Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 37
Ábyrgð
áreiðanleiki
Gullsmiðir
&
Sprenghlægilegt verð!
Skart og klútar kr. 150 - Töskur kr. 500 -
Regnhlífar og sólgleraugu kr. 200 -
Húfur og hattar kr. 500-1000 - Buxur kr. 1000 -
Pils frá kr. 800-1.500 - Kjólar frá 1.250-3.000 -
Stutterma jakkar kr. 2.000 - Síðerma jakkar kr. 2.500
Opið alla daga frá kl. 12-18
Grensásvegi 16
ÞAÐ var troðfullt á Múlanum á
fimmtudagskvöldið var þegar Jóel
Pálsson lék ásamt kvartetti sínum
frumsamið efni, utan tvö verk eftir
Hilmar Jensson, sem flest má
væntanlega finna á nýjum diski
hans er nefnist KLIF og gefinn
verður út í næsta mánuði.
Þar leika sömu hljóðfæraleikar-
ar með honum utan bassaleikar-
inn. Á diskinum er það Skúli
Sverrisson rafbassaleikari, sem
býr og starfar í New York, en á
Múlanum sló Valdimar Kolbeinn
kontrabassa. Það verður forvitni-
legt að heyra diskinn eftir að hafa
fengið forsmekkinn á þessum tón-
leikum og þó þetta sé diskur Jóels
er trúlegt að örlítill annar blær
verði á tónlistinni er Skúli Sverr-
isson er með í för – svo einstakur
listamaður sem hann er.
Það eru þrjú ár síðan Jóel hljóð-
ritaði fyrsta disk sinn, PRÍM, sem
Jazzís gaf út hérlendis, en NAXOS
í fjörutíu öðrum þjóðlöndum. Sá
diskur vakti verðuga athygli á Jóel
víða um heim og var það að verð-
leikum. Jóel er stórbrotinn saxó-
fónleikari með einstakan tón, um
tæknina þarf ekki að fjölyrða og
hann býr yfir ríkum sköpunar-
mætti.
Þessir tónleikar Jóels voru vel
heppnaðir þrátt fyrir að hljóm-
burður á efri hæðinni í Húsi mál-
arans sé afleitur og hávaði frá
neðri hæðinni, skvaldur og glasa-
glaumur, kæfi nærri tónlistina
þegar veikast er leikið. Ráða verð-
ur bót að þessu hið fyrsta og bæta
við hljóðeinangrandi teppi við upp-
ganginn auk þess sem bæta verður
hljóminn í salnum.
Jóel byggði tónleikana einstak-
lega skemmtilega upp. Hann
kynnti í upphafi að leikin yrði ný
tónlist eftir hann sjálfan svo og
nokkur lög eftir Hilmar og jafnvel
eftir Matta ef tími gæfist til, sem
ekki varð. ,
,Annars skulum við láta tónlist-
ina tala,“ sagði saxófónleikarinn og
bassinn upphóf einfalda ryþmaslóð
er lá til hrynsterks ópus er Jóel
blés í tenórinn. Svo tók hann upp
kontrabassaklarinettið og óf frjáls-
an vef með Hilmari, sem vísaði
veginn að ljúfri ballöðu er Jóel
greip tenórinn að nýju. Blárri tón-
ar leiddu svo að ópus af bíbopp-
ættinni sem leikinn var af fítons-
krafti og er honum lauk fylgdi
örlítil þögn í kjölfarið og þá loks
gafst hrifnum áheyrendum tæki-
færi til að klappa hljóðfæraleik-
urunum lof í eyra.
Það hefur viðgengist í djasstón-
list í áratugi að klappað væri á eft-
ir hverjum sóló og er slíkt auðvelt
þegar hefðbundin spilamennska er
á ferðinni þar sem skörp skil eru
milli sólóa, en Jóel og félagar gáfu
ekki færi á því og auk þess flæddu
lögin hvert inn í annað.
Þetta klapp hefur oft farið í
taugarnar á mér á djasstónleikum.
Klapp sem er sprottið af hrifningu
á fullan rétt á sér en skylduklapp-
ið, oft á eftir döprum sólóum, er
niðurdrepandi, eins er óþolandi
þegar undurfagur ballöðuleikur er
truflaður af ástríðulitlu klappi.
Eftir hlé tókst þeim félögum að
tengja verkin saman af sömu
leikni þó þau væru óskyldari en í
fyrri hlutanum. Jóel blés í sópran í
upphafinu með austurlenskum blæ
og í kontrabassaklarinettuhlutan-
um var seiður af ætt Mingusar.
Svo var tenórhljómur af trúarætt
Coltranes en rafhljóð Hilmars
leiddu hugann frá himnum. Annars
var ekki alltaf auðvelt að henda
reiður á tónlistinni við þessa
fyrstu hlustun enda er hún fyrst
og fremst af ætt Jóels.
