Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 54

Morgunblaðið - 17.03.2001, Page 54
MINNINGAR 54 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jón Ólafssonfæddist í Eystra- Geldingaholti í Gnúpverjahreppi 15. október 1920. For- eldrar hans voru hjónin Ólafur Jóns- son, f. 22.2. 1888, d. 31.1. 1983, bóndi í Eystra-Geldinga- holti og Pálína Guð- mundsdóttir, f. 27.6. 1891, d. 28.9. 1978. Systur Jóns voru: Inga f, 1.12. 1921, gift Stefáni Björns- syni, f. 1.11. 1908, d. 1994, Guðrún, f. 25.7. 1924, d. 1980, gift Haraldi Pálmasyni, f. 26.1. 1932, d. 1986, og Hrefna, f. 30.10. 1927, d. 1994, gift Guð- mundi Sigurdórssyni, f. 5.9. 1921. Hinn 24. júní 1950 kvæntist Jón Margréti Eiríksdóttur, f. 12.12. 1925, frá Steinsholti. For- eldrar hennar voru Eiríkur Loftsson, f. 1.5. 1884, d. 1968, og kona hans Sigþrúður Sveinsdótt- ir, f. 10.5. 1885, d. 1977. Börn Jóns og Margrétar eru: Eiríkur, f. 25.3. 1951, Ólafur, f. 30.4. 1953, Árdís, f. 27.10. 1955, Sigrún, f. 21.11. 1958, maður hennar er Þorsteinn Guðmundsson, f. 27.11. 1952, sonur þeirra er Máni Sveinn, f. 8.10. 1998, og Sigþrúð- ur, f. 17.5. 1962, gift sr. Axel Árnasyni, f. 2.5. 1961, þeirra börn eru: Pálína, f. 12.2. 1991, og Jón Karl, f. 18.2. 1995. Jón ólst upp í Eystra-Geldinga- holti og hóf þar bú- skap 1950. Hann lauk búnaðarprófi frá bændaskólanum á Hólum 1945. Jón tók mikinn þátt í íþrótta- og leikstarf- semi á sínum yngri árum og starfaði mikið fyrir Ung- mennafélag Gnúpverja og var heiðursfélagi þess. Hann vann sem framkvæmdastjóri við bygg- ingu félagsheimilisins Árness og sat þar í húsnefnd. Þá tók hann virkan þátt í ýmsum félagsmál- um sveitar sinnar og sat í hrepps- nefnd um árabil. Jón átti sæti í Þjórsárveranefnd og var fulltrúi á fundum ýmissa félagasamtaka svo sem Sláturfélags Suðurlands og Kaupfélags Árnesinga. Jón starfaði innan bændasamtak- anna, sat sextán ár á Búnaðar- þingi og einnig voru honum falin margvísleg trúnaðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Suðurlandi. Útför Jóns fer fram frá Skál- holtskirkju í dag kl. 13.30. Jarð- sett verður á Stóra-Núpi. Sum atvik eru einstaklega happa- sæl í lífinu. Þannig reyndist það systkinum tveim úr Reykjavík þegar þau á bernskuárum fóru til sumar- dvalar í sveit og kynntust fjölskyld- unni í Eystra-Geldingaholti. Þau voru, vegna ótta við loftárásir á höf- uðstaðinn, falin í forsjá Ólafs bónda Jónssonar og konu hans Pálínu Guð- mundsdóttur. Er ekki að orðlengja það að Reykjavíkurbörnin bundust tryggðaböndum við þau Pálínu og Ólaf og börnin þeirra öll, eins og um einn systkinahóp væri að ræða. Þau dvöldu í Geldingaholti sumar eftir sumar frá sauðburði til rétta og aldr- ei hefur sú vinátta sem þarna var til stofnað fyrnst né á hana fallið. Það var reyndar snemma vitað, þótt ekki hafi það verið orsök þess að leitað var í Geldingaholt eftir sumardvöl fyrir börnin, að Ingunn móðir Ólafs bónda var hálfsystir Vigdísar í Mið- dal langömmu systkinanna svo um góð ættartengsl var að ræða. Þau voru og eru, sem eftir lifa, afkom- endur Eiríks Hafliðasonar í