Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Valsson, formaður
Dýralæknafélags Íslands, segir
að bændur og dýralæknar þurfi
sameiginlega að stefna að því að
minnka sýklalyfjanotkun í land-
búnaði. Sú hætta sé ætíð fyrir
hendi að mikil sýklalyfjanotkun
leiði til lyfjaónæmis, þ.e. að
bakteríur myndi ónæmi gagn-
vart lyfjum.
Nýlega stóð dýralæknafélagið
fyrir ráðstefnu á Selfossi um
lyfjaónæmi. Meðal þeirra sem
sátu fundinn voru sérfræðing-
arnir Haraldur Briem og Karl
Kristinsson.
Ólafur sagði að menn væru sí-
fellt að gera sér betur grein fyr-
ir að samspil væri á milli lyfja-
ónæmis í mönnum og
lyfjaónæmis í dýrum. Mönnum
væri orðið ljóst að lyfjaónæmi
sem kæmi upp í dýrum gæti
leitt til ónæmis í mönnum og öf-
ugt. Baráttan gegn lyfjaónæmi
væri því ekki háð einangruð af
barnalæknum sem væru að fást
við börn með eyrnabólgur eða
dýralæknum sem væru að fást
við júgurbólgu í kúm heldur
bæri að líta á allan heiminn í
þessu sambandi og allar þær
bakteríur sem menn væru að
gefa sýklalyf við.
Lyfjaónæmi erfitt
viðureignar
Ólafur sagði að sem betur fer
hefðu Íslendingar verið aðhalds-
samir varðandi notkun sýkla-
lyfja í landbúnaði. Á sínum tíma
hefðu íslenskir dýralæknar stað-
ið fast gegn notkun sýklalyfja í
fóður og sýklalyfja til að flýta
vaxtarhraða, en slík notkun hef-
ur verið leyfð í mörgum öðrum
löndum. Ýmsir hefðu mótmælt
þessu banni hér á landi, en í dag
sæju flestir hvílíkt gæfuspor
þetta hefði verið.
Ólafur sagði mikilvægt að tak-
marka sýklalyfjanotkun í land-
búnaði hér á landi til að forða
því að menn lentu í vandamálum
með sýklaónæmi. Ef upp kæmi
sýklaónæmi þyrftu menn að
nota dýrari lyf eða jafnvel gæti
sú staða komið upp að engin lyf
dygðu. Hann sagði að sýklalyfja-
notkun í íslenskum landbúnaði
hefði staðið í stað á síðustu ár-
um. Dýralæknar vildu hins veg-
ar sjá hana minnka.
Ólafur sagði að mest notkun á
sýklalyfjum hér á landi væri
vegna júgurbólgu í kúm. Hann
sagði að vissulega væri oft
ástæða til að gefa sýklalyf, en
dýralæknar væru þeirrar skoð-
unar að það væri nauðsynlegt að
hefja ekki sýkalyfjameðferð
nema að undangenginni með-
ferð. Nýlega hefði verið sett sér-
stök reglugerð um þetta. Ólafur
sagðist hafa orðið var við gagn-
rýni bænda á hana, en þeir yrðu
hins vegar að átta sig á hvaða
markmið lægi að baki, þ.e. ótt-
inn við að mikil sýklalyfjanotkun
gæti leitt til lyfjaónæmis.
Ólafur sagði að vissulega væri
oft ástæða til að beita lyfjagjöf í
baráttu gegn júgurbólgu. Bænd-
ur þyrftu hins vegar í auknum
mæli að einbeita sér að forvörn-
um í stað þess að einblína á lyf-
in. Júgurbólga kæmi ekki síst
upp vegna þess að eitthvað vant-
aði upp á aðbúnað gripanna eða
að mjaltatæknin væri ekki í lagi.
Dýralæknar óttast hættuna af
lyfjaónæmi í landbúnaði
Þörf á að
draga úr sýkla-
lyfjanotkun
BJÖRGUNARSKÓLI Slysavarna-
félagsins Landsbjargar hefur nú
tekið upp nýtt 72 tíma námskeið í
fyrstu hjálp sem er ætlað björgun-
arsveitamönnum. Námskeiðið er
haldið í samvinnu við Wilderness
Medical Associates í Bandaríkjun-
um og heitir „Fyrsta hjálp í óbyggð-
um“ eða Wilderness First Respon-
der. Þátttakendur verða að vera 20
ára eða eldri og hafa lokið grunn-
þjálfun í skyndihjálp samkvæmt
námsskrá Björgunarskólans.
Björgunarskólinn gerir kröfu um
endurmenntun á þriggja ára fresti.
Á námskeiðinu sem er samtals 72
klukkustundir, fá björgunarmenn
þjálfun í fyrstu hjálp með sérstakri
áherslu á óbyggðir sem miðast við
að a.m.k. 2 klukkustundir séu þar til
sjúklingurinn getur fengið sér-
hæfða aðstoð.
Meðal annars er björgunarmönn-
um kennt innan ákveðinna marka
að framkvæma skoðun og veita
meðferð í ákveðnum tilfellum. Í
þessum ákveðnu tilfellum er unnið
eftir 5 vinnureglum sem landlæknir
hefur nú þegar samþykkt að nota
megi á Íslandi.
Með samþykki Landlæknis á
vinnureglunum eru björgunarsveit-
armönnum sem hlotið hafa þar til
gerða þjálfun veitt aukin réttindi til
aðhlynningar slasaðra utan alfara-
leiða.
