Morgunblaðið - 17.03.2001, Blaðsíða 83
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 83
Næg bílastæði
spila frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Útgá fu tón le i ka r
EGILS ÓLAFSSONAR
verða í Salnum Kópavogi,
mánudaginn 19. mars kl. 20.30
vegna útkomu nýrrar geislaplötu
„Angelus novus“.
Hljóðfæraleikarar: Guðmundur Pétursson,
Eyþór Gunnarsson, Kristjana Stefánsdóttir,
Mattías Hemstock, Haraldur Þorsteinsson,
Stefán S. Stefánsson.
Forsala aðgöngumiða er í verslunum
Skífunnar, Laugavegi 26 og Kringlunni
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur hefur
aldrei verið fjölmennari, og aldrei
verið betri að sögn stjórnandans Lár-
usar Halldórs Grímssonar. Enda er
það löngu liðin tíð að lúðrasveitir leiki
bara Öxar við ána og marseri um
borg og bý. Verkefnin eru fjölbreytt
og skemmtileg einsog best kemur í
ljós í dag þegar Lúðrasveit Reykja-
víkur heldur stórtónleika í Neskirkju
kl. 16.
Fjórir færir söngvarar
Lúðrasveit Reykjavíkur er eitt
elsta tónlistarbatterí á landinu, en
hún verður 80 ára á næsta ári og
Hljómskálinn einnig árið eftir. Hann
er eina húsið sem hefur verið byggt
sérstaklega í kringum tónlist þar til
Salurinn kom. Það var líka þröngt á
þingi í Hljómskálanum þegar blaða-
maður leit inn á æfingu. Þar sátu 40–
50 hljóðfæraleikarar á öllum aldri
auk fjögurra af hæfustu söngvurum
þjóðarinnar sem ætla að leggja sveit-
inni lið í dag, þau Egill Ólafsson, Guð-
björn Guðbjörnsson, Margrét Eir og
Andrea Gylfadóttir.
„Þetta er mjög skemmtileg söng-
leikjadagskrá sem hefur verið sett
saman og við syngjum,“ útskýrir
Andrea á meðan Egill æfir „But Not
for Me“ eftir þá George og Ira Gersh-
win.
Andrea er ekki alls óvön að syngja
með lúðrasveit, því hún hefur áður
sungið með Skólalúðrasveit vestur-
bæjar. Í dag syngur hún lögin „Put
On A Happy Face“ úr söngleiknum
Bye Bye Birdy, „They Can’t Take
That Away From Me“ eftir fyrr-
nefnda Gershwin-bræður, Billie Holi-
day lagið „God Bless The Child“ og
„If My Friends Could See Me Now“
úr söngleiknum Sweet Charity.
„Við syngjum öll nokkur lög ein og
síðan syngjum við saman mjög
skemmtilega syrpu sem kallast Irv-
ing Berlin’s America. Þar eru öll
möguleg lög einsog „There’s No Bus-
iness Like Showbusiness“, „Puttin’
On The Ritz“ og mörg önnur lög sem
fólk þekkir mjög vel. Við syngjum
syrpuna ýmist fjórraddað eða öll
saman. Það er mjög gaman,“ segir
Andrea.
Stórsveitarlykt í loftinu
Í hléi næst tangarhald á Lárusi
stjórnanda til að forvitnast hvað komi
til að Lúðrasveitin standi fyrir stór-
tónleikum.
„Mér fannst vera kominn tími á
það að gera eitthvað virkilega spenn-
andi. Það er ekki auðvelt að finna út-
setningar fyrir söngvara og lúðra-
sveit þó það sé til nóg af útsetningum
fyrir stórsveitir.
– Hver er munurinn?
„Lúðrasveitin hefur mun stærri
hljóm, fer meira út í að vera sinfón-
ískt band þar sem við erum með pák-
ur, margar flautur, mörg klarinett.
En sá sem útsetti flest laganna er
frægur stórsveitarútsetjari, svo það
er svona stórsveitarlykt af þessu,“
segir Lárus og glottir.
– Er það sérstakt fyrir lúðrasveit?
„Fólk heldur að lúðrasveitir spili
bara marsa, en á tónleikum leikum
við mikið konserttónlist, klassískt
tónverk og kvikmyndatónlist. Þetta
er allt til í lúðrasveitarútgáfu. Ég er
hlynntur því að brjóta þetta upp, fá
söngvara til liðs við okkur, og á af-
mælisárinu verðum við með kóra með
okkur og píanista í einu verkinu, og
núna alla þessa toppsöngvara.“
Mjög áheyrileg hljómsveit
– Og verða bara einir tónleikar?
„Ég sé alveg að það megi endur-
taka þessa tónleika. Við byrjum á
þessum og ef verður húsfyllir þá
kannski endurtökum við þá,“ segir
Lárus og stillir sér aftur fyrir framan
hópinn sinn.
„Þetta er mjög létt og skemmtilegt
og frábært að hlusta á fólk á öllum
aldri spila sama,“ segir Andrea. „Ég
veit ekki hvað sá yngsti er gamall, níu
ára held ég, og elsti sjötugur eða
meira. Það er mjög breiður aldur í
þessari hljómsveit, og hún er mjög
áheyrileg. Ég held að fólk sé ekki
vant því að heyra þessa tegund tón-
listar frá þessu bandi. Það er ekki oft
sem það eru haldnir svona tónleikar
hjá Lúðrasveit Reykjavíkur.“
– Þannig að þetta er upplagt tæki-
færi ...
„Ja, ég myndi halda það. Þarna eru
toppsöngvarar og gott band og lög
sem allir þekkja í skemmtilegum út-
setningum,“ segir stórsöngkonan að
lokum.
Morgunblaðið/Ásdís
Blásið og sungið undir stjórn Lárusar.
Gull-
barkar
og brass
Stjörnum prýddir stórtónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur