Morgunblaðið - 15.03.2001, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2001 75
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
H.K.DV
Sýnd kl. 8 og 10.25. Vit nr. 209. Sýnd kl. 10. Síðasta sýning. Vit nr. 203.
"Russell Crowe og Meg Ryan í magnaðri spennumynd
íleikstjórn Taylor Hackford sem gerði myndirnar Devil´s
Advocate, An Officerand a Gentleman og Against All Odds"
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr.194.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. Vit nr. 209.
Aðeins sameinaðir
gátu þeir sigrað!
Frá Jerry Bruckheimer framleiðanda
Armageddon og Rock
Sýnd kl. 8 og 10. vit nr.166.
"Russell Crowe og Meg Ryan í magnaðri spennumynd
íleikstjórn Taylor Hackford sem gerði myndirnar Devil´s
Advocate, An Officerand a Gentleman og Against All Odds"
betra en nýtt
Mel Gibson Helen Hunt
What Women Want
Sýnd kl. 10.20.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
ÓFE hausverk.is
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans... MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Sýnd kl. 5.40 og 8. Síðasta sýning
Nýr og glæsilegur salur
H.K.DV
Skríðandi tígur, dreki í leynum
Óskarsverðlauna-
tilnefningar 10
Besta mynd ársins á yfir 45 topp tíu listum!
Yfir 40 alþjóðleg verðlaun!
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd 5.45 og 10.20.
Frábær og einstök mynd sem allir verða að sjá. Aðrir leikarar eru Anna Paquin
(The Piano, X-Men), Philip Seymour Hoffman (Boogie Nights, Happiness), Jason
Lee (Dogma, Chasing Amy) og Fairuza Balk (The Craft, The Waterboy).
Frá handritshöfundi og leikstjóra Jerry Maguire
UPPLIFÐU ÞAÐ. NJÓTTU ÞESS. EN EKKI FALLA FYRIR ÞVÍ
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Hausverk.is
Óskarsverðlaunatilnefningar® m.a. fyrir besta auka-
hlutverk kvenna Kate Hudson og Frances McDormand.4
Golden Globe verðlaun: Besta myndin í gamanmyndaflokki og
Kate Hudson fyrir besta aukahlutverk kvenna.2
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
SV MBL. Hugleikur.
ÓJ Bylgjan
Geoffrey Rush
Kate Winslet
Michael Caine
Joaquin
Phoenix
Frá leikstjóra myndarinnar Óbærilegur léttleiki
tilverunnar
ÓJ Bylgjan
1/2 SV Mbl.
Besta mynd ársins: National Board of Reveiw
Besta mynd ársins á yfir 40 topp 10 listum!
Missið ekki af þessari!
Fjaðurpennar
Frá leikstjóra "Good Will Hunting".
Einstök mynd og einvalaleikur hjá
Sean Connery.
Kvikmyndir.com
Forsýning kl. 8.
Takmarkað miðaframboð
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Stærsta mynd ársins er komin
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
HL MblH.K. DV
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Mel Gibson Helen Hunt
Frábær gamanmynd.
Loksins... maður sem hlustar.
Vinsælasta mynd Mel Gibson til þessa.
Yfir 20.000 áhorfendur.
Missið ekki af þessari
Hausverkur.is
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
What
Women
Want
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
HINN hugumprúði áhugamaður um sveita-
tónlist, Hallbjörn Hjartarson, hefur rekið Út-
varp Kántrýbæ í níu ár norður á Skagaströnd,
við góðan orðstír. Nú hefur Íslenska sjón-
varpsfélagið, sem á og rekur Japis og Skjá
einn, ákveðið að færa út í kvíarnar og hefja
afskipti af útvarpsrekstri. Fyrsta verkefnið er
að færa íbúum við Faxaflóa áðurnefnda
sveitatónlistarstöð. Útsendingar verða allan
sólarhringinn á tíðninni 88,5 FM og var stöð-
inni hleypt af stokkunum í gær kl. 17.00.
„Þetta er bara hið besta mál,“ segir Hall-
björn er Fólk í fréttum innti hann eftir áliti
sínu á þessari tilhögun. „Ef Reykvíkingar
vilja þetta þá er það bara allt í lagi.“
Hann segir að fulltrúar Skjás eins hafi haft
samband við sig fyrir jólin og lýst yfir áhuga á
að opna kántrýstöð í Reykjavík. „Þeir spurðu
mig hvort ég væri til viðræðna um það og ég
sagði að allar leiðir væru opnar í því.“
Kántrýið komið til að vera
Hallbjörn hefur í gegnum tíðina verið
óþreytandi baráttumaður fyrir sveitatónlist-
inni, gefið út fjölmargar hljómplötur með
slíkri tónlist enn fremur sem hann á og rekur
veitingastaðinn Kántrýbæ á Skagaströnd.
Þessi áfangi hlýtur því að vera mikilsverð
varða í þessari sveitasendiför Hallbjörns.
