Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 53
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 53
✝ SigurbjörnHansson fæddist
að Ytri-Tungu í
Breiðuvík 24. nóv-
ember 1919. Hann
lést á heimili sínu,
Selhóli á Hellis-
sandi, hinn 11. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Þóra Sigurbjörns-
dóttir og Hans
Bjarni Jensson. Sig-
urbjörn var næst-
yngstur sjö systk-
ina, Kristín, búsett í
Reykjavík, er ein
eftirlifandi.
Sigurbjörn kvæntist 30. júlí
1954 eftirlifandi eiginkonu sinni,
Önnu Magnúsdóttur, f. 30. októ-
ber 1926. Börn þeirra eru: 1)
Erla, maki Ársæll Ársælsson, 2)
Ágústa, maki Hjörvar Garðars-
son, 3) Guðbjartur,
maki Sigríður
Karlsdóttir, 4) Jens,
ókvæntur, 5) Þóra,
maki Jón Snæland,
6) Magnús, látinn, 7)
Guðbjörg, maki Æg-
ir Þórðarson, 8) Sig-
urpáll, maki Gréta
Hrönn Ebenesers-
dóttir, 9) Hans
Bjarni, maki Fjóla
Jóhannsdóttir, og
10) Anna Birna,
maki Björn Hall-
dórsson. Dóttir
Önnu er Guðfinna
Hjálmarsdóttir, maki Grímur
Ingólfsson. Afabörnin eru 48.
Sigurbjörn var lengst af
verkamaður og bóndi á Selhól.
Útför Sigurbjörns verður gerð
frá Ingjaldshólskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Er við sitjum og ritum þessar línur
að föður okkar látnum og minning-
arnar hrannast upp er svo margt sem
kemur í hugann og vandfundið hvað á
að segja. Hann fæddist í Ytri-Tungu í
Breiðuvík 24. nóvember 1919 og bjó
þar með foreldrum sínum til 1930 að
þau fluttust á Selhól. Oft minntist
hann á æskuárin sín í Tungu og hélt
alltaf tryggð við Breiðuvíkina og eru
óteljandi ferðirnar sem við fórum
með hann kringum jökulinn á æsku-
slóðirnar og rifjaði hann þá gjarnan
upp og sagði frá þeim tíma er hann
bjó þar. Er á Selhól var komið tók við
nýtt tímabil í lífi hans og átti hann
þar lögheimili til dauðadags í rúm 70
ár.
Ellefu ára gamall byrjaði hann að
róa með pabba sínum úr Keflavíkinni
og reri þaðan síðan sjálfur þegar
fram í sótti og enn síðar úr Krossa-
víkinni en alltaf setti hann trillurnar
sínar upp í Keflavíkurvör og hafði
þar uppi á kambinum yfir veturinn og
hélst sá háttur á þar til hann hætti að
gera út. Tíu sumur var hann á Siglu-
firði og jafnlangar vertíðir á Suður-
nesjum, ýmist í Keflavík eða Sand-
gerði, en reri heima vor og haust á
árunum 1940–1950. Í 28 ár vann hann
hjá Kristjáni Guðmundssyni uns
hann hætti að vinna 1994. Kristján og
fjölskylda hans reyndust honum frá-
bærlega alla tíð og hugsaði hann allt-
af hlýlega til þeirra. En Selhóll var
hans uppáhaldsstaður og þar var
hann, eins og hann sagði eitt sinn
sjálfur, smákóngur í ríki sínu. Þar
hafði hann allt sem hann óskaði sér;
góða konu sér við hlið og þar ólu þau
upp börnin sín, sem hann sagði að
væri þeirra mesta ríkidæmi, og alltaf
varð hann ríkari og ríkari eftir því
sem afabörnunum fjölgaði. En lítt
skeytti hann um veraldleg gæði sér
til handa. Hans hugsun var alltaf við
fjölskylduna.
Búskapurinn hefur alltaf verið
stór þáttur af lífinu á Selhóli en þar
naut hann sín sérstaklega, enda var
hann vel að sér í öllu er að búskap
laut og einstakur dýravinur. Hröfn-
unum gaf hann úti á Selhóli frá því að
við munum eftir okkur og til þessa
dags, sagði að þeir létu lömbin sín
vera á vorin, og reyndist svo vera.
Kom það aðeins einu sinni fyrir í
hans búskapartíð að hrafn fór í lamb
og sagði hann að það væru ekki sínir,
þeir gerðu ekki svona. Margar minn-
ingar eigum við frá því þegar við vor-
um að sýsla með honum í kringum
þetta og börnum okkar, sem voru
dugleg að hjálpa afa sínum, sérstak-
lega um sauðburðinn. Þá varð mörg
vísan til, enda var hann hagmæltur
þótt ekki flíkaði hann því og yrkis-
efnið gjarnan búskapurinn eða það
sem stóð honum næst í litla ríkinu
hans.