Síðustu þrír ópusarnir voru ekki
úr KLIF svítunni. Tvö verk eftir
Hilmar. Hið nýja; Kýlt og hið
gamla; Kyrrð. Undurfögur ballaða
sem er alltaf einsog ný og minnir
mig á bestu ballöður Ornette Cole-
mans s.s. Lonley Woman.
Innganginn lék Hilmar glæsi-
lega með spænska klassísk og nor-
rænan hljóm í bland. Lokalagið
var eftir Jóel; Riff Raff. Bassinn
var kraftmikill og trommurnar
fönký. Saxinn ýlfrandi villtur og
gítarinn magnaði upp spennuna
uns laglínunni var náð og laginu
lokið.
Jóel, Hilmar og Matthías voru
brilljant á þessum tónleikum og
bassaleikarinn ungi, Valdimar Kol-
beinn, stóð sig með ágætum, þótt
hljómleysi salarins léki bassatón-
inn grátt á stundum.
Stórbrotinn saxófón-
leikari, einstakur tónn
DJASS
M ú l i n n í H ú s i
m á l a r a n s
Jóel Pálsson tenórsaxófón, sópran-
saxófón og kontrabassaklarinett,
Hilmar Jensson gítar, Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson bassa og
Matthías M.D. Hemstock trommur.
Fimmtudagskvöldið 15. mars 2001.
KVARTETT JÓELS
PÁLSSONAR
Vernharður Linnet
LISTAKONAN Yoko Ono, sem
mörgum er eflaust best kunn sem
eiginkona Bítilsins Johns Lenn-
ons, fikrar sig hér í gegnum völ-
undarhús úr plexigleri í Walker-
listamiðstöðinni í Minneapolis. í
Bandaríkjunum
Völundarhúsið, sem nefnist
„AMAZE“, er eitt af verkum Ono,
en listamiðstöðin stendur nú fyrir
yfirgripsmikilli sýningu á mál-
verkum, skúlptúrum, tónlist og
minjagripum Ono frá friðarbar-
áttu hennar og Lennon á fyrri ár-
um.
AP
Völundar-
hús Ono
ANDREA Gylfadóttir
og Kammerkór Hafnar-
fjarðar syngja negra-
sálma í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, Hásöl-
um, á morgun, sunnu-
dag, kl. 17. Andrea
syngur einsöng með
kórnum og einnig
nokkra negrasálma við
undirleik Gunnars
Gunnarssonar píanó-
leikara og Jóns Rafns-
sonar bassaleikara.
„Andrea Gylfadóttir
er löngu landsþekkt fyr-
ir söng sinn og tekst nú
á við einn stílinn enn,
sem negrasálmarnir
eru.Gunnar Gunnarsson píanó-
leikari og Jón Rafnsson munu
einnig spila saman tónlist sem
tengist negrasálmunum,“ segir
Helgi Bragason, stjórnandi tón-
leikanna. „Uppruni sálmanna er
allt frá þrælatímunum, en það var
fyrst eftir 1840 sem byrjað var að
safna þeim og skrá. Á tímum
þrælanna var þess gætt að þekk-
ing þeirra yrði ekki of mikil og
kemur það einnig vel fram í text-
unum, þar sem veröld þeirra er
bara nánasta um-
hverfi, bæjarlæk-
urinn er áin Jórd-
an og handan við
hana er fyrirheitna
landið og frelsið.
Kristin trú er
sterk í sálmunum
og eru tilvitnanir í
Biblíuna sterkar
og tærar og flétt-
ast frelsisþráin inn
í textana, oft undir
rós,“ segir Helgi.
Erindi um
negrasálmana
„Áhrif negrasál-
manna á tónlistar-
söguna eru mjög mikil. Blús og
svo djass verða til vegna áhrifa
þeirra og allir vita að dægur-
tónlist hefur þróast úr djass-
tónlist. Negrasálmarnir hafa líka
haft sterk áhrif á mörg tónskáld
t.d. Dvorak, Gershwin, Berio,
Milhaud og marga fleiri.“
Ingólfur Hartvigsson cand.
theol. hefur tekið saman sögu
sálmanna og kannað uppruna
texta þeirra og mun hann flytja
stutt erindi um þá á tónleikunum.
Morgunblaðið/Ásdís
Kammerkór Hafnarfjarðar á æfingu.
Kórtónleikar
í Hafnarfirði
Andrea
Gylfadóttir
ÁRLEGIR hljómsveitartónleikar
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar verða haldnir í Seltjarnar-
neskirkju í dag kl. 14.
Strengjasveitir I, II og III og
gítarsveit framhaldsnema, alls 70
tónlistarmenn, munu flytja verk
eftir Albeniz, Lennon og McCartn-
ey, Scott Joplin og Elías Davíðs-
son.
Stjórnendur sveitanna eru Páll
Eyjólfsson og Sigursveinn Magn-
ússon.
Hljómsveit-
artónleikar
Tónskóla
Sigursveins