Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ATHUGUN stendur nú á því innan heilbrigðisráðuneytisins hvort breyta þurfi reglum um lyf sem ferðamenn taka með sér á milli landa áður en Ísland fær aðild að Schengen-samstarfinu 25. mars. Skv. 75. grein Schengen-samn- ingsins mega þeir sem ferðast til eða innan aðildarríkja Schengen hafa með sér þau ávanabindandi lyf og geðvirku efni sem þeim eru nauð- synleg vegna læknismeðferðar, enda geti þeir við eftirlit framvísað vottorði sem gefið er út eða staðfest af viðkomandi yfirvaldi í búsetu- landi. Mikil umræða hefur orðið um framkvæmd þessara reglna í Dan- mörku eftir að fjölmiðlar greindu frá því að fjölmörg algeng lyf gætu fallið undir þessar reglur. Taka ný lög gildi í Danmnörku 25. mars þar sem m.a. er gert ráð fyrir að ferða- menn fái ókeypis lyfjavottorð. Þurfa sjaldan að framvísa vottorðum Ákvarðanir hafa ekki verið teknar hér á landi um hvernig þessar regl- ur verða framkvæmdar en athugun ráðuneytisins í öðrum löndum hefur leitt í ljós að litlar sem engar breyt- ingar verði gerðar á gildandi reglum í Noregi og Svíþjóð vegna þátttöku þessara þjóða í Schengen-samstarf- inu. Hefur einnig komið í ljós að far- þegar eru mjög sjaldan krafðir um lyfjavottorð á ferðalögum í aðildar- löndum Schengen. Hafa Frakkar gefið út að meðaltali 100 slík lyfja- vottorð á ári og Hollendingar 150. Heilbrigðisráðherra Danmerkur hefur óskað eftir því við Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og heilbrigðisráðherra á öðrum Norð- urlöndum að þetta mál verði tekið til sérstakrar umfjöllunar á sameig- inlegum fundi í vor með það fyrir augum að Norðurlöndin komi á samræmdum reglum um lyfjavott- orðin. Lyfjavottorð vegna Schengen-samningsins Ráðuneyti kannar fram- kvæmd í öðrum löndum SAMTÖK verslunarinnar hvetja til aukins samtarfs kaupmanna og safna víða um land, þar sem tæki- færi er til mun meiri viðskipta en verið hefur. Verslun er hluti af af- þreyingu ferðamanna og því eiga söfn að vinna að uppbyggingu verslana um leið og þau eru hönn- uð eða sýningar skipulagðar, að mati Hauks Þórs Haukssonar, for- manns Samtaka verslunarinnar, sem hélt erindi á málþingi um sýn- ingahald, sögustaði og viðskipti við ferðamenn; að gera söguna sýni- legri, sem haldið var í Þjóðmenn- ingarhúsinu í gær. Endurgreiðslur virðisauka- skatts um 1.200 millj. í fyrra Miðað við þann fjölda erlendra ferðamanna sem streymir til lands- ins ár hvert eru möguleikar á sviði verslunar feykilegir, segir Haukur og bendir á að velta ferðamanna- verslunar á Íslandi miðað við end- urgreiðslur virðisaukaskatts hefur aukist, árið 1998 var hún 703 millj- ónir en í fyrra um 1.200 milljónir. „Samt sem áður erum við ekki langt komin sé miðað við ýmsar ná- grannaþjóðir. Ein ástæða þess er skortur á vönduðum minjagripum í verslunum, gera þarf meira af því að fá lista- og handverksfólk til samstarfs við ferðaþjónustuna.“ Um 730 verslanir bjóða endurgreiðslu Um 25% af tekjum ESB- ríkjanna kemur af verslun við er- lenda ferðamenn og því fóru Sam- tök verslunarinar m.a að íhuga stefnumótun á þessu sviði árið 1996. „Síðan hefur margt áunnist. Þá voru einungis tvær verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, báðar í eigu ríkisins, auk þess sem endur- greiðsla á virðisaukaskatti var í molum. Um 200 verslanir buðu þá endurgreiðslu á virðisaukaskatti en nú eru þær um 730 auk þess sem fjöldi erlendra ferðamanna sem nýtti sér virðiskaukaskattskerfið hefur aukist úr 20.000 í um 90.000.“ Bresk könnun um frjálsar tekjur safna, þ.e. tekjur án styrkja, leiddi í ljós, að sögn Hauks, að verslun gefur langmest af sér, á eftir kem- ur veitingasala og loks aðgangs- eyrir. „Hlutverk safnaverslunar ætti þannig að vera tekjulind fyrir safn- ið, hluti af upplifun safngesta, minning um heimsóknina og um leið uppfylla þörf fyrir fræðsluefni. Samkvæmt breskum skýrslum er einnig ágæt reynsla af því að kaup- menn komi með beinum hætti að verslunum í söfnum en kosturinn við að fá atvinnumenn til samstarfs er m.a. að það sparar vinnu, tíma og fjármuni.