Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 78

Morgunblaðið - 17.03.2001, Side 78
78 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                       BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞEGAR rætt er um tilveru Reykja- víkurflugvallar virðast menn oft gleyma að lesa sér aðeins til og skoða staðreyndir. Tómas Ingi Olrich al- þingismaður skrifar í Mbl. þ. 15.03. ’01 á þann veg að bersýnilegt er að hann gerir þetta ekki. Auðvitað geta menn gleymt sér í hita leiksins en samt verður að gæta sín að rugla fólk ekki í ríminu. Það verður að vera hægt að treysta alþingismönnum. Ferðaþjónusta: Það er staðreynd að ferðaþjónusta er vaxandi atvinnu- grein og verður, að mati hinna mæt- ustu manna, sú sem veita mun flest- um vinnu á næstu tveim til þrem áratugum. Það er allavega mat Fé- lags háskólamenntaðra ferðamála- fræðinga. Þeir telja að á þessu tíma- bili komist fjöldi erlendra ferðamanna upp í milljón og að 95% þeirra komi til þess að njóta íslenskrar náttúru. Það er hins vegar staðreynd að einungis innan við 15% þeirra ferðamanna, sem komu til landsins í fyrra, notuðu sér innanlandsflugið. Það er einnig staðreynd að frá árinu 1996 hefur hótelnýting í Reykjavík batnað úr 63% í 71% en úti á landsbyggðinni minnkað úr 43% niður í 36%. Þetta kemur til af því að farþegar í millilandaflugi, sem ætla að fara út á land gista í langflestum til- vikum a.m.k. eina nótt í Reykjavík. Ef innanlandsflugið væri flutt til Kefla- víkurflugvallar, myndi það efla ferða- þjónustuna úti á landsbyggðinni, vegna þess að þá væri hægt að tengja flugin til og frá landinu og innanlands. Sjúkraflug: Vissulega er gott að vera stutt frá sjúkrastofnun, þegar komið er með sjúklinga í flugi. Það er samt staðreynd að það er mun meiri notkun á þyrlum til þeirra nota og þær geta lent á spítalanum í Fossvogi. Flugleiðir hafa tilkynnt að nú verði lagt niður innanlandsflugið, vegna þess að það borgar sig ekki. Varla er það núverandi staðsetningu Reykja- víkurflugvallar að kenna? Með flutn- ingi flugvallarins úr Vatnsmýrinni, til Keflavíkurflugvallar, er miklu styttra í næstu sjúkrastofnanir og þar er hið hæfasta fólk, bæði á vellinum sjálfum og líka á Sjúkrahúsi Suðurnesja. Vissulega er mun skynsamlegra að efla sjúkraflug með þyrlum og það er hið eina rétta í sambandi við allt björgunarflug. Það krefst ekki stórra eða langra flugbrauta. Atvinnumál: Það er staðreynd að eitthvað af störfum koma til með að flytjast til Reykjanesbæjar og er ekk- ert nema gott um það að segja. Vissu- lega hlýtur að vera eitthvað að marka kosningahjal alþingismanna, um að efla þurfi atvinnu á landsbyggðinni, eða hvað? Aftur á móti, verður til margfalt meiri atvinna við uppbygg- ingu í Vatnsmýrinni. Ef innanlands- flug Flugleiða leggst niður verður nú ekki um auðugan garð að gresja í at- vinnumálum Reykjavíkurflugvallar. Leikföng misríkra einstaklinga, skapa enga atvinnu nema handa þeim sjálfum og er það í góðu lagi en lands- menn eiga ekki að borga lagningu flugbrauta fyrir þá. Innanlandsflug: Eins og ég sagði fyrr ætla Flugleiðir að leggja niður innanlandsflug sitt, þetta hefur staðið til lengi enda hefur stórdregið úr allri þjónustu við landsbyggðina. Þetta borgar sig hreinlega ekki lengur. Með því að flytja innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar, myndi það eflast að miklum mun og styrkja alla ferðamennsku, bæði úti á landi og líka í Reykjavík. Tengingu við millilanda- flugið hefur vantað í ferðamennskuna og þarna gefst kostur á að vinna að því næstu 15 árin og auðvitað verður það gert. Samgönguráðherra hefur á afgerandi hátt sagt að þar verði fram- tíðarvallarstæði innanlandsflugsins og er ekki hægt annað en styðja þá til- lögu hans heilshugar enda er hún afar snjöll framtíðarsýn og laus við alla tímaskekkju. Reykjavíkurflugvöllur var ágætur til síns brúks, en hann hef- ur þjónað sínum tilgangi. Vissulega má segja að með því að flytja hann til Reykjanesbæjar verði höfuðborgin líka flutt þangað en hún gerir það hvort sem er á næstu áratugum. Það er kallað þróun og hún hefur stuðlað að vexti alls höfuðborgarsvæðisins og sama hvað við segjum eða gerum, hún verður ekki stöðvuð. ÆGIR GEIRDAL listamaður. Framtíðarsýn Frá Ægi Geirdal: MAÐUR á Nýja-Sjálandi leitar bróð- ur síns sem hugsanlega gæti bjargað lífi systur þeirra, en bróðirinn lét síð- ast vita af sér á Íslandi fyrir um það bil sex árum. Systirin þjáist af hvít- blæði og talið er hugsanlegt að bein- mergur úr bróður hennar gæti hjálp- að við læknismeðferð. Rauði kross Íslands biður Lance Eric Neill eða aðra sem vita um ferðir hans að hafa samband í síma 570-4000 eða við netfangið central@redcross.is Fjölskylda Neills bað um að grennslast yrði fyrir um hann í gegn- um leitarþjónustu Rauða krossins og hafa Rauða krossfélögin á Nýja-Sjá- landi og Íslandi milligöngu um málið. Neill, sem er fæddur 27. mars 1944 í Kurow, Otago, á Nýja-Sjálandi, hvarf sjónum ættingja sinna fyrir um þrjátíu árum. Samkvæmt upplýsing- um ættingjanna barst kort frá honum um jólaleytið 1994 „sem gaf til kynna að hann væri að vinna við olíuvinnslu á Íslandi“ eins og stendur í leitar- beiðni. Systir Lance Eric Neill heitir Rhonda og býr í Perth í Ástralíu. Ekki hefur reynst unnt að nota bein- merg úr hinum systkinum hennar en hún greindist með hvítblæði í des- ember 1996. Neill mun hafa unnið á olíuborpalli við Saudi-Arabíu fyrir um þrjátíu ár- um en fjölskylda hans heyrði í honum frá Majorka árið 1979. Ef einhver kannast við Neill og getur haft sam- band við hann er sá hinn sami beðinn að hafa samband við Rauða krossinn eða láta Neill vita af leitinni að honum og ástæður fyrir henni. ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, upplýsingafulltrúi Rauða krossins. Leitað að Lance Eric Neill frá Nýja-Sjálandi Frá Þóri Guðmundssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.