Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 14
FRÉTTIR
14 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra seg-
ir það í fyllsta máta eðlilegt hvernig staðið var
að útgáfu á upplýsingariti á vegum Flugmála-
stjórnar, þar sem kynntar eru tillögur um
endurbætur flugvallarsvæðisins í Reykjavík.
„Ég tel þetta fullkomlega eðlilegt og í rauninni
nauðsynlegt og skylda flugmálastjórnar að
kynna fyrir íbúunum hvað um er að vera.“
Gagnrýni kom fram á fundi borgarstjórnar í
fyrrakvöld um útgáfu upplýsingaritsins, sem
dreift hefur verið á hvert heimili í Reykjavík.
Hrannar B. Arnarson borgarfulltrúi kallaði
það m.a. áróðursbækling fyrir afstöðu sam-
gönguyfirvalda og sagði háttalag ráðherra og
undirmanna hans algera vanvirðu við þá lýð-
ræðislegu stjórnarhætti sem kosningin væri
fyrirboði um.
Samgönguráðherra segir að flugráð hafi
beint því til sín að standa fyrir góðri kynningu
á fyrirhuguðum framkvæmdum við flugvöll-
inn, vegna kosninganna um framtíð flugvallar
í Vatnsmýrinni og því skipulagi sem gert er
ráð fyrir að vinna eftir innan þess ramma sem
deiliskipulagið á flugvallarsvæðinu gerir ráð
fyrir. Sturla segist hafa beint því til flugmála-
stjóra að standa þannig að kynningu á þessum
framkvæmdaáformum að íbúar væru sem best
upplýstir um allar hliðar, bæði skipulagið,
framkvæmdaáformin og forsendur fyrir upp-
byggingu og endurbyggingu á flugvallarsvæð-
inu.
„Þessi kynning var undirbúin m.a. vegna
þess að þegar ljóst var að staðið var þannig að
kynningu á fyrirhuguðum framkvæmdum á
flugvallarsvæðinu að hvergi var getið um í
ráðhúskynningunni af hálfu borgarinnar
hvernig flugvallarsvæðið ætti að byggjast upp,
þá var talið óhjákvæmilegt að bæklingurinn
sem byggði á kynningarefni Flugmálastjórnar
færi inn á hvert heimili í borginni. Þarna er
eingöngu verið að bregðast við því að ljóst var
að það þyrfti að kynna þetta betur fyrir borg-
arbúum. Þannig að ég vísa algerlega á bug, að
það sé að einhverju leyti óeðlilegt að fólk sé
upplýst.“
Ráðherra segir það vera skyldu Flugmála-
stjórnar að koma á framfæri upplýsingum og
raunar sé sérstaklega fjallað um það í reglu-
gerð að Flugmálastjórn hafi skyldum að
gegna í þeim efnum. „Ef upplýsingar um fyr-
irhugaðar framkvæmdir flokkast undir áróð-
ur, þá átta ég mig ekki alveg á því, þannig að
ég vísa því algerlega til föðurhúsanna. Ég vek
athygli á því að á vegum borgarstjórnar var
sendur út á hvert einasta heimili bæklingur
upp á 20 síður þar sem verulegur hluti af
blaðinu var umfjöllun beint og óbeint um
Reykjavíkurflugvöll, þar sem dregin var upp
mjög ankannaleg mynd af fyrirhuguðum end-
urbótum á Reykjavíkurflugvelli. Þannig að allt
tal borgarfulltrúa sem standa að slíkri útgáfu í
þá veru sem þeir gera gagnvart kynningu
Flugmálastjórnar er vindhögg sem ég vona að
hafi ekki mikil áhrif.“
Samgönguráðherra um gagnrýni á útgáfu upplýsingarits
Skylda Flugmála-
stjórnar að upp-
lýsa borgarbúa
ÞORGEIR Pálsson, flugmálastjóri,
segir það ekkert nýtt að sveiflur séu
í þróun farþegaflutninga, það sé
mjög algengt og ekki síst þegar þeg-
ar litið sé til sveiflna sem kunna að
verða á milli einstakra mánaða.
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórn-
ar Reykjavíkur, sagði í Morgun-
blaðinu í gær að forsendur áætlana
samgönguráðherra og flugmálayfir-
valda væru brostnar varðandi mikla
uppbyggingu við Reykjavíkurflug-
völl, þar sem nýjar bráðabirgðatölur
sýndu verulegan samdrátt farþega-
fjölda í innanlandsflugi fyrstu tvo
mánuði ársins, miðað við sama tíma í
fyrra.
Að sögn Þorgeirs benda bráða-
birgðatölur til fækkunar á fyrstu
mánuðum ársins og jafnframt hafi
fjöldi farþega í innanlandsflugi
dregist saman um 4,2% á milli ár-
anna 1999 og 2000. Það hafi ekki
komið á óvart því 1999 hafi verið
toppár vegna gríðarlegrar sam-
keppni og lágra fargjalda, en þá fóru
465.000 farþegar um Reykjavíkur-
flugvöll. Hins vegar sé ljóst að stig-
vaxandi aukning hafi orðið í fjölda
farþega undanfarna þrjá áratugi.