Vorsa- bæ á Skeiðum. Eystra-Geldingaholtssystkinin voru fjögur, þrjár systur, Inga, Guð- rún og Hrefna, og Jón þeirra elstur. Hann var um tvítugt þegar við sum- arbörnin komum fyrst í Geldinga- holt, föngulegur og einkar álitlegur ungur maður með fríðleika beggja foreldra sinna. Okkur krökkunum þótti mikið til hans koma. Hann var íþróttamaður og hljóp um velli á íþróttamótum við Ásaskóla, hann var góður hestamaður og átti Gulltopp, landsfrægan gæðing sem hann sat með reisn, hann var öllum hnútum kunnugur í Ungmennafélaginu og stjórnaði útreiðum inn í Þjórsárdal um helgar, hann var leikari í leiksýn- ingum félagsins á veturna og entist til umræðu fram á sumar og áður en varði var hann kominn í bændaskól- ann á Hólum og forframaður í bún- aðarfræðum með nýjungar í búskap- arháttum á takteinum. Alla tíð tileinkaði hann sér nýmæli á sviði landbúnaðar eins og sjá má á stór- býlinu Eystra-Geldingaholti, þar sem vélakosturinn bíður reiðbúinn bak við bæ, túnin stækka og búpen- ingurinn lítur upp úr gróskuríkri beitinni til Heklu eða yfir til Þríhyrn- ings og ráða má af rólegu fasi og góð- um holdum að honum líður fjarska vel. Þegar ég nú að leiðarlokum lít yfir æviferil Jóns í Geldingaholti kemur mér fyrst í hug hve mikill gæfumað- ur hann var og hve sjaldan hann mætti andstreymi á farsælum ferli. Hann eignaðist konuna sem átti hug hans frá því hann var ungur maður, Margréti Eiríksdóttur frá Steins- holti. Þau nutu samvista í gjöfulu hjónabandi í hálfa öld, eignuðust fimm mannvænleg og sómarík börn, Eirík, Ólaf, Árdísi, Sigrúnu og Sig- þrúði, og þrjú barnabörn, Pálínu, Jón Karl og Mána Svein. Hann var bændahöfðingi eins og þeir hafa bestir verið á Íslandi í gegnum aldir, afar félagslyndur og lá hvergi á liði sínu í margvíslegu félagsmálavafsti fyrir sveit sína, stéttarsamtök og stjórnmálaflokk. Hann var gestris- inn svo af bar með húsfreyju sinni, enda hefur oft verið margmennt og glatt á hjalla í Eystra-Geldingaholti á öllum tímum árs og af hinu minnsta tilefni og verður vafalaust enn um ókomna tíð. Það er aðal þess fólks sem þar mun halda uppi merki Jóns bónda. Í umræðum var hann kátur og glaðvær og afar fylginn sér, með fastmótaða skoðun á öllu milli himins og jarðar og hafði lúmskt gaman af að fleygja fram sjónarmiðum sínum í álitamálum. Það var ekkert áhlaupa- verk að rökræða við Jón í Geldinga- holti þegar hann var á öndverðum meiði. Þá var hann svo fastur fyrir að ekkert fékk haggað honum. Hann var afar litríkur persónuleiki. Um- hverfið er mun dauflegra að honum gengnum. Ég fæ seint fullþakkað að ég fékk á unglingsárum til hálfs að alast upp í Eystra-Geldingaholti og æ síðan hefur mér verið tekið þar eins og væri ég einn af heimamönnum, við trausta vináttu þriggja kynslóða þegar tímar hafa liðið fram. Á döpr- um stundum við þáttaskil dvelur hugurinn í samúð með fjölskyldunni. Ég minnist Jóns fóstbróður míns í Geldingaholti með virðingu og ein- lægri hlýju. Vigdís Finnbogadóttir. Það var erfitt að taka á móti þeirri frétt föstudaginn 9. mars sl. að hann Jón Ólafsson bóndi í Eystra-Geld- ingaholti