Morgunblaðið - 15.03.2001, Síða 72
FÓLK Í FRÉTTUM
72 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ruth Reginalds
Tónleikar með
Vesturgötu 2, sími 551 8900
ÁLAFOSS FÖT BEZT: Félagarnir
Jói og Kjartan halda uppi fjörinu til
kl. 3 laugardagskvöld.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Almennur
dansleikur með Önnu Vilhjálms og
hljómsveit föstudagskvöld. Með Önnu
eru þeir Hilmar Sverrisson og Pétur
Hjálmarsson. Dansleikur með Caprí-
tríói sunnudagskvöld kl. 20 til 23.30.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Blúsbandið KGB leikur frá kl. 23. Að-
gangseyrir 500 kr. föstudagskvöld.
Hljómsveitin Þotuliðið sér um fjörið
laugardagskvöld. Aðgangseyrir 500
kr. Aldurstakmark 20 ár.
CAFÉ AMSTERDAM: Stuðbandið
Four Some leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld. Hljómsveitin hefur get-
ið sér gott orð fyrir líflega sviðsfram-
komu og mikla spilagleði.
CATALINA, Hamraborg: Hinir
eldhressu Bara 2 leika föstudags- og
laugardagskvöld.
DILLON BAR, Laugavegi 28: DJ
Sveimhugi og DJ Peter Levon með
bræðing á efri hæð fimmtudagskvöld.
Blústríóið Bundið slitlag leikur ís-
lenskan vegavinnublús á neðri hæð-
inni föstudagskvöld. „Skeitara“rokk á
efri hæðinni laugardagskvöld. DJ
Chaos og dr. Itfello sjá um tónlistina.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Síðbúin
Góugleði helgina 15. til 18. mars.
Fimmtudagur. Stór á 300. Frítt öl eða
gos með öllum máltíðum sem kosta
yfir 1.200 kr á mann. Sigrún Huld og
Hulduherinn á barnum kl. 23–3 föstu-
dagskvöld. Ókeypis inn fyrir mið-
nætti. 500 kr. eftir það. Lallakvöld kl.
20.30 laugardagskvöld. Lalli í topp-
formi og Karlakór Fjarðabyggðar
kemur fram í fyrsta sinn. Allur ágóði
rennur til menningarmála.
FJÖRUKRÁIN: Grænlenskir dag-
ar. Víkingasveitin skemmtir matar-
gestum. Besta hljómsveit Grænlands,
Qarsoq, leikur fyrir dansi föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Ýmsir aðrir grænlenskir listamenn
koma við sögu næstu vikurnar.
Fjaran: Grímudansararnir Vivi Niel-
sen og Bolethe Bernhardsen og
trommudansarinn Anda Kuitsi leika
fyrir matargesti.
GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Tónlistarmaðurinn Gunnar Páll leik-
ur og syngur öll fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld. Gunnar
leikur hugljúfa og rómantíska tónlist.
Allir velkomnir.
GULLÖLDIN: Stuðboltarnir Sven-
sen og Hallfunkel sjá um stuðið til kl.
3 föstudagskvöld.
HAFURBJÖRNINN, Grindavík:
Hljómsveitin Sixties leikur föstu-
dagskvöld.
HÓTEL BORG: Strákarnir á Borg-
inni syngja fyrir matargesti laugar-
dagskvöld. Nú fer hver að verða síð-
astur að sjá þessa frábæru skemmtun
því það eru örfáar sýningar eftir.
Miðaverð 1.500 kr. og aðeins er selt
inn fyrir matargesti. Sýningin hefst
kl. 22 en húsið opnað kl. 19 fyrir mat-
argesti.
HÚS MÁLARANS: Skífuþeytirinn
Steinar verður allt í öllu á efri hæð-
inni á föstudagskvöld. Gísli og Jói
koma eins og kallaðir þegar fólk kall-
ar á tjútt og fjör á laugardagskvöld.
INGHÓLL, Selfossi: Á móti sól sér
um stuðið laugardagskvöld.
JÓI RISI, Breiðholti: Dúettinn
Blátt áfram leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Ruth Reg-
inalds syngur fimmtudagskvöld.
Hljómsveitin Sniglabandið leikur
föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveitin er blanda úr Stuðmönn-
um, Sniglabandinu gamla og Borgar-
dætrum.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin
Hafrót leikur fyrir dansi föstudags-
og laugardagskvöld. Stjörnukvöld
með Pálma Gunnarssyni laugardags-
kvöld. Húsið opnað kl. 19 fyrir mat-
argesti. Þeir sem ætla að sjá sýn-
inguna mæta kl. 21.
KRISTJÁN X., Hellu: Hljómsveitin
Fálkar leikur gleðipopp og gullaldar-
rokk föstudagskvöld.
