Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 33
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 33
HÆGRIMENN í Frakklandi leggja
nú hart að sér við að reyna að
tryggja sér sigur í seinni umferð
borgarstjórakosninganna í París er
fram fer á morgun, sunnudag. Lík-
ur eru þó á að sósíalistinn Bertrand
Delanoë, er hlaut mest fylgi í fyrri
umferðinni, sigri. Klofningur í röð-
um hægrimanna, sem haldið hafa
embættinu samfleytt frá 1977, veld-
ur miklu um að vinstriöflin eygja
möguleika á að brjóta loks hefðina.
Tveir sterkustu keppinautarnir á
hægrivængnum, báðir úr gaullista-
flokki Jacques Chiracs Frakklands-
forseta, RPR, munnhöggvast opin-
berlega og því ljóst að samstarf
milli þeirra í seinni umferðinni er
torvelt.
Chirac var borgarstjóri Parísar í
átján ár, frá 1977 til 1995, og yrði
það mikið áfall fyrir hann ef
gaullistar töpuðu slagnum. Forseta-
kosningar eru á næsta ári og er tal-
ið líklegt að Chirac sækist eftir end-
urkjöri og jafnframt að Lionel
Jospin, forsætisráðherra og leiðtogi
sósíalista, verði andstæðingur hans.
Opinber frambjóðandi RPR er
Philippe Seguin, sem var lengi for-
seti franska þingsins. Hann er
landsþekktur stjórnmálamaður en
þykir ákaflega óvæginn og ekki
mikill samningamaður. Borgarstjór-
inn síðustu árin og
flokksbróðir Seguins,
Jean Tiberi, var við-
riðinn slæm fjármála-
og mútuhneyksli í
borgarstjóratíð Chir-
acs er ljóstrað hefur
verið upp um að und-
anförnu en forsetinn
hefur vísað eindregið
á bug nokkurri ábyrgð
í þeim efnum. Tiberi
þótti hins vegar sann-
ur að sök og RPR lét
hann róa en hann
neitaði að draga sig í
hlé og fékk 13,9%
fylgi en Seguin 25,7%.
Svo gæti farið að
átökin milli Tiberis og
Seguins endi með því að hvorugur
verði borgarstjóraefni gaullista en
einhver annar, til dæmis Edouard
Balladur, fyrrverandi forsætisráð-
herra og á bak við tjöldin keppi-
nautur Chiracs, verði málamiðlun.
Einnig er nefnd til sögunnar Franç-
oise de Panafieu en hún gæti hafa
dregið úr líkunum með því að vera
óvenju skorinorð um flokksbræður
sína. Hefur hún sagt um Seguin,
sem er stór og vörpulegur, að hann
sé „King Kong sem hræði börn“ og
Tiberi hefur hún líkt við „garðálf“.
Seguin hefur í einu
orðinu sagt að hann sé
reiðubúinn að gefa út
sameiginlega yfirlýs-
ingu og láta mynda sig
með Tiberi en segir í
hinu orðinu að Tiberi
sé „ábyrgðarlaus mað-
ur“ og gallagripur sem
sé fullur af mótsögn-
um. Seguin gaf í skyn
að hneykslismál Tiber-
is hefðu vakið athygli
eins og hávaðinn í
manni sem lemur potta
og pönnur á götum úti.
„Kannski ég ætti að
fá mér potta og pönnur
– ég gæti fengið nokk-
ur atkvæði út á það,“
sagði Seguin. Hægriblaðið Le Fig-
aro gagnrýndi Seguin harkalega
fyrir að samþykkja ekki samstarf
með Tiberi í seinni umferðinni í sex
af tuttugu hverfum borgarinnar en
þannig myndu atkvæðin nýtast bet-
ur. Ótraust samkomulag náðist á
síðustu stundu um samstarf en deil-
urnar milli frambjóðendanna draga
úr trúverðugleika þess. Borgarráð
skipað fulltrúum allra hverfanna
kýs borgarstjóra 25. mars.
Bertrand Delanoë gerði gys að
hugmyndum um samstarf Seguins
og Tiberis og sagði að barátta hins
fyrrnefnda gegn spillingunni í tíð
Tiberis og þar á undan Chiracs í
borgarstjóraembættinu myndi
verða fáránleg.
