Morgunblaðið - 17.03.2001, Síða 29

Morgunblaðið - 17.03.2001, Síða 29
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 29 ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykja- víkur, ÍTR, hefur gert samkomulag við Smartkort ehf. um rafrænt miða- útgáfukerfi fyrir Sundlaugar Reykja- víkur. Með þessu munu prentaðir sundmiðar og sundkort víkja fyrir rafrænum aðgangsmiðum á svoköll- uðu smartkorti eða snjallkorti, sem er greiðslukort með örgjörva í stað seg- ulrandar. Áætlað er að hefja notkun kerfisins í byrjun næsta árs. Að sögn Gunnars Geirssonar hjá Smartkortum ehf. verður virkni kerf- isins eitthvað á þessa leið: Gestur sundstaðar, sem kaupir raf- rænt kort í fyrsta skipti, fer í af- greiðslu sundstaðar og biður um það kort sem hann vill kaupa. Starfsmað- ur velur kortið af skjá og fyllir inn þær upplýsingar sem beðið er um, sem getur t.d. verið kyn korthafans í þessu tilviki. Að því loknu skrifar les- arinn nauðsynlegar upplýsingar í ör- gjörva smartkortsins sem viðskipta- vinurinn fær loks í hendur. Fyllt á kortið eftir þörfum Korthafi greiðir fyrir aðgang með því að framvísa kortinu og er því stungið í smartkortalesara. Hafi gest- urinn fullnýtt sundmiðana eða tíma- bilið á kortinu er ekki gefið út nýtt kort heldur er fyllt á það gamla í af- greiðslu sundstaðarins. Allar upplýs- ingar sem settar voru á kortið í upp- hafi eru áfram til staðar. Gunnar segir kortalesarann safna saman upplýsingum um hvaða kort voru notuð og hvenær. Upplýsing- arnar eru svo hringdar inn í miðlægt kerfi sem heldur utan um frá hvaða stað og úr hvaða kortalesara upplýs- ingarnar voru sendar. Í kerfinu verða því upplýsingar um hvar og hvenær kortin eru seld og hvar og hvenær þau eru notuð. Betri upplýsingar um aðsóknarmynstur Steinþór Einarsson markaðsstjóri ÍTR segir nýja kortið fyrst og fremst gefa ÍTR kost á að fá betri upplýs- ingar um viðskiptavinina og aðsókn- armynstur þeirra. Þannig verði t.d. hægt að skipuleggja starfsmannamál betur á tilteknum tímum og af því fá- ist nokkurt hagræði. „Þá fáum við með þessu tækifæri til að koma uppgjörsmálum í betra horf. Við höfum verið dálítið bundnir af ákveðinni gerð aðgöngukorta og í dag eru uppgjörsmálin þannig að þegar keypt er árskort í afgreiðslu sundlaugar þá fer öll tekjufærslan á þá sundlaug þrátt fyrir að árskortið sé notað annars staðar. Nú sjáum við okkur hins vegar fært að stokka þetta upp. Þannig fara tekjufærslurnar á staðina þar sem er verið að nota kort- in,“ segir Steinþór. Hann segir gest- um í sundlaugarnar sjö í Reykjavík hafa fjölgað um 3-400 þúsund manns á síðastliðnum fjórum árum en árið 2000 heimsóttu rúmlega 1,7 milljón gesta í laugar borgarinnar. „Þess vegna höfum við leitað leiða til að auð- velda allt aðgengi og upplýsingar um viðskiptavini.“ Mörg tækifæri í notkun kortsins „Markmiðið er að fá meiri sveigj- anleika í verðmyndunina,“ segir Skúli Skúlason fjármálastjóri ÍTR. „Við viljum einnig bæta aðgengi viðskipta- vina okkar að þjónustunni og það er ásetningur okkar að gera þessa lausn mjög vel úr garði þannig að hún falli vel að mismunandi þörfum okkar við- skiptavina. Hins vegar eru mörg tækifæri til að nota lausnina og þegar við höfum náð tökum á þessu fyrsta skrefi get- um við farið að skoða aðra möguleika. Við viljum hafa þetta í réttri röð en í samningnum er gert ráð fyrir opinni lausn, þ.e. að við getum tekið aðra þætti inn í. Enda ef við horfum til lengri tíma er markmiðið að nota lausnina jafnframt og þá á sama korti, á öðrum sviðum starfsemi okk- ar, t.a.m. hjá Fjölskyldugarðinum. Einnig býður lausnin upp á að aðrar borgarstofnanir tengist kortinu. Til dæmis hefur Félagsþjónustan áhuga á að nýta sér svona lausn í þjónustu- miðstöðvum þeirra. Síðast en ekki síst getum við leitað til annarra sveitarfélaga með sams konar þjónustu um samnýtingu kerf- isins í samstarfi við Smartkort. Það bakvinnslukerfi sem er verið að setja upp núna býður sem sagt upp á að halda utan um mismunandi sveitar- félög, mismunandi stofnanir og upp- gjör þeirra. Viðskiptavinurinn getur þannig fengið ýmiss konar þjónustu í gegn- um eitt og sama smartkortið,“ segir Skúli og bætir við að lausn í þessum dúr hafi verið til umræðu hjá Reykja- víkurborg um árabil og Smartkort hafi vakið athygli manna á þessu. Tæknin hafi, að mati borgarinnar, hins vegar ekki verið nægilega langt á veg komin þar til nú. „Við finnum það að áhuginn er að vakna víðs veg- ar.“ Hvað varðar kostnað Reykjavíkur- borgar af samningnum segir Skúli: „Við fórum nýlega út í að tengja alla okkar starfsstaði saman í gegnum víðnet og eftir mánuð verða þeir allir komnir í víðnetssamband við ÍTR. Því sjáumvið fram á að kostnaður við tæknibúnað verði óverulegur. Helsti kostnaðurinn liggur í nýjum netþjóni og kortalesurunum. Gagnaleiðirnar eru þegar til staðar þannig að það ætti ekki að vera vandamál.“ Pylsu með öllu og sundmiða Þorsteinn Geirsson, framkvæmda- stjóri Smartkorta, segir þennan samning við ÍTR vera upphafið að miklu samstarfi fyrirtækisins við Reykjavíkurborg. Hann tekur undir orð Skúla um að miðakerfið fyrir sundlaugarnar sé aðeins fyrsta skref- ið í notkunarmöguleikum kortsins í framtíðinni. „Þetta getur nýst fyrir leikhús, bíó, sundlaugar og flest það sem borgin, og þá jafnvel í samvinnu við önnur sveitarfélög, er að gera. Þá væri einnig hægt að hugsa sér að fyllt yrði á kortin í posanum hjá næsta kaupmanni og þannig yrði sölustöðum fjölgað. Til dæmis mætti afgreiða sundmiða á pylsubar eða hvar sem boðið er upp á kortales- lausn,“ segir Þorsteinn. ÍTR semur við Smartkort um rafrænt miðaútgáfukerfi Snjallkort í stað sundmiða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.