og 13, í
stofu 101 í Odda,
Háskóla Íslands.
Að fyrirlestrin-
um standa heim-
spekiskor, sál-
fræðiskor og
Heimspekistofn-
un.
Í fréttatil-
kynningu segir:
„Millikan er einn þekktasti og um-
deildasti heimspekingur samtím-
ans. Hún vakti mikla athygli fyrir
fyrstu bók sína „Language,
Thought, and Other Biological
Categories“, sem kom út árið 1984.
Hún hefur skrifað tvær bækur eft-
ir það (önnur þeirra, „On Clear
and Confused Ideas“, kom út síð-
asta haust) auk fjölmargra greina.
Það sem er einkum frumlegt við
heimspeki hennar er að hún legg-
ur þróunarkenningu Darwins til
grundvallar flestu því sem hún
skrifar. Hún telur að það sjón-
arhorn geti leyst margan vanda
sem heimspekingar og vísinda-
menn standa frammi fyrir.“
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Hann verður endurtekinn föstu-
daginn 23. mars klukkan 20 í Há-
skólanum á Akureyri.
Ruth Garrett
Millikan held-
ur fyrirlestur
Ruth G.
Millikan
♦ ♦ ♦