Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var líf og fjör á þingpöllum í
vikunni sem leið og stóð fundur oftar
en einu sinni fram á kvöld. Fjöldi
fyrirspurna, tillagna og framvarpa
var lagður fram og nokkur frumvörp
send ríkisstjórninni sem lög frá Al-
þingi. Bar þar hæst breytingar heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra á
lögum um almannatryggingar til að
bregðast við dómi Hæstaréttar hvað
varðar ellilífeyrisþega.
Fyrir dyrum stendur nefndavika í
næstu viku og verða þá engir þing-
fundir, heldur einbeita nefndir
þingsins sér að því að afgreiða mál
sem komið hafa á borð þeirra síð-
ustu vikur og mánuði.
Fjörið hófst strax á mánudag þeg-
ar tveir oddvitar Samfylkingarinnar
hugðust taka landsfeðurna á teppið
fyrir meintan slóðaskap í efnahags-
málunum. Fyrst gerði Össur Skarp-
héðinsson, formaður flokksins, Geir
H. Haarde fjármálaráðherra fyr-
irspurn vegna viðskiptahallans og
fékk út úr þeim síðarnefnda að
stærð viðskiptahallans ylli því að
vextir eru ekki lækkaðir. Síðar um
daginn kom Jóhanna Sigurðardóttir
svo í umræðu utan dagskrár um
skuldastöðu heimilanna og sagði
ástandið alvarlegt og sakaði for-
sætisráðherra um að vera í afneitun.
Úr þessu varð hið líflegasta karp
sem endaði á heilmikilli lífsreynslu-
sögu forsætisráðherrans frá því
hann var ungur maður í húsnæðis-
hugleiðingum og mátti dúsa ásamt
fleiri slíkum í rigningunni dag eftir
dag fyrir framan Landsbankann í
Austurstræti í biðröð eftir því að fá
lán. Og þegar það loksins kom, hálf-
um mánuði síðar, upplýsti forsætis-
ráðherra, var það ekki nema þriðj-
ungur þess sem beðið var um.
Ráðherrann hefur áður minnst æsku
sinnar í ræðu og riti, m.a. í ang-
urværum dægurlagatextum, og er
ekki laust við að lýsingar hans á fólki
í fjármagnsleit í gamla daga hafi
fengið áheyrendur til þess að hugsa
hlýlega til bankakerfisins eins og
það er í dag. Davíð Oddsson, sem var
kominn í sóknarhug, lét síðan skotin
dynja á blessaðri Samfylkingunni,
sagði hana vera afturhaldsflokk sem
eflaust myndi taka sig til og breyta
öllu aftur til fyrri vegar. „Samfylk-
ingin hlýtur auðvitað að koma öllu í
það horf sem var í gamla daga,“
sagði hann og gaf síðan þingmönn-
um flokksins þá einkunn að þeir
hefðu afhjúpað yfirgripsmikið þekk-
ingarleysi á því hvernig þættir efna-
hagsmála tengjast saman. Til að
bæta svo gráu ofan á svart tiltók
hann sérstaklega að þar væri reynd-
ar Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna, undanskil-
inn.
Spurningin er hvort Samfylking-
unni þótti verra.
Daginn eftir að Davíð Oddsson
lýsti því yfir að engar líkur væru á
fjármálakreppu bar til tíðinda að
tvær umræður fóru fram utan dag-
skrár. Hin fyrra var afar einhliða og
snerist um framtíð Reykjavík-
urflugvallar og vildu landsbyggð-
arþingmenn allir hafa hann áfram í
Vatnsmýrinni. Hafði Árni Johnsen,
Sjálfstæðisflokki, þar framsögu og
sagðist sjálfur ekki á tuttugu ára
þingferli hafa tekið þátt í jafn ein-
róma utandagskrárumræðu um
nokkurt mál.
Hin umræðan var af allt öðrum
toga og sneri að þolendum kyn-
ferðisofbeldis og skýrslutöku á börn-
um. Er óhætt að segja að sú umræða
hafi líka verið einhliða – enda vilja
þingmenn og ráðherrar eins og aðrir
vernda börnin fyrir slíku ofbeldi og
bjóða upp á réttaröryggi þeim til
handa.