LEIKHÚSKJALLARINN: Vestur-
lands-ball föstudagskvöld. Fram
kemur hljómsveitin Land og synir,
Vinir vors og blóma ætla að koma
saman aðeins í þetta eina sinn og
Ólafur Páll Gunnarsson þeytir skíf-
um.
LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um línu-
dans verður með dansæfingu frá kl.
20.30–23.30 fimmtudagskvöld. Elsa
sér um tónlistina. Allir velkomnir.
LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Diskórokktekið og plötusnúðurinn
Skugga-Baldur í fyrsta sinn í Eyjum
föstudags- og laugardagskvöld.
Reykur, ljósadýrð og skemmtilegasta
tónlist síðustu 50 ára. Miðaverð 500
kr.
N1-BAR, Reykjanesbæ: Hljóm-
sveitin Spútnik sér um fjörið á laug-
ardagskvöld.
NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur fyr-
ir matargesti kl. 22 til 3. Naustið er
opið alla daga frá kl. 18. Stór og góður
sérréttaseðill.
Reykjavíkurstofa – bar og koníaks-
stofa: Söngkonan og píanóleikarinn
Liz Gammon frá Englandi leikur. Op-
ið frá kl. 18.
NELLY’S CAFÉ: DJ Le Chef og
DJ Finger verða í búrinu föstudags
oglaugardagskvöld. DJ Finger er ný-
kominn frá Bandaríkjunum með nýtt
efni og verður spilað fram eftir nóttu.
ODD-VITINN, Akureyri: Stjörnu-
dansleikur með hljómsveitinni BSG
laugardagskvöld. Hljómsveitina
skipa þau Björgvin Halldórsson, Sig-
ríður Beinteins, Grétar Örvars, Krist-
ján Grétars og Kristinn Svavarsson.
ORMURINN, Egilsstöðum: Stuð-
mannakvöld föstudagskvöld. Sýnd
verður myndin Með allt á hreinu á
breiðtjaldi og Stuðmannatónlist verð-
ur leikin alla nóttina.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Stefán
Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson
halda tónleika á föstudagskvöld. Dag-
skráin er nokkurn veginn tvískipt. Í
fyrri hlutanum skipa lög Pauls Sim-
ons nokkuð veglegan sess en í þeim
seinni ber mest á innlendum lögum.
Tónleikarnir hefjast kl. 23.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hljómsveitin Papar leikur
föstudags- og laugardagskvöld.
RÁIN, Keflavík: Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur frá kl. 23
föstudagskvöld. Ótrúleg stemmning.
SJALLINN, Akureyri: Hljómsveit-
in Skítamórall leikur aðeins í þetta
eina sinn laugardagskvöld.
SJALLINN, Ísafirði: Hljómsveitin
Sóldögg í þrumustuði föstudags- og
laugardagskvöld.
SKUGGABARINN: Djúpa laugin
með beina útsendingu úr Gyllta saln-
um föstudagskvöld. Húsið opnað kl.
22. Plötusnúður kvöldsins er DJ
Nökkvi sem er nýkominn frá London
með helling af heitri og glænýrri tón-
list. Aðgangseyrir 500 kr. eftir kl. 24.
22 ára aldurstakmark. Laugardags-
kvöld eru ætluð kvenfólki og það eru
strákarnir á barnum sem sjá um að
kampavínið flæði á laugardagskvöld.
Plötusnúður kvöldsins er Nökkvi. 500
kr. inn eftir kl. 24 og 22 ára aldurs-
takmark.
SPOTLIGHT: DJ Cesar verður í
búrinu í miklu stuði föstudagskvöld.
Frír drykkur á barnum til kl. 2 fyrir
þá sem borga sig inn. DJ Ívar Amor
verður pottþétt í gírnum á laugar-
dagskvöld.
VEITINGAHÚSIÐ 22: Jón sér um
stuðið og verður með bland í poka á
föstudagskvöld. Zúri gæinn með súr-
ustu tónlistina í bænum, 80’s og Indy
á laugardagskvöld.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm-
sveit Rúnars Júlíussonar skemmtir
föstudags- og laugardagskvöld.
Frá A til Ö
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar leikur á Ránni í Keflavík
föstudagskvöld.
Anna Vilhjálms og hljómsveit
hennar leika í Glæsibæ föstu-
dagskvöld.
ÞESSI sýning er nokkurs konar
endir á áfanga sem hópurinn var í
hjá Hlyni Hallssyni myndlistar-
manni þar sem viðfangsefnið var
skúlptúr og hversu langt væri hægt
að teygja það hugtak. Fljótlega fór
hópurinn á stúfana til að ákveða hvar
lokasýningin ætti að vera en fljót-
lega var ákveðið að hún yrði ekki
innan veggja skólans. Það komu
margar hugmyndir upp og ýmsir
staðir voru nefndir en IKEA varð
fyrir valinu því allir voru mjög
spennir fyrir því að gera verk fyrir
þær aðstæður sem verslunin býður
upp á.
