Morgunblaðið - 17.03.2001, Síða 28

Morgunblaðið - 17.03.2001, Síða 28
VIÐSKIPTI 28 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR af rekstri Lyfjaversl- unar Íslands hf. nam 41,7 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári sam- anborið við 58,0 milljónir árið áður. Í tilkynningu frá Lyfjaverslun Ís- lands segir að hagnaður af reglu- legri starfsemi félagsins hafi verið í samræmi við væntingar og sá besti til þessa. Fjármagnsgjöld hafi hins vegar verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir og valdi því einkum 50 milljóna króna gengistap á erlend- um skuldum. Fram kemur í tilkynningunni að vegna mikilla fjárfestinga á þessu ári leggi stjórn félagsins til að ekki verði greiddur arður til hluthafa á árinu. Á hluthafafundi sem haldinn hafi verið í janúar síðastliðnum hafi verið samþykkt heimild til stjórnar að auka hlutafé um allt að 300 millj- ónir króna sem sé tvöföldun. Frekari vöxtur og hagræðing Í lok ársins 2000 náðist samkomu- lag milli stjórnar Lyfjaverslunar Ís- lands hf. og eigenda A. Karlssonar hf. um sameiningu félaganna og seg- ir í tilkynningu Lyfjaverslunar að henni muni ljúka fyrir lok þessa mánaðar. Þá segir að í ársbyrjun þessa árs hafi einnig tekist samn- ingar um sameiningu Thorarensen – Lyf hf. við Lyfjaverslun Íslands hf. og að henni muni að öllum líkindum ljúka fyrir mitt árið. Thorarensen – Lyf hf. á 87% hlut í Lyfjadreifingu ehf. og allt hlutafé í J.S.Helgason ehf. Þessi félög munu verða hluti af félagasamstæðu Lyfjaverslunar Ís- lands hf. og í samstæðuuppgjöri hennar á árinu 2001. Í tilkynningunni segir að áætluð velta félagasamstæðu Lyfjaverslun- ar Íslands hf. á árinu 2001 verði ríf- lega 6 milljarðar króna. Þá segir að framangreindar sameiningar miði að því að ná fram hagkvæmari dreif- ingu lyfja og annarra heilbrigðis- vara hér á landi, með það að mark- miði að tryggja viðunandi arðsemi af rekstri félagsins. Gert er ráð fyrir auknum rekstri í Eystrasaltslöndunum Í árslok nam bókfært verð eign- arhluta Lyfjaverslunar í öðrum félögum 633 milljónum króna. Miðað er við framreiknað kaupverð hlut- anna. Eignarhluti í Delta hf. var bókfærður á 417,5 milljónir króna, en miðað við gengi 23 í árslok var markaðsverðið 787 milljónir króna. Í dag er gengi bréfanna 28 sem ger- ir markaðsverð eignarhluta Lyfja- verslunar 958 milljónir króna. Fjárfest var í félögum á árinu fyr- ir 178 milljónir króna. Þar af var fjárfest í Ilsanta UAB í Litháen fyr- ir 113 milljónir króna, og var það þáttur í endurfjármögnun félagsins. Í tilkynningunni segir að stjórn félagsins líti björtum augum á fram- tíðarrekstur í Eystrasaltslöndunum og ráðgeri að auka hann enn frekar. Lyfjaverslun fjárfesti á árinu í húsnæði fyrir tæpar 270 milljónir króna. Fjárfestingar, ásamt aukn- ingu á birgðum og viðskiptakröfum samfara veltuaukningu, valda því að efnahagsreikningur félagsins hefur hækkað um 48% milli ára. Dótturfyrirtæki Lyfjaverslunar Íslands hf. eru átta talsins: Lyfja- verslun Íslands – Dreifing ehf., Gróco ehf., Ísfarm ehf., Ísmed ehf., Ísteka ehf., Heilsuverslun Íslands ehf., Íslensk fjallagrös ehf. og Lettis ehf. Félögin skiluðu öll jákvæðri af- komu á síðasta ári utan Heilsuversl- un Íslands ehf. sem var stofnað í ársbyrjun 2000 og hefur lagt tölu- vert fé í uppbyggingu markaða. Uppgjörið verður að teljast þokkalegt Katrín Friðriksdóttir, sérfræð- ingur hjá rannsóknum og greiningu Búnaðarbankans – verðbréfa, segir að uppgjör samstæðu Lyfjaverslun- ar Íslands verði að teljast þokka- legt. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði sé 98 milljónir króna sam- anborið við 79 milljónir árið áður. EBITDA-framlegð samstæðunnar minnki þó milli ára, úr 4,8% í 4,5%, en framlegð móðurfélagsins aukist hins vegar lítillega, úr 4,65% í 4,75%. Veltuaukning á fyrstu sex mánuðum ársins hafi verið 31% en eftir hálfsársuppgjör félagsins hafi verið gert ráð fyrir að veltuaukn- ingin á árinu í heild yrði allt að 40%. Veltuaukning á árinu í heild hafi verið 33% og sé fyrirtækið því í neðri mörkum áætlunar sinnar. „Lyfjaverslunin er að vaxa mikið og fjárfesti talsvert á árinu, m.a. í Litháen. Samruni félagsins við A. Karlsson, annars vegar, og Thor- arensen – Lyf, hins vegar, mun styrkja félagið til muna og verður áhugavert að fylgjast með þeirri þróun. Gengi bréfa í Lyfjaverslun Íslands hefur hækkað um nær 100% frá því í byrjun ársins 2000 og er V/H hlutfall félagsins nú í kringum 40,“ segir Katrín. Hagnaður Lyfja- verslunar Íslands um 42 milljónir .  /000           ! $% &      !  /                                       !   /                              #$ #$ !$# $ $" "!$  "$  1&541 6 !$! !$ "$  $ #% $ $#% +(#(-$ +%(,-& "$-% ' )-) ")-) ' '-# ' *+%-)   %",-+ ,#(-'  %,-& #+. +-&" +)-#. '  '  ' ' ' ' ' '  ' '  ' ' ' ' ' '    !  " #  " #  " #      !  "00 "44      !   HLUTABRÉF á helstu mörkuðum heims héldu áfram að lækka í vik- unni. Það sem einkennir lækkunina nú er hversu víðtæk hún er og hvað hún nær til margra greina atvinnu- lífsins. Fram til þessa höfðu hluta- bréf í tækni-, tölvu- og fjarskipta- geira lækkað hvað mest á mörkuðum. Núna nær lækkunin hins vegar líka til fyrirtækja í rót- grónum, hefðbundnum atvinnu- greinum. Mikill meirihluti fyrir- tækja lækkar á meðan aðeins örfá þeirra hækka. Minnkandi hagvöxtur í Bandaríkjunum er sérstakt áhyggjuefni fyrir heimshagkerfið. Síðasti áratugur í Bandaríkjunum er ein lengsta samfellda uppsveiflan í sögu hlutabréfamarkaðar þar. Bandaríkjamarkaður hefur að miklu leyti drifið eftirspurn eftir neyt- enda- og fjárfestingarvörum og ef bandarísk fyrirtæki og neytendur halda að sér höndum eins og útlit er fyrir getur það haft víðtæk áhrif. Áhrifin verða mest á lönd sem treysta mikið á útflutning til Banda- ríkjanna eins og mörg ríki Austur- og Suðaustur-Asíu. Japanskt efnahagslíf í mikilli lægð Ástand efnahagsmála í Japan er einnig áhyggjuefni. Hingað til hafa einu góðu fréttirnar frá Japan verið að útflutningsfyrirtæki hafa gengið ágætlega. Innlent efnahagslíf er hins vegar í mjög mikilli lægð. Nikkei-hlutabréfavísitalan fór niður í 11,819 stig í vikunni og hefur ekki verið lægri síðan um miðjan níunda áratuginn. Margir stórir bankar eru samkvæmt vestrænum bókhalds- og endurskoðunnarreglum gjaldþrota. Ef Nikkei-hlutabréfavísitalan held- ur áfram að lækka þurfa bankarnir að gjaldfæra tap af hlutabréfafjár- festingu sinni og það getur verið dropinn sem fyllir mælinn. Ríkis- stjórn Yoshiro Mori hefur aldrei verið óvinsælli og ekki virðist vera neinn leiðtogi í Frjálslynda lýðræð- isflokknum sem