„Seguin, sem vildi bjóða sig fram
gegn kerfinu, er orðinn að gísl kerf-
isins,“ sagði Delanoë á útifundi á
fimmtudag. Hann er fimmtugur,
hefur viðurkennt að hann sé sam-
kynhneigður og þykir hæfur en
ekki litríkur stjórnmálamaður.
Samlyndi einkennir
vinstriöflin
Delanoë fékk 31,3% atkvæða í
fyrri umferðinni og hefur nú tryggt
sér stuðning græningjans Yves
Contassot sem fékk 12,3%.
Samlyndið einkennir vinstriöflin
og aginn er svo góður að þar falla
vart styggðaryrði á milli manna.
Gera vinstriflokkarnir sér vonir um
að sigra í París, Lyon og Toulouse
en annars staðar hafa þeir víða orð-
ið fyrir vonbrigðum. Þeir höfðu
vænst þess að styrk staða stjórnar
Jospins og góður gangur í efna-
hagslífinu myndi skila sér í auknum
byr í fyrri umferð sveitarstjórnar-
kosninganna en svo fór ekki. Sigur í
París yrði þó svo sætur að hann
myndi duga til að þeir tækju gleði
sína.
Seinni umferð frönsku sveitarstjórnarkosninganna á morgun
Agaðir vinstrimenn von-
ast eftir sigri í París
París. Reuters, AFP.
Philippe Seguin,
borgarstjóraefni
gaullistaflokksins.
ÞING Skotlands samþykkti í
gær umdeilt lagafrumvarp um
að útgerðar- og sjómönnum yrði
greitt fyrir að leggja togurum
sínum til að vernda fiskistofn-
ana. Frumvarpinu hafði verið
hafnað í atkvæðagreiðslu á
þinginu í vikunni sem leið og var
það fyrsti ósigur skosku stjórn-
arinnar, undir forystu Verka-
mannaflokksins, á þinginu frá
því það var stofnað árið 1999.
Í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir því að greiða 27 milljónir
punda, andvirði 3,4 milljarða
króna, fyrir að úrelda fimmtung
skoska fiskveiðiflotans.
Mori sagður
víkja í maí
JAPANSKA fréttastofan Jiji
hafði í gær
eftir heim-
ildarmönn-
um í Frjáls-
lynda
lýðræðis-
flokknum,
stærsta
stjórnar-
flokki Jap-
ans, að
frammá-
menn í flokknum stefndu að því
að Yoshiro Mori léti af embætti
forsætisráðherra í byrjun maí.
Þeir vilji að eftirmaður Moris
sem leiðtogi flokksins verði
kjörinn 20. apríl og hann myndi
síðan nýja stjórn fyrir 3. maí.
Gíslarnir
halda heim
FJÓRIR þýskir ferðamenn,
sem voru teknir í gíslingu í
Egyptalandi, héldu til Þýska-
lands í gær eftir að egypskir
saksóknarar yfirheyrðu þá.
Mannræninginn, egypskur leið-
sögumaður, var ákærður fyrir
mannrán og úrskurðaður í
fimmtán daga gæsluvarðhald.
Hann gafst upp í fyrradag og
gíslarnir fundust bundnir í íbúð
hans. Einnig fundust þar gervi-
handsprengjur og startbyssa.
Flóttafólk
ferst í sjóslysi
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu
í gær að allt að tuttugu farþegum
báts sem sökk undan eyjunni St.
Martin í Karíbahafi í fyrradag.
Að minnsta kosti 20 lík höfðu
fundist í gær en tveimur farþeg-
um var bjargað og þeir sögðu að
alls hefðu verið 40 manns í bátn-
um. Farþegarnir voru flótta-
menn frá Dóminíska lýðveldinu
og talið er að þeir hafi ætlað að
reyna að komast til Bandaríkj-
anna með ólöglegum hætti.
Finnska
stjórnin held-
ur velli
TILLAGA um vantraust á fimm
flokka stjórn Finnlands var felld
með miklum meirihluta atkvæða
á finnska þinginu í gær. 60 þing-
menn greiddu atkvæði með til-
lögunni en 116 á móti. Miðflokk-
urinn lagði tillöguna fram vegna
óánægju með áform stjórnar-
innar um aðgerðir til að bæta
kjör fátækra landsmanna og
sagði þær ófullnægjandi.
STUTT
Skoskum
togurum
fækkað
Mori