“ Hvatt til aukins samstarfs kaupmanna og safna Tækifæri til mun meiri viðskipta NEFND um veiðar villtra dýra, sem er umhverfisráðherra til ráð- gjafar, hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins komist að þeirri niðurstöðu að fyrirhugaðar til- raunaveiðar á álftum á vegum emb- ættis yfirdýralæknis hafi engan til- gang til varnar því að gin- og klaufaveiki berist til landsins. Því mun nefndin ekki mæla með þess- um veiðum, en yfirdýralæknir sótti um undanþágu til að veiða 10 álftir svo hægt væri að taka sýni úr þeim. Formaður nefndarinnar vildi hvorki játa né neita þessari nið- urstöðu í samtali við Morgunblaðið og sagði að umhverfisráðuneytið og yfirdýralæknir ættu eftir að fá formlegt svar. Nefndin aflaði gagna frá yfir- dýralækni um málið og leitaði víða ráðgjafar. Meðal annars var leitað til erlendra fuglafræðinga og töldu þeir tilraunaveiðarnar ekki þjóna tilgangi sínum. Ekki væri sannað að álftir gætu borið smitefni gin- og klaufaveikinnar eða annarra dýra- sjúkdóma með sér. Þá taldi nefndin að fjöldi álftanna væri ekki nægur til að fá örugga og vísindalega nið- urstöðu, veiða hefði þurft nokkur hundruð fugla til þess. Nær að gera rann- sóknina í Bretlandi Einnig var sett spurningamerki við að velja álftir til tilraunaveið- anna þar sem aðrar tegundir far- fugla kæmu frá Bretlandi og væru nærri bújörðum. Var það t.d. mat erlendra fuglafræðinga að nær væri að gera rannsóknina á vett- vangi í Bretlandi og taka sýni úr álftunum þar. Halldór Runólfsson yfirdýra- læknir vildi ekki tjá sig um málið í gær þar sem hann sagðist ekki hafa fengið svör nefndarinnar í hendur. Nefnd um veiðar villtra dýra Mælir ekki með veiðum á álftum í tilraunaskyni INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, tók fyrstu skóflu- stunguna að nýrri íþróttamiðstöð við Víkurveg í Grafarvogi í gær og naut borgarstjóri aðstoðar leik- skólabarna úr hverfinu. Íþrótta- miðstöðin verður byggð í tveimur áföngum. Sá fyrri er yfirbyggður 10.800m² gervigrasknattspyrnu- völlur í fullri stærð með áhorf- endastæðum fyrir 2000 áhorf- endur. Gert er ráð fyrir að knatt- spyrnulið af öllu Reykjavíkursvæð- inu muni nýta húsið til æfinga og keppnishalds enda er stefnt að því að húsið verði aðalkeppnishús landsins fyrir innanhússknatt- spyrnu. Auk þessa er fyrirhugað að nýta knattspyrnusalinn fyrir fleiri íþróttir s.s. frjálsíþróttir, golf og fimleika. Húsið hentar einnig til tónleika- og sýningahalds. Áætluð verklok vallarins eru 1. mars 2002. Seinni áfangi byggingarinnar, fjögurra hæða 12.000m² hliðar- bygging verður tilbúin ári síðar. Þar er gert ráð fyrir líkamsrækt- arstöð og skautasvelli af löglegri stærð fyrir ísknattleikskappleiki, listhlaup og almenna skautaiðkun. Aðstaða til sýningarhalds verður í anddyri hliðarbyggingarinnar. Til marks um stærð íþróttamiðstöðv- arinnar má nefna að hún verður sjö sinnum stærri en Laugardals- höllin. Meðal gesta við skóflustunguat- höfnina í gær voru forystumenn íþrótta- og ungmennahreyfing- arinnar auk fulltrúa íbúasamtaka og félagasamtaka í Grafarvogi. Morgunblaðið/Kristinn Leikskólabörn úr Grafarvogi aðstoðuðu borgarstjóra við fyrstu skóflustunguna að nýrri íþróttamiðstöð. Borgarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna í Grafarvogi Stærsta íþrótta- miðstöð landsins KENNARA við grunnskóla á Norðurlandi hefur verið vikið frá störfum á meðan lögregla rannsakar kæru um að hann hafi átt samræði við stúlku und- ir lögaldri. Stúlkan er nemandi í skólanum. Maðurinn hefur verið yfir- heyrður af lögreglu sem mun að rannsókn lokinni senda mál- ið áfram til ríkissaksóknara. Sakaður um samræði við unga stúlku HÖFNINNI í Oyndarfirði í Færeyj- um hefur verið lokað vegna gruns um að svokölluð ISA-veira hafi kom- ið upp í laxeldiskvíum þar. Björn Harlou, landlæknir í Færeyjum, seg- ir að ekki sé staðfest að veiran hafi komið upp í firðinum, að því er fram kemur í vefútgáfu Sosialurin. ISA-veiran barst upphaflega frá Noregi til Skotlands og áfram til Færeyja á seinasta ári, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Norður-Atlantshafslaxasjóðnum. Þar segir að ekki sé með öllu ljóst hvernig ISA-veiran hafi borist frá Noregi en líklegasta skýringin sé sjókjölfesta skipa. Flest stærri skip dæli sjó í botngeyma kjölfestu og er algengt að sjávarlífverur og smitber- ar berist á þann hátt milli fjarlægra hafsvæða. Norður-Atlantshafslaxasjóðurinn telur mikla hættu á að Ísland verði næsti viðkomustaður veirunnar. Tjónið gæti numið einum milljarði ISA er veirusjúkdómur sem leggst á blóð og nýru laxfiska og get- ur verið banvænn. Vísindamenn hafa sannað að veiran berst úr laxeldinu út í lífríkið, í villta laxastofna og aðr- ar fiskitegundir, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningunni. Sjókvíarnar þar sem veiran hefur nú komið í ljós eru hluti af Vestlaks- fyrirtækinu sem er m.a. í eigu norska fyrirtækisins Panfish. Reikn- að er með að tjónið nemi einum millj- arði króna. Óttast að veiru- sýking í laxi berist hingað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.