„Að sjálfsögðu viðurkenni ég ekki annað,“
svarar Hallbjörn kerskinn á svip. „Ég er bú-
inn að berjast fyrir þessu alla mína tíð mætti
segja. Ég sagði fyrir mörgum árum að
kántrýið væri komið til þess að vera. Og ég
stend við það. Það er komið til að vera og það
á eftir að verða allsráðandi á Íslandi!“ Hann
segir sveitatónlistina vera stóran þátt í menn-
ingu annarra landa. „Íslendingar eru bara
svolítið aftarlega á merinni í þessu eins og svo
mörgu öðru.“
Eini starfsmaður stöðvarinnar er Hallbjörn
sjálfur. Hann segir að eftir þessar breytingar
hyggist hann bæta við tveimur smáþáttum,
Stund með Dwight Yoakam og Stund með
Dolly Parton.
Allur rekstur stöðvarinnar á Norðurlandi
verður eftir sem áður alfarið í höndum
kántrýkonungsins sjálfs en Íslenska sjón-
varpsfélagið mun sjá um reksturinn hér fyrir
sunnan.
Útvarp Kántrýbær hefur útsendingar á Faxaflóasvæðinu
Sveitatónlist fyrir
Sunnlendinga
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins, er á leiðinni suður.
AÐ ÞESSU sinni sýnir
Filmundur Bread and Roses,
sem er nýjasta mynd breska
leikstjórans Kens Loachs en
hann hefur gert myndir á
borð við My name is Joe og
Carla’s Song. Eins og fyrri
myndir hans hefur Bread and Roses vakið
mikla athygli og keppti meðal annars um
Gullpálmann eftirsótta í Cannes á síðasta
ári.
Bread and Roses gerist í Los Angeles og
segir frá mexíkönsku systrununum Maya
og Rosa sem starfa við ræstingar í skrif-
stofubyggingu í Los Angeles. Þær hafa
fengið góðan skammt af misrétti í illa laun-
uðum störfum í hinu nýja heimalandi sínu
og eru við það að gefast upp. Þá kynnast
þær lögfræðingnum og umbótasinnanum
Sam sem hvetur þær og samstarfsfólk
þeirra til dáða og úr verða viðamiklar mót-
mælaaðgerðir gegn yfirmönnum þeirra
systra. Aðgerðirnar leiða til þess að syst-
urnar og aðrir starfsmenn eiga á hættu að
missa vinnu sína og viðurværi og eiga jafn-
framt brottvísun úr landinu yfir höfði sér.
Myndin vísar þannig til sambærilegra
verkfalla sem áttu sér stað meðal ræstinga-
fólks í Los Angeles fyrir nokkru og vöktu
gífurlega athygli. Ken Loach velur sér
gjarnan pólitísk umfjöllunarefni í líkingu
við þetta og tekur afdráttarlausa afstöðu
með þeim sem minna mega sín í myndum
sínum, og er Bread and Roses engin und-
antekning þar á, en hér er fjallað um rétt-
indi og stöðu suður-amerískra innflytjenda
í Bandaríkjunum sem oft er bágborin.
Loach beinir gjarnan athyglinni að slíkum
jaðarhópum sem ekki sjást mikið til á hvíta
tjaldinu að öllu jöfnu, að minnsta kosti ekki
í forgrunni.
Bread and Roses er fyrsta myndin sem
Ken Loach gerir í Hollywood en ekki er
hægt að segja með góðu móti að hún beri
þess merki. Hann kýs að sniðganga allar
hefðbundnar Hollywood-leiðir, leggur litla
áherslu á ytri umgjörð og var t.a.m. öllum
kostnaði haldið í lágmarki.
Ken Loach notar gjarnan lítið þekkta
leikara, en tekur sér góðan tíma í það velja
þá með það fyrir augum að þeir komi um-
fjöllunarefninu sem best til skila á sem
beinskeyttastan hátt. Hann var búinn að
leita lengi að leikkonu í aðalhlutverkið áður
en hann fann Pilar Padella sem er þekkt
sviðsleikkona í Mexíkó en talar litla sem
enga ensku og var ókunnug í Bandaríkj-
unum.
Og það var einmitt ákvörðun Loach og
handritahöfundarins Pauls Laverty að nota
spænsku og þar með spænskumælandi leik-
ara að miklu leyti í myndinni sem varð til
þess að bandarískir fjárfestar, sem sýndu
myndinni mikinn áhuga í upphafi, hættu við
að leggja í hana fé. Hún þótti engan veginn
nægilega markaðsvæn, þrátt fyrir þann
aragrúa innflytjenda af suður-amerískum
ættum sem þar býr. En Bread and Roses
hefur fengið afburðagóðar viðtökur og þyk-
ir mörgum þessi einstaka sýn á margbreyti-
lega bandaríks þjóðfélags afar kærkomin
og fersk.
Með aðalhlutverk í Bread and Roses fara
Pilar Padilla, Adrien Brody og Elpidia Cad-
illo. Myndin verður líkt og aðrar myndir
Filmundar sýnd í Háskólabíói í kvöld kl.
22:30 og endursýnd næsta mánudag á sama
tíma.
Brauð og rósir
Úr Bread
and Roses.
Filmundur sýnir nýjustu mynd Ken Loach