„Ef menn skoða söguna í þessu
sambandi og fara yfir síðastliðin 30
ár, frá 1971 til 2001, sést að þre-
földun hefur orðið á farþegafjölda á
þeim tíma og meðaltalsaukningin á
milli ára hefur verið 3,7%. Fjöldi
farþega fór úr 150.000 árið 1971 upp
í 450.000 árið 2000.“
Þorgeir segir að sveiflur hafi orð-
ið á þessu tímabili, m.a. hafi komið
fjögurra ára tímabil á níunda ára-
tugnum þar sem samdráttur hafi
orðið og í kjölfarið hafi tekið fjögur
ár að jafna út þá lægð. Þá bendir
Þorgeir á að fargjöld hafi verið að
hækka verulega mikið undanfarið,
sem hafi talsverð áhrif á eftir-
spurnina núna, en flugmálayfirvöld
geri áætlanir sínar til lengri tíma lit-
ið.
Fáránlegur málflutningur
Jón Karl Helgason, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
segir það í sjálfu sér fáránlegan
málflutning að gefa í skyn að bráða-
birgðatölur yfir einn eða tvo mánuði
gefi einhverja vísbendingu um það
hvort hlutir séu brostnir eða ekki.
„Það hafa alltaf verið sveiflur í
farþegatölum innanlands frá 1971,
þó meðaltalsvöxturinn hafi verið
3,7%. Okkar tölur í janúar, febrúar
og mars sýna að það hefur fjölgað
hjá okkur farþegum. Ef við lítum
t.d. á flug til og frá Reykjavík varð
16,6% aukning í fjölda farþega í
febrúar milli áranna 2000 og 2001.“
Sé litið til þróunar á heildarfjölda
farþega í innanlandsflugi hjá Flug-
félagi Íslands í janúar og febrúar
milli áranna 2000 og 2001, kemur í
ljós að farþegum hefur fjölgað um
9,4% milli ára, úr 37.494 árið 2000 í
41.013 árið 2001.
Flugmálastjóri segir sveiflur í fjölda farþega enga nýjung
Farþegum fjölgaði
hjá Flugfélagi Íslands
STOFNFUNDUR Fjölsmiðjunnar,
verkþjálfunar- og fræðsluseturs fyrir
ungmenni, var haldinn á fimmtudag.
Aðstandendur Fjölsmiðjunnar von-
ast til að starfsemi geti hafist þegar í
haust en setrið verður einkum ætlað
atvinnulausum ungmennum á aldrin-
um 16 til 24 ára sem flosnað hafa upp
úr framhaldsskólum.
Vinnumálastofnun og Rauði kross
Íslands hafa unnið að undirbúningi
verkefnisins í samvinnu við félags-
málastofnun, menntamálaráðuneyti
og sveitafélögin á höfuðborgarsvæð-
inu. Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að undir-
búningstíminn hafi verið vel nýttur til
að afla stofnfjár til þeirra þriggja ára
sem tilraunaverkefnið er hugsað.
Fjölsmiðjan verður sjálfseignastofn-
un og verður stjórn hennar sett á
laggirnar á næstu vikum. 20 milljón
króna stofnkostnaður hefur verið
tryggður auk 25 til 30 milljóna króna
í rekstrarkostnað.
„Í kjölfarið fer markviss starfs-
semi í gang, forstöðumaður og aðrir
starfsmenn ráðnir sem hefja svo
starfsemina í haust,“ segir Gissur.
Nemendum beint inn á
áhugasvið hvers og eins
Markmið Fjölsmiðjunnar er að
nota starf sem leiðsögn til náms.
„Þannig er fólki gefinn kostur á að
kynnast margvíslegum störfum og
þannig leitt inn á þá braut sem það
hefur áhuga á til náms,“ segir Gissur.
Verkþjálfunin skilar nemendum eng-
um starfsréttindum en stefnt er á að
byggja náin tengsl milli þjálfunarinn-
ar og hins hefðbundna skólastarfs
þegar reynsla er komin á verkefnið.
Þeir sem ekki hyggja á frekara nám
eru undirbúnir fyrir frekari þátttöku
á hinum almenna vinnumarkaði.
Fagleg verkþjálfun verður ríkur
þáttur í starfseminni en einnig fer
fram grunnfræðsla um samfélagið og
starfsemi opinberra og einkaaðila á
vinnumarkaði.
