Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
REYKVÍKINGAR búsettir
eða staðsettir erlendis
gátu ekki greitt atkvæði
utan kjörfundar um stað-
setningu flugvallarins í
Vatnsmýri, sem lauk form-
lega í gær. Gunnar Eydal,
formaður kjörstjórnar,
sagði við Morgunblaðið að
óformleg beiðni hefði ver-
ið lögð fram hjá dóms-
málaráðuneytinu, um að
Reykvíkingum yrði gefinn
kostur á að kjósa í sendi-
ráðum erlendis eða hjá
ræðismönnum, en beiðn-
inni verið hafnað að at-
huguðu máli.
„Utankjörfundar-
atkvæðagreiðsla heyrir
undir dómsmálaráðuneytið
þannig að eftir þessi svör
gátum við ekkert gert
frekar. Ætli þeim hafi
ekki fundist þetta of viða-
mikið,“ sagði Gunnar um
svör ráðuneytisins.
Skoðanakönnun
en ekki kosning
Að sögn Ingva Hrafns
Óskarssonar, aðstoð-
armanns dómsmálaráð-
herra, lítur ráðuneytið svo
á að kosningin fari ekki
fram samkvæmt sveit-
arstjórnarlögum um al-
mennar atkvæðagreiðslur
og hafi t.d. ekki verið aug-
lýst af hálfu félags-
málaráðuneytisins, sem
fer með málefni sveit-
arfélaganna. Frekar sé um
óformlega skoðanakönnun
að ræða. Telur Ingvi
Hrafn að hafi borgaryf-
irvöld viljað gefa kost á
kosningu í íslenskum
sendiráðum hafi þau átt að
leita beint til utanríkis-
ráðuneytisins, þar sem at-
kvæðagreiðslan sé ekki
innan ramma laga um
kosningar.
Ekki var hægt
að kjósa erlendis
Flugvallarkosningin
FORNLEIFAGRÖFTURINN á
horni Aðalstrætis og Túngötu geng-
ur samkvæmt áætlun að sögn Mjall-
ar Snæsdóttur fornleifafræðings, en
honum á að vera lokið fyrir 1. júní. Í
fyrradag var verið að undirbúa upp-
gröft á lóðinni Aðalstræti 16, en búið
er að fjarlægja húsið sem þar stóð í
rúm 200 ár. Húsið verður endur-
byggt á lóðinni þegar fornleifarann-
sóknunum lýkur.
Að sögn Mjallar hafa þegar fund-
ist merkar minjar á þeim stöðum
sem rannsakaðir hafa verið, t.d. skál-
ar frá víkingaöld. Hún sagði að þess-
ir skálar, sem líklega væru þrír eða
fjórir, hefðu verið mannabústaðir og
því ljóst að á svæðinu hefði búið þó-
nokkur fjöldi á þessum tíma. Einnig
hefði fundist langeldur í miðju gólf-
inu á skálanum sem nýbúið væri að
grafa upp á lóðinni Aðalstræti 14.
Að sögn Mjallar hefur lóðin Að-
alstræti 16 mjög lítið raskast og lík-
legt sé að þar finnist framhald af
skálanum á Aðalstræti 14.
Fornleifagröfturinn við Aðalstræti gengur samkvæmt áætlun
Fundist hafa manna-
bústaðir frá víkingaöld
Morgunblaðið/Kristinn
Verið er að undirbúa fornleifauppgröft á lóðinni Aðalstræti 16, en húsið sem þar
stóð var fjarlægt fyrir skömmu.
ÍBÚUM Reykjavíkur gefst kostur
á að velja milli tveggja kosta í at-
kvæðagreiðslu sem fram fer í dag
um framtíðarnýtingu Vatnsmýrar-
innar. Spurt verður: „Vilt þú að
flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir
árið 2016 eða vilt þú að flugvöll-
urinn fari úr Vatnsmýri eftir árið
2016?“ Svarmöguleikar eru þrír. Í
fyrsta lagi að flugvöllur verði í
Vatnsmýri eftir árið 2016, í öðru
lagi að flugvöllurinn fari úr Vatns-
mýri eftir árið 2016 og í þriðja lagi
er hægt að skila auðu. Utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu lauk síð-
degis í gær í ráðhúsinu og kusu þar
um 2.700 manns.