hefði andast kvöldið áður, fimmtudaginn 8. mars. Ég vissi þó að heilsan var tæp og líkamsþróttur minnkandi. En hann hélt sér vel and- lega og fram að miðþorra, þegar ég heimsótti hann síðast heima, hafði hann ennþá sama áhugann fyrir kyn- bótastarfinu í búfjárræktinni og fyr- ir landsmálunum sem hann fylgdist vel með og best í sjónvarpinu. Fyrst varð mér hugsað til fjöl- skyldu hans, konu og barna, og hins stóra og fjölþætta búrekstrar, sem hann hafði borið svo mikla umhyggju fyrir. Ekkert var þó þar að óttast því að allt var þar í styrkum höndum samhentrar fjölskyldu. En það sem hly ti samt að verða erfitt að komast yfir var hið stóra skarð sem nú blasti við öllum heima í Geldingaholti, eftir hinn reynda og umhyggjusama heimilisföður, og fyrir sveitarfélagið og vini hans, að hans glöðu og góðu yfirvegunar á lausn hvers konar vanda væri ekki lengur að leita. En sem betur fer gróa sárin, og okkur sem fáum að lifa áfram ber að fagna yfir lífssigrum allra okkar samferðamanna, þegar þeir eru kall- aðir burt frá okkur, og jafnframt samhryggjast þeim, sem hefur ekki tekist að þola það sem á þá hefur ver- ið lagt, sem oft virðist eðlilegt, þar sem það er svo þungt að bera. Við Jón í Geldingaholti ólumst upp á bújörðum, sem lágu hlið við hlið, og síðar höfum við oft átt náið samstarf, svo að kunningsskapur hefur orðið mjög náinn, og samstarfið mjög gott, og erfitt að horfa fram á það, að nú sé því lokið. Mig minnir að ég hafi verið aðeins fimm ára gamall, þegar ég var fyrst sendur að Geldingaholti, og man ég ennþá, að ég áræddi ekki yfir bæj- argilið og settist því niður og hugsaði ráð mitt. Þá kom hlaupandi heiman frá bænum ung stúlka, sem reyndist vera yngsta dóttir hjónanna, Jóns gamla Ólafssonar og konu hans Ing- unnar Eiríksdóttur, Steinunn Jóns- dóttir, síðar húsfreyja í Skaftholti í 30 ár. Leiddi hún mig heim að bæn- um og man ég að mér var vel tekið í Eystra-Geldingaholti. Gömlu hjónin, sem ég hafði nú séð áður, voru þá orðin nokkuð við aldur, Jón 75 ára, fríðleiksmaður og bæði ræðinn og barngóður, og Ingunn 73 ára, skör- ungskona, enda átti hún til kjarna- fólks að telja, en hún var dótturdótt- ir Ófeigs ríka í Fjalli á Skeiðum. Í búskapartíð Jóns og Ingunnar hafði Eystra-Geldingaholtið stækkað úr snotru miðlungsbýli í stórbýli, þegar grannjörðin Hamrar fór í eyði og síð- an lögð undir Eystra-Geldingaholt. Árið 1919 hættu þau Jón og Ing- unn að búa og fengu jörðina syni sín- um Ólafi til ábúðar. Það sama ár kvæntist hann heitkonu sinni Pálínu Guðmundsdóttur frá Hólakoti í Hrunamannahreppi, mikilli mann- kostamanneskju og fríðleikskonu. Móðir hennar var Guðrún Brynjólfs- dóttir hreppstjóra á Sóleyjarbakka, en móðurmóðir hennar var Gróa Gísladóttir frá Hæli, mikil dugnaðar- kona, sem fædd var árið 1801. Fyrir mig 5 ára drenginn var þetta mikill viðburður að koma þarna á annan bæ, þar sem ég hitti margt fólk, og þarna var dekrað við mig með allslags góðgæti. En svo sá ég þarna lítið barn í vöggu, dreng, sem hafði fengið nafnið Jón eftir afa sínum, og ef allt færi vel yrði