Listin á heima alls staðar
Það eru þau Asami Kaburagi,
Daníel Karl Björnsson, Geirþrúður
Finnbogadóttir Hjörvar, Julia Stein-
mann, Hrund Jóhannesdóttir, Hug-
inn Þór Arason, Rósa Halldórsdótt-
ir, Tinna Guðmundsdóttir, Þórarinn
Hugleikur Dagsson, Þórunn Inga
Gísladóttir og Þuríður Elfa Jóns-
dóttir sem eiga verk á sýningunni.
Þessi óvenjulega staðsetning á
myndlistarsýningu gefur listamönn-
unum tækifæri til að takast á við
tilbúið heimilislegt umhverfi versl-
unarinnar. Einnig fá þau tækifæri til
að setja myndlist sýna í nýtt sam-
hengi ásamt því að mikill fjöldi
manns kemur í verslunina á hverjum
degi til að kaupa og sér þá sýningu í
leiðinni. „Við fengum mjög víðan
ramma til að vinna eftir og nánast
frjálsar hendur til að gera það sem
við viljum, það voru líka allir yfir-
menn jákvæðir og allt starfsfólk
mjög samvinnuþýtt og fannst þetta
spennandi og áhugavert,“ segir
Daníel Karl einn af nemendunum,
um viðbrögðin við þeirri bón að sýna
við þessar aðstæður. Á sýningunni
er ótrúleg breidd af verkum, bæði
hjóðverk og myndbandsverk, gjörn-
ingar og innsetningar, skúlptúrar og
ljósmyndir sem og nytjahlutir og
textaverk. Mörg verkanna á sýning-
unni koma fólki óvænt fyrir sjónir á
meðan önnur falla alveg inn í um-
hverfið og vekja kannski upp spurn-
ingar eða óvæntar hugmyndir hjá
sýningargestum.
Endalausar spurningar
en engin svör
Nemendurnir á sýningunni eru
frá öllum deildum skólans og því eru
verkin mjög ólík. Daníel og Geir-
þrúður vinna með hillur inni í versl-
uninni og einnig verslunina sjálfa.
„Við tókum mynd ofan úr hvelfing-
unni og niður og þá koma ákveðnar
eininga í ljós nokkurs, konar hillur,
þá er eins og IKEA sé ein stór hilla
og svo erum við líka að vinna með
hillur inni í búðinni og að raða inn í
þær eftir okkar fagurfræðilega sjón-
armiði,“ segja þau um verkin sín í
versluninni.
Malli er nýja línan sem Þuríður,
nemi úr keramikdeild Listháskólans,
sýnir í versluninni það eru skálar
sem hún vinnur eftir líkamsformum
konu sem er komin 9 mánuði á leið.
Hún setur þær á borðstofuborð þar
sem að þær eru líkt og hlutir til sölu,
nokkurs konar líkamspartar til
kaups. Huginn Þór býður fólki að
ganga upp stiga á tveimur stöðum í
versluninni en stigarnir ná upp yfir
falska loftið inni í versluninni og þá
kemur í ljós nýr risastór heimur þar
sem fólk getur reynt að nálgast á
þessum annars ópersónulega stað.
Þetta eru nokkur af mörgum verk-
um á sýningunni en sem dæmi má
nefna að skilaboð hafa einnig verið
skrifuð til fólks á gólfið og svo er
óvenjulegt myndefni í nokkrum
sjónvarpstækjum í stofuhúsgagna-
deildinni. Einnig kemur Pokémon-
inn Pikachu fyrir í barnadeildinni
ásamt Kattakonunni úr Leðurblöku-
manninum ásamt fjölmörgu öðru.
Sýningin er opin á verslunartíma
IKEA frá 10 til 18.30 og er síðasti
sýningardagur í dag, fimmtudag.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nokkrir úr hópnum ásamt kennaranum Hlyni Hallssyni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Eitt verkið á sýningunni er Hrund Jóhannesdóttir en hún verður sof-
andi eða að horfa á sjónvarpið meðan á sýningu stendur.
Búðar-
taka
listnema
Síðastliðinn þriðjudag
opnuðu ellefu nemar við
Listaháskóla Íslands
sýningu í verslun IKEA
við Holtagarða. Með
þessari sýningu eru þeir
að gera heiðarlega til-
raun til að koma listinni
út til fólksins.
Nemendur í Listaháskóla Íslands sýna í IKEA