Morgunblaðið - 17.03.2001, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 17.03.2001, Qupperneq 67
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 67 Staðardagskrá 21 – hvað er það? Staðar- dagskrá 21 er íslenskt heiti á Agenda 21 sem á rætur að rekja til umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna er haldin var í Rio de Janeiro árið 1992 og markar stefnu um sjálfbæra þróun á 21. öld. Þar undirrituðu 181 ríki, þar á meðal Ísland, ályktun um markmið og leiðir til að viðhalda umhverfis- gæðum heimsins með sjálfbærri þróun, en sjálfbær þróun er skilgreind sem þróun er uppfyllir þarfir okkar í dag án þess að gengið sé á þann höf- uðstól sem núverandi kynslóðir hafa handa á milli og þurfa að skila óskertum til næstu kynslóða. Stað- hættir eru eðli málsins samkvæmt ekki hinir sömu á mismunandi jarð- arsvæðum en sameiginleg forsenda Staðardagskrár 21 er áherslan á heilbrigt samfélag með tilliti til vist- fræðilegra, félagslegra og efna- hagslegra þátta. Staðardagskrár hafa nú þegar verið samþykktar víða og eru óðum að koma til fram- kvæmda. 15. febrúar sl. samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur sam- hljóða og án umræðu Staðardag- skrá 21 fyrir Reykjavík. Þar er m.a. vakin athygli á ýmsu sem taka þarf á varðandi umferðina, s.s. eldsneyt- isnotkun, mengun frá umferð og slysahættu. Eins og við vitum öll er bílanotk- un síst á undanhaldi hér og því fleiri kílómetrar sem eknir eru þeim mun meiri verða neikvæðar afleiðingar með tilliti til umferðar og efnahags. Samkvæmt nýrri út- tekt á vegum Samtaka um betri byggð á höf- uðborgarsvæðinu á beinum kostnaði sem samfélagið hefur af bílaflotanum á höfuð- borgarsvæðinu nú nemur hann um 65 milljörðum á ári. Þeg- ar óbeinn kostnaður bætist við, s.s. vegna helstu umhverfisþátta, loft- og hljóðmengunar og tíma ökumanna og farþega sem varið er til ferðalaga, er heild- arkostnaður áætlaður um 100 milljarðar á ári. Viðfangsefnið hér er því að leita leiða til að draga úr akstursþörf íbúanna. Það horfir hins vegar ekki vænlega í þessum efnum því sam- kvæmt niðurstöðum skipulagsvinnu sem nú fer fram við svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið er áætlað að akstur á hvern íbúa á höfuðborg- arsvæðinu aukist um 15% á skipu- lagstímabilinu vegna sífelldrar út- þenslu byggðarinnar. Það er í þessu sambandi, meðal annars, sem flugvallarsvæðið í Vatnsmýrinni kemur inn í um- ræðuna sem óhemjumikilvægt byggingarland. Vatnsmýrin er ná- lægt þungamiðju höfuðborgarsvæð- isins. Með því að reisa blandaða byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis á flugvallarsvæðinu er hægt að draga verulega úr þessari umferð- araukningu. Ef byggt er á flugvallarsvæðinu fjölgar þeim sem geta búið nálægt vinnustað og þjónustu og þar með verður akstursþörfin ekki eins mik- il. Þessu er aftur á móti öfugt farið er valin eru byggingarsvæði sem sí- fellt verða fjarlægari þungamiðju byggðarinnar. Byggð á flugvallarsvæðinu er því í anda Staðardagskrár 21 sem allir borgarfulltrúar Reykjavíkur, hvar í flokki sem þeir standa, samþykktu umyrðalaust 15. febrúar sl. Vatnsmýrin og Staðardagskrá 21 Guðrún Jónsdóttir Höfundur er arkitekt, FAÍ og fé- lagi í Skipulagsfræðingafélagi Ísl. Flugvöllur Byggð á flugvallarsvæð- inu, segir Guðrún Jóns- dóttir, er því í anda Staðardagskrár 21. Á HEIMASÍÐU Reykjavíkurborgar er að finna starfsmanna- stefnu borgarinnar. Þar er kveðið á um að það sé „stefna Reykja- víkurborgar að sem hæfastir starfsmenn verði ávallt ráðnir til starfa hjá borginni“ og tekið verði „meira tillit til ábyrgðar, frammi- stöðu og árangurs við ákvörðun kjara til að geta laðað að og haldið sem hæfustu starfs- fólki“. Stefna borgarinnar í starfsmannamálum er á margan hátt góð og göfug. Þó kann mörgum að finnast hún óraunsæ ef litið er til kjaramála starfsmanna borgarinnar en þau eru oft á tíðum á engan hátt samkeppnishæf við þau kjör sem einkafyrirtæki bjóða, og hallar þá á Reykja- víkurborg í því máli. Það er öllum ljóst að hið opinbera er í sam- keppni um vinnuafl við einkafyrirtæki og því