hann sennilega, þegar tímar liðu, fjórði bóndi þessarar ættar, sem tækist það mikla ábyrgðarstarf á hendur, að stýra hér búi og ala upp nýja kyn- slóð vaskra manna og kvenna. Á uppvaxtarárunum áttum við Jón ekki mjög náið samstarf, en viss- um þó báðir að við höfðum gaman af sauðfé og vorum taldir vel fjárglögg- ir og ætluðum okkur báðir örugglega að verða bændur. Það fór nú samt svo, að ég leiddist út í að fara svokall- aðan menntaveg, og um það leyti, sem ég fór utan til háskólanáms í bú- fræði, fór Jón í Geldingaholti í Bændaskóla og varð búfræðingur frá Hólaskóla á stríðsárunum. Það mun hafa verið um miðjan júlí 1945, sem ég kom heim að Hæli eftir langa útivist við nám og störf í Dan- mörku. Þá um kvöldið komu þrír ungir menn ríðandi að finna mig og var þar komin stjórn ungmenna- félagsins. Meðal þeirra var Jón í Geldingaholti og minnir mig að hann væri þá formaður félagsins. Erindi þeirra við mig var það, að færa mér að gjöf 500 krónur frá ungmenna- félaginu, þar sem ég væri trúlega blásnauður eftir dvölina hjá þýsku nasistunum í Danmörku í 7 ár. Þetta kemur upp í hugann þegar Jón er nú kvaddur. Ég man hvað ég hreifst af framkomu þessara ungu manna og einnig veitti ég því eftir- tekt að Jón var orðinn bráðmynd- arlegur maður, vel klæddur og með góða framkomu og á gullfallegum hesti og þar klæddi maður og hestur hvor annan. Jón hafði á þessum ár- um tekið mikinn þátt í félagsmálum í sveitinni. Hann var mjög virkur í ungmennafélaginu, tók mikinn þátt í leikstarfsemi félagsins og íþrótta- starfsemi þess. Þá hafði Jón mikið yndi af fjallferðum og þekkti orðið afréttinn manna best og leit á það sem hrein forréttindi að fara á fjall á haustin, velríðandi í glöðum hópi jafnaldra, og finna og koma til byggða fallegri hjörð, og þar á meðal uppáhaldsfénu sínu, og hann naut þess að gera áætlanir um ásetning glæsilegra ærefna og lambhrúta. Um skeið bar þó dimman skugga á fjárræktarstarfið, þar sem voru sauðfjárpestirnar, sem gerði sauð- fjárbúskapinn mjög erfiðan og arð- lítinn, og það leiddi til fjárskipta, sem heppnuðust fádæma vel. Við þau nutu sín vel hæfileikar Jóns sem fjármanns og hve hann var afburða glöggur í fjárvali. Við allt þetta fjár- skiptastarf áttum við Jón mjög far- sælt samstarf og get ég fullyrt að alla hans búskapartíð hefur hann stundað fjárrækt með miklum ár- angri, þannig að hið stóra fjárbú í Eystra-Geldingaholti hefur orðið kostameira með hverju árinu. Þegar ég hitti Jón síðast heima í Geldinga- holti sagði hann mér, að nú hefði hann í fyrsta sinn náð yfir 30 kg af kjöti að meðaltali eftir hverja á sem gekk með lambi. Heimili þeirra Ólafs Jónssonar og Pálínu Guðmundsdóttur var einstak- lega hlýtt og mótaðist af þeirri mildi og góðleika sem fylgdi Pálínu alla tíð, og svo var húsbóndinn einnig einstaklega tillitssamur og hollur húsbóndi. Það var alltaf margt fólk í heimili hjá þeim hjónum og sérstaklega var þar barnmargt, því að Pálína var svo barngóð að fyrir utan börn þeirra hjóna, sem voru fjögur, voru að jafn- aði nokkur sumarbörn til hjálpar við heimilisstörfin og