Síðar um daginn dró til tíðinda í
umræðum um frumvarp Valgerðar
Sverrisdóttur viðskiptaráðherra um
sölu á hlut ríkisins í Landsbanka og
Búnaðarbanka. Spjót stóðu þá á ráð-
herranum, m.a. frá Sverri Her-
mannssyni, formanni Frjálslynda
flokksins og fyrrverandi banka-
stjóra. Ræðu hans afgreiddi Val-
gerður með þessum orðum: „Um
ræðu Sverris Hermannssonar vil ég
bara segja að ég man eftir mann-
inum með plastpokann í Landsbank-
anum.“ Þóttu mörgum þeim þing-
mönnum sem á eftir komu þetta
miður drengileg ummæli og m.a.
sagði Össur Skarphéðinsson þau for-
dæmislaus.
En nú tekur flokksþing Fram-
sóknarflokksins og atkvæðagreiðsla
um Reykjavíkurflugvöll við og síðan
nefndavika á þingi. Við sjáum því
hverju fram vindur í landsmálunum
eftir hálfan mánuð, að því er snertir
löggjafarsamkunduna.
Gengið vasklega til verks fyrir nefndaviku
EFTIR BJÖRN INGA HRAFNSSON
ÞINGFRÉTTAMANN
bingi@mbl.is
Steingrímur, þú kvartar stundum yfir
því á þingi að í tilfelli tilskipana og
reglugerða frá ESB sé aðeins um af-
greiðslu að ræða, það komi ekki til
neinna áhrifa héðan í þeim efnum?
„Það er alveg ljóst að sá möguleiki
að Alþingi synji staðfestingu á málum
sem ákveðin hafa verið í Brussel er
nánast aðeins fræðilegur. Á þessum
möguleika hangir samt sú röksemda-
færsla að ekki sé búið að framselja
löggjafarvaldið. Við sjáum að í reynd
er þetta synjunarvald ekki til staðar
og það hefur nánast aldrei komið til
umræðu hér að beita því. Það hefur
þó nokkrum sinnum gerst í Noregi og
þá hafa íslensk stjórnvöld jafnan
fengið hland fyrir hjartað og róið í
Norðmönnum að standa nú ekki í
þeim ósköpum.“
Viltu þá sjá breytingar á ferli af-
greiðslu þessara mála, t.d. hjá utan-
ríkismálanefnd?
„Ég hef talað fyrir því, já. Ég tel af-
ar brýnt að sú nefnd sé efld og fái
fastan starfsmann, því varla er vansa-
laust hvernig okkur er ætlað að vinna
að málum sem geta skipt verulegu
máli úti í þjóðfélaginu, t.d. vegna
Schengen-samstarfsins sem nú verð-
ur senn að veruleika. Ég tel jafnvel
koma til greina að Alþingi komi sér
sjálft upp fulltrúa í Brussel þaðan
sem allt kemur og hefði t.d. einn
starfsmann á sendiráðinu eða litla
stjórnarráðinu í Brussel, eins og
ráðuneytin hafa. Það er mikilvægt að
hafa aðkomu að Evrópumálunum, en
auðvitað er staðan erfið þegar ekki
liggur fyrir skýr vilji stjórnvalda í
þessum efnum og sjálfur utanríkis-
ráðherrann er sífellt að tala um hve
EES-samningurinn sé orðinn veikur
og þurfi endurskoðunar við.“
Hvað áttu við?
„Það er brýnt að búa við skýra
stefnu í utanríkismálum, en ekki að
sífellt sé verið að tala í og úr. Það er
erfitt að gæta hagsmuna okkar þegar
ekki liggur skýrt fyrir hvað framtíðin,
nokkur næstu ár hið minnsta, ber í
skauti sér. Ekki þarf annað en að
fylgjast með framgangi Framsóknar-
flokksins og Samfylkingarinnar til að
merkja það. Það er ótrúleg rökleysa
að með því að vilja ekki endalaust
vera að velta þessum málum upp sé
verið að leggjast gegn umræðu um
þessi mál. Það er eins og hvert annað
kjaftæði.“
Eins og þú talar eiga Vinstri græn-
ir og sjálfstæðismenn samleið í þess-
um málum. Er það ekki?
„Jú, að þessu leytinu til. Við höfum
mótað okkur mjög afdráttarlausa
stefnu í þessum efnum og viljum ekki
inn í ESB, þar sem það er ekki hag-
stætt. Mér hefur sýnst Sjálfstæðis-
flokkurinn afdráttarlaus í þessum
efnum líka. Það hefur hins vegar ver-
ið magnað að fylgjast með framgöngu
Halldórs Ásgrímssonar í Evrópumál-
unum. Hann hóf mikla flugferð með
þeim en áttaði sig síðan á því að flokk-
ur hans er þverklofinn í málinu og úr
varð magalending þar sem slegið er
úr og í með allt saman. Lendingin var
því ekki jafnglæst og flugtakið.“
Þú minnist á Schengen-samstarfið
sem tekur gildi nú um mánaðamótin.
Hefur það verið rætt nægilega að
þínu mati á Alþingi eða úti í þjóðfélag-
inu?
„Alls ekki. Öll málsmeðferðin hefur
verið mjög sérstök og ég hef sterk-
lega á tilfinningunni að menn hafi
verið að koma þessu máli í gegn með
því að láta lítið fyrir því fara. Það er
ekki að merkja af kynningu stjórn-
valda að um sé að ræða jafnstórt mál
og raun ber vitni. Fjölmargt hefur
nær ekkert verið kynnt almenningi
þótt svo stutt sé til stefnu, t.d. hvað
varðar persónuskilríki og lyfjaskilríki
en umræða um þessi mál hefur verið
mjög fyrirferðarmikil erlendis að
undanförnu.“
Hefur Schengen mikið borið á
góma í starfi utanríkismálanefndar?
„Allt of lítið, finnst mér. Ég hef far-
ið fram á að við nýttum tímann vel í
þessum mánuði og fram að gildistök-
unni til að kynna okkur stöðu málsins,
en satt best að segja hefur gefist lítill
tími til þess. Utanríkismálanefnd er
hins vegar ekki aðalgerandinn í þessu
máli, en við höfum fengið til umfjöll-
unar ýmis mál sem þarf að staðfesta
og lögleiða hér á landi og þau hafa
verið unnin í miklum flýti, enda liggur
víst mikið á. Aðalatriðið er að pólítísk
samstaða hefur verið um að ganga inn
í þetta samstarf og þess vegna hefur í
raun ekki farið fram nein hlutlaus út-
tekt á kostum þess og göllum. Það er
gríðarlegur kostnaður þessu samfara
og á móti koma litlar tekjur.“
Hvað telur þú að Schengen-sam-
starfið muni hafa í för með sér?
„Að sumu leyti erum við að færa
okkur enn nær Evrópusambandinu,
því ákveðið hefur verið að innlima
þetta samstarf inn í stofnanir sam-
bandsins. Við erum að gerast aðilar
að einni af stofnunum ESB og að því
leytinu að ganga einu skrefi lengra
heldur en gert var á sínum tíma með
EES-samningunum. Þeir byggja þó á
sjálfstæðum stofnunum en þetta er
það sem ég kalla að fara bakdyra-
megin inn í þennan hluta Evrópusam-
bandsins. Það er einmitt athyglisvert
að Írar og Bretar vildu ekki vera með
í þessu samstarfi og að mínu mati um-
hugsunarefni hvort ekki hefði átt að
skoða þann kost vel. Ég tel mjög
óeðlilegt að við gerumst aðilar að
stofnunum ESB með þessum hætti.
Ef við ætlum til frambúðar að standa
utan Evrópusambandsins, sem ég tel
að við eigum að gera, þarf auðvitað
sérstök rök til þess að gangast sífellt
inn á fleiri samninga og samstarf með
þessum hætti.“
Ertu að segja að við séum komin
hálfa leið inn í ESB með þessu móti?
„Ja, það væri þó aldrei að það væri
einmitt það sem vekti fyrir utanrík-
isráðherra. Það getur vel verið að ein-
hverjir hugsi málin einmitt þannig.
Hann hefur lagt gríðarlega áherslu á
þessi mál og varð ævinlega heldur
hvumpinn þegar einhver lýsti efa-
semdum sínum. Hann hugsar þetta
kannski sem hluta af stærra máli og
víðtækari nálgun við ESB.“
Utanríkismálanefnd Alþingis þarf að koma fyrr að stærri málum sem
varða samskipti Íslands við útlönd, sérstaklega Evrópusambandið, og
ef til vill væri réttast að starfsmaður nefndarinnar hefði aðsetur í sendi-
ráði Íslands í Brussel. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og nefndarmaður í utanrík-
ismálanefnd, við Björn Inga Hrafnsson. Steingrímur segir furðulegt
hve lítill viðbúnaður er hér á landi vegna gildistöku Schengen-sam-
starfsins og telur það á ýmsan hátt þýða inngöngu landsins bakdyra-
megin inn í Evrópusambandið.
Steingrímur
J. Sigfússon
Er Ísland á leið bak-
dyramegin inn í ESB?
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra hefur mælt fyrir á Al-
þingi tillögu til þingsályktunar um
langtímaáætlun í öryggismálum
sjófarenda. Samkvæmt tillögunni
verður gert átak í öryggismálum
sjófarenda á árunum 2001 til 2003
en markmið þess verði að treysta
öryggi íslenskra skipa og áhafna
þeirra sem og farþega á íslenskum
skipum og skipum sem sigla í ís-
lenskri efnahagslögsögu.
Stefnt verði að því að skilgreina
hlutverk þeirra sem vinna að ör-
yggismálum sjófarenda og að slys-
um til sjós fækki um að minnsta
kosti þriðjung fram til ársins 2004
og að sama skapi dragi úr tjóni
vegna sjóslysa. Samgönguráðherra
skal fyrir 1. apríl hvers árs, fyrst
árið 2002, leggja fyrir Alþingi
skýrslu um framgang áætlunar í
öryggismálum sjómanna og hvern-
ig henni miðar í átt að settu marki.
Alls er gert ráð fyrir að 45 millj-
ónum kr. verði varið í átakið, 10
milljónum í ár, 15 á næsta ári og
20 milljónum árið 2003.
Ítarlegar tillögur
verkefnisstjórnar
Áætlun sérstakrar verkefnis-
stjórnar á vegum samgönguráðu-
neytisins um þessi mál hefur skil-
að af sér ítarlegum tillögum sem
taka til hvers kyns þátta sem
varða öryggismál sjófarenda. Þar
kemur m.a. fram að megináherslu
í öryggismálum þurfi að leggja á
forvarnir gegn slysum og óhöpp-
um. Auka þurfi vitund allra sjó-
manna um slysahættu og um leiðir
til að minnka hana, áætlanir þurfi
að gera um fræðslu og áróður um
slysahættu til sjós, bæta þurfi
slysa- og óhappaskráningu þannig
að orsakir þeirra komi fram, auka
þurfi upplýsingastreymi til sjó-
manna og allt aðgengi að nauðsyn-
legum upplýsingum sem tengjast
öryggi þeirra á sjó og auknar ör-
yggiskröfur verði gerðar til bún-
aðar, tækja og vinnuaðstöðu í skip-
um.
Þá er einnig nefnt að fullnægj-
andi ástand öryggismála í skipum
verði ekki nema áhafnir séu virkar
í úrbótum. Reglulegt og virkt eft-
irlit útgerða og áhafna þurfi
að vera með öryggisþáttum í
skipum, tryggja þurfi að eftirlit
með skipum, opinbert sem á veg-
um einkaaðila, sé skilvirkt og
nauðsynlegt sé að reglur um
stjórn fiskveiða stuðli einnig að
bættu öryggi og aðbúnaði í fiski-
skipum.
Morgunblaðið/Þorkell
Kristján Pálsson og Svanfríður Jónasdóttir hlýða á umræður.
Langtímaáætl-
un um öryggi
sjófarenda