Á kjörskrá eru 81.282 íbúar
Reykjavíkur en meginskilyrði
kosningaréttar eru að vera íslensk-
ur ríkisborgari, hafa átt lögheimili
í Reykjavík 24. febrúar 2001 og
hafa náð 18 ára aldri á kjördag.
Enn fremur eiga kosningarétt
danskir, finnskir, norskir og
sænskir ríkisborgarar sem átt hafa
lögheimili hér á landi í þrjú ár sam-
fellt fyrir kjördag, enda fullnægi
þeir að öðru leyti ofangreindum
skilyrðum.
Niðurstöður ættu að liggja
fyrir um kl. 22 í kvöld
Kjördeildir verða 50 talsins á sex
stöðum í borginni; í Kringlunni,
Engjaskóla, Seljaskóla, Laugar-
nesskóla, Hagaskóla og í ráðhúsinu
sem verður aðalkosningamiðstöðin.
Kjördeildir verða opnar frá kl.
10.00 til kl. 20.00 í kvöld og gerir
Gunnar Eydal, formaður kjör-
stjórnar, ráð fyrir að niðurstöður
úr atkvæðagreiðslunni liggi fyrir í
meginatriðum um kl. 21.00 í kvöld,
sem er mun fyrr en ef kosið yrði
með hefðbundnum hætti. Í fyrsta
sinn verður nú kosið með rafræn-
um hætti og er kjörskráin miðlæg
sem þýðir að kjósandi getur kosið á
hvaða kjörstað sem er og er ekki
bundinn við fyrirfram ákveðinn
kjörstað og kjördeild, líkt og í al-
mennum kosningum.
Kosið verður á tölvu en kosn-
ingin krefst ekki sérstakrar tölvu-
kunnáttu hjá kjósendum, að sögn
Gunnars, en leiðbeiningar fylgja
hér á skýringarmynd. Sérstakur
búnaður verður fyrir fatlaða og
verður sérbúin kosningatölva fyrir
blinda og sjónskerta í ráðhúsinu.
Þetta stór atkvæðagreiðsla hefur
ekki áður farið fram með rafræn-
um hætti hér á landi, ef kosningar
á síðasta ASÍ-þingi eru undan-
skildar. Í grein í Morgunblaðinu í
gær var bent á öryggisþátt raf-
rænna kosninga og þá staðreynd
að a.m.k. einn tæknimaður hefði
aðgang að öllum þáttum kosninga-
kerfisins og gæti þess vegna breytt
niðurstöðum kosninganna.
Tölvumenn heita trúnaði og
heilindum með yfirlýsingu
Þegar þetta var borið undir
Gunnar Eydal sagði hann yfirkjör-
stjórnina fyllilega hafa gert sér
grein fyrir þessum möguleika.
Einn til tveir menn hefðu aðgang
að einni aðaltölvu sem væri stað-
sett í ráðhúsinu í læstu rými. Þess-
ir aðilar skrifuðu undir trúnaðar-
yfirlýsingu til yfirkjörstjórnar.
Hann sagði tölvusérfræðinga á
vegum borgarinnar einnig fylgjast
með störfum umsjónarmanna með
kosningakerfinu, sem eru frá Ein-
ari J. Skúlasyni hf. en það fyr-
irtæki hannaði kerfið, er nefnist
Kjarval.
„Þessi mannlegi brestur getur
alltaf verið fyrir hendi hjá yfirkjör-
stjórn eða tölvumönnum.
Við höfum hugsað út í þetta og
brugðist við með þessum hætti,
þannig að menn heiti trúnaði og
heilindum í sínum störfum,“ sagði
Gunnar.
Fimmtíu kjördeildir á sex stöðum í borginni opnar frá kl. 10 til 20 vegna flugvallarkosningar
Borgarbúar kjósa
milli tveggja kosta
!
" !
#
$ %% &
'
#
&
#
$
(
$
( $
$ # )*
$
+ $
, $
$
% &
$
$
$
# $ $
$ (
$
+
- $
#
!
%%
$ (
%%
%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Utankjörfundaratkvæðagreiðslu lauk síðdegis í gær í Ráðhúsinu.
Ein af kjördeildunum í atkvæðagreiðslunni í dag er í Seljaskóla en þar
voru þeir Guðni Sigfússon og Sigurður Pálsson að setja upp kjörklefa í
gær og bæta við símalínum og rafmagnstenglum fyrir tölvur.
Alls kusu um
2.700 borgarbúar
utan kjörfundar