öll börn vildu koma aftur að Geldingaholti eins lengi og aðstæður leyfðu. Eins var það með vinnufólkið, það vildi helst vera þar í fleiri ár, eða eins lengi og kostur var. Heimilið var því glatt og séð var til þess að enginn lítilmagni fyndi til smæðar sinnar. Jón Ólafsson mótaðist af þessu hlýja andrúmslofti á heimilinu og honum varð strax í æsku töm tillits- semi við allt sitt heimafólk og granna. Umsvif búsins í Eystra-Geldinga- holti jukust mjög á fimmta áratugn- um og nú fór Jón að nálgast þrítugt, en það var eins og ekkert lægi á með hjúskap, eins og þeir sögðu sem lítið þekktu til. Þeir sem kunnugir voru vissu, að Jón vildi ekki lifa lífinu nema með einni konu, yngstu dótt- urinni í Steinsholti, Margréti Eiríks- dóttur, og hún kynni vel að njóta æskunnar í föðurgarði og lá ekkert á. En árið 1950 gengu þau í hjónaband, þau Margrét og Jón, og þótti öllum sem til þekktu að mikið og gott jafn- ræði væri með þeim og góðar líkur á því að sú góða þróun fjölskyldnanna í Eystra-Geldingaholti myndi nú fá aukinn byr í seglin með komu Margrétar Eiríksdóttur frá Steins- holti að Eystra-Geldingaholti. Ungu hjónin hófu strax byggingu íbúðar- húss sambyggt gamla íbúðarhúsinu, sem var byggt árið 1913 en var rúm- gott og í góðu standi. Fjölskyldan stækkaði fljótt, fyrsta barnið Eiríkur fæddist árið 1951 og síðan fæddist þeim sonurinn Ólafur 1953 og á eftir fylgdu þrjár bráðmyndarlegar dæt- ur. Íbúðarhúsið var stækkað árið 1975 og um það leyti varð sonurinn Eiríkur þátttakandi í búrekstrinum. Dæturnar tvær eru giftar og hafa stofnað sín eigin heimili, en hin systkinin þrjú eru ógift og þátttak- endur í búrekstrinum í Eystra-Geld- ingaholti, en stunda nokkuð vinnu af ýmsu tagi utan heimilisins. Barna- börnin eru þrjú og öll efnileg og lík- leg til að erfa farsælar gáfur foreldra sinna. Eftir að börnin fóru að komast upp og Eiríkur varð þátttakandi í búrekstrinum voru umsvifin stór- aukin á jörðinni. Fyrst var byggt vandað fjárhús yfir 240 fjár og stór fjárhúshlaða og nú fyrir 10 árum var byggt 30 kúa fjós með mjaltahúsi og stórri þurrheyshlöðu og nú er verið að undirbúa að leggja niður síðustu beitarhúsin og innrétta fyrir sauðfé þurrheyshlöður, sem hafa misst sitt hlutverk. Ræktað land er nú nálægt 80 ha, en mjög auðvelt er að stækka túnin því í Eystra-Geldingaholti eru tugir ha af jafnlendum móum sem eru afbragðs túnefni. Búið hefur nú hin síðari ár skilað mjög góðum arði, enda hafa gripaval og kynbætur ver- ið stunduð af mikilli kostgæfni og fóðrun og umhirða verið til mikillar fyrirmyndar. Samhliða mikilli velgengni í bú- skapnum hlóðust á Jón margvísleg félagsstörf og sum þeirra nokkuð tímafrek. Þannig tók hann við starfi deildarstjóra Sláturfélags Suður- lands af föður sínum fyrir allmörgum árum og hefur hann einnig verið lengi í varastjórn félagsins og oft setið stjórnarfundi félagsins. Þá var Jón í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps í tvö kjörtímabil og formaður fjár- ræktarfélags Gnúpverja í áratugi. Árið 1978 var Jón kosinn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Búnaðarþing