Réttardagurinn var alltaf stór
dagur í lífi hans og komum við þá
alltaf saman fjölskyldan, borðuðum
saman og sungum. Söng hann þá
gjarnan fyrir okkur lög sem voru
honum hugleikin, einnig texta eftir
sjálfan sig sem Ægir tengdasonur
hans hafði samið lög við, enda köll-
uðum við hann alltaf söngfuglinn
okkar og var hann söngmaður góður.
Um síðustu réttir, þegar við komum
saman og Hans Þór frændi okkar
spilaði á saxófóninn og Ægir á gít-
arinn, söng hann sem aldrei fyrr og
þá líkaði kalli lífið, en nú hefur hann
yfirgefið ríkið sitt, sáttur við Guð og
menn.
Veikindum sínum tók hann af
æðruleysi og lét aldrei bilbug á sér
finna, enda gríðarlega sterk sál og
vandaður maður. Síðustu dagana
sem hann lifði sat hann í rúmi sínu
umvafinn fjölskyldu sinni, söng fyrir
okkur og rifjaði upp gamla tíma.
Hann hélt fullri hugsun og virðuleik
fram í andlátið og gekk á móti Guði
sínum með þá einu hugsun sem hafði
einkennt hann allt sitt líf að fjölskyld-
unni hans liði vel.
Við þökkum þér pabbi okkar fyrir
allt og það ástríki sem þú alltaf sýnd-
ir okkur og biðjum Guð að styrkja
mömmu okkar, hún hefur misst mest.
Við látum hér fylgja vísu eftir þig
sem var þér kær:
Selhóll
Þú ert fagur hóllinn minn
og fjallahringurinn.
Feginn á ég hérna heima,
því um þig hafa legið
flest ævisporin mín
og erfitt er þér að gleyma.
Við vitum að þú vakir yfir okkur
eftir sem áður.
Guð varðveiti þig.
Fyrir hönd systkina okkar og fjöl-
skyldna okkar,
Hans Bjarni Sigurbjörnsson.
Elsku afi okkar.
Nú þegar þú ert farinn frá okkur
ríkir mikil sorg en við vitum að nú ert
þú á góðum stað þar sem þér líður
vel, hjá guði. Við höfum þig í hjarta
okkar og allar yndislegu minningarn-
ar. Þú varst okkur svo góður afi, fyrir
það viljum við þakka þér. Minning-
arnar sem aldrei gleymast eru t.d.
þegar heyskapur var og réttirnar og
þegar litlu lömbin komu, það var allt-
af svo gaman og allar yndislegu vís-
urnar þínar sem þú fórst með fyrir
okkur. Þó svo að við söknum þín
rosalega mikið vitum við að þú munt
alltaf vera hjá okkur. Við þökkum
einnig fyrir alla hlýjuna sem þú gafst
okkur og minningar þínar munum við
vel geyma, elsku afi okkar. Okkur
langaði að setja þessa vísu með sem
hann afi samdi fyrir elskulegu ömmu
okkar.
Ég mun alltaf minnast þín,
þú drottning minna drauma.
Þó degi færi að halla
og nóttin verður svört
og þegar aftur morgnar og lýsir
af nýjum degi þá vakna nýjar
vonir og þrá í brjósti mínu til þín.
Minning um góðan afa mun lifa í
hjarta okkar og við biðjum algóðan
guð að umvefja ömmu í hennar sára
söknuði.
Þín afabörn,
Agnes Ægisdóttir og
Sigþór Ægisson.
Elsku afi okkar!
Það er leiðinlegt að þú sért farinn
frá okkur, en við vitum að þér líður
vel núna því þú þarft ekki að vera
veikur lengur. Það var alltaf gaman
að koma til þín og ömmu á Selhól og
fá að fara með þér, afi, út í fjárhús að
gefa kindunum. Vorin voru alltaf sér-
stök og þú varst alltaf svo hrifinn af
vorinu, okkur fannst líka gaman að
vera hjá ykkur á vorin þegar litlu
lömbin voru að fæðast. Við vildum
heldur ekki missa af réttunum, þá
voru alltaf margir uppi á Selhól.
Þegar við vorum minni kenndir þú,
afi, okkur vísu sem þú gerðir sjálfur.
Litli skotti
Litli Skotti leikur sér
út um græna haga
hleypur eins og flugdreki
upp um fjöll og bala.
Góði Guð, passaðu hann afa og
hjálpaðu henni ömmu því hún hefur
misst svo mikið.
Bless afi.
Afabörnin að sunnan og
Andri Freyr í Danmörku.