Vinnureglurnar fimm, sem gilda
aðeins í óbyggðum, eru eftirfarandi:
1. Bráðaofnæmi:
Björgunarmaður lærir að þekkja
einkenni bráðaofnæmis og með-
höndla það með því að gefa adr-
enalín undir húð og dífenhýdramín
töflur um munn. Læknir getur ávís-
að þessum lyfjum til þeirra björg-
unarmanna sem hafa réttindi til að
vinna eftir þessari vinnureglu.
Þessi eina vinnuregla gildir þó
einnig utan óbyggða.
2. Sárameðferð: Björgunarmaður
lærir að hreinsa sár og jafnvel að
fjarlægja aðskotahluti við vissar að-
stæður.
3. Endurlífgun: Björgunarmaður
framkvæmir endurlífgun sam-
kvæmt núgildandi staðli en má
hætta endurlífgun á eðlilega heitum
sjúklingi eftir 30 mínútur hafi eng-
inn árangur náðst.
4. Hryggáverkar: Björgunarmað-
ur lærir að framkvæma nákvæma
skoðun og mat á sjúklingi með
hugsanlega hryggáverka. Þetta er
gert til þess að björgunarmaður
geti tekið ákvörðum um hvernig
flytja skuli sjúkling til byggða og
hvernig óhætt sé að hreyfa hann.
5. Liðhlaup: Björgunarmaður
lærir að meta liðhlaup og setja í lið
ef liðhlaup verður við óbeinan
áverka á öxl, hnéskel, fingri eða tá.
Landlæknir samþykkir nýjar vinnureglur um meðhöndlun slasaðra utan alfaraleiðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Björgunarfólk efndi til sýnikennslu í meðhöndlun slasaðra.
Björgunarsveit-
arfólki veitt
aukin réttindi
til aðhlynningar
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, hefur
gefið öllum alþingismönnum bók,
sem ber heitið Hagfræði í hnot-
skurn. Björgvin Guðmundsson, for-
maður Heimdallar, afhenti Guð-
mundi Árna Stefánssyni, starfandi
forseta Alþingis, fyrstu bókina og
sagði að hún sýndi með dæmum
nokkrar algengar ranghugmyndir
sem viðgengjust í umræðu um
þjóðfélagsmál.
„Það er von Heimdallar að eftir
lestur bókarinnar hafi alþing-
ismenn meginreglur hagfræðinnar
í huga við ákvarðanatöku og laga-
setningu,“ sagði Björgvin.
Að sögn Björgvins er rauði þráð-
urinn í bókinni sá að ekki skuli að-
eins líta á skammtímaafleiðingar
ákvarðana heldur líka á lang-
tímaáhrifin. Í henni kemur fram að
ekki skal aðeins líta á þau áhrif
sem ákvarðanir hafa á einn hóp
manna heldur á alla menn og að
ekki er nóg að skoða aðeins beinar
afleiðingar heldur verður að taka
þær óbeinu með í reikninginn.
„Þetta kann að virðast einfalt og
augljóst en eins og sýnt er fram á
með dómum í bókinni hefur mönn-
um þó gengið illa að fara eftir
þessu.“ Guðmundur Árni sagði að
þingmenn í öllum flokkum væru
víðsýnir og fögnuðu því að fá tæki-
færi til þess að kynna sér ólík við-
horf til þjóðfélagsmála.
„Þeir létu þess getið að þessi bók
væri almenns eðlis og menn þyrftu
ekki að vera sérfróðir í greininni
til þess að skilja innihaldið,“ sagði
Guðmundur Árni. „Alþingismenn
eru vanir að lesa hratt og mikið og
ég trúi að við getum haft eitthvert
gagn af þessum lestri eins og öðr-
um.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðmundur Árni Stefánsson, starfandi forseti Alþingis, tekur við bóka-
gjöf úr hendi Björgvins Guðmundssonar, formanns Heimdallar.
Alþingismenn fá
bók um hagfræði
FUNDUR var í kjaradeilu
sjómanna og útgerðarmanna í
húsakynnum ríkissáttasemjara
í gær. Þá hefur nýrri kjara-
deilu verið vísað til ríkissátta-
semjara þar sem við eigast
Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafn-
arfirði og launanefnd sveitar-
félaga.
Einnig funduðu í gær
þroskaþjálfar og dýralæknar
með sínum viðsemjendum í
gær. Ekki var í sjónmáli í gær
að gengið yrði frá einhverjum
kjarasamningum.
Fundað í
sjómanna-
deilunni
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt mann til mánaðar fang-
elsisvistar fyrir að stela myndbands-
spólu að verðmæti samtals 1.795
krónur.
Í dómnum segir að maðurinn, sem
er um fertugt, eigi samfelldan sak-
arferil frá árinu 1980. Hann hefur
aðallega hlotið refsidóma fyrir um-
ferðarlagabrot, en einnig fyrir
áfengislagabrot, nytjastuld, þjófnað
og tilraun til þjófnaðar. Við ákvörð-
un refsingar var litið til brotaferils
ákærða. Maðurinn hefur alls 8 sinn-
um gengist undir sektargreiðslu fyr-
ir áfengis- og umferðarlagabrot,
þjófnað, fjárdrátt, líkamsárás, nytja-
stuld og brot gegn ávana- og fíkni-
efnalöggjöf.
Hann hefur hlotið sex mánaða
fangelsi fyrir þjófnað og einu sinni
fyrir tilraun til þjófnaðar en þá hlaut
hann 4 mánaða fangelsi. Hann hefur
ennfremur verið dæmdur fyrir akst-
ur án ökuréttar.
Ragnheiður Bragadóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Mánaðarfang-
elsi fyrir að
stela mynd-
bandsspólu