Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 27
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 27
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fast.sali
GSM 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
SUMARHÚS OG LÓÐIR
Erum með á skrá sumarhúsalóðir í landi Búrfells, Svína-
vatns og Miðengis í Grímsnesi, við Eyrstri-Rangá Í
Hvolhr., austan Geysis í Haukadal. Einnig sumarhús við
Svínavatn í Grímsnesi, í landi Spóastaða í Biskups-
tungum og í Eilífsdal í Kjós.
HAGNAÐUR Baugs hf. dróst saman
um 9% milli ára og var 591 milljón
króna í fyrra. Þessi niðurstaða er
undir spá fjármálafyrirtækja sem
nam 641 milljón króna að meðaltali.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði jókst um 32% og var sá
hagnaður meiri en spáð hafði verið.
„Uppgjörið leggst ágætlega í okk-
ur,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs hf., „en við eins og
aðrir erum í vandræðum með fjár-
magnskostnað vegna veikingar á ís-
lensku krónunni, sem hafði mjög
mikil áhrif á fjármagnsliðina og þar
með afkomu eftir skatt. En hagnaður
fyrir fjármagnsliði og afskriftir er að
vaxa þó nokkuð milli ára og eins
veltufé frá rekstri. Það er ánægju-
legt.“ Jón Ásgeir segist telja horfur
fyrirtækisins ágætar og að ekki sé út-
lit fyrir annað en fyrirtækið haldi
áfram að vaxa og dafna. Hann segir
að fyrirtækið stefni að því að hagn-
aður fyrir fjármagnsliði og afskriftir
aukist um 18-22%, en sá hagnaður
jókst um 32% í fyrra.
Fjármagnsliðir, sem voru jákvæðir
um 80 milljónir króna árið 1999, voru
í fyrra neikvæðir um 284 milljónir
króna. Þetta er neikvæð sveifla að
fjárhæð 364 milljónir króna.
Aukin sala
á fermetra
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að tekjur þess af matvörusölu
hafi minnkað á fyrri hluta ársins 2000
vegna sölu tveggja verslana í Graf-
arvogi og Hólagarði og við það hafi
sölufermetrum fækkað verulega.
Einnig hafi þrjár verslanir Nýkaups
lokað í október, sem hafi haft tölu-
verð áhrif á sölu meðan þeim hafi ver-
ið breytt í Hagkaup og Bónus. Við
þessar breytingar hafi orðið umtals-
verð söluaukning á hvern fermetra
sem skili sé væntanlega á þessu ári.
Þá hafi félagið opnað 6 verslanir á
seinni hluta ársins. Hlutdeild þess í
matvöru hafi í árslok verið 3,6%
hærri en í ársbyrjun. Félagið hafi
einnig aukið verulega sölu í sérvöru,
lyfjum og tengdum vörum.
Birgðir aukast um 16,5%
Félagið gjaldfærir nú verðlækkan-
ir á sérvöru fyrirfram, sem þýðir í
raun að 65 milljóna króna auka gjald-
færsla kemur til á árinu 2000, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar segir að birgðamat á sérvöru sé
nú í samræmi við matsaðferðir hjá
Debenhams og allar fatabirgðir sem
náð hafi 12 mánaða aldri séu afskrif-
aðar. Birgðir í matvöru, sérvöru og
lyfjum jukustu um 16,5% milli ára og
samkvæmt fréttatilkynningu félags-
ins er megin skýringin fjölgun versl-
ana og aukning birgða í lyfjum vegna
samruna Lyfju og Lyfjabúða. Unnið
sé markvisst að auknum veltuhraða
sem skila eigi minni fjárbindingu og
lægri fjármagnskostnaði.
Stefnt er að mikilli aukningu um-
svifa félagsins á þessu ári. Ætlunin er
að opna 6 verslanir í Smáralind og er
fjárfesting vegna þeirra um 600 millj-
ónir króna. Auk þess verða lagðar um
40 milljónir króna í fyrirhugaða opn-
un Debenhams í Svíþjóð á næsta ári.
Uppbyggingu
innanlands að ljúka
Að sögn Jóns Ásgeirs er uppbygg-
ingu Baugs í nýjum verslunum hér á
landi að mestu lokið með opnun Smá-
ralindar. Félagið ætli ekki í fjárfest-
ingar innanlands á næsta ári en
byggja þess í stað upp erlendis í rík-
ari mæli. Þessar hugmyndir verða
kynntar til hlítar á aðalfundi félags-
ins 26. þessa mánaðar, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Á aðal-
fundinum verður lagt til að greiddur
verði út 12% arður til hluthafa, en það
er 25% af hagnaði eftir skatta.
Félagið hyggst áfram leggja mikla
áherslu á menntun starfsfólks að því
er frá greinir í fréttatilkynningu.
Baugsskólinnn hafi tekið formlega til
starfa fyrr á þessu ári og stefnt sé að
því að allir starfsmenn hljóti þjálfun
og menntun á sínu sviði.
. # /000
!
!"
12&302
!
!
#
""$%
$!%
"
"#$%&
"'(%&
#%'
&)
*"&+
+
''&'
,&&(
$"'
"'(
')-).
+""%
!
" #
" #
" #
!
"00 "44
!
Aukinn hagnaður
fyrir afskriftir