Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
INGIBJÖRG Pálmadóttir gaf í gær út reglugerð
um lyfjavottorð ferðamanna vegna gildistöku
Schengen-samkomulagsins 25. mars. Schengen-
samningurinn kveður á um að þeir sem flytja með
sér ávanabindandi lyf og geðvirk efni vegna lækn-
ismeðferðar til annarra Schengen-landa þurfi að
geta framvísað staðfestu vottorði.
Sárafáir þurfa á vottorði að halda
Ingolf Petersen, skrifstofustjóri lyfjamáladeild-
ar heilbrigðisráðuneytisins, segir að um sárafá lyf
sé að ræða og skv. reglugerðinni þurfi ferðamenn
eingöngu að útvega sér slík vottorð ef þeir hafi
með sér lyf sem innihalda mikilvirk ávanabindandi
eða geðvirk efni, s.s. morfín og amfetamín.
„Það má væntanlega telja þá sjúklinga á fingr-
um annarrar handar sem eru á þessum lyfjum og
þurfa á þessu vottorði að halda er þeir fara utan til
langdvalar,“ segir hann.
Að sögn heilbrigðisráðherra er reglugerðin í
samræmi við reglur sem settar hafa verið um
framkvæmd þessa ákvæðis Schengen-samnings-
ins á öðrum Norðurlöndum.
Ingolf segir að fram að þessu hafi allir sem
ferðast til annarra landa þurft að geta sýnt fram á
að þau lyf sem þeir hafa með sér í farteskinu séu til
eigin nota og þeim hafi verið ávísað á löglegan hátt
af lækni, þó ekki hafi verið gefin út sérstök vottorð
vegna þessa. „Með Schengen breytist þetta. Menn
mega hafa þessi sterku lyf með sér til 30 daga
notkunar ef þeir eru með búsetu á Schengen-
svæðinu en þeir sem eru utan Schengen-svæðisins
þurfa að uppfylla samskonar skilyrði en fá ein-
ungis leyfi til að hafa lyfin með sér til 14 daga
notkunar,“ segir hann.
Stefnt er að því að þeir sem þurfa á vottorðum
að halda geti fengið þau í því apóteki sem afgreiðir
viðkomandi lyfseðla. Aðspurður hvort sjúklingar
þurfi að greiða fyrir lyfjavottorðin segir Ingolf
markmið ráðuneytisins að þau verði afhent endur-
gjaldslaust, en ekki sé þó búið að ganga frá því „Að
óbreyttum reglum veit ég ekki hvað læknar munu
taka fyrir að skrifa upp á svona, en það er mark-
mið okkar að þessi vottorð verði endurgjaldslaus,“
sagði hann.
Heilbrigðisráðherra gefur út reglugerð vegna Schengen
Lyfjavottorð vegna mikil-
virkra ávanabindandi lyfja
Íslendingar ætla að
skora mörk í Búlgaríu /B1
Vala Flosadóttir
fer til Houston /B1
4 SÍÐUR20 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
Morgunblaðinu
í dag fylgir
blaðauki um
fermingar
EFTIR óvænt veðraskipti í fyrra-
dag breyttist ásjóna blómabeða víða
á höfuðborgarsvæðinu þegar nýfall-
inn snjórinn lagðist yfir beðin svo
úr varð falleg litasamsetning snjóv-
ar og nýuppkominna grænna blaða
ýmissa lauka. Í beðunum við gamla
kirkjugarðinn við Aðalstræti, sem
einnig hefur gengið undir nafninu
Fógetagarður, voru páskaliljurnar
varla fyrr komnar upp úr moldinni
en fór að snjóa á fimmtudagskvöld.
Að sögn Jóhanns Pálssonar garð-
yrkjustjóra Reykjavíkur hefur
snjórinn síst slæm áhrif á blómin,
enda eru þau harðgerð og geta jafn-
vel haft gott af snjónum. „Páskalilj-
urnar eiga það til að hrekjast svolít-
ið ef þær eru komnar langt á leið ef
kólnar, en það er mjög sjaldgæft,“
segir Jóhann. „Þær þola smákulda-
kast eftir að þær eru komnar af stað
og það kom þeim reyndar vel að það
skyldi fara að snjóa núna. Fram-
undan er frost og þá nýtur moldin
góðs af þeirri kuldahlíf sem snjór-
inn er. Það sem fer verst með gróð-
ur er mikið sólfar að degi til og mik-
ið næturfrost. Plönturnar fara að
anda í sólinni sem kallar á vatns-
upptöku, sem er mjög erfið þegar
jörð er frosin. Þess vegna kemur
snjórinn plöntunum að góðu gagni
við að hlífa jörð gegn frostinu.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Páskaliljurnar njóta
góðs af snjónum
Stefnt að lýsingu
á Hellisheiði
fyrir áramót
UNDIRBÚNINGUR er hafinn að
breikkun og lýsingu Suðurlands-
vegar um Hellisheiði og Þrengsli.