Gissur sagði að stefnt væri að því
með verkþjálfunarsetrinu að nálgast
ungmenni á atvinnuleysisskrá, fé-
lagslegu framfæri sveitarfélaga eða
ungt fólk sem væri atvinnulaust án
réttinda til bóta og jafnvel á framfæri
foreldra eða aðstandenda. Einnig
væri sú hugmynd uppi að hafa barna-
gæslu í kennsluhúsnæðinu til að gera
ungum mæðrum auðveldara að koma
aftur til náms. Áætlanir gera ráð fyr-
ir að á milli 40 og 70 nemendur sitji í
Fjölsmiðjunni á hverjum tíma. Giss-
ur segir fyrirmynd setursins sótta til
Danmerkur þar sem góður árangur
hefur náðst með starfsemi sk. pro-
duction-skóla.
Þörfin fyrir svona starfsemi hér-
lendis er talin mikil en á árunum 1994
til 1998 féllu 2.500 nemendur á aldr-
inum 16 til 19 ára út úr námi í fram-
haldsskólum.
Verkþjálfunarsetur fyrir
ungmenni sett á laggirnar
Morgunblaðið/Golli
Stofnfundur Fjölsmiðjunnar var vel sóttur enda fjölmargar stofnanir
sem koma að starfinu.
FULLTRÚAR Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins og Iðntæknistofnunar
hafa undirritað samning sem
tryggir áframhaldandi stuðning við
hugmyndaríkt og framsækið fólk
sem býr yfir nýstárlegum hug-
myndum. Samningurinn hljóðar
upp á tæpar 60 milljónir króna og
gildir til ársloka 2002.
„Tilgangur samstarfssamnings-
ins er að efla nýsköpun og styðja
við bakið á frumkvöðlum,“ segir í
fréttatilkynningu. „Nýsköpunar-
sjóði atvinnulífsins og Iðntækni-
stofnun er ljóst að frumkvöðlar og
nýsköpun þeirra er einn af mik-
ilvægustu vaxtarsprotunum í nú-
tíma samfélagi.“
Ennfremur segir að þessi stuðn-
ingur Nýsköpunarsjóðs og Iðn-
tæknistofnunar hafi gert ein-
staklingum fært að þróa hug-
myndir sínar sem síðan hafi leitt til
þess að stofnuð hafi verið fram-
sækin fyrirtæki sem mörg hver
hafi komið fullmótuðum vörum á
markað.
Samningurinn felur í sér fimm
verkefni; almenna handleiðslu og
leiðsögn við uppfinningamenn og
frumkvöðla, frumkvöðlastuðning
þar sem veittir eru styrkir til að
gera viðskiptaáætlanir, hugmynda-
samkeppnina Snjallræði þar sem
veittir eru styrkir til hagkvæmniat-
hugana á snjöllum hugmyndum,
verkefnið Skrefi framar þar sem
ör- og sprotafyrirtæki geta fengið
aðstoð ráðgjafa við að byggja upp
rekstur fyrirtækis síns og í fimmta
lagi verkefnið Vefviðskipti þar sem
lögð verður áhersla á að aðstoða
fyrirtæki við að skilgreina tækifæri
fyrirtækisins með tilliti til Netsins.
Nýsköpunarsjóður og Iðntækni-
stofnun undirrita samning
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Iðntæknistofnun Íslands hafa end-
urnýjað samstarfssamning um stuðning við frumkvöðla. Frá vinstri:
Úlfar Steindórsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs, Arnar Sig-
urmundsson, stjórnarformaður Nýsköpunarsjóðs, Magnús Friðgeirs-
son, stjórnarformaður Iðntæknistofnunar, og Hallgrímur Jónasson, for-
stjóri Iðntæknistofnunar.
Um 60 milljónir til
stuðnings frumkvöðlum
MEIRIHLUTI borgarbúa vill að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í
Vatnsmýrinni eftir árið 2016. Þetta
sýnir DV-könnun um málið.
55,5% þeirra sem afstöðu tóku
vildu að völlurinn verði áfram þar sem
hann er nú en 44,5% kváðust vilja
hann burt. 64,9% kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins vilja að völlurinn verði
áfram í Vatnsmýrinni og 73,7% kjós-
enda Framsóknarflokksins. 61,9%
Samfylkingarkjósenda vilja hins veg-
ar að völlurinn fari úr Vatnsmýrinni
og 62,2% kjósenda Vinstri hreyfingar
– græns framboðs vilja völlinn burt.
50% kjósenda Frjálslynda flokksins
vilja hafa völlinn á sama stað.
Meirihluti
vill völlinn
áfram í
Vatnsmýri ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar
sem ekið var suður Steingríms-
fjarðarheiði missti stjórn á
bílnum í mikilli hálku með þeim
afleiðingum að jeppinn hafnaði
á hliðinni.
Að sögn lögreglunnar á
Hólmavík var jeppinn á mjög
lítilli ferð þegar óhappið varð.
Hann lagðist því nokkuð mjúk-
lega á hliðina í snjóskafl við
veginn.
Hjón sem voru í bílnum
meiddust ekki og með aðstoð
lögreglunnar tókst að koma
jeppanum á réttan kjöl. Jepp-
inn skemmdist tiltölulega lítið
og var ferðinni haldið áfram
suður.
Jeppi
lagðist á
hliðina