Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 52
MINNINGAR
52 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðrún Magnús-dóttir fæddist í
Reykjavík 7. ágúst
1945. Hún lést á
Landspítalanum,
Fossvogi 19. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Magnús H. Jónsson,
f. 25. febrúar 1914, í
Eyvík á Grím-
staðaholti, d. 7.
mars. 1975, og kona
hans Sigríður Eyj-
ólfsdóttir, f. 10.
október 1916, í
Skipagerði á Stokks-
eyri, d. 31. júlí 1973. Systkini
Guðrúnar eru: 1) Jóhanna, f.
15.5. 1940, d. 13.12. 1992. 2) Haf-
dís, f. 10.8. 1942. 3) Sigríður, f.
1.8. 1947, d. 29.9. 1950, 4) Eyjólf-
ur, f. 12.5 1949. 5) Magnús, f.
23.12. 1951. Hálf-
bróðir hennar, sam-
feðra, er Svavar, f.
3.2. 1936. Guðrún
var tvígift. Fyrri
maður hennar var
Paul H. Korntop og
eignuðust þau einn
son, Magnús, f.
14.10. 1965, þau
skildu. Seinni mað-
ur hennar er Gunn-
laugur Jónsson, f.
16.11. 1937, frá Eiði
á Langanesi. For-
eldrar hans voru
Jón Ólason, f. 11.3.
1901, látinn, og Rósa Gunnlaugs-
dóttir, f. 11.11. 1911. Guðrún og
Gunnlaugur eignuðust eina dótt-
ur Rósu, f. 13.5. 1975.
Útför Guðrúnar fór fram í
kyrrþey.
Það er djúp sorg í hjarta mínu.
Elskuleg og góð systir er farin.
Elsku Gunna mín, ég sakna þín
mikið. Það er sárt að hugsa að við
gerum ekkert saman oftar. Við vor-
um alltaf saman og gerðum allt
saman. Þú ert þriðja systirin sem
ferð þessa ferð. Við systkinin höf-
um alla tíð verið mjög samrýnd og
haldið fast utan um hvert annað af
mikilli hlýju og ástúð. Þegar þú
veiktist fórum við öll og heimsótt-
um þig eins oft og við gátum. Þú
varst mjög bjartsýn að ná fullum
bata og sagðist ætla að fara aftur til
Taílands árið 2002, þú hafðir farið
draumaferðina til Taílands með
Dídí vinkonu þinni og voruð þið í
sjö vikur, og hafðir þú mjög gaman
af þeirri ferð. Í byrjun desember
veiktist þú mikið, en komst heim
um jólin, það var yndislegt að hafa
þig um jól og áramót. Í janúarlok
fórstu aftur á sjúkrahús. Þú varst
mikið veik, en sagðir við okkur að
þetta myndi allt lagast. Mér þótti
sárt að sjá þig svona mikið veika og
geta ekkert hjálpað þér. 19. febrúar
lagðir þú upp í ferðina sem við öll
förum að lokum, við fengum að hafa
þig allt of stutt. Ég bið góðan Guð
að hugga Gulla, Rósu og Magga.
Hafdís systir.
Gunna systir er farin í annan
heim. Það sem við eigum eftir eru
góðar minningar um góða systur.
Gunna systir var góður vinur, ég
gat talað um allt við hana, hún var
hreinskilin og sagði meiningu sína.
Ég átti heima hjá henni og Gulla
manni hennar í mörg ár. Það var
mjög góður tími. Hún hjálpaði mér
mjög mikið þegar ég hóf söngnám.
Margar stundir spjölluðum við
saman yfir kaffibolla.
Vinum mínum tók hún vel. Það
var gott að tala um trúnaðarmál við
Gunnu systur. Það fór ekkert
lengra því traust hennar var mikið.
Árið 2000 fóru hún og Dídí vinkona
hennar til Taílands það var
draumaferðin hennar, hún var búin
að tala um þessa ferð í mörg ár.
Hún veiktist af krabbameini og tók
því með miklum dugnaði. Þó Gunna
systir sé farin veit ég að bráðum
fáum við að hittast á ný í öðrum
heimi. Ég bið góðan Guð að blessa
Gulla, Rósu, og Magga.
Magnús bróðir.
Mig langar til að minnast systur
minnar Guðrúnar (Gunnu) sem að
lést 19. febrúar á Landspítalanum í
Fossvogi eftir erfið veikindi. Hún
bjó á Írabakka 4. Eftir að móðir
okkar lést árið 1973 tók hún að sér
að sjá um heimilið og bjó pabbi hjá
henni síðustu æviárin en hann lést
1975. Hún átti tvö börn, Magnús, f.
1965, og Rósu, f. 1975. Rósa og
Gulli, maðurinn hennar, voru til
skiptis hjá henni síðustu vikurnar
sem hún lifði. Ég veit að núna líður
henni vel. Hún var jarðsett í Foss-
vogskirkjugarði við hlið foreldra
okkar og systur. Ég bið Guð að líta
eftir Gulla, Magga og Rósu.
Ég trúi á ljós, sem lýsi mér,
á líf og kærleika,
á sigur þess, sem fagurt er,
og sættir mannanna.