má ætla að hæfustu starfsmennirnir fari frekar til þeirra sem bjóða betur. Þegar kjarasamn- ingar starfsmanna Reykjavíkurborgar runnu út 31. október sl. hafði borgin möguleika á að leiðrétta það stóra gap í kjaramálum sem orðið hefur til á undanförnum árum á milli hins opinbera og einka- fyrirtækja. En með samningum sem undirritaðir voru þann 2. mars sl. virðist það tækifæri hafa runnið úr greipum. Samningurinn hljóðar upp á 3% launahækkun frá 1. janúar 2001 auk launaflokkahækkana og síðan 3% launahækkun árlega til ársins 2005. Það er ljóst að slíkir samningar verða ekki til að laða að eða halda í hæfasta starfsfólkið hjá Reykjavík- urborg. Er starfsmanna- stefna Reykjavík- urborgar raunsæ? Njörður Sigurðsson Höfundur er skjalavörður á Borg- arskjalasafni Reykjavíkur. Kjör Hæfustu starfsmenn- irnir, segir Njörður Sig- urðsson, fara frekar til þeirra sem bjóða betur. ÞAU voru bráðfynd- in rökin, sem mennta- málaráðherra lét hafa eftir sér einhvern tíma fyrir því, að gera ætti Ríkisútvarpið að hluta- félagi. Honum þótti rétt að fara að tillögum æðstu stjórnenda stofnunarinnar. Þetta væri það, sem þeir vildu. Þessi röksemd verður einkar spaugi- leg, þegar þess er gætt, að allir æðstu stjórnendur útvarpsins eru annað hvort skip- aðir af núverandi menntamálaráðherra eða fyrirrenn- ara hans úr Sjálfstæðisflokki í stóli ráðherrans. Því er fráleitt að svo dyggir þjónar hans leggi annað til í þessum efnum en það, sem ráð- herrann vill. Því er þetta hér rifjað upp, að nú hefur einn fyrrverandi menntamála- ráðherra úr Sjálfstæðisflokki, Sverrir Hermannsson, flutt í Alþingi tillögu til þingsályktunar einmitt um þetta efni. Greinargerðin með tillögu Sverris felur í sér heildstæða, nýja stefnu um skipan og rekstur ríkisútvarps. Þar er hugmyndinni um Ríkisútvarpið sem hlutafélag algerlega hafnað með gildum rökum. Raunar er hug- myndum um sölu rásar 2, sem stundum hafa komið upp í um- ræðunni, einnig hafnað og þá ekki síst til að geta haldið áfram því landshlutaútvarpi, sem orðið hefur vinsæll vettvangur fyrir Vest- firðinga, Austfirðinga og Norðlendinga sam- hliða því sem kraftar fólks á þeim slóðum hafa verið í vaxandi mæli virkjaðir til almennrar dagskrár- gerðar. Þetta hefur því verið óvenju- legt dæmi um flutning verkefna út á landsbyggðina af höfuðborgarsvæð- inu. Þessarar þingsályktunartillögu hefur mér vitanlega aðeins einu sinni verið getið í útvarpinu og þá í fjögurfréttum síðdegis og án þess að segja neitt um efni hennar. Ókunn- ugum hefði þótt þetta vera tilefni til meiri fréttaflutnings útvarps, en væntanlega ætlar fréttamaðurinn að láta þá umræðu bíða þess, að til- lagan komist á dagskrá, ef það þá gerist eins og forgangsröðun þing- mála er hagað. Morgunblaðið gerði tillögunni hins vegar mjög greinar- góð skil. Þessi grein er ætluð til þess eins að vekja athygli á því, að í þessu þingmáli hefur Frjálslyndi flokkur- inn einn flokka markað skýra stefnu í mikilsverðu máli, sem varðar alla landsmenn. Málefnið er nógu af- markað til að fámennur flokkur með aðeins tvo þingmenn og litla fjár- hagsburði getur tekið það til úr- vinnslu og ákvörðunar. Ýmis brota- meiri og flóknari mál eru aðstæðum flokksins skiljanlega ofviða til vinnslu frá grunni, þótt mér sé kunnugt um, að viljann skorti ekki. Hér að lokum er skorað á frétta- stofur og dagskrárgerðarfólk út- varpsins að gera góða grein fyrir þessu þingmáli, sem einmitt varðar málefni þess og tilveru. Ástæður til slíkrar umfjöllunar eru þeim mun brýnni sem vitað er, að skoðanir flutningsmanns tillögunnar ríma ekki saman við viðhorf æðstu stjórn- ar Ríkisútvarpsins. Fyrir þá, sem áhuga hafa og jafnframt aðgang að netinu, er tillöguna og greinargerð að finna á heimasíðu Frjálslynda flokksins: www.xf.is. Annað áhuga- fólk getur leitað til skjalavörslu Al- þingis eftir eintaki af tillögunni. Um Ríkisútvarpið Jón Sigurðsson Tillaga Fráleitt er að svo dyggir þjónar menntamálaráð- herra, segir Jón Sig- urðsson, leggi annað til í þessum efnum en það, sem ráðherrann vill. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.