Gangi allur undirbúningur eftir
verður framkvæmdum við lýsingu
vegarins lokið fyrir áramót. Þetta
kom meðal annars fram í máli Árna
Johnsen, 1. þingmanns Suðurlands
og formanns samgöngunefndar,
þegar hann ávarpaði aðalfund Sam-
taka sveitarfélaga á Suðurlandi eft-
ir hádegið í gær.
Byrjað verður á því að breikka
veginn í brekkum og síðan tengt á
milli þeirra þannig að vegurinn
verður þrjár akreinar. Einnig er
hafinn undirbúningur að lagfæring-
um á Þrengslavegamótunum í
Svínahrauni.
Árni sagði að unnið væri að und-
irbúningi þess að framkvæmdir við
lýsingu vegarins um Hellisheiði og
Þrengsli gætu hafist á þessu ári.
Kostnaður við lýsingu nemur 280
milljónum króna og sagði Árni að
unnið væri að fjármögnun fram-
kvæmdanna í samstarfi við sveit-
arfélögin Árborg, Ölfus og Hvera-
gerðisbæ. Auk þess væri Orkuveita
Reykjavíkur inni í þessum undir-
búningi. Um yrði að ræða svokall-
aða flýtiframkvæmd þar sem verk-
efnið væri ekki komið á
vegaáætlun. Lán yrði tekið til fram-
kvæmdanna ef af yrði og bæru
sveitarfélögin vextina.
„Ef allt gengur að óskum má
vænta þess að lýsingu verði lokið
fyrir áramót,“ sagði Árni Johnsen.
Hann sagði einnig að þátttaka
sveitarfélaganna og Orkuveitunnar
væri lykilatriði og ennfremur að
mikill áhugi væri fyrir þessari
framkvæmd um breikkun og lýs-
ingu.
Það sýndu um sex þúsund undir-
skriftir á Suðurlandi sem skilað
hefði verið til samgönguráðherra
um þessar vegabætur á Suður-
landsvegi um Hellisheiði.
Árni Johnsen, formaður
samgöngunefndar Alþingis
Undirbúa kvíaeldi
í Fáskrúðsfirði
LAXELDISFYRIRTÆKIÐ Salar
Islandica, tilkynnti í gær til Skipu-
lagsstofnunar framkvæmdir vegna
sjókvíaeldis í Fáskrúðsfirði. Mun
skipulagsstjóri taka ákvörðun um
hvort framkvæmdirnar verði látnar
sæta mati á umhverfisáhrifum.
Í Fáskrúðsfirði er fyrirhugað lax-
eldi í tveim 3 þúsund tonna kvía-
þyrpingum sem gefa af sér 8 þúsund
tonna ársframleiðslu. Reiknað er
með að kvíaeldið skapi 20 störf og
ráðgert að hefja framkvæmdir sem
fyrst.
Salar Islandica hefur þegar fengið
starfs- og rekstrarleyfi fyrir 8 þús-
und tonna ársframleiðslu af kyn-
bættum laxi í Berufirði.
Tveir harðir
árekstrar í
Norðurárdal
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar slasað-
ist alvarlega þegar bíll hans skall
framan á snjóruðningstæki á Vest-
urlandsvegi til móts við Grafarkot í
Norðurárdal um kl. 15.40 í gær. Þá
voru tveir fluttir á sjúkrahús eftir
annan harðan árekstur við Kolás um
klukkan 22 í gærkvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi þurfti að beita
klippum til að ná ökumanninum út úr
bifreiðinni í fyrri árekstrinum. Hann
hélt meðvitund allan tímann. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var kölluð út
og flutti hún manninn á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
Fossvogi.
Að sögn lögreglu eru tildrög slyss-
ins þau að maðurinn missti stjórn á
bifreið sinni sem fór yfir á rangan
vegarhelming og í veg fyrir snjó-
ruðningstækið. Ökumann þess sak-
aði ekki.
Lögreglan lokaði Vesturlandsvegi
í um 1½ klukkustund vegna slyssins.
Harður árekstur á Kolás
Um klukkan 22 í gærkvöld varð
annar harður árekstur á Vestur-
landsveginum á Kolás, rétt neðan við
Munaðarnes. Tildrögin voru þau að
fólksbifreið á suðurleið var ekið
framúr vörubifreið og skall framan á
jeppa sem kom úr gagnstæðri átt.
Báðar bifreiðirnar hentust út af veg-
inum og varð að beita klippum til að
ná ökumanni fólksbifreiðarinnar út.
Ökumenn beggja bifreiða misstu
meðvitund, en að sögn lögreglu virt-
ust meiðsl ekki eins alvarleg og talið
var í fyrstu. Ökumennirnir voru
fluttir á sjúkrahús í Reykjavík en
farþegar þeirra sluppu án teljandi
meiðsla.