Á afl sem stendur ætíð vörð
um allt, sem fagurt er,
á Guð á himni, Guð á jörð
og Guð í sjálfum mér
(Ólafur Gaukur.)
Eyjólfur bróðir.
Vegir skiptast. - Allt fer ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdags kveðja,
öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem keðja,
krossför ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið,
stórt og smátt er saman bundið.
(E.Ben.)
Elsku Gunna frænka.
Við stigum okkar fyrstu spor
saman litlum reikulum fótum og æ
síðan þar til þróttur þinn þvarr.
Við gengum saman í gleði og
sorg.
Ég vil þakka þér göngurnar okk-
ar Gunna mín og er við hittumst á
ný þá hefjum við gönguna aftur,
styrkum fótum.
Guð geymi þig.
Emma frænka.
Er við lítum um öxl
til ljúfustu daga
liðinnar ævi,
þá voru það stundir
í vinahópi
sem veittu okkur
mestu gleði.
(Nico.)
Fyrir um ári vorum við að taka
okkur til við að fara heim á klakann
úr draumaferðinni okkar til Taí-
lands. Við vorum búnar að vera í 7
vikur í paradís, þar bættum við
yndislegum minningum í safnið
okkar. Brunnur sem við vorum
búnar að setja í minningar í yfir 25
ár. Úr nógu er að taka, Gunna mín,
en ég vil bara þakka þér fyrir allt,
endalausar nætur, daga og kvöld
yfir kaffibollanum með útvarpið í
gangi, stundum heyrðist „uss“, svo
söngst þú með þínu lagi.
Takk fyrir stuðning þinn við and-
lát sona minna, dugnað við að passa
Sylvíu og hafa auga með ungling-
unum. Takk fyrir að leyfa Sylvíu að
vera með ykkur Gulla og Rósu á
rúntinum. Svo voru það sumarbú-
staðaferðirnar, já, þá var hlegið
með Gulla og frænda.
Mín kæra vinkona, ég kveð þig
með sorg í hjarta.
Gulli minn, Rósa og Maggi svo og
aðrir aðstandendur, ég bið Guð að
sefa hjörtu ykkar í þessari miklu
sorg.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þín vinkona,
Ingibjörg (Dídí).
Hún er ljóshærð og lagleg
hún er ljúf eins og vor.
Stráir ástríku yndi
við hvert einasta spor.
Hún er elskuð af öllum,
og í athöfnum dygg.
Hún var sólskinsbarn síglatt.
Hún er saklaus og trygg.
(Einar Kristjánsson.)
Ég man þegar við Rósa vorum
litlar og þú leyfðir okkur að leika
með skartgripina þína. Ég man að
þú náðir í mig upp, ég hágrátandi
og þú tókst mig í faðminn og hugg-
aðir mig, ég man unglingsárin, þú
að greiða okkur Rósu, ég man ófáar
stundir við eldhúsborðið við spjall,
ég, þú og Rósa. Ég man er þú sást
Óla Þór í fyrsta skiptið og þú grést
af gleði, ég man þín endalausu hrós
um Óla Þór, ég man gleðina yfir
forláta mynd sem við gáfum þér í
afmælisgjöf. Ég man þig.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Þín
Sylvía.
Nú hefur hún Gunna, elskuleg
vinkona okkar, kvatt þennan heim,
þjáningum hennar er lokið. Hún
verður ekki boðuð næst þegar
saumaklúbburinn hittist en þannig
hefur það jú verið mörg undanfarin
ár, þar sem hún hefur þurft að tak-
ast á við ýmis áföll en alltaf haldið
áfram óbuguð þar til nú að illvígur
sjúkdómur hafði betur.
Síðastliðið vor fór hún ásamt
Dídí vinkonu sinni til Taílands
draumastaðar síns og dvaldi þar í
nokkrar vikur og þrátt fyrir að hún
kæmi þaðan fársjúk, ætlaði hún svo
sannarlega þangað fljótt aftur). Við
vinkonurnar höfum misst hlekk úr
saumaklúbbnum okkar, sem hist
hefur í yfir 40 ár, saumaklúbb þar
sem mismikið var saumað, en því
meira talað um það sem hjartanu
var næst, skrafað, hlegið, huggað,
spurt. Hvað er að frétta af krökk-
unum, barnabörnunum, hvað er að
frétta af þér? Stelpur, hvenær eig-
um við að fara til Parísar? Hvenær
eigum við að vera aftur helgi í Ölf-
usborgum? Hennar er og verður
sárt saknað og hún verður ávallt í
huga okkar.
Við sendum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur til Gulla, Magga og
Rósu, einnig til systkina hennar og
annarra aðstandenda.
Saumaklúbburinn.
GUÐRÚN
MAGNÚSDÓTTIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
!
.
- 6,? '1-@8-
( A
6 4. '.
00 78
93
0233
8&
&
%) %&
&
- 6@B'-8-,''
.
-
(
09
"
& ( %' % :"
,
!
1
;;;C
%/5 DD
. 00
-
(
01
0::3
"
%
!9 4% !"";&33#
' *& ;&33#
<25/%) %%&
- !4;&33#
! % !""
* *( & * * *
;
%
@@8,-+
+&%%
@ 9)
! 6 4. (
02 %) !%%&
'9 ! !""
'9 ! %) % !""
%) %) %%&