sé fær um að taka þær stóru ákvaðanir sem Japan þarfnast til að koma landinu út úr þessari langvinnu efnahagslægð. Ef þessi tvö stærstu hagkerfi heims, Bandaríkin og Japan, ná ekki að brjótast út úr þessum víta- hring er hætt við að það kunni að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir hlutabréfamarkaði og afkomu fyr- irtækja víða um heim. Ástandið virðist betra í Evrópu. Hins vegar eru stór evrópsk fyrirtæki ekki ónæm ef slæmt ástand ríkir á helstu mörkuðum þeirra utan Evrópu. Þetta kom berlega í ljós á mánudag þegar sænska fjarskiptafyrirtækið Ericsson gaf út afkomuviðvörun. Ein af aðalástæðunum taps Erics- son var að salan á Bandaríkjamark- aði var minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fyrirtæki sem hingað til hafa ekki lækkað mikið á þessu ári eru nú farin að lækka. Hefðbundin fyr- irtæki í svokölluðu „gamla hagkerfi“ hafa séð verð hlutabréfa sinna lækka. Fyrirtæki í atvinnugreinum eins og dreifingu, bílaiðnaði, þunga- iðnaði, fjármálaþjónustu og fram- leiðslu á neytendavörum hafa lækk- að. Mun meiri svartsýni er á mörkuðum en oft áður. Fjárfestar kaupa nú frekar hlutabréf í lyfja-, trygginga- og orkugeirum til að tryggja sig gagnvart niðursveiflu, en þessi hlutabréf eru talin öruggri kostur þegar almenn lækkun verður á markaði. Á stærsta markaði á meginlandi Evrópu, Þýskalandi, hefur DAX 30- hlutabréfavísitalan lækkað úr 6.204 stigum við opnun á mánudegi í 5.767stig við lokun á föstudag eða um tæp 7%. Neuer Markt, en þar eru skráð hlutabréf minni fyrir- tækja, hefur á sama tíma lækkað um tólf prósent. CAC-40 vísitalan í París ogFTSE 100-vísitalan í Lond- on hafa einnig lækkað umtalsvert í vikunni. Í Svíþjóð, stærsta markaði Norðurlanda lækkaði Stockholm Generalindex-vísitalan um tæp átta prósent í kjölfar afkomuviðvörunar Ericsson. Hlutabréf í Asíu lækkuðu einnig. Í Hong Kong lækkaði Hang Seng um fimm prósent og í Singapore um tæp sex prósent frá opnun á mánu- degi til lokunar á fimmtudegi. Efna- hagslægð í Bandaríkjunum kemur hvað verst við Singapore, Taívan og Kóreu en stór hluti af þeirra lands- framleiðslu er útflutningsvara sem fer á markað í Bandaríkjunum. Á fimmtudag réttu markaðir aðeins úr kútnum. Þá hækkuðu flestir mark- aðir í Asíu, Evrópu og Bandaríkj- unum. Hækkanirnar voru samt ekki miklar yfirleitt í kringum eitt pró- sent, nema í Finnlandi en þar hækk- aði HEX vísitalan um átta prósent vegna frétta frá Nokia um að fyr- irtækið byggist við að áætlanir um hagnað á fyrsta ársfjórðungi stand- ist þrátt fyrir lægri sölu. Í gær breyttust markaðir í Asíu lítið. Áhugavert verður að fylgjast með mörkuðum á næstu vikum og mán- uðum. Prófsteinninn verður hvort fjárfestar trúi á að markaðir rétti úr kútnum eða eigi eftir að lækka enn frekar. Ef fjárfestar taka upp á því að selja þegar vísitölurnar hækka örlítið til að tryggja sig gagnvart frekari lækkunum kann hætta að vera á ferðum. Þeir skipta þá yfir í skuldabréf eða aðra fjárfestingar- kosti til að losa sig út úr mark- aðinum. Þá er líklegt að markaðir lækki enn frekar. Ef aðilar á mörk- uðum trúa því hins vegar að botn- inum sé náð kunna markaðir að hækka frá því sem nú er. Almenn lækkun hlutabréfa í vikunni Morgunblaðið. Stokkhólmi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.