Elsku afi minn, nú er lífsgöngu
þinni lokið og rifjast þá upp margar
dásamlegar minningar. Alltaf fannst
mér gaman að koma upp á Selhól og
heyra sögurnar þína og vísurnar. Á
réttunum fannst mér gaman að heyra
þig syngja þín uppáhalds lög. En á
réttunum, sauðburðinum og hey-
skapnum mun ég minnast þín mest
því þar á ég dásamlegar minningar
um þig. Ég vil þakka þér fyrir þennan
dásamlega tíma er ég hef í minningu
minni og megi guð styrkja hana
ömmu mína í gegnum þessa erfiðleika.
Guð varðveitir þig.
Þín
Rakel Magnea.
Elskulegi afi.
Nú eru tímamót í lífi okkar. Þú ert
farinn á þann stað sem þér líður vel á.
Við eigum yndislegar minningar um
heimsóknirnar okkar til ykkar ömmu
á Selhól. Við gleymum þér aldrei við
sláttinn með orfi og ljá, og við með
hrífurnar, eða í réttunum þegar öll
fjölskyldan er saman komin var alltaf
mikill söngur og gleði og þú söngst
fyrir okkur lögin þín fallegu sem við
munum geyma eins og gullin okkar.
Elsku amma, við biðjum algóðan
guð að styðja þig í sorginni og veita
þér styrk.
Álfhildur, Margrét og Ástþór.
SIGURBJÖRN
HANSSON
Það kom mér ekki
á óvart að heyra and-
lát þessarar vinkonu
minnar. Þrekið var þorrið þegar ég
kom síðast að beði hennar og hún
fagnaði umskiptunum eftir góðan og
annasaman dag. Ég ég var ekki búinn
að eiga lengi heima í Stykkishólmi
þegar ég kynntist Önnu og hennar
ágætu kostum og vandvirkni í hverju
sem henni var falið að gera. Og ég
man það svo vel úr félagslífinu hversu
gaman og gott var að starfa með
henni. Þar áttum við samleið í svo
mörgu, virtum hvort annað og hjálp-
uðumst að. Og alltaf var hún ráðgef-
andi um það sem betur mátti fara og
sérstaklega man ég hversu kristin-
dómurinn var henni kær. Hafði alist
upp við guðsótta og góða siði og sú
vöggugjöf entist henni alla ævi.
Hún vann lengi í bókhaldi hjá
Kaupfélaginu og var til þess tekið
hvernig allt það, sem hún gerði þar,
bar trúmennsku og vandvirkni vott.
Alvara lífsins var henni í blóð borin.
Ég man vel eftir heimili forreldra
hennar og hversu þær systur Guðríð-
ur og hún létu sér annt um að varð-
ANNA
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Anna Magnús-dóttir fæddist í
Stykkishólmi 9.
janúar 1909. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Drop-
laugarstöðum í
Reykjavík 4. mars
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Grensáskirkju
12. mars.
veita það og geyma góðar
minningar frá æskuárun-
um. Þá má líka minnast
þess hversu Anna hlúði að
og studdi kristniboðsfélag-
ið hér í bænum og var þar
starfandi af lífi og sál. Og
jafnvel eftir að hún flutti
suður héldust þau tengsl
vel við. Og þar var hlúð að
starfi áfram.
Þegar þær systur og
fjölskylda þeirra ákvað að
flytja suður til Reykjavík-
ur trúði ég því vart, mér
fannst að Hólmurinn væri
þeim svo rótgróinn að slíkt væri
óhugsanlegt. Þau voru svo vinamörg
hér. En þegar leið á árin kom líka í
ljós tryggð þeirra við staðinn okkar,
og heimsóknirnar með sól og sumaryl
í fararbroddi. Þá fann ég að þær
höfðu engu gleymt. Og gaman var að
fylgjast með komu þeirra og heim-
sóknum til gamalla vina og vanda-
manna. Þetta hlýjaði mörgum um
hjartað. Og alltaf komu þau fagnandi
til okkar hjóna meðan við héldum
heimili og eins eftir að ég færði mig
yfir á Dvalarheimilið. Þær stundir
gleymast ekki og nú vil ég þegar vegir
skiljast færa Önnu vinkonu minni
þakkir fyrir einlæga og trausta sam-
fylgd og ég veit að nú er hún að fagna
öllu því sem hún fórnaði kröftum sín-
um og með vissu um að Kristur er
skjól og skjöldur allra sem honum
treysta kveð ég hana og bið henni vel-
farnaðar á lífsins leiðum. Góður guð
varðveiti hana og blessi ástvini henn-
ar og styrki.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
+
.
%
+-, 61
+%D
)9
' !""
+%"5 % !""
+%"5 % !""
4%" +%"5 %%&
% !""
1 %,! %%&
/ % !""
$!%%&
& %9%")
8
- 6,
49/*!
+)%)!
1 (/
$%
93
0<33
8 #=
03:3
"
%.
8&
&
+%" & 2 %"% :"
+
!
%
!
67168+-- - 67 45 %% 2
* "E
4 4
"
(
&!
4.&
!""
- %%&
& 4: 4!)