og þar var hann endurkosinn þrisvar sinnum og sat því samtals á 16 þing- um. Jón naut þess vel að taka þátt í störfum búnaðarþings og kynnast stéttarbræðrum sínum frá öllum landshlutum og lífsbaráttu sveita- fólksins um allt land. Þau hjónin Jón og Margrét voru mjög gestrisin og félagslynd og vin- mörg, og heim til þeirra að Geldinga- holti lögðu margir leið sína. Ég man ekki eftir því að þau hjónin teldu nokkurn annmarka á því að taka á móti hópum af gestum í mat eða kaffi þegar þeir áttu leið þar um og ein- hvern tíma hafði ég orð á því, að þau hefðu heilmikil útgjöld af öllum þess- um gestagangi. Jón sagði þá að þeir sem ættu arðsamt fjárbú hefðu bara gaman af að fá menn að steikarborði heimilisins eins oft og því yrði við- komið. Það er ánægjulegt að minnast þess, að Jóni Ólafssyni, sem í dag verður kvaddur af fjölda vina, sveit- unga og vandamanna, auðnaðist á sinni farsælu ævi að gera ábýlisjörð sína að höfuðbóli í vitund samferða- manna sinna, og hann var og verður í huga okkar mikilhæfur sveitarhöfð- ingi, sem er nú sárt saknað, og eig- inkonu og börnum sendar við brott- för hans hugheilar samúðarkveðjur og þakkir fyrir líf hans og störf. Hjalti Gestsson. Jón Ólafsson, bóndi í Eystra-Geld- ingaholti, er látinn. Þessi orð eru ljós og ættu því að vera vinum hans og samstarfsmönn- um auðskilin og það því fremur að þau eru ekki til komin án aðvörunar. Samt eigum við erfitt með að sætta okkur við þýðingu þeirra. Hann hafði um margra ára skeið barist við erf- iðan sjúkdóm sem hann, með ákveðnum lífsvilja og aðstoð fjöl- skyldu sinnar, hafði hamlað gegn svo að kunningjar hans og nágrannar höfðu vonað að honum auðnaðist að fá lengri tíma hérna megin móðunar miklu, sjálfum honum og vinum hans til ánægju og styrktar. Það varð ljóst strax á ungum aldri Jóns að honum lét vel að starfa að félagsmálum. Hann stundaði sjálfur frjálsar íþróttir af kappi og hvatti aðra til dáða í því efni. Á vegum Ung- mennafélags Gnúpverja starfaði hann fjölda ára, bæði í stjórn þess og lengi sem formaður, svo og þátttak- andi í almennu félagsstarfi þess, m.a. fundastarfsemi, ræðumennsku, á íþróttamótum bæði sem keppandi og síðar sem dómari og fréttamaður. Þá stundaði hann leiklistarstarf, mjög oft sem leikari með erfið viðfangs- efni og drifkraftur við þá starfsemi á öllum sviðum starfsins, undirbúning og val leikrita svo og æfingar og sýn- ingarnar sjálfar, jafnt þó hann væri ekki með hlutverk hverju sinni. En í ýmsu starfi öðru studdi hann að viðgangi Ungmennafélagsins. Tvívegis vann hann á þess vegum að byggingu húsa fyrir starfsemi þess. Fyrst þegar byggt var íþróttahús í samvinnu við sveitarstjórnina, hús sem Ungmennafélagið notaði fyrir samkomur sínar í full 30 ár. Það starf var aðallega fólgið í sjálfboðavinnu við ýmsa þætti verksins, svo sem steypuvinnu, efnisflutninga og fleira. Síðan kom Jón þar að verki, og af fullum krafti, þegar ráðist var í byggingu félagsheimilisins í Árnesi. Þá var hann í byggingarnefnd húss- JÓN ÓLAFSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.